Fréttir
29.4.2009
Mun verđhjöđnun fylgja efnahagshruni?
28.4.2009
Óvissu verđi eytt
Á fundi nýrrar stjórnar Samtaka atvinnulífsins sem haldinn var í dag var áhersla lögð á að stjórnmálalegri óvissu verði eytt sem fyrst og að stefna landsins verði mótuð til framtíðar. Verulegur árangur í niðurskurði ríkisútgjalda sé forsenda þess að landið komist hratt upp úr öldudalnum.
28.4.2009
Sóknarfćri á sviđi íslenskrar hönnunar
27.4.2009
Rćtt um kosti rafrćnna reikninga
24.4.2009
Upptökur frá ađalfundi SA 2009
Á vef SA má nú nálgast ræður og innslög frá aðalfundi SA sem fram fór miðvikudaginn 22. apríl. Ræðu Þórs Sigfússonar, formanns SA, ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra og stutt viðtöl við fjölda stjórnenda úr íslensku atvinnulífi.
24.4.2009
Erindi Ásbjörns Gíslasonar á ađalfundi SA
23.4.2009
Andri Ţór Guđmundsson á ađalfundi SA
22.4.2009
Erindi Ţórs Sigfússonar á ađalfundi SA
Aðalfundur SA 2009 fór fram á Hilton Reykjavík Nordica á síðasta degi vetrar. Um 400 manns sóttu fundinn. Þór Sigfússon hóf opna dagskrá með erindi sem má nálgast á vef SA. Þór sagði Samtök atvinnulífsins hafa ítrekað að koma verði atvinnulífinu af stað til að hægt sé að skapa störf og lækka verði vexti hratt. „Vaxtastefnan hérlendis hefur verið sem snara um háls atvinnulífsins. Háir vextir hérlendis lama hundruð fyrirtækja í hverjum mánuði og koma þeim úr umferð. Munum að hávaxtastefnan er heimatilbúin og ein stærsta einstaka ástæðan fyrir því hversu illa er komið fyrir landinu okkar," sagði Þór.
22.4.2009
Erindi forsćtisráđherra á ađalfundi SA
„Bankarnir, útflutningsfyrirtækin og atvinnu- og viðskiptalífið eru ómissandi hlekkir í þeirri endurreisn sem framundan er og það eru okkar öflugu lífeyrissjóðir líka." Þetta sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, á aðalfundi SA . Jóhanna sagðist taka undir yfirskrift fundarins, Atvinnulífið skapar störfin, og lýsti því yfir að hún væri tilbúin í samstarf við atvinnulífið um sköpun starfa sem flest verði til á hinum almenna markaði.
22.4.2009
Ţór Sigfússon endurkjörinn formađur SA
Á aðalfundi SA 22. apríl 2009 var Þór Sigfússon endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins. Kosningin fór fram með rafrænum hætti og var þátttaka góð. Þór var rétt kjörinn formaður starfsárið 2009-2010 með 74% greiddra atkvæða. Þór er að ljúka sínu fyrsta starfsári sem formaður SA.
22.4.2009
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins fyrir 2009-2010
Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2009 til 2010. Nýir koma inn í stjórnina þau Adolf Guðmundsson, Gullbergi ehf., Finnur Árnason, Högum hf., Margrét Kristmannsdóttir, PFAFF hf., Sigríður Margrét Oddsdóttir, Símanum hf., Jón Sigurðsson, Össuri hf. og Kristín Pétursdóttir, Auði Capital. Úr stjórninni ganga þau Eiríkur Tómasson, Þorbirni hf., Brynjólfur Bjarnason, Skipti hf., Kristín Jóhannesdóttir, Baugur Group hf., Hrund Rudolfsdóttir, Milestone ehf., Hörður Arnarson, Marel Food Systems hf. og Halldór J. Kristjánsson, Landsbanka Íslands hf.
22.4.2009
Stefnir í fjölmenni á ađalfundi SA í dag
21.4.2009
Kynjahlutföll jöfnuđ í lífeyrissjóđum
Samtök atvinnulífsins skipa í 24 sæti stjórnarmanna í 9 lífeyrissjóðum. SA hafa markað þá stefnu að auka fjölbreytni stjórnarmanna og rétta hlut kynjanna innan stjórnanna. Konur skipa nú tæpan helming (46%) þeim sætum sem SA skipa í lífeyrissjóðunum og fjölgar um þrjár milli ára. Árið 2008 skipuðu konur þriðjung af sætum SA. Þetta kemur m.a. fram í ársskýrslu SA sem kemur út á aðalfundi samtakanna nk. miðvikudag. Yfirlit yfir fulltrúa SA má nú nálgast hér á vefnum.
20.4.2009
Rćktun á hampi í Rödd atvinnulífsins
Fimmti umræðuþáttur SA um íslenskt atvinnulíf verður sendur út á vef SA í dag kl. 17-18. Nýsköpun og menntamál verða þar í forgrunni en m.a. verður rætt um tilraunaræktun á hampi sem hefst í vor til að framleiða vefnaðarvöru sem verður nýtt í íslensk föt. Markmiðið er að framleiða algjörlega sjálfbæra náttúrulega vöru. Einnig verður kynnt til sögunnar ný íslensk vara sem hefur hlotið góðar viðtökur: Hlaupabretti fyrir hesta.
