Beint į leišarkerfi vefsins

Fréttir

31.10.2008

Rķki og sveitarfélög haldi įfram framkvęmdum

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans hefur orðið til þess að fyrirtæki hafa neyðst til þess að segja upp fleirum en ella hefði þurft segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við fréttastofu RÚV. Erfiðara sé að fjármagna fyrirtækin en áður. Atvinnurekendur séu ekki að nýta sér dökkar horfur í efnahagslífi. Uppsagnir séu það síðasta sem fyrirtæki grípi til. Áður reyni margir að færa fólk frekar í hlutastörf eða lækka laun. Afar brýnt sé að ríki og sveitarfélög hætti ekki framkvæmdum og viðhaldsverkefnum svo niðursveiflan verði ekki meiri en nauðsynlegt sé.

31.10.2008

Óvissa um greišslufallstryggingar - unniš aš śrbótum

Að undanförnu hafa töluverðir hnökrar verið á milliríkjaviðskiptum vegna gjaldeyrishafta Seðlabankans og vandamála í greiðslumiðlun sem upp komu eftir fall íslensku viðskiptabankanna. Erlendir aðilar hafa ekki farið varhluta af þeirri óvissu sem ríkir um íslenskt efnahagslíf, enda mikið fjallað um íslensku fjármála- og gjaldeyriskreppuna. Það sem enn hefur aukið á vandann er að erlend greiðslutryggingarfélög fást sum hver ekki til að gangast í ábyrgðir fyrir greiðslur hjá íslenskum félögum.

31.10.2008

Ręša formanns LĶŚ į ašalfundi samtakanna

Aðalfundur LÍU stendur nú yfir. Í ræðu fráfarandi formanns samtakanna, Björgólfs Jóhannsonar, sagðist hann vera algerlega ósammála þeim sjónarmiðum að Íslandi sé fyrir bestu að gerast aðili að Evrópusambandinu. Björgólfur sagði mikilvægt að útvegsmenn og konur þjappi sér saman á erfiðum tímum og leggi sitt af mörkum við markvissa enduruppbyggingu íslensks efnahagslífs. Hann sagðist  bjartsýnn á að leið fyndist út úr erfiðleikunum á tiltölulega stuttum tíma - reynslan hafi sýnt að íslenska hagkerfið sé mjög sveigjanlegt og fljótt að bregðast við í djúpum niðursveiflum.

30.10.2008

Fundaš um višskipti meš losunarheimildir - 3. nóvember

Umhverfisráðuneytið boðar til opins fundar um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda og fyrirhugaðar breytingar á því. Hér á landi er nú unnið að innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um viðskiptakerfið. Flug mun falla undir gildissvið tilskipunarinnar frá og með 1. janúar 2012 og gert er ráð fyrir að ári síðar falli fleiri tegundir starfsemi þar undir, þ.á.m. áliðnaður.

30.10.2008

Mikilvęgt aš hefja uppbyggingu strax

Við höfum sett umtalsverða orku í menntun þjóðarinnar og á óvissutímum sem þessum þurfum við að nýta þessa menntun sem best  - finna leiðir til að skapa úr henni verðmæti og velsæld fyrir fólkið í landinu. Við þurfum að nýta alla okkar krafta til að komast yfir áfallið, halda áfram og hefja uppbygginguna strax. Þetta sagði Þór Sigfússon, formaður SA, m.a. í erindi sem hann flutti á 50 ára afmælisráðstefnu BHM sem fór nýverið fram.

30.10.2008

Uppfęršar upplżsingar um stöšu greišslumišlunar

Á vef Seðlabanka Íslands eru birtar upplýsingar um stöðu greiðslumiðlunar í landinu og milli landa og eru þær uppfærðar reglulega. Erlend greiðslumiðlun um starfandi viðskiptabanka á Íslandi hefur gengið illa og því ákvað Seðlabanki Íslands að miðla slíkum greiðslum í þeim tilvikum sem aðrar leiðir reyndust lokaðar. Seðlabankinn segir að þeir sem eigi von á greiðslum frá útlöndum verði að sjá til þess að greiðandinn fái réttar upplýsingar um greiðsluleiðir, en á vef bankans má finna greiðslufyrirmæli fyrir alla þá gjaldmiðla sem Seðlabankinn getur tekið við.

