Fréttir
29.11.2005
Beinar greiðslur fyrirtækja í fræðslusjóði verkafólks
Í kjarasamningum vorið 2004 var samið um beinar greiðslur atvinnurekenda í fræðslusjóði verkafólks. Frá 1. janúar 2006 er gjaldið 0,05% af launum, en verður 0,15% frá 1. janúar 2007. Á samningssvæði Flóabandalagsins verður gjaldið innheimt af lífeyrissjóðum samhliða innheimtu annarra sjóðagjalda en á landsbyggðinni verður samið við lífeyrissjóði eða stéttarfélög um innheimtuna.
25.11.2005
Karlar um borð – karlaráðstefna um jafnréttismál 1. des.
Hafa karlar skoðun á jafnréttismálum? Vilja karlar sömu laun fyrir sömu vinnu? Eru jafnréttismál kvennabarátta? Þessar spurningar o.fl. verða til umfjöllunar á karlaráðstefnu um jafnréttismál, sem haldin verður í Salnum Kópavogi fimmtudaginn 1. desember nk. kl. 9 til 12. Ráðstefnan er eingöngu ætluð körlum, með þeirri undantekningu að Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, mun ávarpa ráðstefnuna og sitja hana sem verndari og heiðursgestur. Að ráðstefnunni standa SA, félagsmálaráðuneytið, Íslandsbanki, Morgunblaðið, VR og Viðskiptaháskólinn á Bifröst. Sjá nánar á vef félagsmálaráðuneytisins.
25.11.2005
Ný reglugerð um öryggis- og heilbrigðisstarf á vinnustöðum
Undanfarna rúma 20 mánuði hefur verið unnið að því á vegum Vinnueftirlits ríkisins að semja ný drög að reglugerð um öryggis- og heilbrigðisstarf á vinnustöðum. Reglugerð þessi sem sett verður samkvæmt lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum á að koma í stað reglna nr. 77/1982 um sama efni. Einnig er nú tekið mið af þeim breytingum sem urðu á lögunum með lögum nr. 68/2003 þar sem atvinnurekendur eru gerðir ábyrgir fyrir því að gerð sé skrifleg áætlun um heilbrigði og öryggi á vinnustað ásamt mati á áhættu, áætlun um heilsuvernd og að þetta sé gert í samráði við starfsmenn. Reglugerðinni er ætlað að ná til allra vinnustaða stórra og smárra.
23.11.2005
Mikilvægt skref í átt að frelsi í þjónustuviðskiptum
Evrópuþingið hefur færst nær niðurstöðu um raunverulegt frelsi í þjónustuviðskiptum, en tilskipunardrög þar að lútandi hafa nú verið afgreidd úr nefnd þingsins um innri markaðinn og neytendamál. UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, fagna niðurstöðunni sem mikilvægu skrefi í átt að raunverulegu frelsi í þjónustuviðskiptum. Forseti samtakanna segir frelsi í þjónustuviðskiptum nauðsynlegt til þess að efla hagvöxt, auka samkeppni og fjölga störfum.
22.11.2005
Samið um lægri tolla til Rússlands
Tollar á allar helstu útflutningsvörur frá Íslandi til Rússlands munu lækka verulega eftir að Rússland fær aðild að Alþjóðaviðskiptastofnuninni WTO, skv. samningi Íslands og Rússlands í tengslum við framtíðaraðild Rússlands að stofnuninni. Aðlögunartíminn er almennt tvö ár. Nýlega var undirritaður sambærilegur samningur við Úkraínu. Sjá nánar í Stiklum (27. tbl. 2005), vefriti viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
18.11.2005
Hagnaður fyrirtækja undirstaða betra umhverfis
16.11.2005
Fundur um úrvinnslugjald á umbúðir
Samtök iðnaðarins og SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu boða til morgunverðarfundar um álagningu úrvinnslugjalds á umbúðir úr pappa, pappír og plasti miðvikudaginn 23. nóvember frá 8:30 til 10:00 á Grand Hótel, en umrædd álagning hefst nú um áramót. Meðal annars verða kynntar reglur um undanþágu frá gjaldinu vegna útflutnings. Sjá nánar á vef SI.
