Fréttir
31.1.2005
Fyrirtæki á Íslandi fremst á sviði sjálfbærrar þróunar
Tvö fyrirtæki sem starfa á Íslandi eru á lista WEF í Davos yfir hundrað fremstu fyrirtæki heimsins á sviði sjálfbærrar þróunar, Alcoa og Alcan. Þrjú fyrirtæki þóttu skara fram úr meðal fyrirtækjanna hundrað og var þeirra sérstaklega getið fyrir framúrskarandi árangur. Fyrirtækin þrjú eru Toyota, Alcoa og BP.
28.1.2005
Kynntar áherslur Starfsmenntaráðs
Árlegur opinn fundur Starfsmenntaráðs verður haldinn á Kaffi Reykjavík, Vesturgötu 2, þriðjudaginn 8. febrúar nk. kl. 12. Á fundinum verða kynntar áherslur við úthlutun úr starfs-menntasjóði árið 2005. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.
26.1.2005
Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis
Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskiptaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 11. febrúar 2005. Mennt veitir fyrirtækjum ráðgjöf og aðstoðar þau við gerð umsókna.
24.1.2005
Útboðsþing 2005 á Grand Hótel 28. janúar
Samtök iðnaðarins og Félag vinnuvélaeigenda halda árlegan upplýsingafund um opinberar framkvæmdir ársins á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 28. janúar frá kl. 13:00 til 17:00. Sjá nánar á vef SI.
21.1.2005
Ísland með hæsta hlutfall frumkvöðlastarfsemi í Evrópu
Samkvæmt niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar á frum-kvöðlastarfsemi, Global Entrepreneurship Monitor, er Ísland enn með hæsta hlutfall frumkvöðlastarfsemi af þeim Evrópulöndum sem taka þátt í rannsókninni. Háskólinn í Reykjavík er þátttakandi í könnuninni, með stuðning frá SA o.fl. Sjá nánar á vef HR.
19.1.2005
Viðsnúningur á vinnumarkaði
Störfum fjölgaði um 2% á síðasta ársfjórðungi 2004, skv. vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar. Þetta er viðsnúningur frá ársfjórðungunum á undan þar sem könnunin mældi fækkun starfa. Hins vegar fækkaði starfandi fólki á árinu 2004 um 0,5% og því virðist sem framleiðni hafi aukist um 5-6% á árinu.
19.1.2005
2,7% atvinnuleysi í desember
Í desember voru skráðir 94.060 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 2,7% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,6% í nóvember sl. og 3,1% í desember 2003.
19.1.2005
Samið við skipstjórnarmenn á sanddæluskipum
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli SA og Félags skipstjórnarmanna um kaup og kjör skipstjórnarmanna á sanddæluskipum. Með samningnum eru tveir kjarasamningar (skipstjóra og stýrimanna) felldir saman í einn og tekið upp fastlaunakerfi. Felld voru niður ýmis gömul ákvæði og samningurinn aðlagaður að nýgerðum kjarasamningum skipstjórnarmanna á kaupskipum. Samninginn er að finna á kjarasamningavef SA.
18.1.2005
Ráðstefna um upplýsingatækni 25. janúar: Þriðja stoðin
17.1.2005
Menntadagur iðnaðarins 18. janúar
Samtök iðnaðarins halda menntadag iðnaðarins í Versölum Hallveigarstíg þriðjudagsmorguninn 18. janúar. Yfirskrift dagskrárinnar er Mannauður, þekking, menntun. Meðal annars verður fjallað um um nýtingu mannauðs og hvernig auka megi þekkingu og færni starfsfólks. Sjá nánar á vef SI.
13.1.2005
Breytingar á skattaumhverfi – áherslur SA
Þróun skattumhverfis fyrirtækja hefur verið afar jákvæð undanfarin ár, en brýnustu verkefnin framundan eru m.a. afnám stimpilgjalds á viðskiptabréf, endurskoðun vörugjalda og virðisaukaskatts og frekari lækkun tekjuskatts fyrirtækja. Þetta kom fram í erindi Ara Edwald, framkvæmdastjóra SA, á skattadegi Deloitte, SA, VÍ og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins.