30.10.2008

Stefnumót frumkvöšla og fjįrfesta ķ Žjóšleikhśskjallaranum

Föstudaginn 31. október næstkomandi munu 12 ungir og upprennandi frumkvöðlar kynna viðskiptaáætlanir sínar fyrir fjárfestum í Þjóðleikhúskjallaranum. Dagskráin hefst kl. 13 og stendur fram eftir degi en kl. 18 verða veitt verðlaun fyrir bestu hugmyndina. Háskóli Reykjavíkur og Listaháskóli Íslands efna til stefnumótsins en tilgangurinn með samstarfi skólanna er að leysa sköpunarkraft úr læðingi og tryggja að góðar hugmyndir geti orðið að veruleika. Framtíðin er björt þegar horft er til virkjunarmöguleika íslensks hugarafls.

29.10.2008

Upplżsingar į ensku um stöšu mįla į vef SA

Samtök atvinnulífsins hafa tekið saman upplýsingar á ensku um stöðu mála í íslensku efnahagslífi. SA hvetja félagsmenn í erlendum samskiptum til að senda upplýsingarnar áfram á sína tengiliði. Þar er m.a. greint frá samkomulagi Íslands við IMF, þýðingu þess og stuðningi forsætisráðherra Norðurlanda við samkomulagið. Ennfremur eru hnökrar í gjaldeyrisviðskiptum skýrðir og greint frá því að aðkomu IMF sé ætlað að koma gjaldeyrisviðskiptum í eðlilegan farveg og stuðla að jafnvægi í gengi krónunnar.

28.10.2008

Vaxtahękkun Sešlabanka įfall

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, segir í samtali við mbl.is þá ákvörðun Seðlabanka Íslands að hækka stýrivexti um 6% vera mikið áfall. „Ég er mjög óhress með þetta. Við áttum von á einhverri hækkun í kjölfar þess sem fram kom varðandi aðkomu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins en þetta er mun meiri hækkun en við höfðum reiknað með," segir hann.

27.10.2008

Alcao Fjaršaįl fęr jafnréttisvišurkenningu Jafnréttisrįšs

Alcoa Fjarðaál hlýtur viðurkenningu Jafnréttisráðs árið 2008 fyrir störf sín á sviði jafnréttismála. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, afhenti verðlaunin. Í ávarpi sem hún flutti við það tækifæri sagði hún meðal annars að stefna Alcoa um að ráða að jöfnu konur og karla til starfa í fyrirtækinu hefði verið áberandi frá upphafi í starfsemi þess. Árangurinn væri sá að 28% af 450 starfsmönnum væru konur, 34% í framleiðslustörfum og 27% í framkvæmdastjórn. „Þetta er besti árangur í jafnréttismálum sem náðst hefur innan Alcoa samsteypunnar og líkur á að um heimsmet í áliðnaðinum sé að ræða," sagði Jóhanna.

25.10.2008

Aškoma IMF jįkvęš fyrir ķslenskt atvinnulķf

Fulltrúar atvinnulífsins telja að tilkynning stjórnvalda um aðstoðarbeiðni til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) muni skapa aukið traust á íslensku efnahagslífi. Nú sé kominn nauðsynlegur stuðningur við hagkerfið. Samtök atvinnulífsins og Alþýðusambandið hafa um tíma hvatt til að leitað verði aðstoðar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Undir það hafa hagfræðingar tekið vegna erfiðrar stöðu efnahagslífsins. Framkvæmdastjóri SA telur að um leið og IMF samþykki aðstoð með formlegum hætti og peningar fari að skila sér til landsins fari gjaldeyrismarkaðurinn að virka og gengi krónunnar að hækka.

