Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

31.3.2008

Stórhćkkun matarverđs ólíkleg

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segist í samtali við fréttastofu Útvarps hafa enga trú á að matarverði hækki um 30% á næstu vikum. Umsamdar launahækkanir í kjarasamningum geti skilað sér í 2-3%hækkun á matarverði. Vilhjálmur telur von á verðbólgugusu núna en hún gangi yfir á þremur mánuðum og verðbólgan verði svo mjög lág. Hann segir að öll fyrirtæki þurfi að gæta sín í verðákvörðunum því að eftirspurnin sé að minnka og muni gera það áfram. Ekki sé hægt að verðleggja vörur jafnhátt nú og á uppgangstímum.

28.3.2008

Markađurinn ráđi för

Lagasetningu sem er ætlað að jafna hlut kynjanna í viðskiptalífinu fylgja vandamál þar sem hún kallar á tvöfalt stjórnkerfi fyrirtækja og veldur því að ákvarðanir varðandi rekstur þeirra eru ekki teknar á réttum stöðum. Þetta sagði Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður Auðar Capital á námstefnunni Virkjum fjármagn kvenna í morgun. Halla sagðist tala af eigin reynslu frá því hún vann við mannauðsstjórnun í Bandaríkjunum. Halla sagði farsælla að jafna hlut kynjanna á forsendum markaðarins og sagðist hafa fulla trú á því að það væri hægt. Það væri bæði sýnt og sannað að viðskiptalífið verði af miklum auði með því að nýta ekki þá eiginleika sem konur hafi til brunns að bera. Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður SA, sagði valdboð líkt og iðkað er í Noregi ekki réttu leiðina til að velja í stjórnir fyrirtækja. Fjármagn hluthafa og þekking á rekstri ráði mestu um val í stjórnir. Konur þurfi að nýta fjármagn sitt til að tryggja sér stjórnarsæti og stofna fleiri fyrirtæki.

28.3.2008

Fjárauđur kvenna eykst međ ógnarhrađa

Halla Tómasdóttir, starfandi stjórnarformaður Auðar Capital, hvatti konur til að fara fyrir fjármagni sínu á námstefnunni Virkjum fjármagn kvenna sem stendur yfir á Hótel Nordica. Í máli hennar kom fram að fjárauður kvenna um allan heim aukist með miklum hraða - mun meiri hraða en margir geri sér grein fyrir.  Nær helmingur fjármagns í hinum vestræna heimi sé nú í eigu kvenna og það fjármagn þurfi að virkja.  Vísaði Halla til nýlegrar skýrslu Economist fyrir Barcleys bankann, en hún sýnir að konur eigi um 48% af sparnaði í Bretlandi og að árið 2020 verði fleiri konur en karlar orðnir milljónamæringar í Bretlandi.

28.3.2008

Uppselt á Virkjum fjármagn kvenna

Á fjórða hundrað þátttakendur sitja nú námstefnuna Virkjum fjármagn kvenna  sem stendur yfir á Hilton Reykjavík Nordica. Karin Forseke, fyrsta kona heims til að stýra fjárfestingarbanka, er nú að ræða um mikilvægi þess að konur hasli sér völl innan fjármálageirans. Einnig um tækifæri og möguleika á alþjóðlegum fjármálamörkuðum við þær erfiðu aðstæður sem nú ríkja.

27.3.2008

Fjármagn kvenna virkjađ í fyrramáliđ

Það stefnir í mjög góða þátttöku á námstefnunni Virkjum fjármagn kvenna sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica í fyrramálið frá kl. 8-12. Áhugasamir eru því hvattir til að skrá sig hafi þeir ekki gert það nú þegar en námstefnan fer fram í stóra salnum á Nordica. Fjölbreytt dagskrá er á námstefnunni en meðal annarra stígur á stokk sænska athafnakonan Karin Forseke, en hún er fyrsta kona heims til að stýra fjárfestingarbanka og hefur áratugareynslu af fjármálamörkuðum á Norðurlöndunum, í Bretlandi og Bandaríkjunum. Karin er stjórnarmaður í breska fjármálaeftirlitinu (FSA) og situr m.a. í ráðgjafaráði fjármálamarkaðarins í Svíþjóð (Financial Markets Advisory Council).