20.4.2009
Kosningu formanns SA lýkur á miđvikudaginn
Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins stendur nú yfir meðal aðildarfyrirtækja samtakanna og er þátttaka í kosningunni góð. Þór Sigfússon, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Þór er að ljúka sínu fyrsta starfsári sem formaður Samtaka atvinnulífsins en hann tók við formennsku á aðalfundi SA þann 18. apríl 2008. Rafrænni kosningu lýkur kl. 12:00 á aðalfundardag þann 22. apríl 2008 - aðildarfyrirtæki SA eru hvött til að taka þátt í kosningunni.
20.4.2009
Ferđaţjónusta, ís, hönnun og útrás
19.4.2009
Nýtt fréttabréf SA komiđ á vefinn
17.4.2009
Ţađ er veriđ ađ pína ţjóđina
„Það er verið að pína þjóðina," sagði Margeir Pétursson stjórnarformaður MP Banka í Rödd atvinnulífsins. Margeir telur fullmikið af því góða að hafa hér bæði himinháa vexti og gjaldeyrishöft á sama tíma. Hagsmunir erlendra kröfuhafa virðist í forgrunni og það sé slæmt ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og peningastefnunefnd Seðlabankans taki að sér að verða innheimtumenn þeirra sem sé ekki þeirra hlutverk.
17.4.2009
Grćn lausn á jöklabréfavanda?
16.4.2009
Atvinnulífiđ skapar störfin
Aðalfundur SA er haldinn á miðvikudaginn í næstu viku undir yfirskriftinni „Atvinnulífið skapar störfin". Tilgangur samtakanna með þessari yfirskrift er að vekja fólk til umhugsunar um að 20 þúsund ný störf verða því aðeins til á næstu árum að fyrirtækin í landinu búi við starfsskilyrði sem hvetja þau til fjárfestinga og aukinna umsvifa og þar með til þess að ráða fleiri starfsmenn. Ríki eða sveitarfélög munu ekki verða leiðandi í nýrri atvinnusókn og því síður munu auknar álögur á atvinnulífið eða þá einstaklinga sem fjárfesta í atvinnulífi hjálpa til við að skapa ný störf. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA sem kemur út í dag.
16.4.2009
Hver prósenta í hagvexti skapar 800-900 störf
16.4.2009
Hćgt ađ flytja vel launuđ störf til landsins
16.4.2009
Ný störf verđa ekki til án stöđugleika
Til að hægt sé að skapa störf á Íslandi á næstu árum er algjör grundvallarforsenda að hér ríki stöðugleiki. Þetta er mat Hilmars Sigurðssonar, framkvæmdastjóra CAOZ. Vegna umróts í efnahagslífinu eru starfsmenn CAOZ aðeins 8 en ekki 30 eins og til stóð. Þrátt fyrir það er þó er mikill kraftur í fyrirtækinu sem er með teiknimynd um þrumugoðið Þór í framleiðslu, tölvuleik og mynd um Egilssögu. Fyrirtækið hefur jafnframt átt í viðræðum við erlenda dreifingaraðila um mögulega framleiðslu á Þór 2.
16.4.2009
Margeir Pétursson í Rödd atvinnulífsins í dag
Þriðji umræðuþáttur SA um íslenskt atvinnulíf verður sendur út á vef SA í dag kl. 17-18. Endurreisn og uppbygging verður þar í forgrunni. Rætt verður við Margeir Pétursson, stjórnarformann MP Banka, um endurreisn íslenska bankakerfisins, MP banka og SPRON. Guðjón Már Guðjónsson segir frá uppbyggingu Hugmyndaráðuneytisins og þeim hugmyndum sem þar hafa fæðst um hvernig hægt sé að byggja upp öflugt íslenskt þjóðfélag. Þá mun Hilmar Sigurðsson, framkvæmdastjóri CAOZ, ræða um atvinnusköpun og nauðsynlegan stuðning við lengra komnin sprotafyrirtæki auk þess að segja frá vinnslu teiknimyndar um þrumugoðið Þór.
16.4.2009
Umhverfishópur SA fundar 29. apríl
16.4.2009
Nýtt gjald til sjúkrasjóđs háskólamanna
15.4.2009
Forstjóri HB Granda í Rödd atvinnulífsins
14.4.2009
Rödd atvinnulífsins í dag kl. 17-18
13.4.2009
Vaxtastig Seđlabankans út í bláinn
7.4.2009
Fjöldagjaldţrot verđi stýrivextir ekki lćkkađir
6.4.2009
Tímabundin niđurfelling álags vegna skila á VSK
6.4.2009
Ađalfundur SA 22. apríl - skráning stendur yfir
Atvinnulífið skapar störfin er yfirskrift aðalfundar SA 2009 sem verður haldinn miðvikudaginn 22. apríl á síðasta degi vetrar. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og hefst opin dagskrá kl. 15:00. Formaður SA, Þór Sigfússon, og Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytja erindi. Þá munu Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa og Steinunn Sigurðardóttir, fatahönnuður leggja á ráðin um hvernig hægt sé að skapa 20.000 störf.