24.10.2008

Stašall bśinn til um launajafnrétti kynja

Félags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við  Staðlaráð Íslands að það hafi umsjón með gerð staðals sem notaður verði til að sannreyna hvort launa- og starfsmannastefna stofnana og fyrirtækja samræmist stefnu um launajafnrétti kynja og jafnrétti við ráðningar og uppsagnir. Atvinnurekendur sem uppfylla skilyrði staðalsins eiga síðan að geta fengið formlega vottun fyrir því að launa- og starfsmannastefna þeirra samræmist lögum um jafnrétti kynjanna.

24.10.2008

Alžjóšleg višbrögš naušsynleg til aš leysa fjįrmįlakrķsuna

Forystumenn atvinnulífs í Evrópu og Bandaríkjunum hittust nýverið í París til að ræða viðbrögð við hinni alþjóðlegu fjármálakrísu og minnkandi hagvexti í heiminum. Evrópusamtök atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) sem SA eiga aðild að tóku þátt í viðræðunum en ákveðið hefur verið að alþjóðlegur samráðsfundur atvinnulífsins fari fram í desember. Þar verður m.a. lagðar fram sameiginlegar tillögur um  alþjóðlegt fjármálaeftirlit, matsfyrirtæki, gegnsæi í viðskiptum, reikningsskilastaðla og stjórnarhætti fyrirtækja.

23.10.2008

Sešlabanka verši gert višvart um erfišleika vegna fjįrmagnsflutninga

Seðlabanki Íslands hefur óskað eftir því að bankanum verði gert viðvart ef fyrirtæki eiga í erfiðleikum með að flytja fjármagn af reikningum í Bretlandi. Samkvæmt upplýsingum bankans á ekkert að vera því til fyrirstöðu að hægt sé að flytja fjármagn frá bönkum í Bretlandi. Ef bankastofnanir í Bretlandi halda öðru fram mun Seðlabankinn beita sér af krafti í slíkum málum í gegnum opinbera aðila og bankastofnanir í Bretlandi. Í þessu samhengi er nauðsynlegt að tilgreina þá banka sem eru tregir til að hafa milligöngu um greiðslumiðlun og þær mótbárur sem bankarnir bera fyrir sig.

23.10.2008

Um uppsagnir og breytingar į rįšningarsamningum

Mörg íslensk fyrirtæki standa frammi fyrir skipulagsbreytingum vegna aðstæðna á fjármálamarkaði og óhagstæðum rekstraskilyrðum. Við þær aðstæður getur verið óhjákvæmilegt að fækka starfsmönnum, minnka starfshlutfall, gera breytingar á vinnutíma eða grípa til annarra ráðstafana sem draga úr rekstrarkostnaði. Samtök atvinnulífsins vilja með upplýsingagjöf leitast við að stuðla að góðri framkvæmd uppsagna þegar þeirra gerist þörf.

22.10.2008

Bśist viš hagvexti į nż 2010

Samtök atvinnulífsins gera ráð fyrir að íslenska hagkerfið muni dragast saman um allt að 10% á næsta ári. Atvinnuleysi geti orðið 6-8% og útlit fyrir 15% kaupmáttarrýrnun. Búast megi við hagvexti á ný árið 2010 því tækifæri séu fyrir nýja aðila á íslenskum markaði, einkum í fjármálageiranum. Þetta kemur fram í viðtali Reuters-fréttastofunnar við Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA, en fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag.

21.10.2008

Fjölbreytt menntun ķ boši vegna ašstęšna į vinnumarkaši

Fjölmargir leggja nú hönd á plóginn vegna aðstæðna í íslensku efnahagslífi. Menntastofnanir brugðust snarlega við óskum Samtaka atvinnulífsins um að opna dyr háskóla og menntastofnana fyrir fólki sem verður fyrir því að missa vinnuna. Á vef SA má nú nálgast yfirlit yfir menntun og aðstoð sem í boði er.