26.3.2008

Gengi krónu og hlutabréfa óháđ stýrivaxtahćkkun

Ísland í dag fjallaði um stöðu efnahagsmála og áhrif af stýrivaxtahækkun Seðlabankans og ræddi við þá Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA og Gylfa Arnbjörnsson framkvæmdastjóra ASÍ. Vilhjálmur sagði gengi krónunnar vera komið allt of langt niður og að það muni ganga til baka óháð vaxtahækkun Seðlabankans. Vilhjálmur gaf ekki mikið fyrir fréttir um að hlutabréfaverð á Íslandi hafi hækkað í kjölfar vaxtahækkunarinnar og benti á að í Bandaríkjunum hafi hlutabréf hækkað í verði vegna þess að bandaríski Seðlabankinn hafi lækkað stýrivexti og væntanlega hafi hlutabréf á Íslandi hækkað vegna þess að seðlabanki Bandaríkjanna lækkaði vextina. Vilhjálmur nefndi að meira að segja hefði komið fram í fréttum Stöðvar 2 að Føroya Banki hefði hækkað í verði vegna þess að Seðlabanki Íslands hafi hækkað stýrivexti!

26.3.2008

Óţarft ađ hćkka stýrivexti

Hækkun stýrivaxta í 15% var ekki nauðsynleg að mati Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Rætt var við Vilhjálm í morgunfréttum RÚV og á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun um hækkun stýrivaxta og stöðu efnahagsmála almennt. Vilhjálmur segir stefnu Seðlabankans orsaka miklar sveiflur í hagkerfinu sem séu gríðarlega íþyngjandi fyrir atvinnulífið auk þess sem þær dragi úr trúverðugleika þess.

25.3.2008

Hćkkun stýrivaxta ber vott um ákveđna taugaveiklun

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við mbl.is hækkun stýrivaxta nú bera vott um ákveðna taugaveiklun hjá Seðlabanka Íslands. Aðspurður um hvort þetta hafi ekki verið viðbúið þá segir hann það svo vera miðað við hvernig bankinn hugsar. Hann telji þetta hins vegar ekki rétt viðbrögð sem skapi meiri ótrúverðugleika íslensks efnahags- og fjármálalífs. „Krónan er komin allt of lágt niður og hún mun hækka aftur og hefði gert það án þessarar vaxtahækkunar. Ég held því að þessi vaxtahækkun sé mjög misráðin," segir Vilhjálmur. Einnig var rætt við Vilhjálm um vaxtastefnu Seðlabankans í hádegisviðtalinu á Stöð 2.

25.3.2008

Kosning nýs formanns SA hafin

Rafræn kosning nýs formanns SA er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Kosningin hófst í morgun en Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður SA. Nýr formaður tekur því við á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fer föstudaginn 18. apríl í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá hefur gefið kost á sér til formanns SA en kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna.

22.3.2008

Myndarlegt íslenskt atvinnulíf

Samtök atvinnulífsins óska eftir ljósmyndum úr íslensku atvinnulífi - af fólki og fyrirtækjum í öllum greinum og öllum landshornum. Myndirnar verða grunnur að Myndarlegu íslensku atvinnulífi - listaverki sem verður frumsýnt þann 18. apríl síðdegis í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Þann sama dag fer fram aðalfundur samtakanna í Hafnarhúsinu. Opin dagskrá aðalfundar hefst kl. 16 og lýkur með móttöku SA sem hefst kl. 17:15. Þar er kjörið að efla tengslin við stjórnendur íslenskra fyrirtækja úr öllum greinum.

21.3.2008

Karin Forseke á leiđ til Íslands

Sænska athafnakonan Karin Forseke er á leið til Íslands en hún tekur þátt í námstefnunni Virkjum fjármagn kvenna sem fram fer á Hilton Reykjavík Nordica föstudaginn 28. mars. Karin er fædd árið 1955 og er fyrsta kona heims til að stýra fjárfestingarbanka en hún var forstjóri sænska fjárfestingarbankans Carnegie á árunum 2003-2006. Hún var ein fárra kvenna í forstjórastóli fyrirtækja í kauphöllinni í Stokkhólmi. Karin mun fjalla um reynslu sína úr fjármálageiranum og mikilvægi þess að konur hasli sér völl innan hans.

