Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

29.12.2011

Séreignarsparnađur ađ hámarki 2%

Frá og með 1. janúar 2012 verður heimilaður frádráttur frá tekjum vegna séreignarsparnaðar að hámarki 2% í stað 4%. Ef starfsmaður hefur fram til þessa lagt meira en 2% í séreignarsjóð ber atvinnurekanda að lækka frádráttinn í 2%. Starfsmaður getur óskað þess að halda frádrætti óbreyttum. Breytingin gildir tímabundið til ársloka 2014.

29.12.2011

Ár glatađra tćkifćra

Viðskiptablað Morgunblaðsins fjallar í dag um árið sem er að líða og gerir upp þau mál sem snúa að atvinnulífinu. „Það sem stendur upp úr á árinu var að í maí tókst að ljúka kjarasamningum, að undangenginni langri fæðingu og löngum meðgöngutíma," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins m.a. í samtali við blaðið. „Samningarnir tryggðu vinnufrið, en kostuðu það líka að atvinnulífið teygði sig eins langt og mögulegt var og var sumt jafnvel alveg á jaðri skynseminnar. Útkoman mun líklega jafngilda að jafnaði 13% launahækkunum yfir þriggja ára tímabil."

27.12.2011

Stjórnmálamenn vinni fyrir laununum sínum

Mikilvægt er að stjórnmálamenn og stjórnvöld fari að vinna fyrir laununum sínum, með því að gefa atvinnulífinu tækifæri til að skapa þær tekjur sem þarf til að standa undir launum þeirra og annarra. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu RÚV í tilefni að því að kjararáð dró fyrir jól til baka launalækkanir hjá ráðherrum, þingmönnum og embættismönnum í kjölfar efnahagshrunsins.

21.12.2011

Múrarameistarafélag Reykjavíkur og Félag dúklagninga- og veggfóđrarameistara ganga til liđs viđ SI og SA

Í dag voru undirritaðir samningar um aðild Múrarameistarafélags Reykjavíkur (MM) og Félags dúklagninga- og veggfóðrarameistara (FDV) að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Helgi Magnússon, formaður SI, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, Sigurður Heimir Sigurðsson, formaður MM og Jón Ólafsson, ritari FDV skrifuðu undir samningana. Samtökin fagna þessum góða liðsauka og vænta mikils af auknum styrk og samtakamætti félaga í byggingariðnaði.

20.12.2011

Ađilar taki höndum saman um sköpun nýrra starfa

Gerðardómur hefur nú úrskurðað í ágreiningsmáli HS Orku og Norðuráls á þann veg að afhenda skuli alla umsamda orku til álversins að því gefnu að ákveðin skilyrði séu uppfyllt. Samtök atvinnulífsins fagna því að komin er niðurstaða í þetta mál og hvetja alla aðila sem að málum koma til að taka höndum saman um að ryðja burt þeim hindrunum sem enn standa í vegi þess að framkvæmdir við álverið í Helguvík og tengdar virkjanaframkvæmdir komist á fullt skrið.

16.12.2011

Samstarf um ađgerđir gegn langtímaatvinnuleysi

Samtök atvinnulífsins hafa í nánu samstarfi við aðildarsamtök sín undirbúið þátttöku í átakinu „Til vinnu" undanfarnar vikur. Átakið hefst í byrjun árs 2012 og munu aðgerðir í þágu langtímaatvinnulausra hafa forgang. Tryggja á allt að 1.500 atvinnuleitendum starfstengd úrræði, til viðbótar við þau úrræði sem í boði hafa verið. Síðdegis í dag skrifuðu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins, Alþýðusambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborgar, BSRB og ríkisstjórnar Íslands undir yfirlýsingu um samstarf um átakið.

14.12.2011

Formađur SA: Atvinnumálin verđi sett í forgang

Það er ótalmargt sem betur mætti fara í atvinnulífinu hér á landi og þess vegna beinum við því til Alþingis og alþingismanna að þeir vakni af þyrnirósarsvefni og geri sér grein fyrir stöðunni. Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. í samtali við Morgunblaðið í dag en Samtök atvinnulífsins sendu öllum alþingismönnum bréf í gær þar sem þeir eru hvattir til að setja atvinnumálin og baráttuna gegn atvinnuleysi í forgang. Vilmundur segir að verið sé að draga fyrirtæki niður í svaðið með óhóflegri skattheimtu en þar má t.d. nefna hækkun kolefnisgjalds, sérstakan launaskatt á banka, óhóflega hækkun veiðigjalds, framlengingu og hækkun auðlegðarskatts.

13.12.2011

Stefnir í ađ 2011 verđi nćst mesta brottflutningsár Íslendinga

Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra: „Fólksflutningar núna eru ekkert meiri en í venjulegu árferði. Þeir voru töluverðir árið 2009 og 2010 en það hefur stöðvast miðað við þann mikla brottflutning sem var áður. Þannig að við erum bara á svipuðu róli og var þá." Þetta er því miður ekki rétt hjá forsætisráðherra.

