Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.9.2004

Borgin beitir sér ekki vegna útboðs Sorpu

Í nýlegu bréfi SA var því beint til borgarstjóra að hann beitti sér fyrir endurskoðun á aðkomu Vélamiðstöðvarinnar að nýlegu útboði Sorpu. Tillaga þess efnis hefur verið felld í borgarráði, en í svari borgarstjóra til SA kemur fram að á meðan Vélamiðstöðin sé á leið úr almannaeigu telji borgar-yfirvöld ekki rétt að taka framfyrir hendur stjórnar fyrir-tækisins og hugsanlega rýra þar með verðmæti þess.

28.9.2004

Ábyrgt atvinnulíf

Áherslur SA í umfjöllun sinni um samkeppnismál og stjórnar-hætti fyrirtækja hafa í öllum megindráttum verið þær nákvæm-lega sömu og systursamtaka SA í Svíþjóð, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í Morgunblaðsgrein. Hann segir það að sjálfsögðu markmið SA að vinna með stjórnvöldum að jákvæðri þróun mála á þessu sviði.

27.9.2004

Jafnréttisviðurkenning 2004

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviður-kenningar fyrir árið 2004. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 1. október nk. Sjá nánar á vef Jafnréttisráðs.

23.9.2004

Markaðssetning á Netinu, ráðstefna 8. október

Föstudaginn 8. október stendur fjöldi fyrirtækja og samtaka að ráðstefnu um markaðssetningu á Netinu, þar sem þekktir erlendir sérfræðingar verða meðal framsögumanna. Ráðstefnan verður haldin í Smáralind. Sjá nánar á vef ráðstefnunnar.

22.9.2004

Stimpilgjöld - sérstaða Íslands

Ísland er nánast eina vestræna ríkið sem leggur stimpilgjald á öll skuldabréfaviðskipti, og er með sérstöðu í álagningu stimpilgjalds á útgáfu hlutabréfa. Einstaklingar greiða skattinn einkum í tengslum við fasteignakaup, en þar sem hann veitir rétt til vaxtabóta er hann þó að hluta til endur-greiddur að ári. Almennt þekkist ekki á hinum Norðurlönd-unum að lagt sé á stimpilgjald í annað sinn í tengslum við endurfjármögnun lána.

21.9.2004

Bréf til iðnaðar- og viðskiptaráðherra í kjölfar skýrslu

Í kjölfar skýrslu nefndar iðnaðar- og viðskiptaráðherra um íslenskt viðskiptaumhverfi sendu Verslunarráð, Kauphöll Íslands og Samtök atvinnulífsins ráðherra bréf til þess að vekja athygli á hlutverki Leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja.

20.9.2004

Námskeið um ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlana

Þann 30. september nk. stendur Staðlaráð Íslands fyrir námskeiði um lykilatriði, uppbyggingu og notkun ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna. Sjá nánar á vefsíðu Staðlaráðs.

16.9.2004

Borgin selji Vélamiðstöðina og Malbikunarstöðina Höfða

Borgarráð hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um mótuð verði tillaga að sölu hluts Reykjavíkurborgar í Vélamiðstöð ehf. og Malbikunarstöðinni Höfða hf. SA hljóta að fagna þessari niðurstöðu en í nýlegu bréfi samtakanna til borgarstjóra er hugmyndum í þessa veru m.a. fagnað. Í bréfinu er því hins vegar jafnframt beint til borgarstjóra að hann beiti sér fyrir endurskoðun á aðkomu Vélamiðstöðvarinnar að nýlegu útboði Sorpu.

15.9.2004

Starfsmenntaverðlaunin 2004

Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs og Menntar árið 2004 hljóta Landsbanki Íslands í flokki fyrirtækja, Samtök verslunar og þjónustu og Viðskiptaháskólinn á Bifröst í flokki fræðsluaðila, og Janus endurhæfing í opnum flokki. Verðlaunin eru veitt fyrir framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar. Sjá nánar á vef Menntar.

13.9.2004

FA: Óformlegt nám metið til eininga

Menntamálaráðuneytið hefur staðfest mat Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á 5 námsleiðum Mímis-símenntunar til eininga í framhaldsnámi. Á vegum FA er unnið að mati á fleiri námsleiðum, m.a. fagnámi fyrir verslunarfólk. Sjá nánar á vefsíðu FA, samstarfsvettvangs SA og ASÍ um fullorðins- og starfsmenntun á vinnumarkaði.