21.10.2008

Višspyrna kemur meš Alžjóšagjaldeyrissjóšnum

Rekstrarskilyrði fyrirtækja eru erfið nú um stundir en Þór Sigfússon, formaður SA, telur aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF) geta skipt sköpum. „Fjármálakerfi á Íslandi er ekki komið í lag og þess vegna eru mörg fyrirtæki í miklum skammtímavanda þessa dagana. Í raun er enn óljóst hversu djúpstæður vandinn er. Mörg fyrirtæki hafa nánast verið óstarfhæf vegna vandamála með gjaldeyrisviðskipti að undanförnu. Ég held að þegar Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er byrjaður að aðstoða okkur þá muni þjóðfélagið allt fá viðspyrnu sem mun skipta sköpum við að ná upp enn kröftugra atvinnulífi í landinu."

20.10.2008

Fyrirtękin berjast įfram - engin uppgjöf

Um fjögur af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hafa haldið að sér höndum í ráðningum á árinu og hyggjast halda óbreyttum starfsmannafjölda til áramóta. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á atvinnuhorfum meðal fyrirtækjanna. Stjórnendur 14% fyrirtækja sjá fyrir sér fjölgun starfsfólks á árinu en 48% þeirra hafa fækkað starfsfólki eða hyggjast gera það. Horfur á vinnumarkaði hafa versnað frá því í júlí þegar sambærileg könnun var gerð. Þá sáu 48% stjórnenda fram á óbreyttan starfsmannafjölda innan ársins, 31% fækkun og 21% fjölgun.

20.10.2008

Ķ sókn meš ķslenskt hugvit į alžjóšlega markaši

Fjölmörg svokallaðra útrásarverkefna eiga sér bjarta framtíð en þegar fjármálakreppan skall á voru að minnsta kosti um 600 íslensk fyrirtæki og einstaklingar sem undirbjuggu eða stóðu að margháttuðum og fjölbreyttum útrásarverkefnum. Þetta kemur fram í grein Þórs Sigfússonar, formanns SA, sem birt er í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að þessum verkefnum sé ógnað ef þjóðin sameinist um að tala niður útrásina. Gríðarleg tækifæri liggi í þessum hundruðum fyrirtækja til að hrista fljótt af sér þann samdrátt sem orðið hefur. Rétt sé að halda í sókn með íslenskt hugvit á alþjóðlega markaði.

17.10.2008

Stušningur viš starfsmenn fjįrmįlafyrirtękja

Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja (SSF) og Samtök atvinnulífsins (SA) hafa gert með sér samstarfssamning um eflingu atvinnusköpunar fyrir félagsmenn SSF. Samningurinn er gerður með stuðningi iðnaðarráðuneytisins og félagsmálaráðuneytisins.

17.10.2008

Yfirlżsing frį fjįrmįlarįšuneyti Bretlands

Fjármálaráðuneyti Bretlands hefur sent frá sér yfirlýsingu sem er ætlað að liðka fyrir eðlilegu fjármagnsstreymi milli Íslands og Bretlands og útskýra í hverju takmarkanir Breta gagnvart Landsbankanum felast (Freezing Order). Íslensk fyrirtæki í erlendum viðskiptum eru hvött til að senda viðskiptavinum sínum yfirlýsinguna til að skýra stöðuna. Yfirlýsinguna má nálgast hér á vef SA en von er á frekari skýringum af hálfu Breta.

17.10.2008

Um višbótarlķfeyrissparnaš

Samtökum atvinnulífsins hafa borist fjöldi fyrirspurna varðandi greiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar. Rétt er að taka fram að fólk hefur val um að greiða í séreignarsjóði en þeir sem það gera semja um það við vinnuveitenda sem greiðir mótframlag. Ljóst er að vegna fjármálakreppunnar mun ávöxtun séreignalífeyris sem þegar hefur verið greiddur rýrna en stórir lífeyrissjóðir hafa gefið það út að nýjar greiðslur muni ekki rýrna vegna þess tjóns sem þegar er orðið. Til að fá nánari upplýsingar er fólki bent á að hafa samband við lífeyrissjóðina eða bankana en fólk getur óskað eftir því að iðgjöld sem berast um næstu mánaðarmót til lífeyrissjóða í vörslu bankanna verði ávöxtuð með öruggari hætti en áður.

