Fréttir
30.6.2004
Samið við múrara, pípulagningamenn, veggfóðrara og dúklagningamenn
Undirritaðir hafa verið kjarasamningar milli Samtaka atvinnulífsins og Múrarafélags Reykjavíkur, Múrarasambands Íslands, Sveinafélags pípulagningamanna og Félags veggfóðrara- og dúklagningasveina. Samningarnir gilda til ársloka 2007.
29.6.2004
Samið við vélstjóra í frystihúsum og verksmiðjum
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Vélstjórafélags Íslands vegna vélstjóra í frystihúsum og verksmiðjum. Samningurinn gildir til ársloka 2007.
28.6.2004
Flutningur á hættulegum efnum
Samgönguráðuneytið hefur óskað eftir umsögn SA um drög Umferðarstofu að endurbættum reglum um flutning á hættulegum efnum, þar sem m.a. er horft til flutnings um jarðgöng. Aðildarfyrirtæki sem málið tengist eru hvött til að koma hugsanlegum sjónarmiðum á framfæri við SA.
28.6.2004
Rússland, Seattle, Alaska, Rúmenía, Búlgaría...
Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefndir á erlenda markaði, þar sem skipulagðir eru fundir með mögulegum viðskiptaaðilum, auk fræðslu og kynningar. Í haust hefur ráðið þegar skipulagt slíkar ferðir til Rússlands, Seattle og Alaska, Rúmeníu og Búlgaríu. Þá er ferð til Slóvakíu og Tékklands í bígerð. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
22.6.2004
Samið við verkstjóra
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Verkstjórasambands Íslands. Samningurinn gildir til ársloka 2007. Samningurinn kveður á um 3,25% upphafshækkun frá 1. maí og er sambærilegur við aðra samninga sem SA hafa gert að undanförnu.
22.6.2004
Starfsmenntaverðlaunin - tilnefninga óskað
Starfsmenntaverðlaunin verða afhent í fimmta skiptið í september nk. og er óskað eftir tilnefningum í flokkum fyrirtækja og félagasamtaka, skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki. Frestur til þess að tilnefna rennur út 17. ágúst. Sjá nánar á vef Menntar.
16.6.2004
Pétur Reimarsson til SA
Pétur Reimarsson efnaverkfræðingur hefur verið ráðinn verkefnastjóri umhverfismála hjá SA. Pétur lauk doktorsprófi frá Tækniháskólanum í Lundi 1979 og hefur m.a. verið fram- kvæmdastjóri Sæplasts hf. og Árness hf. Verkefni hans hjá SA munu m.a. snúa að umhverfismálum, vinnuverndarmálum, meðferð hættulegra efna og auðlindanýtingu.
16.6.2004
Óskar Maríusson lætur af störfum
Óskar Maríusson efnaverkfræðingur hefur látið af störfum hjá Samtökum atvinnulífsins fyrir aldurs sakir, eftir alls tólf ára starf hjá SA og þar áður hjá Vinnuveitendasambandi Íslands. Samtökin þakka Óskari vel unnin störf og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.
15.6.2004
3,3% atvinnuleysi í maí
Í maímánuði voru skráðir 102.875 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.900 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3,3% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Samkvæmt því er atvinnuleysið á niðurleið en það mældist 3,5% í apríl sl. og 3,6% í maí árið 2003.
12.6.2004
Verðbólgan meiri en hægt er að sætta sig við
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir verðbólguna miklu meiri en hægt sé að sætta sig við, í samtali við Morgunblaðið. Hún ógni þó ekki kjarasamningum eins og er en forsendur samninganna koma til skoðunar í nóvember 2005. Hannes segir eðlilegt að endurskoða áform um stórauknar lánveitingar til húsnæðiskaupa og húsnæðis-bygginga.
11.6.2004
Kynningarfundur um umhverfisstjórnunarkerfi 16. júní
SA og SI standa fyrir kynningarfundi um umhverfisstjórnunar-kerfi miðvikudaginn 16. júní kl. 8:30, í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35. Á fundinum verður kynnt umhverfisstjórnunar-kerfið Umhverfisvitinn, sem er hugsað sem ódýrt en vottunarhæft kerfi, sem ætlað er að gefa kost á einfaldri framkvæmd og hugsanlega minni eftirlitskostnaði.
