Fréttir
30.8.2010
Gegn svartri atvinnustarfsemi og undirbođum á vinnumarkađi
Þann 15. ágúst 2010 tók gildi samkomulag ASÍ og SA um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Markmið samkomulagsins er að tryggja að allir atvinnurekendur og starfsmenn þeirra fari að gildandi lögum, reglugerðum og kjarasamningum. Það er mikilvægt að öll fyrirtæki sitji við sama borð og fylgi settum reglum en vinnustaðaskírteinum er ætlað að vinna gegn svartri atvinnustarfsemi og undirboðum á vinnumarkaði.
23.8.2010
Ráđstefna um samgöngu- og orkumál: Driving Sustainability 2010
Dagana 16.-18. september verður ráðstefnan Driving Sustainability haldin á Hilton Reykjavík Nordica. Þetta er í fjórða sinn sem ráðstefnan er haldin en hún höfðar til þeirra sem vilja fylgjast með þróun samgöngumála og orkumála. Félagsmönnum Samtaka atvinnulífsins býðst 25% afsláttur af ráðstefnugjaldi til og með 27. ágúst. Miðinn kostar kr. 56.900 ef hann er keyptur fyrir þann tíma.
19.8.2010
Reglur um fjármál sveitarfélaga algengar utan Íslands
Í flestum OECD-ríkjum hefur ríkisvaldið sett fjármálareglur sem gilda fyrir lægri stjórnsýslustig, eða þau hafa sjálf sett þær, til þess að koma í veg fyrir skuldasöfnun eða útgjaldavöxt hins opinbera. Yfirleitt er með setningu eða aðlögun slíkra reglna stefnt að því að tryggja markmið í hagstjórn og stöðugleika í efnahagslífinu. SA telja mikilvægt að slíkar reglur verði settar á Íslandi en umsvif sveitarfélaga hafa aukist verulega á undanförnum árum.
19.8.2010
Tćkifćri í atvinnumálum verđi nýtt
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Fréttablaðið í dag að stjórnvöld verði að nýta sér góðar horfur í efnahagslífinu og beita sér fyrir því að koma verkefnum á borð við álverið í Helguvík í gang. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir í frétt blaðsins að það yrði gríðarlegt reiðarslag ef eigendur Norðuráls hættu við byggingu álvers í Helguvík vegna óvissu um raforku og tafa á veitingu virkjanaleyfis. Stjórnvöld verði að fylgja eftir batasporum í efnahagslífinu með þróttmeiri ákvörðunum í efnahagsmálum. Einkennileg staða sé uppi hjá stjórnvöldum í málefnum HS Orku, sem setji álver í Helguvík í uppnám.
16.8.2010
Skattar verđi ekki hćkkađir
Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að skattar verði ekki hækkaðir heldur opinber útgjöld lækkuð til að ná jafnvægi í ríkisfjármálum fyrir næsta fjárlagaár. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttavef Vísis vegna fréttar Morgunblaðsins um að ríkisstjórnin hyggist hækka skatta, m.a. fjármagnstekjuskatt, tekjuskatt fyrirtækja, auðlegðarskatt, erfðafjárskatt og umhverfis- og auðlindagjald auk áforma um sérstakan bankaskatt.
10.8.2010
Hćgir á fjölgun örorkulífeyrisţega
Verulega hefur hægt á fjölgun örorkulífeyrisþega, þ.e. þeirra sem skráðir eru með 75% örorku eða meira, á þessu ári miðað við það síðasta. Fjöldi örorkulífeyrisþega var 15.842 þann 1. júlí síðastliðinn en hann var 15.677 í ársbyrjun þannig að fjölgunin á árinu nemur 165 einstaklingum á fyrri hluta ársins. Þetta er mikil breyting frá fyrri árum þar sem örorkulífeyrisþegum fjölgaði um 500-1.300 árlega á árabilinu 2004-2009.
10.8.2010
Vinnustađaeftirlit og vinnustađaskírteini - allar upplýsingar á www.skirteini.is
Þann 15. ágúst næstkomandi tekur gildi samkomulag SA og ASÍ um vinnustaðaskírteini og eftirlit á vinnustöðum. Samkomulagið byggir á lögum nr. 42/2010 um sama efni sem veita heildarsamtökum vinnumarkaðarins heimild til að semja um hvaða starfsgreinar falli undir gildissvið laganna hverju sinni. Öllum atvinnurekendum í hlutaðeigandi greinum ber að sjá til þess að starfsmenn fái vinnustaðaskírteini þegar þeir hefja störf.
Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
NÝTT RIT SA
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA









