Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

30.6.2009

Upplýsingar um stöđugleikasáttmála á ensku

Á vef forsætisráðuneytisins má nú nálgast upplýsingar á ensku um helstu þætti nýs stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar. Einnig hefur sáttmálinn verið þýddur í heild og birtur á vef ráðuneytisins.

25.6.2009

Framlenging kjarasamninga viđ ASÍ – Stöđugleikasáttmáli

Kjarasamningar við ASÍ og aðildarfélög þess hafa verið framlengdir til 30. nóvember 2010. Stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar fjallar um aðgerðir í efnahags- og atvinnumálum sem skipta sköpum fyrir alla þjóðina og gríðarlega mikilvægt er að vel takist til um framkvæmd sáttmálans.

22.6.2009

Enn rćtt um stöđugleikasáttmála

Forsvarsmenn launþega og atvinnurekenda, lífeyrissjóða og sveitarfélaga funda enn með stjórnvöldum um gerð stöðugleikasáttmála í efnahagsmálum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að kraftaverk þurfi til að samkomulag takist. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.

18.6.2009

Stefnumörkun vantar um endurreisn bankanna

Aðilar vinnumarkaðarins áttu í gærkvöld fund með ríkisstjórninni. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að á fundinum hafi verið farið yfir stöðuna til að reyna að átta sig á því hvað gerist á næstu dögum. Svo virðist sem ríkisfjármálin séu að skýrast en stefnumörkun vanti af hálfu ríkisstjórnarinnar um endurskipulagningu bankanna. Þá sé engra breytinga að vænta hvað varðar gjaldeyrishöft og stýrivexti Seðlabankans.

18.6.2009

Ný útgáfa leiđbeininga um stjórnarhćtti fyrirtćkja

Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og NASDAQ OMX Iceland gáfu út í dag endurskoðaðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Í þessari 3. útgáfu leiðbeininganna er sérstaklega horft til sambærilegra leiðbeininga frá öðrum löndum og forskriftar framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu. Fleiri og ítarlegri ákvæði eru í nýju leiðbeiningunum og gerðar eru ríkari kröfur til stjórnenda fyrirtækja en áður á nær öllum sviðum.

16.6.2009

EES-samningurinn verđi ekki vanrćktur

Samtök atvinnulífsins hafa skilað utanríkismálanefnd Alþingis umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðildarumsókn að Evrópusambandinu (38. mál) og tillögu til þingsályktunar um undirbúning mögulegrar umsóknar um aðild að Evrópusambandinu (54. mál). Í umsögn SA segir m.a. að samtökin fagni því að stjórnvöld hyggist hafa víðtækt samráð við hagsmunaaðila um samningsmarkmið fyrir hugsanlegar aðildarviðræður við ESB. Samtök atvinnulífsins vara hins vegar við því að íslensk stjórnvöld glati metnaði sínum um áframhaldandi þátttöku í Evrópska efnahagssvæðinu eins og hafi gerst á undanförnum árum.  Slíkt geti reynst íslensku atvinnulífi dýrkeypt.

15.6.2009

Nýtt fréttabréf SA komiđ út

Júnítölublað fréttabréfs SA, Af vettvangi, er komið út á vef SA. Þar er m.a. fjallað um risavaxna áskorun í ríkisfjármálunum en stjórnvalda bíður það verkefni að draga úr ríkisútgjöldum um 100 milljarða á þremur árum, eða sem nemur 20% af útgjöldum. Niðurstöður nýrrar Capacent-könnunar sýna að íslenskir stjórnendur eru svartsýnni á framtíðina en áður. Fjallað er um svarta framtíðarspá sem kynnt var á ársþingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) en hún gerir ráð fyrir heimskreppu til ársins 2015. Í fréttabréfinu er jafnframt bent á að Íslendingar geti sparað 11 milljarða á ári með því að taka upp rafræn viðskipti.

