Fréttir
30.10.2004
Samið við fiskimenn
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli sjómanna og útvegsmanna. Að sögn Friðriks J. Arngrímssonar, fram-kvæmdastjóra LÍÚ, er samningurinn skref inn í framtíðina og þótt samningurinn kosti útvegsmenn talsverða fjármuni, skapist með honum möguleikar á hagræðingu sem eigi að geta skilað báðum aðilum meiri tekjum.
29.10.2004
Afnám línuívilnunar, niðurfelling veiðigjalds…
Á aðalfundi LÍÚ voru samþykktar ályktanir um afnám línu-ívilnunar, auknar loðnurannsóknir, niðurfellingu veiðigjalds, framsal aflaheimilda, meðalafla við kolmunnaveiðar, eftir-litsiðnað og hvalveiðar. Sjá ályktanir fundarins á vef LÍÚ.
29.10.2004
Mikil fjölgun ferðamanna
Samkvæmt talningu Ferðamálaráðs fyrir fyrstu þrjá fjórðunga ársins 2004 hefur fjöldi erlendra ferðamanna um Leifsstöð aukist um 14,4% miðað við sömu mánuði árið 2003, eða úr um 260.000 í um 297.000. Sjá nánar á vef Samtaka ferða-þjónustunnar.
27.10.2004
Umsögn SA um frumvarpsdrög viðskiptaráðherra
Samtök atvinnulífsins sendu viðskiptaráðuneytinu á dögunum ítarlega umsögn um frumvarpsdrög viðskiptaráðherra til breytinga á lögum um hlutafélög og lögum um einkahluta-félög. Samtökin styðja flestar þær breytingartillögur sem þar koma fram en telja óhjákvæmilegt að gera athugasemdir við nokkur atriði. Umsögnin er vistuð á umsagnasíðu sa.is og hana má nálgast hér (pdf-skjal).
27.10.2004
Lóð á vogarskálina - ábendingum má skila til 5. nóv.
Þann 17. nóvember nk. munu hollvinir hins gullna jafnvægis veita árlega viðurkenningu fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki. Frestur til að senda rökstudda ábendingu um aðila sem hlotið gætu viðurkenninguna rennur út 5. nóvember. Sjá nánar á vefsíðu Hins gullna jafnvægis.
22.10.2004
Dagur samkeppnishæfni Evrópu 9. desember
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir evrópskum samkeppnisdegi í Brussel fimmtudaginn 9. desember nk. Yfirskrift dagskrárinnar er „leikið til sigurs" og fjallað verður um nauðsyn þess að auka samkeppnishæfni evrópsks starfsumhverfis. Eru fyrirtækjastjórnendur um alla álfu hvattir til að taka þátt. Sjá nánar
19.10.2004
Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands sameinaðir
Undirrituð hefur verið viljayfirlýsing menntamálaráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka iðnaðarins, Verslunarráðs og stjórnenda Háskólans í Reykja-vík og Tækniháskóla Íslands um stofnun nýs háskóla með samruna skólanna tveggja. Stofnað verður einkahlutafélag og verða SA, SI og VÍ hluthafar.
18.10.2004
Samningaleiðin skilar varanlegri árangri
Stéttir á almennum vinnumarkaði hafa almennt verið að beita verkfallsvopninu af mikilli varkárni, enda hafa þær lært af langri og oft allbiturri reynslu og vita að þegar upp er staðið skilar samningaleiðin varanlegri árangri, sagði
18.10.2004
Áhrif Evrópusamrunans á smærri ríki Evrópu
Alþjóðamálastofnun HÍ og Samtök iðnaðarins efna til málstofu um ,,Áhrif Evrópusamrunans á smærri ríki Evrópu“ miðviku-daginn 20. október í Norræna húsinu frá kl. 8:30 til 10:00. Málstofan er haldin í tilefni af útkomu skýrslu um áhrif EES og ESB aðildar á smærri ríki Evrópu. Sjá nánar á vef SI.
15.10.2004
Málþing um jafnréttisáætlanir 26. október
Þriðjudaginn 26. október nk. stendur Jafnréttisráð fyrir málþingi á Grand Hótel Reykjavík um mikilvægi jafnréttis-áætlana fyrir vinnumarkaðinn. Meðal framsögumanna verður
13.10.2004
Kaupmáttur jókst um 0,7%
Regluleg laun hækkuðu að meðaltali um 4,0% milli 2. árs-fjórðungs 2003 og 2. ársfjórðungs 2004, skv. launakönnun Kjararannsóknarnefndar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 3,3% og samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 0,7%. Þessi niðurstaða markast nokkuð af því að verslunarmenn og iðnaðarmenn fengu launahækkanir á miðjum fjórðungnum skv. nýgerðum kjarasamningum, en kjarasamningar verkafólks voru að fullu komnir til framkvæmda þegar þessi mæling var gerð.
12.10.2004
2,6% atvinnuleysi í september
Í septembermánuði voru skráðir 85.538 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.891 manns hafi að meðal-tali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,6% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,9% í ágúst sl. og 2,7% í september 2003. Að mati Vinnumála-stofnunar er líklegt að atvinnuleysið aukist heldur í október og verði á bilinu 2,6-2,9%.
