Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

27.4.2005

Um 500 milljóna kostnaður vegna siglingaverndar

Þann 1. júlí 2004 tóku gildi lög um siglingavernd hér á landi. Lög þessi eiga að tryggja öryggi vöru, skipa og farþega og eru sett til að draga úr ógn vegna hryðjuverka. Ætla má að árlegur kostnaður vegna þeirra geti verið um 500 mkr. og að þessi kostnaður leggist fyrst og fremst á neytendur með því að vöruverð hækkar. Mikilvægt er að gæta ítrustu hagkvæmni við framkvæmdina.

26.4.2005

Fjögur fyrirtæki fá umhverfisviðurkenningu

Orkuveita Reykjavíkur hlaut Kuðunginn, umhverfisviður-kenningu umhverfisráðuneytisins, í ár. Einnig hlutu fyrirtækin Hjá GuðjónÓ, Málning hf. og Prentsmiðjan Oddi viður-kenningar frá ráðuneytinu, sem vill með þessu móti vekja athygli á þeim fyrirtækjum sem skara fram úr á sviði umhverfismála og hvetja þau og önnur til góðra verka á þessu sviði. Sjá nánar á vef umhverfisráðuneytisins.

22.4.2005

Umsóknir í Þróunarsjóð EFTA

Á næstu vikum verður opnað fyrir umsóknir í Þróunarsjóð EFTA. Verkefnin eiga að snúa að efnaminni aðildarríkjum ESB en æskilegt þykir að hluti fjárins gangi til verkefna sem styrki tengslin milli EFTA-ríkjanna og styrkþegaríkjanna. Verkefnin geta m.a. snúið að endurnýtanlegum orkugjöfum, auðlinda-stjórnun, umhverfismálum og hugbúnaðarlausnum.

19.4.2005

Orkugeirinn í Samtök atvinnulífsins

Stjórn SA hefur samþykkt umsókn Samorku um að gerast aðili að SA sem sjálfstætt aðildarfélag. Samorka, samtök raforku-, hita- og vatnsveitna, verður því  áttunda aðildarfélag SA og öll 38 aðildarfyrirtæki Samorku verða jafnframt aðildarfyrirtæki SA. Innganga Samorku eflir enn stöðu SA sem heildar-samtaka íslensks atvinnulífs.

19.4.2005

Samþykktar Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum

Stjórn SA hefur samþykkt texta í nýjar Áherslur atvinnulífsins í ellefu málaflokkum, sem drög hafa verið lögð að í öflugu málefnastarfi samtakanna undanfarna mánuði. Fjallað er um efnahagsmál, vinnumarkaðsmál, skattamál, reglubyrði og eftirlit, samkeppnismál, menntamál, rannsóknir og nýsköpun, umhverfismál, jafnréttismál, lífeyrismál og alþjóðamál.

12.4.2005

2,6% atvinnuleysi í mars

Í marsmánuði voru skráðir 87.300 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.799 manns hafi að meðal-tali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,8% í febrúar sl. en 3,5% í mars á síðasta ári. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

12.4.2005

Reykbann, markaðsmál, samgöngumiðstöð...

Aðalfundur Samtaka ferðaþjónustunnar samþykkti m.a. ályktun um stöðu greinarinnar þar sem lýst er yfir vonbrigðum með samdrátt í opinberum framlögum til markaðsmála í greininni, ályktun þar sem fagnað er áætlunum um byggingu samgöngumiðstöðvar og ályktun um reykbann á veitinga-stöðum frá og með 1. júní 2007. Sjá nánar í fréttabréfi SAF.

12.4.2005

Nýjar reglur um titring á vinnustöðum

Hjá Vinnueftirliti ríkisins eru nú í undirbúningi nýjar reglur um varnir gegn áhrifum titrings á vinnustöðum. Um er að ræða vinnu með titrandi vélar, verkfæri eða áhöld og einnig störf þar sem starfsmenn sitja eða standa á titrandi undirlagi, svo sem í vinnuvélum eða flutningabílum. Nánari upplýsingar má nálgast hjá SA, eða koma á framfæri athugasemdum.