11.6.2009

Risavaxin áskorun í ríkisfjármálum

Ekki hefur enn verið tekin pólitísk ákvörðun um hlutföll skatttekna og niðurskurðar í blandaðri leið til aukins aðhalds í ríkisfjármálum. Að mati Samtaka atvinnulífsins er óraunhæft að ganga út frá því að helmingur aðhaldsins náist með auknum skatttekjum því það muni ganga of nærri skattstofnunum. Þetta segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA. Hann segir það enda með ósköpum ef ekki verði tekið á halla ríkissjóðs fyrr en síðar. Stjórnvalda bíði það verkefni að draga úr ríkisútgjöldum um 100 milljarða á þremur árum, eða sem nemur 20% af útgjöldum.

11.6.2009

Stjórnendur svartsýnni á framtíđina

Niðurstöður ársfjórðungslegrar könnunar Capacent Gallup meðal stærstu fyrirtækja landsins liggja nú fyrir. Líkt og í samsvarandi könnunum í mars 2009 og desember 2008 meta stjórnendur fyrirtækjanna aðstæður í atvinnulífinu afleitar. Telja stjórnendur 97% þeirra fyrirtækja sem svara könnuninni að aðstæður séu nú mjög slæmar (62%) eða frekar slæmar (35%), en ekkert fyrirtæki telur þær góðar.

11.6.2009

Heimskreppa til ársins 2015?

Á ársþingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) í Genf sem nú stendur yfir er m.a. fjallað um það hvort efnahagur heimsins fari að rétta úr kútnum eða hvort áframhaldandi þrengingar séu í spilunum. Í umræðum í nefnd um viðbrögð við kreppunni hefur komið fram það álit að hægur viðsnúningur hefjist á árinu 2010 sem þó sé háður því að fjármálakerfi heimsins fari að virka sem skyldi og fjármagnsflutningar verði með eðlilegum hætti. Svartsýnustu spár gera ráð fyrir því að störfum fari ekki að fjölga að ráði fyrr en í fyrsta lagi árið 2015.

11.6.2009

Bćttur hagur međ rafrćnum viđskiptum

Verulegur ávinningur er fólginn í innleiðingu rafrænna viðskipta en samkvæmt nýlegri erlendri rannsókn er ávinningur af upptöku rafrænna innkaupa áætlaður nema allt að 0,8% af vergri landsframleiðslu. Í tilfelli Íslands væri sparnaðurinn því um 11 milljarðar á ári. Áætlað er að 80-90% innkaupa nú séu á pappírsformi en hægt er að lækka kostnað um 70-75% með fyrir hvern reikning sem berst rafrænt í stað pappírs eða um 200 krónur.

11.6.2009

Stađlar seljast sem aldrei fyrr

Staðlar seljast vel um þessar mundir en í maí sló salan líkast til met. Í lok ársins 2008 voru tæplega 21 þúsund staðlar í gildi á Íslandi en þegar kreppir að opnast augu fólks fyrir gildi þess að nýta sér stöðluð viðmið, fyrirmyndir og samræmdar aðferðir. Staðlaráð selur staðla, stendur fyrir námskeiðum og veitir ráðgjöf, upplýsingar og þjónustu um hvaðeina er lýtur að stöðlum og stöðlun. Áfram miðar í starfi ráðsins og aðila vinnumarkaðarins við að búa til staðal til að byggja á vottunarkerfi um framkvæmd jafnlaunastefnu.

10.6.2009

Rćddu stöđu efnahagsmála

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, og Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, ræddu stöðu efnahagsmála í morgunþætti Bylgjunnar í morgun. Þar sagði Vilhjálmur forgangsmál að halda fyrirtækjunum í landinu gangandi og skapa þeim þannig umhverfi að þau þori að fjárfesta, byggja upp og ráða fólk í vinnu. Verðmætasköpunin verði að halda áfram.

9.6.2009

Opinn fundur um útirćktun á erfđabreyttu byggi

Umhverfisstofnun hefur til meðferðar umsókn fyrirtækisins ORF Líftækni hf. varðandi leyfi til útiræktunar á erfðabreyttu byggi. Talsverð umræða hefur farið fram að undanförnu um þetta mál en í dag kl. 13 efnir Umhverfisstofnun til upplýsingafundar á Grand Hótel Reykjavík. Stofnunin telur mikilvægt að fólk sé upplýst um málið. ORF er stærsta fyrirtæki Evrópu á sínu sviði en 26 starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu á Íslandi.