16.10.2008

Lękkun stżrivaxta jįkvętt skref

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, fagnar stýrivaxtalækkun Seðlabankans. Hann segir að þetta sé gott fyrsta skref en stýrivextir verði að fara niður í 7-8%. Þá verði að lækka hratt og örugglega. Seðlabankinn hefur lækkað stýrivexti í 12% úr 15,5%.

15.10.2008

Samrunar og samstarf fyrirtękja viš sérstakar ašstęšur

Þegar þrengir að í rekstri fyrirtækja eins og gerist nú í kjölfar fjármálakreppunnar er samruni og/eða samstarf fyrirtækja einn þeirra kosta sem litið er til. Samkvæmt upplýsingum frá Samkeppniseftirlitinu eru samkeppnislög sveigjanleg og geta nýst sem tæki til að leysa ýmis mál sem upp koma í aðstæðum eins og þeim sem nú ríkja. Við ákveðin skilyrði er unnt að heimila samruna sem áður var óhugsandi og sama á við um samstarf fyrirtækja. Samkeppniseftirlitið hefur þegar brugðist við með því að ýta til hliðar málum sem geta beðið. Mikilvægt er að huga að aðgangshindrunum á markaði og á þetta bæði við um stjórnvöld og eins þarf að skoða eðli markaða m.t.t. þessa.

15.10.2008

Višurlögum vegna vanskila stašgreišslu frestaš

Fjármálaráðherra að höfðu samráði við forsætisráðherra hefur ákveðið að beiting viðurlaga vegna vanskila á staðgreiðslu verði frestað um viku.

14.10.2008

Tķmabęrt aš nį samkomulagi viš IMF

Það er mikilvægt fyrir Ísland að ná samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) um aðstoð sem allra fyrst að mati Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Íslendingar verði fyrir tjóni á hverjum degi á meðan yfirstandandi gjaldeyriskreppa vari þar sem fyrirtæki geti ekki átt eðlileg viðskipti við útlönd. Viðskiptasambönd og traust íslenskra fyrirtækja sé í hættu og afar brýnt að IMF komi að því að byggja upp gjaldeyrisvarasjóð sem megi nota til að styrkja gengi krónunnar og koma á eðlilegum gjaldeyrisviðskiptum.

14.10.2008

Unniš aš tillögum um stjórnarhętti nżrra rķkisbanka

Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Kauphöll Íslands áttu frumkvæði að því að setja fram leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja fyrir röskum fimm árum síðan. Með þessum leiðbeiningum var stefnt að því að skapa meiri festu og gegnsæi í stjórn fyrirtækja og efla traust. Mörg fyrirtæki tóku upp þessar leiðbeiningar en þær verða án efa fyrirferðarmeiri í umræðu um stjórnun fyrirtækja hérlendis á komandi misserum. Ástæðan er einfaldlega sú að nú skiptir miklu að byggja upp traust á íslenskum fyrirtækjum og opna þannig smám saman fyrir erlent fjármagn til starfsemi þeirra og fjárfestinga. Nú hafa þessi sömu samtök ásamt Kauphöll Íslands hafið vinnu við gerð tillagna um stjórnarhætti hinna nýju ríkisbanka.

