Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

28.2.2012

Blekkingarleikur með skattlagningu lífeyrissjóða

Enn koma fram tillögur um skattlagningu lífeyrissjóðanna frá stjórnmálamönnum sem vilja láta taka sig alvarlega. Nú síðast er lagt til að ríkið „innleysi" skattinneign sína af viðbótarlífeyrissparnaði landsmanna til að fjármagna niðurfærslu Íbúðarlánasjóðs á lánum. Auk þess verði lagðar sérstakar byrðar á lífeyrissjóði vegna hagnaðar af svokölluðum Avens viðskiptum á árinu 2010.

28.2.2012

Vinnandi vegur - kynningafundur fyrir fyrirtæki 1. mars

Í síðustu viku hófst verkefnið Vinnandi vegur sem er nýtt átak til atvinnusköpunar og miðar að því að fjölga störfum og minnka atvinnuleysi. Sérstök áhersla er á að skapa langtímaatvinnulausum vinnu og stendur fyrirtækjum til boða markverður fjárhagslegur stuðningur í því samhengi.

 

Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, SVÞ - Samtök verslunar- og þjónustu, Samtök ferðaþjónustunnar og Samtök fiskvinnslustöðva boða til fundar fimmtudaginn 1. mars kl. 08:30-10:00 þar sem kynna á verkefnið sérstaklega og hvernig það horfir við fyrirtækjum sem vilja nýta sér þessi úrræði. Fundurinn er sérstaklega ætlaður þeim sem sinna starfsmannamálum.

21.2.2012

Hagdeild SA: Fjárfestingarstefna lífeyrissjóða, áhættustýring og eftirlit

Árið 2008 var raunávöxtun íslenskra lífeyrissjóða sú sama og að meðaltali í OECD. Meginástæða neikvæðrar ávöxtunar lífeyrissjóða í heiminum var verðfall hlutabréfa en þau lækkuðu um 50% að meðaltali það ár. Verðlækkun hlutabréfa var hvergi meira en á Íslandi þar sem hlutabréfavísitalan lækkaði um 90%. Fjárfestingarstefna íslensku lífeyrissjóðanna á Íslandi á árunum fyrir efnahagskreppuna var svipuð og hjá lífeyrissjóðum í öðrum ríkjum.

21.2.2012

Vinnandi vegur: Átak til að fjölga störfum

Í dag hófst nýtt átak til atvinnusköpunar sem miðar að því að fjölga störfum og fækka atvinnulausum. Um leið er komið til móts við atvinnurekendur með fjárhagslegum stuðningi. Verkefnið kallast Vinnandi vegur og er sameiginlegt átak samtaka atvinnurekenda, launþega, sveitarfélaga og ríkisins. Með þátttöku í verkefninu eiga atvinnurekendur kost á styrk með ráðningu nýrra starfsmanna úr hópi atvinnuleitenda.

17.2.2012

Aðalfundur Samorku: Vonbrigði með stöðu rammaáætlunar

Í ályktun aðalfundar Samorku er lýst vonbrigðum með stöðuna og ferlið við gerð rammaáætlunar. Í drögum að tillögu frá ágúst 2011 hafði verið vikið frá faglegri forgangsröðun verkefnisstjórnar og nú er málið öðru sinni statt í ógegnsæju samningaferli á vettvangi stjórnvalda, eftir miklar tafir og með tilheyrandi óvissu. Að mati Samorku væri vænlegast að styðjast einfaldlega við faglega röðun verkefnisstjórnar, frá í júní 2011. Þá ítrekar fundurinn andstöðu við hugmyndir um að færa auðlindamál undir umhverfisráðuneytið.

17.2.2012

Aðalfundur Samorku í dag

Aðalfundur Samorku verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. febrúar. Oddný G. Harðardóttir, starfandi iðnaðarráðherra, ávarpar opna dagskrá fundarins og þá mun Dr. Daði Már Kristófersson, dósent í auðlindahagfræði við Háskóla Íslands, flytja erindi um gjaldtöku, leigutíma og arðsemi orkunýtingar.

14.2.2012

Einn lífeyrissjóður vond hugmynd

Það er afspyrnu vond hugmynd að sameina alla lífeyrissjóði landsins í einn. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við fréttastofu RÚV. Það megi hinsvegar fækka sjóðunum og styrkja þá. Nauðsynlegt sé að samræma lífeyrisréttindi landsmanna án þess að steypa öllum sjóðunum saman.