 

Á vef Hagstofunnar kemur fram að brottfluttir umfram aðflutta hafi verið tæplega 1.400 á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Brottfluttir íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta voru 1.320 og erlendir voru 80. Ef fram heldur sem horfir verða brottfluttir Íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta 1700-1800 á árinu öllu. Ef svo fer verður árið 2011 næst mesta brottflutningsár Íslendinga í sögunni í fjölda einstaklinga talið. Einungis árið 2009 er hærra með tæplega 2.500 brottflutta Íslendinga umfram aðflutta en árið 2010 voru þeir 1.700.

13.12.2011

Til Alţingis frá SA: Virkjum tćkifćrin og rjúfum kyrrstöđuna

Samtök atvinnulífsins sætta sig ekki við núverandi ástand og horfur í atvinnumálum. Með markvissum aðgerðum er hægt að koma efnahagslífinu á rétta braut. Efnahagsleg stöðnun er heimatilbúinn valkostur. Það er löngu tímabært að atvinnumálin fái forgang.

 

Lítill hagvöxtur, skortur á framkvæmdum og fjárfestingum, atvinnuleysi og brottflutningur fólks tefur endurreisn og rýrir lífskjör fólks í landinu. Árið 2011 er enn eitt ár vannýttra tækifæra. „Eitthvað annað" stefnan er fullreynd.

 

Samtök atvinnulífsins benda á atvinnuleiðina. Markvissa leið fjárfestinga og framkvæmda, sem dregur úr atvinnuleysi og eykur hagvöxt.

 

Samtök atvinnulífsins hvetja Alþingi að taka nú frumkvæði og láta framsæknar aðgerðir í atvinnumálum hafa algjöran forgang. Mörkum skýra stefnu, eyðum óvissu undirstöðuatvinnugreina. Leysum úr læðingi uppsafnaða fjárfestingarþörf og sköpum ný atvinnutækifæri í byggðum landsins.

 

Sækjum fram. Rjúfum kyrrstöðuna og virkjum þau tækifæri sem blasa við.

 

Sent til allra alþingismanna 13. desember 2011. 

13.12.2011

Nýir kjarasamningar í Svíţjóđ

Fyrsti kjarasamningurinn í yfirstandandi samningalotu í Svíþjóð var undirritaður í gær, 12. desember. Samningurinn er á milli vinnuveitenda í tæknigeiranum (Teknikarbetsgivarna) og þriggja stéttarfélaga. Samningurinn tekur til 300 þúsund starfsmanna, sem svarar til 6,5% af þeim 4,5 milljónum sem starfa á sænska vinnumarkaðnum. Fyrirtækin í tæknigeiranum standa undir helmingi vöruútflutnings Svíþjóðar.

12.12.2011

Veikar undirstöđur hagvaxtar rćddar á Sprengisandi

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 11. desember. Þar sagði hann m.a. að nýjar tölur Hagstofunnar um 3,7% hagvöxt á fyrstu 9 mánuðum ársins ekki gefa vísbendingar um að viðsnúningur til hins betra hafi orðið í atvinnulífinu. Hagvöxturinn skýrist af aukinni einkaneyslu vegna tímabundinna ástæðna og aukinnar makrílveiði sem hafi reynst þjóðarbúinu mikilvæg búbót.

 

Hannes bendir á að störfum fjölgi nánast ekki neitt, mikill flótti fólks sé frá landinu og fáar vísbendingar um að umtalsverðar fjárfestingar í atvinnulífinu séu framundan. Hagvöxturinn hvíli því á veikum grunni, en auka þurfi verðmætaframleiðslu atvinnulífsins, skapa ný störf og efla rekstur starfandi fyrirtækja með arðbærum fjárfestingum.

12.12.2011

Nýr skattur bitnar á almennu lífeyrissjóđunum

Nýr skattur gæti orðið til þess að lífeyrir þeirra sem fá greitt úr almennum lífeyrissjóðum lækki. Ríkisábyrgð tryggir hinsvegar að skatturinn hefur engin áhrif á þá sem fá greitt úr opinberum sjóðum. Þetta kemur fram í umfjöllun fréttastofu RÚV um áform ríkisstjórnarinnar að skattleggja lífeyrissjóðina til að fjármagna tímabundna vaxtaniðurgreiðslu. Áformin hafa verið gagnrýnd harðlega.

