Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.1.2004

Guðrún Johnsen til RAND Corporation

Guðrún Johnsen, hagfræðingur hjá Samtökum atvinnu-lífsins, hefur þekkst boð rannsóknarstofnunarinnar RAND Corporation um rannsóknarstöðu hjá höfuðstöðvum fyrirtækisins í Santa Monica, Kaliforníu. Mun hún hefja þar störf í febrúar. Samtökin þakka Guðrúnu vel unnin störf og óska henni velfarnaðar í nýju starfi.

30.1.2004

Vernd skipa, farms og farþega - fundur 10. febrúar

„Vernd skipa, farms og farþega“ er yfirskrift morgunfundar SA þriðjudaginn 10. febrúar nk. Þar verður fjallað um væntanlega löggjöf um siglingavernd og áhrif hennar - eftirlit, kostnað, umsýslu o.fl. Málið varðar m.a. hafnir, útflytjendur og skipafélög. Um er að ræða innleiðingu alþjóðlegra skuldbindinga um ráðstafanir til að koma í veg fyrir hryðjuverk o.fl.

28.1.2004

Enginn úr einkarekstri í nefnd um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis

Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, lýsir í samtali við Viðskiptablaðið undrun sinni á því að ráðherra skipi nefnd um stefnumótun íslensks viðskiptaumhverfis án þess að aðilar í atvinnu- og viðskiptalífi eigi neina aðkomu að þeirri vinnu. Í nefndinni sé t.d. enginn sem starfi hjá einkafyrirtæki.

28.1.2004

Uppfinningar starfsmanna teljist eign vinnuveitanda

Samkvæmt frumvarpi til laga á starfsmaður rétt til upp-finningar sem hann kemur fram með. Í umsögn sinni árétta SA að þegar vinna starfsmanna í þágu vinnuveitanda leiði til uppfinningar sé það skýlaus krafa að þær uppfinningar teljist hans eign, eðlilegt sé að vinnuveitandi eigi afraksturinn af vinnu sem hann greiði fyrir.

28.1.2004

SA mótmæla frumvarpi um vátryggingasamninga

SA og fimm aðildarfélög mótmæla harðlega frumvarpi til laga um vátryggingasamninga. Samtökin sjá ekki þörf fyrir heildarendurskoðun laganna og telja frumvarpið ekki standast grundvallarkröfur sem gera verður til slíkrar heildarendurskoðunar gildandi laga, m.a. um mat á kostnaðaráhrifum.

26.1.2004

Opinn fundur starfsmenntaráðs

Hinn árlegi opni fundur Starfsmenntaráðs verður haldinn þriðjudaginn 3. febrúar kl. 12:00 á Litlu-Brekku, Banka-stræti 2 í Reykjavík. Á dagskrá er kynning á úthlutunum úr starfsmenntasjóði 2003 og áherslur við úthlutanir árið 2004. Sjá nánar um Starfsmenntaráð á vef ráðsins.

23.1.2004

Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.

Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Eða leiðbeinanda? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskiptaverkefni sem veittir eru af Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun ESB. Umsóknarfrestur er til 13. febrúar nk. Sjá nánar á vef Landsskrifstofu Leonardó.

22.1.2004

CE merking véla - Hvað þarf að gera og hvernig?

Dagana 5. og 6. febrúar nk. verða haldin námskeið fyrir framleiðendur og innflytjendur véla. Markmiðið er að þátttakendur verði færir um að greina hvort vörur falli undir vélatilskipun ESB og læri hvernig á að CE-merkja slíkar vörur. Sjá nánar á vef Staðlaráðs Íslands.

21.1.2004

Frestun á frjálsri för launafólks frá nýjum EES-ríkjum

Stjórnvöld hafa ákveðið að fresta gildistöku reglunnar um frjálsa för gagnvart launafólki frá flestum hinna væntan-legu aðildarríkja EES. Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, samtökin ekki telja þörf á frestuninni en að þau setji sig ekki upp á móti í ljósi stefnu annarra landa o.fl. Hægt sé að hugsa sér rýmri reglur gagnvart nýju aðildarríkjunum en ríkjum utan EES.

20.1.2004

Átak SVÞ í öryggismálum

SVÞ hafa gert samning við Securitas hf. um fræðslu til starfsmanna í þeim tilgangi að fyrirbyggja hnupl, rán, kortasvik og annan slíkan skaða sem færist í aukana. Securitas hf. mun þannig taka að sér fræðslu í verkefninu Varnir gegn vágestum sem rekið er í samstarfi við Lögregluna í Reykjavík. Sjá nánar á vef SVÞ.