11.4.2005

Umsögn SA um frumvarp til samkeppnislaga

Í umsögn sinni um frumvarp til samkeppnislaga fagna Samtök atvinnulífsins þeim hugmyndum sem lagt er til að gerðar verði á skipulagi samkeppnisyfirvalda, enda eru þær í anda þess sem samtökin hafa áður lagt til. SA gera hins vegar athuga-semdir við tiltekin atriði frumvarpsins og telja jafnframt mjög brýnt að taka á atriðum í lögunum sem ekki sæta endur-skoðun í frumvarpinu.

7.4.2005

Mikil kaupmáttaraukning

Fyrir liggur að aðilar að kjarasamningum hafa valið vísitölu neysluverðs sem grundvöll skoðunar á framvindu kjara-samninga, segir Ari Edwald framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir þó m.a. að vegna mikillar verðhækkunar fasteigna undanfarin ár gefi vísitala neysluverðs án húsnæðisliðar betri mynd þegar kaupmáttur launa er skoðaður, en þannig reiknaður hefur hann aukist um 4,3% á einu ári.

7.4.2005

Áhrif vaxtalækkana á kaupmátt vanmetin

Lækkun vaxta af húsnæðislánum úr 5,1% í 4,15% hefur mikil áhrif á ráðstöfunarfé og kaupgetu þeirra sem skulda í eigin húsnæði. Fyrir hjón með 350 þúsund krónur á mánuði og 10 milljóna króna húsnæðisskuld jafngildir breytingin 1,5% kaupmáttaraukningu.

7.4.2005

Varað við brögðum í tafli

Ástæða er til að vara íslensk fyrirtæki við erindum frá fyrir-tækjum þar sem óskað er staðfestingar á faxi á upplýsingum um símanúmer, heimilisfang o.fl. Nokkur fyrirtæki hafa bitið á agnið og í kjölfarið fengið reikninga frá Nordisk Industri fyrir birtingu upplýsinga í gagnabönkum. Fyrirtæki sem fá slíka reikninga eru hvött til að borga þá ekki en koma þeim á framfæri við SA.

6.4.2005

Sala og markaðssetninga á netinu, á aðalfundi SAF

Meginþema aðalfundar Samtaka ferðaþjónustunnar, sem haldinn verður á Grand Hótel fimmtudaginn 7. apríl, verður sala og markaðssetning á netinu. Meðal annars mun Theodore Evers, einn af framkvæmdastjórum Travelocity.com, fjallar um þessa dreifileið. Sjá nánar á vef SAF.

4.4.2005

Ármann, Jón Ásgeir, Katrín, Ragnhildur og Svafa

Áherslur atvinnulífsins og framtíðarsýnin verða efni umræðna á aðalfundi SA 3. maí nk., að loknum ræðum formanns SA og Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra. Þátttakendur verða þau Ármann Þorvaldsson framkvæmdastjóri fyrirtækja-ráðgjafar KB banka, Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs Group, Katrín Pétursdóttir forstjóri Lýsis hf., Ragnhildur Geirsdóttir forstjóri FL Group og Svafa Grönfeldt fram-kvæmdastjóri stjórnunarsviðs Actavis Group. Umræðunum stýrir Páll Magnússon fréttastjóri Stöðvar 2. Sjá nánar um aðalfund SA.

1.4.2005

Tékkland, Pólland, Danmörk, Mexíkó...

Viðskiptasendinefndum Útflutningsráðs er m.a. ætlað hafa vakandi auga með tækifærum fyrir íslensk fyrirtæki á nýjum mörkuðum í þeim tilgangi að aðstoða þau að koma sér á framfæri í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi. Á þessu ári verða m.a. skipulagðar sendinefndir til Tékklands, Slóvakíu, Póllands, Danmerkur og Mexíkó. Sjá nánar á vef Útflutnings-ráðs.

RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english