8.6.2009

„Allir ţurfa ađ standa saman"

„Þetta er eitthvað sem við höfum ekki þurft að horfast í augu við," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um stöðu ríkisfjármála í samtali við mbl.is. Fulltrúar SA og ASÍ funduðu í gær um stöðu efnahagsmála í Karphúsinu og einnig var fundað í fjármálaráðuneytinu. „Til þess að ná þessu þá þurfa allir að standa saman. Allir sem hafa einhvern snefil af ábyrgð í samfélaginu," segir Vilhjálmur um áform stjórnvalda um 150 milljarða niðurskurð á næstu þremur árum.

8.6.2009

Endurreisn fyrirtćkja vandmeđfarin

Aldrei í lýðveldissögunni hefur ástandið verið jafn alvarlegt hjá jafn mörgum fyrirtækjum. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA, í grein í Morgunblaðinu. Þór segir að bregðast verði skjótt við en endurreisn fyrirtækja sé vandmeðfarin. Reisa verði rekstur þeirra við í nánu samstarfi við eigendur og lykilstarfsmenn.

5.6.2009

Miklar hćkkanir hjá opinberum starfsmönnum og verkafólki á 1. ársfjórđungi 2009

Laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu að meðaltali um 4,1% frá 1. ársfjórðungi 2008 til sama fjórðungs á þessu ári, en um 11,3% hjá opinberum starfsmönnum. Þetta er mikill munur, 7,2%, og er afar sjaldgæft að svo mikill munur sé á þróun þessara meginfylkinga á vinnumarkaðinum. Á fjórðungnum á undan, 4. ársfjórðungi 2008,  var hækkunin 6,5% á almennum vinnumarkaði frá sama tíma árið áður, en 12,7% hjá opinberum starfsmönnum, sem er  6,2% munur.

5.6.2009

Áfram rćtt um stöđugleikasáttmála

Samtök atvinnulífsins funduðu í morgun með ASÍ hjá ríkissáttasemjara ásamt samtökum atvinnurekenda og launafólks á opinberum vinnumarkaði. Þar var ákveðið að halda áfram að ræða gerð stöðugleikasáttmála. Reynt verður að skapa samstöðu um þær erfiðu ákvarðanir sem eru framundan og eyða óvissu um horfur í ríkisfjármálum og efnahagsmálum. Þar til niðurstaða þessara viðræðna verður ljós bíða viðræður um kjaramál.

5.6.2009

Vilhjálmur og Gylfi í Kastljósinu

Forsvarsmenn SA og ASÍ eru á einu máli um að lækkun stýrivaxta Seðlabankans í gær í 12% hafi verið allt of lítil og setji áform aðila um gerð stöðugleikasáttmála í uppnám. Rætt var við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, og Gylfa Arnbjörnsson, forseta Alþýðusambands Íslands í Kastljósi RÚV í gær. Þeir segja hvorki fólk né fyrirtæki standa undir vöxtunum. Aðilar vinnumarkaðarins hittast hjá Ríkissáttasemjara kl. 10 en fram hefur komið að SA muni ekki framlengja kjarasamninga við þær aðstæður sem atvinnulífið býr við.

4.6.2009

Kjaraviđrćđur lognast út af vegna hárra vaxta

 „Þessi stýrivaxtaákvörðun þýðir væntanlega að það lognast út af allar kjaraviðræður, því við erum ekki að fara að hækka laun á þessum forsendum, með stýrivexti svona háa," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við mbl.is. Stýrivextir hefðu þurft að lækka niður í eins stafs tölu til þess að það væri nokkurt vit í því að halda viðræðum áfram. Tilkynnt var um lækkun stýrivaxta um eitt prósentustig í 12% í morgun. Vilhjálmur segir ljóst að kjarasamningar verði ekki framlengdir og opnist því 1. júlí. Horfur á vinnumarkaði virðist ekki skipta Seðlabankann neinu máli.