19.3.2008

Ingimundur Sigurpálsson hćttir eftir fimm ára formennsku

Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður SA. Nýr formaður tekur því við á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fer föstudaginn 18. apríl í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Ingimundur var fyrst kjörinn formaður SA á aðalfundi samtakanna árið 2003 og tók þá við að Finni Geirssyni sem gegnt hafði formennsku frá stofnun Samtaka atvinnulífsins í september 1999.

19.3.2008

Skipbrot peningastefnu Seđlabankans

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Fréttablaðið í dag að núverandi staða efnahagsmála staðfesti fyrst og fremst skipbrot peningastefnu Seðlabankans. Hana þurfi að endurskoða.  „Það er í raun ömurleg staða að gengið skuli sveiflast svona mikið," segir Vilhjálmur. Aðspurður um hugmyndir um að íslensku bankarnir fái rýmri kjör hjá Seðlabankanum segir Vilhjálmur það eðlileg viðbrögð Seðlabankans þar sem um allan heim séu seðlabankar að reyna að lána bönkum.  „Mér finnst það því eðlileg viðbrögð að Seðlabanki Íslands sé að þessu leyti að ganga svipaða leið."

17.3.2008

Vel sóttur fundur um atvinnulíf á landsbyggđinni

Samtök atvinnulífsins kynntu nýjar áherslur SA í atvinnu- og byggðamálum á opnum fundi á Hótel Borgarnesi í liðinni viku. Yfirskrift fundarins var Hagvöxt um land allt og var hann vel sóttur en 65 manns mættu til leiks og ræddu atvinnumál á landsbyggðinni frá hinum ýmsu hliðum. Kynningar átta frummælenda má nú nálgast hér á vef SA.

14.3.2008

Víđtćkur stuđningur viđ kjarasamninga

Hinn víðtæki stuðningur félaga Samtaka atvinnulífsins við nýgerða samninga er afar mikilvægur. Í honum felst mikil samstaða um þá leið sem farin var og þegar litið er til hins afgerandi stuðnings við samningana í verkalýðshreyfingunni má líta svo á að hinn almenni vinnumarkaður hafi náð allsherjar samstöðu um þróun kjaramála á næstu þremur árum. Með því eru send sterk skilaboð til þeirra sem gera aðra kjarasamninga í framhaldinu. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

14.3.2008

Febrúarsamningarnir samţykktir alls stađar

Atkvæðagreiðslur um samningana sem undirritaðir voru 17. febrúar síðastliðinn milli SA og landssambanda ASÍ stóðu yfir allt til 12. mars og voru þeir voru samþykktir í öllum stéttarfélögunum með miklum meirihluta. Samningarnir voru einnig samþykktir í heildaratkvæðagreiðslu hjá SA með miklum mun. Hér er að finna yfirlit yfir atkvæðagreiðslurnar og samanburð við samningana 2004. Í heild var þátttaka í atkvæðagreiðslunum svipuð árið 2004 og nú meðal landssambanda og stærstu félaga innan ASÍ, þ.e. 18% samanborið við 17% nú. Þá voru 70% samþykkir samningunum en 80% nú.

14.3.2008

Ágallar í frumvarpi um skattlagningu söluhagnađar hlutabréfa

Í umsögn Samtaka atvinnulífsins til Alþingis um frumvarp um skattlagningu söluhagnaðar hlutabréfa kemur fram að SA fagna því markmiði sem í frumvarpinu felst. Ætlunin er að afnema skattlagningu söluhagnaðar hlutabréfa milli fyrirtækja og búa þeim samkeppnishæft og örvandi skattaumhverfi. Fram að þessu hafa fyrirtæki haft hagræði af því að stofna eignarhaldsfyrirtæki t.d. í Hollandi en ætlunin er að draga úr því hagræði. Hins vegar er í umsögninni bent á ágalla í frumvarpinu sem felast meðal annars í takmörkun á frádráttarbærum kostnaði og óljósum ákvæðum sem bjóða upp á óvissu í framkvæmd. Eins er bent á neikvæð áhrif þess að fella niður heimild til frestunar skattlagningar söluhagnaðar um tvenn áramót.