15.11.2005
Samkomulag SA og ASÍ um framhald kjarasamninga
Undirritað hefur verið samkomulag í nefnd SA og ASÍ um forsendur frá vorinu 2004. Aðilar eru sammála um að forsendur hafi ekki staðist. Niðurstaða nefndarinnar kveður m.a. á um 0,65% hækkun launa í janúar 2007 til viðbótar við umsamdar hækkanir samninga og 26.000 króna eingreiðslu í desember nk. Þá gerðu aðilar samkomulag um breytingar á atvinnuleysisbótum þar sem m.a. er kveðið á um tekjutengingu bóta að hluta. Samhliða þessu gaf Ríkisstjórn Íslands út yfirlýsingu þar sem m.a. kemur fram að dregið skuli úr vaxandi örorkubyrði lífeyrissjóða, lögfestar breytingar á atvinnuleysisbótum, gert átak í starfsmenntamálum ófaglærðra og sett fram frumvarp til laga um starfsmannaleigur.
11.11.2005
1,4% atvinnuleysi í október
Í októbermánuði síðastliðnum voru skráðir 46.025 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.193 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,4% í september sl. en 2,7% í október 2004. Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna í einstökum mánuði síðan í október 2001. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
11.11.2005
Kaupmáttur launa jókst um 1,4% á almennum vinnumarkaði
Regluleg laun hækkuðu að meðaltali um 5,4% á tímabilinu frá 3. ársfjórðungi 2004 til 3. ársfjórðungs 2005 í iðnaði, byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, verslun og viðgerðarþjónustu. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 4,0%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 1,4% í þessum atvinnugreinum, að því er fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands. Sjá nánar á vef Hagstofunnar
10.11.2005
Sveitarfélögin axla ekki hagstjórnarábyrgð
Sveitarfélögin hafa í heild ekki axlað hagstjórnarábyrgð með viðunandi hætti og að óbreyttu væri beinlínis óæskilegt frá sjónarhorni hagstjórnar að auka vægi sveitarfélaga í þjóðarbúskapnum, sagði
10.11.2005
Alcan á Íslandi hlýtur íslensku gæðaverðlaunin 2005
Íslensku gæðaverðlaunin í ár hlýtur fyrirtækið Alcan á Íslandi. Fyrirtækið rekur álver í Straumsvík þar sem framleiðslan nú er 20% meiri en verksmiðjan er hönnuð til að framleiða, en sá árangur skýrist af mikilli tækni- og verkþekkingu sem orðið hefur til innan fyrirtækisins auk markvissrar stjórnunar. Fyrirtækið hefur vottað gæðakerfi (ISO 9001), umhverfisstjórnunarkerfi (ISO 14001) og öryggisstjórnunarkerfi (OHSAS 18001) og hefur verið leiðandi á ýmsum sviðum. Að íslensku gæðaverðlaununum standa Samtök atvinnulífsins, forsætisráðuneytið, Verzlunarmannafélag Reykjavíkur, Háskóli Ísland og Stjórnvísi. Sjá nánar á vef Stjórnvísi.
9.11.2005
Umræður um launamun kynjanna
Í nýlegu fréttabréfi SN, sænsku samtaka atvinnulífsins, er því haldið fram að óútskýranlegur eða ómálefnalegur launamunur kynjanna sé goðsögn. Fjallað er um nýlega rannsókn Arbetsgiververket, vinnuveitendastofnunar ríkisins í Svíþjóð, þar sem 14,7% munur á heildarlaunum karla og kvenna er að mestu skýrður með þáttum á borð við vinnutíma, reynslu, eðli starfa og eðli verkefna. Eftir stendur 1,5% óútskýrður launamunur. Nýleg rannsókn SN skilaði svipuðum niðurstöðum, en þar voru rannsökuð gögn um launagreiðslur til 1,5 milljóna starfsmanna á almennum vinnumarkaði í Svíþjóð. Hér vakna hins vegar spurningar um ástæður t.d. þess að karlar séu oftar en konur í stjórnunarstöðum.
8.11.2005
Færri ár í framhaldsskóla
Fjöldi framhaldsskólakennara mótmælir um þessar mundir fyrirhugaðri fækkun ára í framhaldsskóla. Í grein í Morgunblaðinu spyr
7.11.2005
Áhersla á hagnýta menntun fyrir atvinnulífið
3.11.2005
Uppsögn kjarasamninga?
Yfirlýsing miðstjórnar ASÍ, þess efnis að einsýnt þyki að koma muni til uppsagnar kjarasamninga, hlýtur að teljast með miklum ólíkindum ef horft er til stöðu viðræðna milli aðila og þróunar kaupmáttar í landinu, segir
3.11.2005
Kaupmáttur launa aldrei verið hærri
Kaupmáttur launa hefur aldrei verið hærri en nú en hann hefur vaxið um 40% á tíu árum. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefur á sama tíma vaxið um 60%, m.a. vegna skattalækkana. Hærri greiðslur atvinnurekenda til lífeyrissjóða, sem áhersla hefur verið lögð á í síðustu kjarasamningum, teljast ekki með í þessum mælingum. Loks stafa þrír fjórðu hlutar verðbólgu undanfarna tólf mánuði af hækkun fasteignaverðs. Ekki er með nokkru móti hægt að halda því fram að hallað hafi á félagsmenn verkalýðsfélaganna það sem af er samningstímanum þar sem kaupmáttur launa er í sögulegu hámarki hvernig sem á hann er litið.