13.10.2008

Mikilvęgt aš gjaldeyrismarkašir komist ķ lag

Áföll á fjármálamörkuðum hafa leitt til mikils skorts á gjaldeyri á Íslandi og truflanir hafa orðið á greiðslumiðlun með erlendra gjaldmiðla. Það er mjög mikilvægt hagsmunamál atvinnulífsins að aðgangur íslenskra fyrirtækja að gjaldeyri verði tryggður og að greiðslumiðlun verði komið sem fyrst í eðlilegt horf. Nýi Landsbankinn og Icebank sinna þessari þjónustu. Vonir standa til að Nýi Glitnir og Kaupþing geti hafið greiðslumiðlun með erlenda gjaldmiðla sem allra fyrst.

13.10.2008

Hlutastörf ķ staš uppsagna

„Ég vil hvetja forsvarsmenn fyrirtækja til að bjóða fólki hlutastörf í stað þess að segja því upp ef tök eru á," segir Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins. Undanfarna daga hefur SA rætt við forsvarsmenn fjölmargra fyrirtækja. „Mörg eru í ágætis málum. Önnur standa frammi fyrir verulegum vandræðum. Sum voru þegar þjökuð vegna vaxtastigsins áður en þetta ástand skall á," segir Þór.

12.10.2008

Frį sendirįši Bretlands į Ķslandi

Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins sem lent hafa í vandræðum með samskipti við bresk fyrirtæki og bankastofnanir er bent á að upplýsa breska sendiherrann á Íslandi um málið. Ian Whitting sendiherra Breta á Íslandi hefur lýst því yfir að hann vilji fá slíkar upplýsingar beint til sín. Netfang sendiráðsins er: postmaster@britishembassy.is

10.10.2008

Horfum til framtķšar

Helstu viðfangsefni Íslendinga eru að koma gjaldeyrisviðskiptum í samt lag og ná fram hækkun gengis krónunnar og meiri stöðugleika. Lækka verður vexti verulega í því skyni að afstýra verðhruni eigna með tilheyrandi framleiðslutapi og fjöldaatvinnuleysi. Endurreisa verður fjármálaþjónustuna þannig að fyrirtæki og heimili geti farið að starfa og stunda eðlileg viðskipti. Aðkoma Alþjóða gjaldeyrissjóðsins að erfiðleikum Íslands er orðin afar brýn. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs samtakanna.

10.10.2008

Aškoma IMF treystir fjįrmįlakerfiš og tryggir sparifé

Ef Íslendingar leita til Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (IMF) um aðstoð við að komast út úr þeim erfiðleikum sem nú blasa við þjóðinni er það til þess fallið að styðja við enduruppbyggingu fjármálakerfis á Íslandi. Aðkoma IMF mun því stuðla að því að sparifé landsmanna verði tryggt en Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA og fyrrum stjórnarmaður í IMF, hefur lýst því yfir að rétt sé að Íslendingar leiti eftir aðstoð IMF til að bregðast við yfirstandandi þrengingum.

10.10.2008

Hįskólar opni dyrnar

Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst að opnað verði fyrir fleiri námsleiðir í ljósi aðstæðna í efnahagslífi og á vinnumarkaðnum framundan. Þór Sigfússon, formaður SA, hefur rætt við Svöfu Grönfeldt, rektor HR, og Ágúst Einarsson, rektor á Bifröst, og hyggst einnig ræða við Háskóla Íslands.

10.10.2008

Hugaš verši vel aš bankafólki

Þór Sigfússon, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Morgunblaðið mikilvægt að vel sé hugað að fólki sem missi vinnu í bönkunum. „Við þurfum að taka utan um þetta fólk sem og aðra sem eru að missa vinnuna."

10.10.2008

Leitaš verši til IMF

Íslendingar verða að leita aðstoðar Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (IMF) til að komast út úr þeim erfiðleikum sem samfélagið er komið í annars blasa við þrengingar og fjöldaatvinnuleysi. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu Sjónvarps.