19.1.2004

Eftirspurn eftir iðn- og raungreinamenntuðum

Á næstu þremur árum þurfa fyrirtæki innan SI að bæta við sig 771 nýjum starfsmanni með raungreina-, tækni- og verkfræðimenntun og 2252 starfsmönnum með iðn- og starfsmenntun. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar IMG Gallup á þörfum iðnaðarins fyrir menntun. Sjá nánar á vef SI.

16.1.2004

Verslunarmenn fara fram á 4-5% hækkun launa á ári

Verslunarmenn hafa kynnt kröfur sem snúa að launaliðnum vegna komandi kjarasamninga, en þeir höfðu áður lagt fram aðrar kröfur sínar. Verslunarmenn munu fara fram á sérstaka hækkun lægstu launa, 5% almenna launahækkun á ári næstu tvö árin og 4% árin 2006 og 2007.

16.1.2004

Hálf milljón aukalega á mann

Nærri 70% af verðmætasköpuninni í landinu fara í launa-greiðslur, sem er bæði sögulegt hámark og mun hærra hlutfall en í nágrannalöndunum. ESB-meðaltalið er 57%. Í samanburði við ESB fer rúmlega hálf milljón króna aukalega í launagreiðslur á hvern vinnandi mann hérlendis ár hvert, alls 90 milljarðar króna.

16.1.2004

Vinnumálastofnun spáir um 3% atvinnuleysi 2004

Meðalatvinnuleysi á árinu 2003 var 3,4% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Vinnumálastofnun telur líkur á að atvinnuleysi verði nokkru minna á árinu sem er að hefjast en á því síðasta, og verði að meðaltali um eða lítið eitt hærra en 3%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

15.1.2004

Engin sérstök hættumerki

Vísitala neysluverðs í janúar hækkaði um 0,04% frá fyrra mánuði. Án húsnæðis lækkaði hún um 0,09%. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að vísitalan innihaldi ekki sérstök áhyggjuefni og gerir hann ekki ráð fyrir að Seðlabankinn sjái ástæðu til að grípa til vaxtahækkunar vegna þessarar mælingar.

14.1.2004

Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.

Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Eða leiðbeinanda? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskiptaverkefni sem veittir eru af Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun ESB. Umsóknarfrestur er til 13. febrúar 2004 og kynningarfundur verður haldinn 15. janúar. Sjá nánar á vef Landsskrifstofu Leonardó.

14.1.2004

Endurskoða þarf starfsaðferðir Samkeppnisstofnunar

Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Viðskiptablaðið að taka þurfi starfsaðferðir Samkeppnis-stofnunar til endurskoðunar. Hann segir það vægt til orða tekið að vinnubrögð stofnunarinnar, áherslur starfsmanna og nálgun þeirra að viðfangsefnum stofnunarinnar hafi vakið mikla undrun.

14.1.2004

Hæsta hlutfall frumkvöðlastarfsemi í Evrópu

Ísland er með hæsta hlutfall frumkvöðlastarfsemi af þeim Evrópulöndum sem taka þátt svokallaðri GEM-rannsókn, sem unnin er hérlendis af HR með stuðningi SA o.fl. Um 11% einstaklinga á aldrinum 18-64 ára taka hér þátt í frumkvöðlastarfsemi, sem er svipað og í Bandaríkjunum og Ástralíu, en mun hærra hlutfall en á hinum Norður-löndunum.

13.1.2004

Eðlilegt að vinnuveitendur spyrji um fjölskylduhagi

Ég tel að það sé alveg eðlilegt að vinnuveitendur spyrji umsækjendur um störf um fjölskylduhagi þeirra, rétt eins og þeir spyrja um menntun, fyrri störf, viðhorf til vinnunnar og áhugamál, segir Ari Edwald, framkvæmda-stjóri SA, í samtali við Morgunblaðið.

13.1.2004

Stimpilgjöld og vörugjöld tímaskekkja

Í setningarræðu á skattadegi Deloitte, Mbl og SA fjallaði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, m.a. um þær jákvæðu breytingar sem orðið hafa á skattalegu umhverfi íslenskra fyrirtækja. Hann sagði verkinu þó ekki lokið, m.a. þyrfti að afnema hinn nánast séríslenska eignarskatt, stimpilgjöld og vörugjöld, sem hlytu að teljast tímaskekkja í nútímaefnahagskerfi.

10.1.2004

Morgunverðarfundur um skattamál 13. janúar

Skattadagur Deloitte, Viðskiptablaðs Morgunblaðsins og SA verður haldinn þriðjudaginn 13.janúar á Grand Hótel Reykjavík. Fjallað verður um skattaleg atriði varðandi skuldsetta yfirtöku, Hybrid fjármögnun, kauprétt og önnur hlunnindi, um breytingar á skattalögum 2003, mörk skattasniðgöngu og skattafyrirhyggju o.fl. Sjá nánar

8.1.2004

Mikil fjölgun opinberra starfsmanna

Á tímabilinu 1997-2002 fjölgaði starfandi fólki í einka-geiranum um 8%, en á sama tíma fjölgaði opinberum starfsmönnum um 17%. Fjölgunin nam 30% í opinberri stjórnsýslu og 40% í fræðslustarfsemi. Í atvinnulífinu hefur starfandi fólki fækkað í framleiðslugreinum en fjölgað í þjónustugreinum.