14.3.2008

Hagvöxt um land allt

Samtök atvinnulífsins hafa markað nýja stefnu í byggða- og atvinnumálum undir yfirskriftinni Hagvöxt um land allt - styrka innviði. SA telja nauðsynlegt að stjórnvöld geri sem fyrst og hrindi í framkvæmd áætlun um uppbyggingu innviða um land allt. Horfa verði í heild á uppbyggingu samgöngukerfisins, fjarskipta, mennta- og menningarstofnana, raforkukerfisins og opinberrar þjónustu. Stutt verði kerfisbundið við byggðakjarna í einstökum landshlutum og þeir efldir. Áhersla er lögð á að atvinnulífinu verði sköpuð sem best skilyrði um land allt þannig að frumkvæði og kraftur fyrirtækja og einstaklinga fái notið sín. Þannig geti atvinnulífið best staðið undir auknum kröfum um hagvöxt og velferð fólks um land allt.

13.3.2008

Virkjum fjármagn kvenna

Föstudaginn 28. mars efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, iðnaðarráðuneytið og viðskiptaráðuneytið til námstefnu um konur, fjármagn og rekstur fyrirtækja. Yfirskrift námstefnunnar er Virkjum fjármagn kvenna. Meðal fyrirlesara er sænska athafnakonan Karin Forseke en hún er fyrsta kona heims til að stýra fjárfestingarbanka. Karin var forstjóri sænska fjárfestingarbankans Carnegie á árunum 2003-2006 og ein fárra kvenna í forstjórastóli fyrirtækja í kauphöllinni í Stokkhólmi. Karin er stjórnarmaður í breska fjármálaeftirlitinu (FSA) og hefur áratugareynslu af fjármálamörkuðum á Norðurlöndunum, í Bretlandi og Bandaríkjunum.

12.3.2008

Óskađ eftir tilnefningum vegna Kuđungsins

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðugt að hljóta umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins - Kuðunginn - fyrir árið 2007. Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunum. Tillögur skulu berast umhverfisráðuneytinu eigi síðar en föstudaginn 4. apríl næstkomandi.

11.3.2008

Hagvöxt um land allt

Samtök atvinnulífsins efna til ráðstefnu á Hótel Borgarnesi, fimmtudaginn 13. mars, kl. 12 - 17 um arðbært atvinnulíf. Á ráðstefnunni verða kynntar nýjar áherslur SA undir yfirskriftinni: Hagvöxt um land allt og fjallað um eftirfarandi mál: Hver er stefna SA í byggðarmálum? Getur sjávarútvegur verið undirstaða byggðanna? Hvernig gengur verslun og þjónustu að fóta sig úti á landi? Hvernig hefur Alcoa tekist að fá þá þjónustu sem fyrirtækið þarf? Hvaða árangri skilar samstarf fyrirtækja og stofnana á Höfn? Hvernig gengur að byggja upp starfsmenntun og auka færni starfsmanna um allt land? Hvernig verður aflþynnuverksmiðja á Akureyri til? Hver er framtíð innanlandsflugsins? Hvernig munu atvinnuhættir og mannfjöldi þróast utan höfuðborgarinnar? Hvaða áhrif hafa menningartengd fyrirtæki á sitt nánasta umhverfi?

10.3.2008

Samtök atvinnulífsins samţykkja nýja kjarasamninga

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamninga sem SA undirrituðu við meginþorra stéttarfélaga innan ASÍ þann 17. febrúar síðastliðinn fór fram í vikunni 3.-7 mars meðal aðildarfyrirtækja SA. Samningarnir voru samþykktir með 88% greiddra atkvæða, 9,7% atkvæða voru greidd gegn samningunum en 2,3% tóku ekki afstöðu. Kosningaþátttaka var 38,2%.

