Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.4.2007

Rætt um Nýjan framhaldsskóla

Mennt - samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla heldur félagsfund um Nýjan framhaldsskóla 3. maí næstkomandi. Á fundinum verður gerð grein fyrir helstu niðurstöðum og áherslum í skýrslu starfsnámsnefndar um Nýjan framhaldsskóla og stöðu málsins. Þá munu fulltrúar aðila vinnumarkaðarins og menntastofnana sem eiga aðild að Mennt gera grein fyrir sínum viðhorfum og áherslum. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna gera í lok fundarins grein fyrir viðhorfum flokkanna til þeirra meginsjónarmiða sem fram koma í tillögunum um Nýjan framhaldsskóla og með hvaða hætti þeir munu beita sér í því máli í eða utan næstu ríkisstjórnar. Sjá nánar á vef Menntar

 

27.4.2007

Vinnuréttardagur Háskólans á Bifröst

Föstudaginn 4. maí næstkomandi verður fjallað um vinnurétt á málþingi í Háskólanum á Bifröst. Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála stendur að vinnuréttardeginum í samstarfi við Vinnuréttarfélag Íslands og lagadeild Háskólans á Bifröst. Fjölmargir fyrirlesarar taka til máls og mun Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, fjalla um álitaefni varðandi frumvarp endurskoðunarnefndar jafnréttislaga. Fundarstjóri er Bryndís Hlöðversdóttir, forseti lagadeildar. Þáttökugjald er 4000 krónur og nauðsynlegt er að skrá þátttöku. Nánari upplýsingar á vef Háskólans á Bifröst

27.4.2007

Mikill hagnaður lífeyrissjóða af íslenskum fjármálafyrirtækjum

Áætla má að ávöxtun lífeyrissjóðanna af eignum þeirra í íslenskum fjármálafyrirtækjum á síðustu 10 árum nemi um 160 milljörðum króna. Heildarsjóðfélagar íslenskra lífeyrissjóða eru 180 þúsund og hefur vöxtur íslenskra fjármálafyrirtækja því aukið meðaleign hvers sjóðfélaga um 900 þúsund krónur. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samtaka fjármálafyrirtækja um fjármálastarfsemi á Íslandi sem lögð var fram á fyrsta aðalfundi samtakanna.

25.4.2007

Seðlabankinn segir erlent starfsfólk hafa jákvæð efnahagsleg áhrif

Auður íslenskra heimila væri allt að 5% minni ef aðgangur erlends starfsfólks hefði verið takmarkaður að íslenskum vinnumarkaði. Kaupmáttur ráðstöfunartekna hefði verið allt að 4,5% minni á síðasta ári, verðbólga og stýrivextir hefðu verið hærri og einkaneysla minni. Þetta kom fram í máli Rannveigar Sigurðardóttur, forstöðumanns greiningar og útgáfudeildar Seðlabanka Íslands á morgunverðarfundi SA um erlent starfsfólk á Íslandi. Sólveig Jónasdóttir, verkefnastjóri hjá Alþjóðahúsi sagði Íslendinga þurfa að ákveða hvort  þeir ætli að líta á erlent fólk sem hingað kemur sem erlent vinnuafl eða framtíðar ríkisborgara.

25.4.2007

Beiting öryggisráðstafana EES samningsins fullkomlega óraunhæf

Ef Ísland vill takmarka fjölda erlendra starfsmanna hér á landi með beitingu öryggisráðstafana EES samningsins verða þær ráðstafanir að beinast gegn öllum 27 aðildarríkjum EES samningsins samtímis. Það eitt gerir notkun þessara ákvæða fullkomlega óraunhæfa. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Ragnars Árnasonar, forstöðumanns vinnumarkaðssviðs SA, á morgunverðarfundi SA um erlent starfsfólk á Íslandi. Beiting öryggisráðstafana EES samningsins gæti jafnframt kallað á gagnaðgerðir ESB sem gætu skaðað hagsmuni Íslands verulega. Ef stöðva á eða takmarka með lögmætum hætti frjálsa för launafólks frá aðildarríkjum EES til Íslands þarf að koma til uppsagnar EES samningsins.

25.4.2007

SFF dagurinn í Borgarleikhúsinu

SFF dagurinn verður haldinn hátíðlegur í Borgarleikhúsinu fimmtudaginn 26. apríl næstkomandi. Þar munu Samtök fjármálafyrirtækja efna til ráðstefnu þar sem Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra, mun fjalla um stöðu íslensks fjármálamarkaðar og Bjarni Ármannsson formaður Samtaka fjármálafyrirtækja flytja erindi. Erlendur gestur ráðstefnunnar er Sandeep Agraval, framkvæmdastjóri Credit Suisse, og flytur hann erindið „ Sailing the turbulent waters of international capital markets.” Dagskrá hefst klukkan 14:00 með aðalfundi SFF en ráðstefnan hefst klukkan 14:15 og lýkur klukkutíma síðar. Ráðstefnustjóri er Margrét Kristmannsdóttir, formaður Félags kvenna í atvinnurekstri.