9.10.2008

SA fylgjast meš og bregšast viš afleišingum fjįrmįlakreppunnar

Samtök atvinnulífsins hafa stofnað vinnuhóp til að fylgjast með afleiðingum fjármálakreppunnar fyrir atvinnulífið í landinu. Vinnuhópurinn er skipaður fulltrúum aðila vinnumarkaðarins og Viðskiptaráðs Íslands. Safnað verður saman upplýsingum um áhrif á fyrirtæki, vandamál sem upp koma og hvernig unnt er að bregðast við þeim. Samtökin munu koma upplýsingum á framfæri við fulltrúa ríkisstjórnarinnar og gæta þannig hagsmuna fyrirtækjanna.

 

Mjög mikilvægt er að fyrirtæki láti Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra fylgjast með því hvernig gengur að standast það álag sem ástandið hefur fyrir nánast allt atvinnulíf í landinu.

9.10.2008

Stżrivextir lękki ķ 8%

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við fréttastofu Útvarps  að háir stýrivextir Seðlabankans hafi skaðað íslenskt efnahagslíf og jafnframt gert stöðuna mun verri. Lækka þurfi stýrivextina verulega eða í 8%. Stýrivextir Seðlabanka Íslands eru nú 15,5%.

9.10.2008

Sķmenntun eykur hęfni og starfsįnęgju

Á undanförnum misserum hefur nokkur fjöldi fyrirtækja notfært sér tilboð fræðslusjóðanna Starfsafls og Landsmenntar um að fá mannauðsráðgjafa að láni. Tilgangurinn er að auka hæfni starfsmanna og draga úr starfsmannaveltu. Forstjóri Vífilfells, Árni Stefánsson, segir að viðbótarmenntun starfsfólks skili sér í aukinni hæfni og meiri starfsánægju.Starfsmannastjóri Vífilfells, Anna María Pétursdóttir, segir reynslu fyrirtækisins af viku símenntunar mjög góða.

7.10.2008

Aušur fólginn ķ aukinni orkuframleišslu og išnašaruppbyggingu

Á næstu árum er hægt að ráðast í framkvæmdir á sviði orkuframleiðslu og iðnaðaruppbyggingu á Íslandi fyrir um 1.000 milljarða króna. Þetta má gera með því að hraða framkvæmdum við ný álver og virkjanir og opna þar með leið fyrir gjaldeyrisstreymi inn til landsins til skemmri og lengri tíma með stóraukinni iðnframleiðslu. Þetta kemur fram í samtali við Þór Sigfússon, formann SA, í Viðskiptablaðinu í dag.

6.10.2008

Ašgangur atvinnulķfsins aš fjįrmagni verši tryggšur

Þór Sigfússon, formaður SA, segir í samtali við fréttastofu Sjónvarps verkefni númer eitt, tvö og þrjú að útvega íslenskum fyrirtækjum fjármagn til að halda atvinnulífinu gangandi. Þór segir ennfremur mikilvægt að stjórnvöld komi með röggsemi að vaxtapólitíkinni. Ná þurfi stýrivöxtum umtalsvert niður og jafnframt að ná stöðugleika í gengið. „Ef að við fáum þetta sem allar Evrópuþjóðir búa við núna - umfram það sem við höfum - þá trúi ég því að íslenskt atvinnulíf eigi eftir að hrista þetta af sér fljótt og vel og við eigum eftir að halda hér atvinnustigi áfram háu."

6.10.2008

Hjól atvinnulķfsins snśist įfram

Miklu skiptir að hjól atvinnulífsins haldi áfram að snúast, að fyrirtæki haldi velli og heimilin fari ekki í þrot. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við fréttastofu Útvarps. Koma verði í ljós hvort aðgerðir ríkisstjórnar sem kynntar voru í dag dugi til.

6.10.2008

Upplżsingar um innheimtu vegna Endurhęfingarsjóšs

Í kjarasamningum milli ASÍ og SA sem undirritaðir voru 17. febrúar sl. var samið um nýtt fyrirkomulag endurhæfingar þar sem skipuleggja á þjónustu og veita úrræði fyrir þá einstaklinga á vinnumarkaði sem veikjast til lengri tíma eða slasast þannig að vinnugeta skerðist. Til að standa straum af kostnaði við þessa þjónustu var Endurhæfingarsjóður stofnaður og samkvæmt ofangreindum kjarasamningum þá ber atvinnurekendum að greiða 0,13% af heildarlaunum í sjóðinn frá og með 1. júní 2008.