8.12.2011

Af dyggđum og löstum stjórnenda og stjórnmálamanna

Fjármálakreppan og skuldakreppan sem leikur nú ríki Evrópu grátt eiga eftir að hafa áhrif á næstu árum og fyrir ýmsar þjóðir getur tekið mörg ár að vinna sig út úr vandanum. Fjármálakerfi heimsins á eftir að aðlagast þeirri staðreynd að ríkisskuldabréf eru ekki lengur áhættulaus fjárfesting. Jafnvel bandarísk ríkisskuldabréf geta lækkað í mati sem fyrir nokkrum árum hefði þótt óhugsandi. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara nýs fréttabréfs SA. Þar fjallar hann m.a. um skilin milli heilbrigðs metnaðar í atvinnulífinu og græðgi ásamt því að rýna í dyggðir og lesti stjórnmálamanna. Hann segir að nú refsi markaðirnir þeim ríkjum þar sem stjórnmálamenn hafi farið offari í ábyrgðarleysi og skuldasöfnun.

 

Vilhjálmur segir að ef atvinnulífið fái að blómstra komist Ísland út úr kreppunni. „Mikill heilbrigður metnaður er til staðar í atvinnulífinu og í langflestum fyrirtækjum landsins er fólk sem hefur til margra ára gengið til starfa sinna með aga og heiðarleika í fyrirrúmi. Það sem vantar á er að stjórnmálamennirnir leyfi atvinnulífinu að nýta tækifærin."

8.12.2011

Hagvöxtur í bođi makrílsins

Hagvöxtur var 3,7% á fyrstu níu mánuðum ársins samkvæmt tölum Hagstofunnar frá 7. desember. Þessar tölur birtust nokkrum dögum eftir að Hagstofan kynnti áætlun um 2,4% hagvöxt á árinu öllu, sem var 24. nóvember. Ætla mætti því að þessar nýju ársfjórðungstölur hefðu legið fyrir þegar áætlunin var birt og þar af leiðandi felist engar viðbótar upplýsingar í þessum nýjustu tölum. Þær hafa þó orðið einhverjum tilefni til þeirrar túlkunar um að verulegur viðsnúningur til hins betra hafi orðið í atvinnulífinu. Það er því miður ekki rétt. Hagvöxtur ársins skýrist af því að einkaneysla eykst að stórum hluta af tímabundnum ástæðum og sérstakur búhnykkur vegna makrílveiða vegur þungt í aukningu útflutnings.

8.12.2011

Ótraustur grunnur tekjuspár fjárlaga

Alþingi hefur afgreitt fjárlög ríkisins fyrir árið 2012. Halli ríkissjóðs eykst um 3 milljarða króna frá fjárlagafrumvarpi og er áætlaður 21 milljarður. Rökstuddar ábendingar hafa komið fram um vantalin gjöld og ofáætlaðar tekjur þannig að hallinn á árinu 2012 gæti orðið meiri þegar upp er staðið. Fjárlögin einkennast af þeirri stefnu ríkisstjórnarinnar að leggja á nýja skatta og hækka álögur á fyrirtæki og heimili í stað þess að stuðla að stækkun skattstofna sem skapa myndu auknar tekjur fyrir ríkissjóð.

8.12.2011

Helle Johansen: Tími kominn til ađ horfa fram á veginn

„Rúmlega þrjú ár eru nú liðin frá því Ísland lenti í hringiðu hinnar alþjóðlegu fjármálakrísu í október 2008. Síðan hafa mörg fyrirtæki gengið í gegnum endurskipulagningu á rekstri sínum og þurft að segja upp starfsfólki. Nú er hins vegar tími til kominn að horfa fram á veginn og hefja endurreisn með því að byggja upp traust á ný. Global Compact (sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um samfélagsábyrgð) getur hjálpað fyrirtækjum á þeirri vegferð." Þetta segir Helle Johansen, forstöðumaður hjá UNDP í Kaupmannahöfn, í grein á vef SA.

6.12.2011

Kjarasamningar í Finnlandi til tveggja ára

Heildarsamtökin á finnska vinnumarkaðnum gerðu nýlega rammasamning sem gildir næstu tvö árin og tekur hann til 94% launamanna í landinu. Aðilar að samningnum eru Samtök atvinnulífsins í Finnlandi, samtök vinnuveitenda hjá ríki og sveitarfélögunum annars vegar og tvenn heildarsamtök launafólks hins vegar. Samkvæmt samningnum má launakostnaður einstakra kjarasamninga milli vinnuveitenda og stéttarfélaga ekki hækka meira en 4,3% á næstu 25 mánuðum.

2.12.2011

Meistarafélag húsasmiđa gengur til liđs viđ Samtök iđnađarins

Nýlega var undirritaður samningur um aðild Meistarafélags húsasmiða að Samtökum iðnaðarins og Samtökum atvinnulífsins. Helgi Magnússon, formaður SI, Grímur Sæmundsen, varaformaður SA og Baldur Þór Baldvinsson, formaður MH skrifuðu undir samninginn.

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english