13.9.2004

Fundur um ný tækifæri í verslun og viðskiptum

Fimmtudaginn 30. september kl. 8:30-10:00 standa SVÞ og utanríkisráðuneytið fyrir fundi um þau tækifæri sem felast í fríverslunarsamningum sem íslenska ríkisstjórnin hefur gert á undanförnum árum. Fundurinn verður haldinn á 6. hæð í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Sjá nánar á vef SVÞ.

10.9.2004

2,9% atvinnuleysi í ágúst

Í ágústmánuði voru skráðir 98.011 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.452 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,9% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 3,0% í júlí sl. og 2,9% í ágúst 2003. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið minnki í september.

9.9.2004

Vöxtur, störf og velmegun til framtíðar

UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins hafa kynnt sýn atvinnu-lífsins fyrir Evrópu þar sem áhersla er lögð á vöxt, störf og velmegun til framtíðar. Meðal annars er lagt til að ný forysta ESB leggi bann við frekari lagasetning á félagslega sviðinu sem leggur kvaðir á fyrirtæki, í því skyni að tryggja betri virkni vinnumarkaðarins.

9.9.2004

Spennu mætt með erlendu starfsfólki

4% hagvöxtur ár eftir ár er langt umfram jafnaðarhagvöxt og því mun smám saman vaxa spenna á vinnumarkaði, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Heim. Hann segir þessari spennu verða mætt með erlendu starfsfólki, ekki sé nægilegt framboð af starfsfólki til að standa undir þessum hagvexti hér á landi. Sjá nánar á vef Heims.

6.9.2004

Alþjóðleg ráðstefna um samkeppnisreglur 10. september

Lögfræðiskrifstofa Reykjavíkur og Euphoria standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um samkeppnisreglur á Nordica hótelinu föstudaginn 10. september nk., með stuðningi SA o.fl. Virtir erlendir sérfræðingar munu ávarpa ráðstefnuna, en miklar breytingar hafa orðið á samkeppnisreglum ESB undanfarin ár. Sjá nánar á vef ráðstefnunnar.

2.9.2004

„Stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis“

Skýrsla nefndar um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis er vandað og yfirgripsmikið plagg og margar tillögur nefnd-arinnar eru til bóta, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann leggur áherslu á að samráð sé haft við atvinnulífið áður en frumvörp verði unnin í viðskiptaráðuneytinu. Þá svarar Ari leiðara Morgunblaðsins þar sem hann segir grundvallarmisskilning á ferð.

2.9.2004

Kjarastefnan hefur verið mörkuð

SA og stéttarfélögin hafa markað kjarastefnu á almenna vinnumarkaðnum til næstu fjögurra ára. Á þessu ári hafa samtökin þegar gert 101 sjálfstæðan kjarasamning sem samtals tekur til 62.500 launamanna. SA eiga eftir að gera kjarasamnina vegna 11.000 starfsmanna. Samningar SA ná yfir 95% hins almenna vinnumarkaðar, en hann nemur 75% af vinnumarkaðnum í heild. Ef samið er við eitt eða fleiri félög opinberra starfsmanna um meiri kostnaðarhækkanir getur það falið í sér ákvörðun um að brjóta á bak aftur þá launa-stefnu sem mótuð hefur verið á almennum vinnumarkaði, skapað óvissu, vaxandi verðbólgu og óstöðugleika. Það er sú staðreynd sem opinberir samningsaðilar standa frammi fyrir þegar þeir meta hvort þeir ætli að bera ábyrgð á nýrri kjarastefnu í landinu, með meiri launahækkunum.

2.9.2004

15% tekjuskattur, afnám stimpilgjalda, afnám vörugjalda...

Lækkun tekjuskatts fyrirtækja í 15% og afnám stimpilgjalda eru meðal þess sem skattahópur SA lagði til í ítarlegri skýrslu sem gefin var út í maí 2001. Ástæða er til að minna á skýrsluna í tengslum við þær umræður sem nú eiga sér stað um breytingar á skattkerfinu, sem og á stefnumörkun SA og fleiri samtaka í atvinnulífinu frá í vor á sviði vörugjalda og skattheimtu á matvælum.

2.9.2004

Hár starfsmannakostnaður beinir fjárfestingum úr landi

43% þýskra fyrirtækja hyggjast fjárfesta erlendis á þessu ári og hefur þetta hlutfall vaxið jafnt og þétt undanfarin ár. Hár starfsmannakostnaður og ósveigjanlegt ráðningarumhverfi koma í veg fyrir að þýsk fyrirtæki fjárfesti heima fyrir.

2.9.2004

Jafnréttisviðurkenning 2004

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviður-kenningar fyrir árið 2004. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 1. október nk. Sjá nánar á vef Jafnréttisráðs.

RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english