12.1.2005
Fundur um ábyrgð mengunarvalda og viðbragðsáætlanir
Föstudaginn 14. janúar nk. boða SA til kynningarfundar um ábyrgð mengunarvalds og viðbragðsáætlanir í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. Erindi flytja starfsmenn umhverfisráðuneytis og Umhverfisstofnunar. Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 35 og hefst kl. 14:00. Sjá nánar
11.1.2005
Siðferði í góðu lagi hjá íslenskum stjórnendum
Í nýrri könnun á siðferði í íslensku viðskiptalífi kemur fram að mál eru í ágætum farvegi. Stjórnendur segjast huga að siðferðilegum afleiðingum ákvarðanna sinna og þeir segja stöðu mála betri í dag en áður. Jafnframt telja þeir siðferði í viðskiptum á Íslandi vera betra en í nágrannalöndum. Könnunin var kynnt á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins, Glímunnar og Verslunarráðs sem fór fram í morgun, þar sem rætt var um traust og siðferði í íslensku viðskiptalífi.
10.1.2005
Skattadagur Deloitte, SA, VÍ og Mbl 13. janúar
8.1.2005
Hvaða forsendur standast ekki?
BHM halda því fram að forsendur standist ekki í samanburði SA á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna og fólks á almennum vinnumarkaði, en bera samt ekki á nokkurn hátt brigður á forsendur SA heldur tala um aðra hluti. Furðu sætir ef háskólamenn vilja ekki að borin séu saman epli og epli og engu er líkara en að upphrópun BHM sé ætlað að slá vitræna umræðu útaf borðinu.
7.1.2005
Traust í viðskiptalífinu – morgunverðarfundur 11. janúar
Þriðjudaginn 11. janúar standa Glíman (óháð tímarit um guðfræði og samfélag),
6.1.2005
Erlent starfsfólk nauðsynlegt við stórframkvæmdir
Um það ríkir enginn ágreiningur að öllum fyrirtækjum sem hér starfa, innlendum sem erlendum, ber að virða íslensk lög og íslenska kjarasamninga, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir umræðuna að undanförnu hafa verið með ólíkindum á köflum og minnir á að framboð af hæfu fólki til ýmissa verkframkvæmda sé einfaldlega ekki nægjanlegt í landinu um þessar mundir.
6.1.2005
Tíu milljónir á mann
Umframréttur opinberra starfsmanna til ellilífeyris er ígildi 10 milljóna króna starfslokagreiðslu, samanborið við sjóðfélaga í Lífeyrissjóði verslunarmanna, sé miðað við 250 þúsund króna mánaðarlaun, 42 ára iðgjaldagreiðslur og 3,5% vexti. Ef miðað er við 500 þúsund króna mánaðarlaun eru umfram-réttindin ígildi 20 milljóna króna starfslokagreiðslu.
6.1.2005
Ónógt aðhald í ríkisfjármálum
Á árunum 2000 til 2003 voru fjárlög að meðaltali afgreidd með 20 milljarða króna afgangi. Niðurstaða ríkisreiknings var að meðaltali 2,5 milljarða halli. Óreglulegir liðir eiga þó stóran þátt í þeirri niðurstöðu, t.d. bókfærðar lífeyrisskuldbindingar. Þessa reynslu þarf að hafa í huga þegar fjallað er um aðhald í ríkisfjármálum, sem almennt eru ekki talin nægilega aðhalds-söm til að sporna gegn þenslu í efnahagslífinu.
6.1.2005
Skattadagur Deloitte, SA, VÍ og Mbl 13. janúar
Fimmtudaginn 13. janúar kl. 8 til 11 verður Skattadagur Deloitte haldinn á Grand Hótel Reykjavík, í samvinnu við
5.1.2005
Staðgreiðsla, persónuafsláttur, launabreytingar...
Um áramótin tóku gildi launabreytingar, breytingar á lífeyris-framlögum, breytingar á skatthlutföllum í staðgreiðslu, persónuafslætti o.fl. Þessar breytingar hafa verið teknar saman á aðgengilegan hátt á vinnumarkaðsvef SA, sem opinn er félagsmönnum. Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA.
5.1.2005
Samningar í Finnlandi – 1,8% hækkun á ári
Nýlega voru undirritaðir miðlægir samningar í Finnlandi sem gilda frá miðjum febrúar 2005 til loka september 2007, eða í 30,5 mánuði. Samningurinn tekur til 90% launamanna á almennum vinnumarkaði. Launahækkunin frá 1. mars 2005 er 2,5% og 2,1% frá 1. júní 2006. Launahækkun á samnings-tímanum (tvö og hálft ár) er samkvæmt því 4,6% eða 1,8% á ári að meðaltali.
5.1.2005
Fundur um ábyrgð mengunarvalda og viðbragðsáætlanir
Föstudaginn 14. janúar nk. boða SA til kynningarfundar um ábyrgð mengunarvalds og viðbragðsáætlanir í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda. Erindi flytja starfsmenn umhverfisráðuneytis og Umhverfisstofnunar. Fundurinn verður haldinn í Borgartúni 35 og hefst kl. 14:00.