7.3.2008

Ávinningur af fjölbreytni á vinnumarkađi

Kanadíska sendiráðið á Íslandi í samstarfi við félags- og tryggingamálaráðuneytið, Háskóla Íslands - Stofnun stjórnsýslufræða, Alþýðusamband Íslands, Alþjóðahúsið og Samtök atvinnulífsins, býður til opins málþings um reynslu og ávinning kanadískra fyrirtækja af því að hafa fjölbreytni starfsmanna í fyrirrúmi - miðvikudaginn 12. mars. Erindi flytja Yasmin Meralli, aðstoðarforstöðumaður hjá elsta og stærsta banka Kanada, Bank of Montreal  og Cindy Chan forstjóri Info Spec Systems en það er hugbúnaðarfyrirtæki sem hún stofnaði sjálf og hefur náð góðum árangri í Bandaríkjunum, Kanada og Asíu.

6.3.2008

Ályktun Iđnţings 2008

„Öll iðnfyrirtæki þarfnast sama grundvallar til að vaxa, dafna og skila eigendum sínum og samfélaginu arði. Stöðug­leiki verður að ríkja í efnahagslífinu, vöxtur að vera jafn og öruggur og starfsskilyrði, sem eru í valdi stjórnvalda, eins hagfelld og kostur er. Undanfarin ár hafa íslenskur iðnaður og atvinnulíf tekið stakkaskiptum. Vöxtur hefur verið mikill og alþjóðavæðing atvinnulífsins verið hröð. Þó að vel hafi gengið er langt í frá að tekist hafi að tryggja stöðugleika. Ekki þarf að fjölyrða um sveiflur í gengi krónunnar, óbæri­lega háa vexti, verðbólgu og viðskiptahalla. Verkefnið er síður en svo auðvelt og engar skyndilausnir tiltækar." Þetta segir m.a. í ályktun Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem fram fór í dag.

4.3.2008

Vel sóttur kynningarfundur um nýja kjarasamninga

Samtök atvinnulífsins efndu í morgun til kynningarfundar vegna nýrra kjarasamninga á almennum vinnumarkaði á Grand Hótel Reykjavík. Hátt í tvö hundruð manns sóttu fundinn en framundan eru kynningarfundir SA um samningana á Egilsstöðum síðdegis í dag - 4. mars, í fyrramálið á Akureyri og á Ísafirði í hádeginu á morgun - miðvikudaginn 5. mars. Rafræn kosning stendur nú yfir um kjarasamningana meðal aðildarfyrirtækja SA. Kynningarefni frá fundinum er nú aðgengilegt hér á vef SA.

4.3.2008

Verđugt verkefni ESB í loftslagsmálum

Ljóst er að atvinnulífið í Evrópu og stjórnvöld standa frammi fyrir verðugu verkefni. Þau hafa sett sér að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda um 20% fyrir árið 2020 ásamt því að auka orkunýtingu um 20% á sama tíma og að hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa verði orðið 20% árið 2020. Í dag er hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa innan ESB 8,5% og staða Íslands til samanburðar verður því að teljast afar góð enda stefnir hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa á Íslandi í 80%. Það er staða sem engan í Evrópu getur dreymt um að ná á næstu árum eða jafnvel áratugum. Árangur Íslands í þessum efnum er því einstakur. Þetta segir Hörður Vilberg, verkefnastjóri hjá SA, í grein í Viðskiptablaðinu í dag.

3.3.2008

Atkvćđagreiđsla SA um nýja kjarasamninga 3.-7. mars

Rafræn atkvæðagreiðsla um nýja kjarasamninga sem Samtök atvinnulífsins undirrituðu við meginþorra stéttarfélaga innan ASÍ 17. febrúar er hafin meðal aðildarfyrirtækja SA. Á grundvelli samþykkta SA ákvað framkvæmdastjórn samtakanna að greiða skyldi atkvæði um samningana dagana 3.-7. mars. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslunnar. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu SA í síma 591-0000. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið jonina@sa.is.

Atvinna fyrir alla - smelltu til ađ sćkja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Hamur fyrir sjónskerta Prenta ţessa síđu Veftré

Fánar

In english