3.11.2005
Áfengis- og vímuefnapróf á vinnustað
Samkvæmt nýrri könnun styðjast 70 af 100 stærstu fyrirtækjum í Svíþjóð við próf til að sporna gegn vímuefnanotkun meðal starfsmanna sinna og í flestum atvinnugreinum eru fyrirtæki farin að gera kröfu um að starfsfólk sitt undirgangist vímuefnapróf, sem stuðla að auknu öryggi á vinnustað. Er þessi þróun í Svíþjóð í takt við þróunina í Evrópu í heild og hefur Mannréttindadómstóll Evrópu úrskurðað slík próf réttlætanleg. Íslensk fyrirtæki hafa áskilið sér rétt til að kalla starfsmenn í vímuefnapróf í starfsumsókn og ráðningarsamningi sem starfsmaður undirritar, þótt það sé ekki algengt enn sem komið er.
3.11.2005
Upplýsingar um umhverfismál - fyrirtæki gæti hagsmuna sinna
Umhverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um upplýsingarétt um umhverfismál. Meginreglan er sú að almenningur getur fengið allar upplýsingar um umhverfismál sem fyrir liggja hjá stjórnvöldum eða þeim sem starfa í umboði stjórnvalda. Mikilvægt er að fyrirtæki fari yfir það hvaða upplýsingar eru látnar í hendur stjórnvalda og taki það fram ef upplýsingarnar varða fjárhags- eða viðskiptahagsmuni sem skuli fara leynt.
3.11.2005
Viltu ráða háskólanema frá Austur-Evrópu?
Íslenskum fyrirtækjum stendur nú til boða að ráða til sín háskólastúdenta frá Austur-Evrópu. Það eru Aiesec, alþjóðleg samtök háskólastúdenta, sem hafa milligöngu um ráðningu þeirra undir merkjum verkefnisins EuroXperience en það hófst í upphafi ársins. Markmið Aiesec með verkefninu er að styðja við stækkun ESB frá 2004 með því að bæta tengslin milli austur og vesturhluta Evrópu. Ráðningartími er tveir til átján mánuðir og lágmarkslaun eru 130 þúsund krónur á mánuði.
2.11.2005
Nýr starfsmaður á Evrópuskrifstofu SA í Brussel
Eva Margrét Ævarsdóttir lögfræðingur hefur verið ráðin til starfa á Evrópuskrifstofu SA í Brussel. Eva Margrét útskrifaðist sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands og er með LL.M. gráðu í Evrópurétti frá Katholieke Universiteit í Leuven í Belgíu. Áður hefur hún m.a. starfað sem lögmaður og rekið Lögmannsstofuna Síðumúla 9 (nú Lögborg) og unnið sem nefndaritari á nefndasviði skrifstofu Alþingis. Eva Margrét tekur við af Ástfríði M. Sigurðardóttur sem starfsmaður SA í Brussel, en Ástfríður lætur af störfum hjá SA í nóvemberlok. Eva Margrét hefur þegar hafið störf og mun starfa við hlið Ástfríðar fyrst um sinn. Sjá nánar um Evrópuskrifstofu SA í Brussel.
1.11.2005
Lækkun á greiðslum í starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks
Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks hefur tekið í notkun nýjan vef þar sem er að finna margvíslegar upplýsingar um skyldur fyrirtækja gagnvart sjóðnum ásamt upplýsingum um rétt þeirra. Almennt borga fyrirtæki 0,15% af launum verslunar- og skrifstofufólks í sjóðinn en geta sótt um lækkun á framlaginu í 0,05% ef þau standa sig vel í starfsmenntamálum. Að auki geta þau sótt um styrki til sjóðsins. Sjóðurinn er eign Verzlunarmannafélags Reykjavíkur, Landssambands ísl. verzlunarmanna og Samtaka atvinnulífsins. Markmið sjóðsins er að auka hæfni og menntun verslunar- og skrifstofufólks, ásamt því að stuðla að auknu framboði af námi og námsefni sem svari þörfum atvinnulífsins á hverjum tíma. Sjá nánar: www.starfsmennt.is.












