Fréttir
14.7.2005
Orlofsuppbót 2005
Orlofsuppbót fyrir orlofsárið sem hefst 1. maí 2005 er kr. 21.800 miðað við fullt starf fyrir flestar starfsgreinar nema verslunarmenn. Orlofsuppbót verslunarmanna er kr. 16.500. Greiða á upphæðina út í upphafi orlofstöku en í síðasta lagi 15. ágúst.
13.7.2005
Af Kyoto-markmiðum og G8 fundinum í Gleneagles
Af þeim vestrænum ríkjum sem hafa staðfest Kyoto-bókunina hefur aðeins fáum þegar tekist að ná markmiðum um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda. Ísland er þeirra á meðal, en dregið hefur úr losun lofttegundanna á Íslandi frá árinu 1990. Á árinu 2003 jókst útblástur gróðurhúsa- lofttegunda hlutfallslega meira í Evrópusambandinu en í Bandaríkjunum. Í síðustu viku samþykktu stjórnendur átta helstu iðnríkja heims tímamótaályktun um loftslagsmál og losun gróðurhúslofttegunda til að draga úr losuninni til framtíðar.
12.7.2005
Íbúðalánasjóður misskilur gagnrýni SA
8.7.2005
Ómálefnaleg viðbrögð starfsmanna Íbúðalánasjóðs
Viðbrögð starfsmanna Íbúðalánasjóðs við greiningu SA á vanda sjóðsins hafa einkennst af skætingi. Niðurstöður SA byggja á varfærnum forsendum sem skýrt koma fram í greinargerð samtakanna og það hefur engin efnisleg gagnrýni komið fram á þær. Það hlýtur að ganga í berhögg við einkavæðingarstefnu stjórnvalda að nú virðist kominn á sviðið nýr ríkisbanki sem aflar fjár með útboðum og endurlánar til fyrirtækja með ríkisábyrgð, í skjóli langsóttra röksemda um áhættustýringu.
7.7.2005
Opinber fjármálastjórn og fækkun starfa í atvinnulífinu
Störfum fækkar í gengisháðum greinum í alþjóðlegri samkeppni og miklu meira aðhald opinberra fjármála er nauðsynlegt til að sporna gegn þeirri öfugþróun sem hátt gengi krónunnar hefur í för með sér, segir
7.7.2005
Eigið fé Íbúðalánasjóðs tapað á einu ári vegna uppgreiðslna?
Ætla má að tap Íbúðalánasjóðs vegna uppgreiðslna eldri lána geti numið allt að 15 milljörðum króna frá því um mitt síðasta ár. Það er ríflega tveimur milljörðum meira en allt eigið fé sjóðsins var í árslok 2004. SA áætla að uppgreiðslur eldri lána Íbúðalánasjóðs síðasta árið hafi verið um 140 milljarðar króna og vaxtamunur sjóðsins vegna eldri lána verði neikvæður. Til að bregðast við vandanum hefur Íbúðalánasjóður m.a. lánað fjármálafyrirtækjum yfir 80 milljarða króna með ríkisábyrgð, sem efast má um að samræmist tilgangi hans. Þá virðist einsýnt að sjóðurinn tapi á þeim viðskiptum.
7.7.2005
Þúsundir starfa horfin í sjávarútvegi og iðnaði
Hátt gengi krónunnar undanfarin ár hefur stuðlað að verulegri fækkun starfa í iðnaði og sjávarútvegi – um rúm 4.000 frá árinu 1998 - og enn sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Öflugur útflutningsgeiri og kraftmikil samkeppni við innfluttar vörur og þjónustu er hins vegar forsenda jafnvægis í utanríkisviðskiptum og áframhaldandi hagvaxtar. Hátt kostnaðarstig er því mikið áhyggjuefni.
5.7.2005
Lagafrumvarp um efni og efnavöru: ábendingar berist SA
SA hafa borist til umsagnar drög að frumvarpi til laga um efni og efnavöru, sem unnið var af nefnd opinberra starfsmanna. Þar er m.a. að finna fjölmargar nýjungar um efnavöru-skráningu, leyfi til markaðssetningar nýrra efna, ítarlegar kröfur um upplýsingaskyldu auk viðamikilla krafna um eftirlit, leyfisveitingar, gjaldtöku og fleira. SA hafa frest til 20. ágúst til að skila inn athugasemdum við frumvarpið og þeir sem vilja kynna sér frumvarpið og
5.7.2005
SA gera kannanir með fjármálaráðuneyti og Seðlabanka
Samkomulag hefur orðið um að SA gangi til samstarfs við fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands um gerð kannana meðal fyrirtækja á horfum í rekstri og efnahagsmálum, sem IMG Gallup framkvæmir. Samhliða munu SA láta af gerð eigin kannana meðal aðildarfyrirtækja sinna, sem hafa verið um margt sambærilegar.
1.7.2005
Japan í september, Pólland í október
Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefnd til Japans dagana 12.-19. september nk. og fer Davíð Oddsson utan-ríkisráðherra fyrir sendinefndinni. Þá fer Valgerður Sverris-dóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra fyrir viðskiptasendinefnd sem fyrirhuguð er til Póllands í október. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.










