Fréttir
13.7.2009
Báđir ađilar hafa samţykkt samkomulagiđ frá 25. júní
7. júlí sl. sendu Samtök atvinnulífsins ASÍ tilkynningu um að framkvæmdastjórn samtakanna hefði samþykkt samkomulag SA og samninganefndar ASÍ sem gert var 25. júní sl. Alþýðusamband Ísland sendi SA í dag staðfestingu á samkomulaginu fyrir hönd samninganefndar ASÍ. Launahækkanir, eins og samið var um 25. júní sl., koma því til framkvæmdar frá og með síðustu mánaðamótum.
9.7.2009
Stöđugleikasáttmálinn - vegvísir út úr kreppunni
9.7.2009
Til félagsmanna í Samtökum atvinnulífsins
9.7.2009
Hvatt til innlendrar og erlendrar fjárfestingar
9.7.2009
Launabreytingum frestađ
Með samkomulagi SA og ASÍ um framlengingu kjarasamninga þann 25. júní var launabreytingum frestað. Einungis kauptaxtar kjarasamninga hækka 1. júlí, um kr. 6.750 hjá verkafólki og afgreiðslufólki en kr. 8.750 hjá iðnaðarmönnum og skrifstofufólki. Nýju kauptaxtana má finna í nýrri kaupgjaldsskrá SA. Laun sem eru hærri en nýju kauptaxtarnir hækka ekki.
9.7.2009
Umsagnir SA til Alţingis
Samtök atvinnulífsins vekja athygli á þremur umsögnum SA til Alþingis sem má nálgast á vef samtakanna. Um er að ræða umsagnir um frumvarp fjármálaráðherra vegna Icesave, frumvarp um Bankasýslu ríkisins og umsögn um tillögu að aðildarumsókn Íslands að ESB. Samtök atvinnulífsins styðja að gengið verði til samninga vegna Icesave og benda á að efnahagslegur kostnaður af því að fella samkomulagið gæti orðið mjög mikill. Lausn málsins sé þáttur í því að sköpun starfa geti hafist á ný á Íslandi.
9.7.2009
Óskilvirk vinnumiđlun
9.7.2009
Um tekjur og gjöld Atvinnuleysistryggingasjóđs
Tekjustofn Atvinnuleysistryggingasjóðs er atvinnutryggingagjald, sem er hluti af lögbundnu tryggingagjaldi atvinnurekenda sem reiknast af greiddum launum. Í árslok 2008 var eigið fé sjóðsins um 16 milljarðar króna. Aukin greiðslubyrði sjóðsins vegna nýrra viðfangsefna og sérstakrar hækkunar bóta í janúar umfram almennar launahækkanir var talin leiða til þess að sjóðurinn myndi tæmast haustið 2009 ef ekkert yrði að gert. Með hækkun atvinnutryggingagjalds frá 1. júlí sl. úr 0,65% í 2,21% gera bjartsýnustu spár ráð fyrir að um næstu áramót verði eigið fé sjóðsins jákvætt um 2,5 milljarða en útlitið verði dökkt á árinu 2010.









