Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

29.8.2008

Hugmyndaţing SA á Hofsósi 5. september

Samtök atvinnulífsins hvetja til aukins hagvaxtar um land allt og efna af því tilefni til hugmyndaþings á Hofsósi næstkomandi föstudag - 5. september frá kl. 14:00-16:30. Þingið fer fram í Vesturfarasetrinu en þar munu valinkunnir aðilar úr íslensku athafnalífi deila reynslu sinni af atvinnuuppbyggingu og draga upp mynd af framtíð atvinnulífs á landsbyggðinni. Þinginu stýrir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA en meðal þátttakenda eru Steinunn Jónsdóttir, athafnakona og Friðrik Þór Friðriksson, kvikmyndaleikstjóri og framleiðandi.

27.8.2008

Evrópusamtök atvinnulífsins fagna handboltalandsliđinu

Evrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, eru meðal þeirra sem fagna glæsilegum árangri landsliðs Íslands í handknattleik karla á Ólympíuleikunum í Peking. Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins eru meðal 40 aðildarfélaga BUSINESSEUROPE í 34 löndum en íþróttamenn landanna rökuðu alls saman 93 gullverðlaunum, 113 silfurverðlaunum og 104 bronsverðlaunum. Árangurinn þykir stórglæsilegur og ljóst að fulltrúar Evrópusamtaka atvinnulífsins hafi skotið öðrum ref fyrir rass, en afburðafimir íþróttamenn Kína hlutu á leikunum 51 gullverðlaun, 21 silfurverðlaun og 28 bronsverðlaun. Samtökin óska verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn - þar með töldum leikmönnum og aðstandendum íslenska landsliðsins í handknattleik.

27.8.2008

Markar vonandi endann á hćkkunum

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is hækkun vísitölu neysluverðs fyrirséða en að vonandi sé þar jafnframt hápunktinum náð. „Þetta var alveg viðbúið og heldur undir því sem menn höfðu búist við vegna veikingar gengis krónunnar og þeirra matvælaverðshækkana sem átt hafa sér stað í heiminum og síðan lok útsalna," segir Hannes. „Það er þó vonandi að þetta marki endann á þessum háu mánaðarlegu tölum, að þetta fari hjaðnandi með haustinu og við verðum fljótlega komin niður á viðráðanlegra verðbólgustig."

27.8.2008

Vísitala neysluverđs hćkkađi um 0,9% frá fyrra mánuđi

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst 2008 hækkaði um 0,9% frá fyrra mánuði og er 312,8 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 280,8 stig og hækkaði hún einnig um 0,9% frá júlí. Verð á bensíni og olíum lækkaði um 3,9% en verð á mat og drykkjarvörum hækkaði um 1,8%. Sumarútsölum er að ljúka og hækkaði því verð á fötum og skóm um 4,7%. Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,3% m.a. vegna lækkunar á markaðsverði en verð á efni til viðhalds húsnæðis hækkaði um 6,3%. Síðastliðna 12 mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 14,5% en vísitala neysluverðs án húsnæðis um 14,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% sem jafngildir 11,5% verðbólgu á ári eða 10,9% fyrir vísitöluna án húsnæðis.

15.8.2008

Fundur SA um samfélagslega ábyrgđ fyrirtćkja

Samtök atvinnulífsins boða til fundar um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja og Evrópsk samstarfsráð í fyrirtækjum miðvikudaginn 20. ágúst kl. 8:30 á  Hótel Hilton Nordica D sal. Renate Hornung-Draus frá þýsku atvinnurekendasamtökunum, BDA, ræðir um reynslu og áherslur þeirra auk þess sem er að gerast á Evrópu- og alþjóðavettvangi  en hún hefur starfað mikið fyrir Evrópusamtök atvinnurekenda (BusinessEurope) og á sæti í stjón Alþjóða vinnumálastofnunarinnar (ILO).

12.8.2008

Vanskil aukast ađ óbreyttu

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Fréttablaðið í dag að vanskil nú séu ekki mikil í sögulegu samhengi. Hins vegar blasi við að þau fari vaxandi. „Það er ljóst að ef þetta ástand varir áfram, með háum vöxtum og lokuðum fjármagnsmarkaði gagnvart útlöndum, er ekki við öðru að búast en að vanskilin fari hraðvaxandi og við sjáum heldur dekkri tölur næst." Fjármálaeftirlitið hefur tekið saman og birt tölur um vanskil útlána hjá innlánsstofnunum miðað við lok júní 2008 og samanburð við næstu ársfjórðunga á undan.

11.8.2008

Jafnréttissjóđur auglýsir eftir umsóknum

Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði en tilgangur sjóðsins er að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn hafi 10 milljónir króna til ráðstöfunar fyrir hvert starfsár og að styrkir séu ekki færri en þrír og ekki fleiri en fimm. Gerðar eru skýrar faglegar og fræðilegar kröfur til umsækjenda. Ekki verða veittir styrkir til verkefna sem þegar er lokið. Umsóknarfrestur er til 1. september 2008 og verður úthlutað úr sjóðnum á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október 2008.

5.8.2008

Jafnréttisviđurkenningin 2008 - óskađ eftir tilnefningum

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2008. Viðurkenningu geta hlotið fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilgangurinn er að verðlauna fyrir vel unnin störf í þágu jafnréttis kvenna og karla og hvetja um leið til frekari dáða.

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
NÝTT RIT SA
11.11.11:
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english