Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.4.2004

Aðalfundur SA 4. maí

Samtök atvinnulífsins halda aðalfund sinn þriðjudaginn 4. maí á Grand Hótel Reykjavík. Auk ávarpa formanns SA og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra verður kynnt ný skýrsla samtakanna um eftirlit með atvinnustarfsemi og tillögur til úrbóta. Þá mun framkvæmdastjóri hjá sænsku samtökum atvinnulífsins flytja erindi um leiðir til þess að efla traust almennings á atvinnulífinu. Sjá nánar

29.4.2004

Samið við Samiðn

Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Samiðnar. Líkt og fyrri samningar sem SA hafa gert að undanförnu gildir hann til ársloka 2007. Almennar launahækkanir og hækkanir á lífeyrisframlögum eru einnig þær sömu og í fyrri samningum SA. Þá eru kauptaxtar færðir nær greiddum launum á svipaðan hátt og gert var í nýgerðum samningum við RSÍ og MATVÍS.

28.4.2004

Starfsmenntaáætlun ESB – kynningarfundur

Fimmtudaginn 29. apríl 2004 verða kynnt ný forgangsatriði í Leonardó starfsmenntaáætlun ESB, sem Íslendingar taka þátt í, á fundi í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, kl. 15 til 17:30. Sjá nánar á vef Landsskrifstofu Leonardó.

24.4.2004

Samið við MATVÍS

Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli SA og Matvæla- og veitingasambands Íslands. Líkt og fyrri samningar sem SA hafa gert að undanförnu gildir hann til ársloka 2007. Almennar launahækkanir og hækkanir á lífeyrisframlögum eru einnig þær sömu og í fyrri samningum SA. Þá eru kauptaxtar iðnaðar-manna færðir nær greiddum launum á svipaðan hátt og gert var í nýgerðum samningi við RSÍ.

23.4.2004

Morgunverðarfundur um þróunarsjóð EFTA

Möguleikar íslenskra fyrirtækja á þátttöku í verkefnum sem styrkt eru af þróunarsjóði EFTA verða kynntir á morgunverðar-fundi sem utanríkisráðuneytið, Útflutningsráð og Euro Info skrifstofan standa fyrir fimmtudaginn 29. apríl nk. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

21.4.2004

Virkjunarsamningur undirritaður

Undirritaður hefur verið svonefndur virkjunarsamningur, sem gildir á Kárahnjúkasvæðinu, milli SA vegna aðildarfyrirtækja og Landsvirkjunar annars vegar, og ASÍ, SGS, Samiðnar og RSÍ hins vegar. Líkt og fyrri samningar sem SA hafa gert að undanförnu gildir hann til ársloka 2007. Almennar launa-hækkanir og hækkanir á lífeyrisframlögum eru einnig þær sömu og í fyrri samningum SA.

21.4.2004

Samið við verslunarmenn

Undirritaður hefur verið kjarasamningur SA við LÍV og VR. Líkt og fyrri samningar sem SA hafa gert að undanförnu gildir hann til ársloka 2007. Almennar launahækkanir og hækkanir á lífeyrisframlögum eru einnig þær sömu og í fyrri samningum SA. Tekið er upp nýtt eftirvinnuálag, heimild til frítöku í stað uppbóta o.fl. nýjungar.

19.4.2004

Áskorun til ríkisstjórnarinnar

Fimm samtök þeirra sem framleiða, flytja inn, dreifa og selja matvæli hafa sent áskorun til ríkisstjórnarinnar um breytingar á skattlagningu matvæla. Auk Samtaka atvinnulífsins standa að áskoruninni Samtök iðnaðarins, SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Félag íslenskra stórkaupmanna.

16.4.2004

3,5% atvinnuleysi í mars

Í mars voru skráðir 114.789 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.991 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3,5% af áætlun efnahags-skrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Að mati Vinnumálastofnunar er ekki líklegt að atvinnuástandið breytist mikið í apríl.

15.4.2004

Samið við rafiðnaðarmenn

Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli SA og SART annars vegar og RSÍ hins vegar. Líkt og fyrri samningar sem SA hafa gert að undanförnu gildir hann til ársloka 2007. Almennar launahækkanir og hækkanir á lífeyrisframlögum eru einnig þær sömu og í fyrri samningum SA. Lágmarkslaun eru hins vegar færð nær greiddum launum og verða byrjunarlaun rafiðnaðarmanns með sveinspróf 152.500 krónur.

7.4.2004

Ráðstefna um tvískiptingu íslensks vinnumarkaðar

Föstudaginn 16. apríl stendur lögfræðideild Viðskiptaháskólans á Bifröst fyrir opinni ráðstefnu um tvískiptingu íslensks vinnu-markaðar, í samstarfi við SA, ASÍ, BSRB og Starfsmanna-skrifstofu fjármálaráðuneytis. Sjá nánar á vef Viðskipta-háskólans á Bifröst.

1.4.2004

Vímuefnapróf og öryggi á vinnustað

Það getur ekki verið markmiðið að sjónarmið varðandi persónufrelsi einstakra starfsmanna vegi alltaf þyngra en heilbrigði og öryggi annarra starfsmanna, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Tilgangur vímuefnaprófa sé fyrst og fremst að standa vörð um öryggi starfsmanna en ekki áhugi fyrirtækja á persónulegum högum manna.

1.4.2004

Nýjungar í kjarasamningum

Nýir kjarasamningar Samtaka atvinnulífsins við félög verkafólks fela í sér ýmsar nýjungar sem ætlað er að auka sveigjanleika fyrirtækjanna og fækka ágreiningsmálum. Mikilvægt er að atvinnurekendur kynni sér vel ákvæði samninganna og framkvæmi rétt frá fyrsta degi.

1.4.2004

Úrtaksskoðanir hjá fyrirtækjum

Rafverktökum ber að reka innri öryggisstjórnunarkerfi, en sæta jafnframt úrtaksskoðunum skoðunarstofa, sem fer fækkandi komi þeir ítrekað vel út. Slíkt fyrirkomulag mætti viðhafa víðar. Varla getur t.d. talist nauðsynlegt að viðhafa árlegt utanaðkomandi eftirlit með öllum starfsstöðvum fyrirtækja sem reknar eru skv. sömu handbókinni, sbr. bensínstöðvar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í væntanlegri skýrslu SA um eftirlit með atvinnustarfsemi.

1.4.2004

Fyrirtækin þurfa að stækka

Í ræðu sinni á aðalfundi SVÞ sagði Sigurður Á. Sigurðsson, formaður samtakanna, m.a. að ekkert bannaði að fyrirtæki yrðu stór og í raun væri það æskileg þróun fyrir atvinnulífið. Ef einhver dæmi væru um misbeitingu á markaðsráðandi stöðu fyrirtækja ætti að beita samkeppnislögum gegn þeim. Sjá nánar á vef SVÞ.

RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english