Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

28.8.2009

ESB-hópar SA taka til starfa

Samtök atvinnulífsins hafa ákveðið að skipa sex starfshópa til að fjalla um málefni atvinnulífsins vegna aðildarumsóknar Íslands að ESB. Aðildarfélög SA munu fjalla um afstöðuna til ESB innan eigin raða út frá hagsmunum sinna atvinnugreina en starfshópum SA er ætlað að fjalla um málið út frá tilteknum atriðum sem snerta atvinnulífið sem heild.

24.8.2009

Engin fjárfesting viđ núverandi ađstćđur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir algjört stopp í fjárfestingum fyrirtækja. Algjört hrun er til að mynda í sölu bíla til fyrirtækja en nýskráningar fyrirtækjabifreiða hafa dregist saman um 87 prósent það sem af er ári miðað við sama tímabil árið 2007. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu. Vilhjálmur segir að Seðlabankinn þurfi að lækka stýrivexti strax. „Það fjárfestir enginn á þessum vöxtum."

18.8.2009

Upplýsingar á ensku um stöđu mála á Íslandi

Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman stutta en greinargóða samantekt á ensku um stöðu efnahagsmála á Íslandi og horfur í viðskiptalífinu. Aðildarfélög SA eru hvött til þess að koma upplýsingunum á framfæri við erlenda samstarfsaðila og viðskiptavini. Samantektina má nálgast á vef SA og verður hún uppfærð reglulega eftir því sem tilefni gefast til.

18.8.2009

Byggja verđur upp traust á Íslandi

Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, segir að taka verði mark á niðurstöðum könnunar alþjóðlegrar lögmannsstofu. Könnunin sýnir meðal annars að yfir 90 prósent þeirra evrópsku banka og fjármálafyrirtækja sem könnunin náði til ætla ekki að fjárfesta á ný hér á landi.

18.8.2009

Icesave búiđ ađ tefja framţróun of lengi

Icesave málið hefur tafið alla framþróun hér á landi of lengi og þess vegna þarf að ganga frá því sem fyrst. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Viðskiptablaðið. Aðspurður um þá fyrirvara sem fjárlaganefnd Alþingis setti á fyrirhuguðu lög um ríkisábyrgð vegna Icesave samkomulagsins við Breta og Hollendinga segist Vilhjálmur vona að þeir verði til þess að málið klárist sem fyrst.

16.8.2009

Kallađ eftir fjárfestingum

„Samtök atvinnulífsins hafa kallað eftir ákvörðunum hjá stjórnvöldum um ný fjárfestingarverkefni, sem eru hluti af stöðugleikasáttmálanum. Það þarf að fara að virkja og koma stórum framkvæmdum í gang sem skapa atvinnu," segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, en SA binda vonir við að lífeyrissjóðir komi að fjármögnun nokkurra verkefna í vega- og mannvirkjagerð. „Það er mikið undir okkur sjálfum komið hversu djúp lægðin verður."

13.8.2009

Seđlabankinn og ríkisstjórnin í sjálfheldu

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að stýrivextir yrðu áfram óbreyttir eða 12%. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is lítið benda til þess að stýrivextir verði komnir í 9% fyrir 1. nóvember líkt og gert er ráð fyrir í stöðugleikasáttmálanum. Hann telur hins vegar að sáttmálinn sé ekki í hættu og treysta verði því að það gangi eftir að vextirnir verði lækkaðir í nánustu framtíð.

11.8.2009

Tímabćrt ađ lćkka vexti

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við fréttavef Viðskiptablaðsins löngu tímabært að lækka stýrivexti Seðlabankans. Enginn rekstur standi undir 12% stýrivöxtum. Hann segir rök Seðlabankans fyrir háum stýrivöxtum haldi ekki þar sem sú verðbólga sem Íslendingar upplifi nú skapist ekki af umframeftirspurn og þenslu eða kostnaðarhækkunum innanlands. Hún stafi fyrst og fremst af aðlögun að lágu gengi krónunnar.

10.8.2009

Öflugur gjaldeyrisvarasjóđur nauđsynlegur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir nauðsynlegt fyrir Íslendinga að byggja upp öflugan gjaldeyrisvarasjóð. Án hans verði erlendir fjármagnsmarkaðir lokaðir fyrir Íslandi, jafnt fyrirtækjum sem hinu opinbera. Fréttastofa RÚV ræddi við Vilhjálm um málið.

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
NÝTT RIT SA
11.11.11:
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english