4.6.2009

Auknar álögur á fyrirtćki

Til að tryggja atvinnuleysistryggingasjóði fé verða álögur á fyrirtæki auknar á næstunni, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við fréttastofu RÚV. Það skerði getu þeirra til að hækka laun.

4.6.2009

Ríkisbankarnir verđi útibú erlendra banka

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur heppilegt fyrir atvinnulífið að íslensku ríkisbankarnir færist í eigu erlendra banka og verði jafnvel útibú frá þeim. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Nauðsynlegt sé að bankarnir geti fjármagnað sig á góðum kjörum og margir erlendir bankar njóti mun betra lánshæfismats heldur en íslenska ríkið.

4.6.2009

Flýtum vegaframkvćmdum og sköpum störf

Hægt er að flýta vegaframkvæmdum á næstu 2-4 árum án þess að þær íþyngi ríkinu. Með því verða sköpuð störf og öryggi aukið í umferðinni sem sparar þjóðfélaginu milljarða króna á ári. Þetta segir Þór Sigfússon, formaður SA , í grein í Fréttablaðinu. Þór segir hægt að ráðast í fjölda verkefna með sömu aðferðafræði og beitt var við byggingu Hvalfjarðarganganna með aðkomu lífeyrissjóða, alþjóðlegra þróunarbanka og íslenskra fjármálafyrirtækja. Hann nefnir  lagningu Sundabrautar, breikkun Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar og arðbæra gangagerð á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni.

3.6.2009

Samtök atvinnulífsins og stjórnir lífeyrissjóđa

Morgunblaðið birtir í dag grein eftir Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, um SA og stjórnir lífeyrissjóða. Þar segir hann m.a.: „Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin hafa á undanförnum áratugum byggt upp lífeyrissjóði sem eru í senn öflugir, faglega reknir og dæmi um svið þar sem okkur Íslendingum hefur tekist sérlega vel til í samanburði við aðrar þjóðir." Vilhjálmur segir lífeyrissjóðina ekki hafna yfir gagnrýni en með greininni vilji hann svara ómálefnalegri og óvandaðri umfjöllun sem birst hefur í Morgunblaðinu um lífeyrissjóðina.

3.6.2009

Umtalsverđ lćkkun stýrivaxta nauđsynleg

 „Ef við fáum ekki umtalsverða vaxtalækkun þýðir ekkert að tala um launahækkanir," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í Fréttablaðinu í dag. Viðræður um stöðugleikasáttmála héldu áfram milli SA, ASÍ og hins opinbera í gær. Rætt var við fulltrúa sveitarfélaga og forystumenn ríkisstjórnarinnar. Vilhjálmur segist hafa lagt áherslu á að fjárlagahallanum verði náð hraðar niður og fjárhagsáætlanir gerðar til þriggja ára. Einnig hafi verið talað um aðkomu lífeyrissjóða að atvinnulífinu. Beðið er ákvörðunar Seðlabankans um stýrivexti.

2.6.2009

Tryggja verđur útstreymisheimildir til orkufreks iđnađar

Umhverfisráðuneytið tilkynnti á föstudag að ríkisstjórnin hafi samþykkt að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi um 15% frá árinu 1990 til ársins 2020. Þetta hefur nú verið kynnt sem markmið Íslands í viðræðum um nýtt alþjóðlegt samkomulag til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Yfirlýst markmið nær til alls útstreymis á Íslandi nema því sem tengist orkufrekum iðnaði. Þess misskilnings virðist gæta að ekki sé þörf á að viðhalda íslenska ákvæðinu svokallaða.

2.6.2009

Öguđ hagstjórn forsenda fastgengis

„Að taka upp fastgengi er ekki eitthvað sem við getum ákveðið að gera á morgun," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við Fréttablaðið. Hann segir að í tengslum við gerð stöðugleikasáttmála hafi verið rætt um möguleikann á því að taka upp fastgengisstefnu, enda sé núverandi peningamálastefna komin í þrot.


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
NÝTT RIT SA
11.11.11:
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english