3.10.2008

Telur botninum nįš

„Ég hef fulla trú á að botninum sé náð og við getum komist út úr þessu," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í samtali við mbl.is. „Ég tel að gengið fari ekki lengra niður á við. Það er lítið sem ekkert lánsfé að koma inn í landið og á meðan eru menn að reyna að standa í skilum vegna lána. Þetta verður mjög erfitt. Við þurfum allir að leita leiða til að komast upp úr þessu," segir Vilhjálmur.

3.10.2008

Ręddu višbrögš ESB viš fjįrmįlakreppu

Forysta SA hefur lokið viðræðum í Brussel við sérfræðinga ESB og forystu evrópsks atvinnulífs. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að viðræðurnar hafi gengið vel en mikill tími hafi farið í að skoða þá stöðu sem nú er uppi í fjármálakerfinu. „Það eru allir að tala um hana og hvað ESB ætlar að gera í henni."

2.10.2008

Įlyktun SI um stöšu efnahagsmįla

Stjórn Samtaka iðnaðarins (SI) kallar eftir að ríkisstjórn og Seðlabanki marki sér stefnu til langs tíma í efnahagsmálum, tali skýrt og grípi þegar í stað til ráðstafana til þess að greiða úr alvarlegum lausafjárskorti, koma jafnvægi á gengi krónunnar og dragi þannig úr neikvæðum áhrifum niðursveiflu efnahagslífsins.

1.10.2008

Möguleikar į auknu samstarfi Ķslands og ESB ķ orkumįlum

Á fundi framkvæmdastjórnar SA með framkvæmdastjóra orkumála í ESB, Andris Piebalgs, setti hann fram nokkrar hugmyndir um aukið samstarf Íslands og ESB í orkumálum. Aðilar gætu átt samstarf í verkefnum í Afríku, unnið saman að notkun vetnis sem orkubera, lagt saman krafta í rannsóknum og þróunarstarfsemi og stuðlað sameiginlega að aukinni notkun jarðhita. Í ESB væru nokkur ríki sem byggju yfir ónýttum jarðhita og Ísland væri í fararbroddi í heiminum í nýtingu hans.

1.10.2008

Višręšur SA ķ Brussel: Óvęnt staša į fjįrmįlamörkušum

Forysta SA hélt áfram viðræðum í Brussel í dag við sérfræðinga ESB og forystu evrópsks atvinnulífs. Fram kom að hvorki stjórnmálamenn né stjórnendur evrópskra fyrirtækja hafi verið viðbúnir þeirri stöðu sem nú er uppi á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Í byrjun september hafi til  að mynda verið birtar hagtölur frá Þýskalandi sem sýndu ágætan gang í þýsku efnahagslífi.

1.10.2008

Framleišendaįbyrgš raftękjaśrgangs - skrįning hafin

Frá 1. janúar 2009 bera framleiðendur og innflytjendur raf- og rafeindatækja ábyrgð á réttri úrvinnslu raf- og rafeindatækjaúrgangs. Í ábyrgðinni felst að þeir skulu fjármagna og tryggja meðhöndlun úrgangsins og uppfylla skyldur sínar með rekstri eigin skilakerfis eða með aðild að sameiginlegu skilakerfi fleiri framleiðenda og innflytjenda. Ábyrgð á söfnun úrgangs nær til landsins alls án tillits til hvar varan er seld og skal allur raf- og rafeindatækjaúrgangur fara til meðhöndlunar.


Atvinna fyrir alla - smelltu til aš sękja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborš

Forsķša vefsins Stękka letur Minnka letur Senda žessa sķšu Hamur fyrir sjónskerta Prenta žessa sķšu Veftré

Fįnar

In english