8.1.2004

Íslensk laun - hvergi hærra hlutfall verðmætasköpunar

Nærri 70% af verðmætasköpuninni í landinu fara í launagreiðslur, sem er bæði sögulegt hámark og mun hærra hlutfall en í nágrannalöndunum. ESB-meðaltalið er 57%. Meginskýringu þessarar þróunar er að leita í þeirri miklu almennu kaupmáttaraukningu sem varð umfram framleiðniaukningu í þensluástandinu í lok síðasta áratugar.

8.1.2004

Lítil hreyfing á vinnumarkaði

Yfir 70% fyrirtækja hyggjast halda óbreyttum fjölda starfsfólks næstu 3-4 mánuði, samkvæmt könnun SA. Álíka mörg fyrirtæki hyggjast fjölga starfsfólki og fækka, eða um 15%, en stærri fyrirtækin hyggjast öðrum fremur fækka starfsfólki. Fjölgun virðist framundan hjá fjármála-fyrirtækjum og hjá rafverktökum, en fækkun í ferða-þjónustu, verslun og þjónustu. Þessar niðurstöður koma nokkuð á óvart miðað við hagvaxtarspár, en ekki miðað við atvinnuleysistölur.

8.1.2004

Árangur atvinnulífsins

Samkeppni hefur almennt stóraukist í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum samfara auknu frelsi, þar sem „klasarnir“ eru nú margir sem hafa afl til að láta til sín taka, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir atvinnulífið hafa skilað stórkostlegum árangri til samfélagsins undanfarin ár og bendir m.a. á þriðjungs hækkun kaupmáttar og margföldun á fjölda eignafólks. Ávallt sé sjálfsagt að skoða regluumhverfi atvinnulífsins, en aðalatriðið sé að íslenskt atvinnulíf fái að búa við sambærilegar reglur og gildi í helstu samkeppnislöndum.

8.1.2004

Fundur um veikindafjarvistir frestast vegna veikinda

Morgunverðarfundur Vinnueftirlitsins o.fl. um veikindafjarvistir, sem fyrirhugað var að haldinn yrði á morgun, föstudaginn 9. janúar á Grand Hótel, frestast um óákveðinn tíma vegna veikinda erlends fyrirlesara. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.

7.1.2004

Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.

Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Eða leiðbeinanda? Auglýst er eftir umsóknum um styrki í mannaskiptaverkefni sem veittir eru af Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlun ESB. Umsóknarfrestur er til 13. febrúar 2004 og kynningarfundur verður haldinn 15. janúar. Sjá nánar á vef Landsskrifstofu Leonardó.

7.1.2004

Morgunverðarfundur um skattamál 13. janúar

Skattadagur Deloitte, Viðskiptablaðs Morgunblaðsins og SA verður haldinn þriðjudaginn 13.janúar á Grand Hótel Reykjavík. Fjallað verður um skattaleg atriði varðandi skuldsetta yfirtöku, Hybrid fjármögnun, kauprétt og önnur hlunnindi, um breytingar á skattalögum 2003, mörk skattasniðgöngu og skattafyrirhyggju o.fl.

7.1.2004

Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja

Framkvæmdastjórn ESB hefur haft frumkvæði að umræðu um eðli og inntak félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja, sem hún hefur sjálf skilgreint sem þær skuldbindingar sem fyrirtæki kjósa að taka á sig gagnvart starfsfólki, umhverfi og viðskiptavinum umfram það sem kveður á um í kjarasamningum, lögum eða reglugerðum.

6.1.2004

Skýrsla Hagfræðistofnunar HÍ um menntareikninga

Grunnhugmyndin um menntareikninga byggist á því að tekið er fast hlutfall af launum hvers starfsmanns sem er síðan ávaxtað í séreignasjóði með skattfríðindum þar til viðkomandi launþegi ákveður að nýta sér innistæðuna til að sækja sér menntun eða þjálfun, segir í skýrslu Hagfræðistofnunar HÍ.

5.1.2004

Menntadagur iðnaðarins 15. janúar

Á málþingi á menntadegi iðnaðarins 15. janúar nk. verða frumbirtar niðurstöður úr könnun SI og Gallup um þörf iðnaðarins fyrir menntun. Menntamálaráðherra ávarpar málþingið og fjallað verður um tengsl menntunar og verðmætasköpunar. Sjá nánar á vef SI.
RSS-efnisveita SA

Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english