13.2.2012

Auka þarf hvata í lífeyriskerfinu

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA og stjórnarformaður lífeyrissjóðsins Gildis, ræddi um lífeyrismál á Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 12. febrúar. Þar sagði hann m.a. að auka þurfi hvata í lífeyriskerfinu þannig að ávinningur fólks af því að greiða í lífeyrissjóðina verði meiri en nú er samanborið við greiðslur úr almannatryggingakerfinu. Vilhjálmur sagði lífeyrissjóðina í raun hafa staðið af sér hrun fjármálakerfisins á Íslandi. Ný skýrsla um starfsemi sjóðanna staðfesti það. En á sama tíma er bent á ákveðna þætti sem betur mega fara í starfsemi sjóðanna og taka verður alvarlega.

10.2.2012

Aðild atvinnulífsins að stjórnum lífeyrissjóða styrkir þá

Samtök atvinnulífsins telja að aðild þeirra að stjórnum lífeyrissjóða hafi verið til góðs fyrir uppbyggingu lífeyrissjóðanna og skipt sköpum við að efla þá til þess að gegna hlutverki sínu. Almennt séð er íslenska lífeyrissjóðakerfið talið eitt það besta í alþjóðlegum samanburði og eitt af því sem Ísland getur státað sig af í samfélagi þjóðanna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í nýju fréttabréfi SA samtökin leggja ofurkapp á að fulltrúar þeirra í stjórnum sjóðanna gæti almennra hagsmuna sjóðanna sjálfra og vinni af fullum heilindum fyrir þá sem njóta lífeyrisréttinda og allt samfélagið.

10.2.2012

Aukin þjónusta við atvinnuleitendur

Í dag var undirritað samkomulag milli Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands velferðarráðuneytisins og Vinnumálastofnunar, um aukna þjónustu við atvinnuleitendur. Markmið verkefnisins er efla vinnumiðlun og stuðla að virkari vinnumarkaðsaðgerðum sem auki líkur á að atvinnuleitendur fái störf að nýju á vinnumarkaði. Um er að ræða viðbót við núverandi þjónustu á sviði vinnumiðlunar og ráðgjafar.

8.2.2012

Dönsk fjármálafyrirtæki gera kjarasamning til tveggja ára með 2% hækkun

Í dag, 8. febrúar, undirrituðu samtök fjármálafyrirtækja í Danmörku og stéttarfélag starfsmanna þeirra, kjarasamning sem gildir í tvö ár frá 1. apríl 2012. Laun hækka almennt um 1% þann 1. júlí 2012 og aftur um 1% þann 1. júlí 2013.

8.2.2012

Aðalfundur SA 18. apríl - takið daginn frá

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2012 verður haldinn miðvikudaginn 18. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica en Samtök atvinnulífsins hvetja fólk úr atvinnulífinu og aðra áhugasama um uppbyggingu atvinnulífsins til að taka daginn frá.

3.2.2012

Hvað er samfélagsábyrgð fyrirtækja?

Festa, miðstöð um samfélagsábyrgð fyrirtækja og Samtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar miðvikudaginn 15. febrúar næstkomandi á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Fjallað verður um samfélagsábyrgð fyrirtækja út frá sjónarhorni fræðimannsins, fyrirtækja og neytenda. Róbert H. Haraldsson prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands, Anna Björk Bjarnadóttir framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans og stjórnarformaður Festu, Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar og Brynhildur Pétursdóttir ritstjóri Neytendablaðsins flytja erindi. Að þeim loknum fara fram pallborðsumræður.

1.2.2012

Fundir um samband atvinnulífs og byggðaþróunarsjóða ESB 6. og 7. febrúar

Samtök atvinnulífsins og utanríkisráðuneytið efna til tveggja opinna funda þann 6. og 7. febrúar í Reykjavík og á Akureyri þar sem fjallað verður um byggðaþróunarsjóði ESB og áhrif þeirra. Veli-Pekka Ihanus, finnskur sérfræðingur í byggðamálum, mun halda erindi um hvernig sjóðirnir hafa verið nýttir til nýsköpunar og fjármögnunar verkefna í Finnlandi auk þess að fjalla um hvernig þeir geta styrkt atvinnulíf innan ESB og möguleika fyrirtækja á styrkjum.

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english