11.10.2004
Kaupmáttur lágmarkslauna aldrei verið meiri
Í samningunum síðastliðið vor hækkuðu lágmarkslaun í 100.000 kr. á mánuði. Kaupmáttur lágmarkslauna hefur aldrei verið meiri en á þessu ári og var nú í september 70% meiri en hann var fyrir áratug, í ársbyrjun 1995. Kaupmáttur lágmarkslaunanna hefur aukist tæplega tvöfalt meira en kaupmáttur almennra launa skv. launavísitölu Hagstofu Íslands, sem hefur aukist um 38% á sama tíma.
8.10.2004
Forsendur stöðugleika í íslensku efnahagslífi
Í erindi á kynningarfundi Impregilo um áhrif stórframkvæmda á Austurlandi á íslenskt efnahagslíf fjallaði Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, um forsendur þess að það tækist að viðhalda efnahagsstöðugleika á næstu árum. Sagði hann mikilvægustu aðgerðina gegn ofþenslu á vinnumarkaði vera lipra og snurðulausa útgáfu atvinnuleyfa og vakti athygli á að hlutfall erlends starfsfólks við þessar framkvæmdir hefur hingað til verið mun hærra en spár hafa gert ráð fyrir.
8.10.2004
Lykilatriði útflutnings, námskeið 13. október
Miðvikudaginn 13. október nk. stendur Útflutningsráð fyrir námskeiði um lykilatriði útflutnings, þar sem tekið verður á þeim grunnþáttum sem einkenna uppbyggingu og fram-kvæmd útflutningsmála innan fyrirtækja. Námskeiðið er fyrir stjórnendur og starfsmenn sem á einhvern hátt koma að útflutningsmálum síns fyrirtækis, stofnunar eða samtaka. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
7.10.2004
Fjárlagafrumvarp og stöðugleiki
Fjárlagafrumvarp ársins 2005 hljóðar upp á 8% aukningu ríkisútgjalda frá frumvarpi síðasta árs, eða 3,5% raunvöxt, og ekki að sjá að frumvarpið markist af miklu átaki til að sporna gegn ofþenslu sem það þyrfti að gera, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara frétta-bréfsins Af vettvangi. Hann segir greiðan aðgang erlends starfsfólks að íslenskum vinnumarkaði gríðarlega mikilvægan á næstu misserum í þessu sama skyni.
7.10.2004
Allt að 144% munur á gjaldskrám heilbrigðisnefnda
Gjald heilbrigðiseftirlits vegna sýnatöku er langhæst í Reykjavík, 144% hærra en á Norðurlandi eystra. Frá fyrri samanburði SA hefur tímagjald heilbrigðisnefnda hækkað um 50% á Kjósarsvæðinu þar sem það var áður lægst, en um 8% á Suðurnesjum þar sem það var hæst. Markmið samanburðar SA var sannarlega ekki að lægstu gjöldin yrðu færð upp að þeim hæstu, sem virðist hafa orðið raunin. Þessi gjöld eiga að endurspegla raunverulegan kostnað og ekkert annað, en gjöldin eru áætluð um 300 milljónir á ári.
7.10.2004
Sameiginleg sýn á félagslega ábyrgð fyrirtækja
Í lokaskýrslu til framkvæmdastjórnar ESB hefur víðtækur samráðsvettvangur atvinnurekenda, verkalýðshreyfingar o.fl. hagsmunaaðila komið sér saman um helstu skilgreiningar í umræðunni um félagslega ábyrgð fyrirtækja, þ.e. þær skuldbindingar sem fyrirtæki kjósa að taka á sig gagnvart starfsfólki, umhverfi og viðskiptavinum umfram það sem kveðið er á um í kjarasamningum, lögum eða reglugerðum.
7.10.2004
Uppfærðir kjarasamningar á vef SA
Á vinnumarkaðsvef SA, sem opinn er félagsmönnum, er nú að finna uppfærða nokkra af helstu heildarkjarasamningum SA með þeim breytingum sem orðið hafa árið 2004. Samningar þessir hafi einnig verið prentaðir og sendir félagsmönnum. Sjá nánar á vinnumarkaðsvefnum.
4.10.2004
Kynnt lög um mengun hafs og stranda
Þriðjudaginn 5. október kl. 15-16 heldur Kristján Geirsson fagstjóri á Stjórnsýslusviði Umhverfisstofnunar kynningu á nýjum lögum um varnir gegn mengun hafs og strandar. Öllum er velkomin þátttaka og aðgangur er ókeypis. Fyrirlesturinn er haldinn í húsnæði Umhverfisstofnunar að Suðurlandsbraut 24, 5. hæð.
4.10.2004
Dagur samkeppnishæfni Evrópu 9. desember
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, standa fyrir evrópskum samkeppnisdegi í Brussel fimmtudaginn 9. desember nk. Yfirskrift dagskrárinnar er „leikið til sigurs“ og fjallað verður um nauðsyn þess að auka samkeppnishæfni evrópsks starfsumhverfis. Eru fyrirtækjastjórnendur um alla álfu hvattir til að taka þátt.
1.10.2004
Nýtt rit um viðskiptasérleyfi
SVÞ og Íslandsbanki hafa gefið út rit um viðskiptasérleyfi (franchise), sem ætlað er að leiðbeina um hvernig staðið er að stofnun og rekstri slíkra fyrirtækja. Viðskiptasérleyfi hafa orðið æ algengari í verslun og þjónustu undanfarin ár, en hingað til hafa engar leiðbeiningar verið gefnar út um þetta málefni hér á landi. Sjá nánar á vef SVÞ.