10.6.2004
Lög á kjaradeilu fiskimanna á dagskrá ILO-þings
Afskipti ríkisvaldsins af kjaradeilu fiskimanna vorið 2001 voru til umræðu á þingi ILO, þ.e. hvort íslenska ríkið hefði brotið gegn samningsfrelsi aðila. Niðurstaða þingisins felur ekki í sér neinn alvarlegan áfellisdóm og lýtur fyrst og fremst að því að fara þurfi yfir framkvæmd kjarasamningaviðræðna fiskimanna og umgjörð þeirra.
9.6.2004
Laun hækkuðu um 1,5%, vísitala neysluverðs um 2,1%
Regluleg laun hækkuðu að meðaltali um 1,5% milli 1. árs-fjórðungs 2003 og 1. ársfjórðungs 2004, skv. launakönnun KRN, en vísitala neysluverðs hækkaði um 2,1%. Skv. því rýrnaði kaupmáttur launa að meðaltali um 0,6%, en á þessu tímabili fékk einungis lítill hluti launafólks hækkun skv. kjarasamningi og nýir kjarasamningar komu að mjög takmörkuðu leyti til framkvæmda á fyrsta ársfjórðungi.
9.6.2004
Aukin skriffinnska ekki besta leiðin
Við teljum mikla skriffinnsku falla illa að veruleika íslenskra fyrirtækja, sem oft eru knappt mönnuð, og erum ekki sannfærð um að hún sé til þess fallin að ýta undir jafnrétti í reynd, segir
8.6.2004
Starfsmenntaverðlaunin - tilnefninga óskað
Starfsmenntaverðlaunin verða afhent í fimmta skiptið í september nk. og er óskað eftir tilnefningum í flokkum fyrirtækja og félagasamtaka, skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki. Frestur til þess að tilnefna rennur út 17. ágúst. Sjá nánar á vef Menntar.
3.6.2004
Skattalækkanir
Mikill stuðningur er við stefnumörkun stjórnvalda um lækkun skatta, segir
3.6.2004
Eitt matvælaþrep í VSK og afnám vörugjalda
Áformað er að gera breytingar á virðisaukaskatti á kjörtíma-bilinu. Æskilegt væri að afnema vörugjöld af matvælum, skattleggja öll matvæli í sama þrepi og lækka VSK á matvæli í t.d. 12%. Þetta myndi hafa í för með sér 5,3 milljarða króna tekjutap fyrir ríkissjóð miðað við forsendur ársins 2002.
3.6.2004
Íslenskir aðilar geta notað .eu
Einstaklingar, fyrirtæki og samtök munu á næstunni geta sótt um vefföng sem enda á .eu. Reglur þar að lútandi gilda á öllu Evrópska efnahagssvæðinu og lögðu UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, það til að frumkvæði SA. Íslenskir aðilar geta því sótt um slík vefföng, kjósi þeir svo.
3.6.2004
Olíureikningur hækkar um fimm milljarða
Haldist olíuverð óbreytt út árið má búast við að olíureikningur- inn hækki um allt að þriðjung frá síðasta ári eða um fimm milljarða króna. Slíkar olíuverðshækkanir hafa veruleg áhrif á atvinnulífið, ekki síst á rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Áhrifin eru þó ekki jafn mikil og áður fyrr, m.a. vegna betri orkunýtingar, tilfærslu yfir í aðra orkugjafa og aukins vægis þjónustu í þjóðarbúskapnum.
1.6.2004
60% vilja léttvín og bjór í matvöruverslanir
Samkvæmt könnun IMG Gallup fyrir SVÞ eru 59,6% lands-manna fylgjandi sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum. Sambærilegar kannanir hafa verið gerðar nokkrum sinnum áður og niðurstaðan er alltaf sú að meirihluti vill geta keypt léttvín og bjór í matvöruverslunum. 35% svarenda voru andvígir og 5,4% tóku ekki afstöðu. Sjá nánar á vef SVÞ.
1.6.2004
Starfsmenntaverðlaunin - tilnefninga óskað
Starfsmenntaverðlaunin verða afhent í fimmta skiptið í september nk. og er óskað eftir tilnefningum í flokkum fyrirtækja og félagasamtaka, skóla og fræðsluaðila og í opnum flokki. Frestur til þess að tilnefna rennur út 17. ágúst. Sjá nánar á vef Menntar.