25.4.2007

Mikil hækkun launa þrátt fyrir fjölgun erlendra starfsmanna

Samkvæmt launakönnun Hagstofunnar hækkuðu laun á almennum vinnumarkaði um 17% að meðaltali frá upphafi ársins 2005 til loka ársins 2006. Sú starfsstétt sem hækkaði mest var verkafólk, um 19%, en erlendir starfsmenn eru fjölmennastir í þeirri starfsstétt. Laun í byggingariðnaði, en í þeirri atvinnugrein eru erlendir starfsmenn fjömennastir, hækkuðu um 17%, eða um það sama og meðaltal allra.

24.4.2007

Morgunverðarfundur um erlent starfsfólk á Íslandi

Samtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar um erlent starfsfólk á Íslandi miðvikudaginn 25. apríl. Yfirskrift fundarins er Góðir Íslendingar – erlent starfsfólk á íslenskum vinnumarkaði og fer fundurinn fram á Grand Hótel Reykjavík kl. 8:00-10:00. Framsögur flytja Rannveig Sigurðardóttir forstöðumaður greiningardeildar Seðlabanka Íslands, Ragnar Árnason forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA og Sólveig Jónasdóttir verkefnastjóri hjá Alþjóðahúsi. Fundarstjóri er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA. Þátttökugjald er kr. 1.500 með morgunverði. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA

24.4.2007

Ávinningur af aukinni atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja

Ríkissjóður gæti hagnast af því að afnema tekjutengingu bóta vegna launa eldri borgara og öryrkja. Ástæðan eru auknar skatttekjur sem þessir einstaklingar myndu greiða í ríkissjóð. Þetta er meðal niðurstaðna í nýrri skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar sem ber heitið Framleiðnimæling og ávinningur af aukinni atvinnuþátttöku eldri borgara og öryrkja. Í skýrslunni kemur fram að mjög mikil framleiðniaukning hefur orðið í verslun á undanförnum árum og skortur sé á starfsmönnum í greininni. Meðal úrlausnarefna gæti verið að afnema tekjutengingu á bætur eftirlaunaþega og öryrkja og hvetja þá þannig til að koma í auknum mæli til starfa í verslun.

20.4.2007

Er einkaframkvæmd framtíðin á Íslandi?

Ráðstefna um einkaframkvæmd á Íslandi verður haldin á vegum Rannsóknarmiðstöðvar um einkaframkvæmd við Háskólann í Reykjavík mánudaginn 23. apríl kl. 15.30 – 18.15. Markmið með ráðstefnunni er að vekja athygli á möguleikum einkaframkvæmdar á Íslandi til næstu framtíðar og kynna hugmynd að framtíðarsýn. Ráðstefnan er vettvangur umræðna um tækifærin á Íslandi, hvað vel hefur tekist erlendis, víti að varast og lykilatriði til árangurs. SA eru meðal samstarfsaðila ráðstefnunnar.

20.4.2007

1,3% atvinnuleysi í mars

Í marsmánuði síðastliðnum voru skráðir 42.540 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngildir því að 1.934 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysi í janúar og febrúar mældist einnig 1,3% en atvinnuleysi í mars er minna en á sama tíma fyrir ári þegar það mældist 1,5%. Vinnumálastofnun gerir ráð fyrir því að draga muni úr atvinnuleysi í apríl og það verði líklega á bilinu 1,1%-1,4%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar

18.4.2007

Framtíðarlandið Ísland

Árið 2050 verður Ísland þekkt fyrir að skara fram úr á heimsvísu og hér verður einstakt fyrirmyndarþjóðfélag þar sem lífskjör verða mjög góð. Þetta voru álitsgjafar á aðalfundi SA 2007 sammála um en Guðfinna S. Bjarnadóttir fv. rektor HR, Karl Wernersson hjá Milestone, Þór Sigfússon forstjóri Sjóvá, Þóra Helgadóttir hagfræðingur í greiningardeild Kaupþings og Þórður Friðjónsson, forstjóri Nordic Exchange á Íslandi, ræddu um framtíð lands og þjóðar á aðalfundinum undir stjórn Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA.

18.4.2007

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins 2007 - 2008

Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2007 til 2008.  Nýjir koma inn í stjórnina Franz Árnason, Norðurorku, Guðjón Rúnarsson, Samtökum fjármálafyrirtækja og Hörður Arnarson, Marel. Úr stjórninni ganga Sveinn Hannesson, Samtökum iðnaðarins, Guðmundur Ásgeirsson, Nesskip hf. og Jens Pétur Jóhannsson, Rafmagnsverkstæði Jens Péturs sem verður áheyrnarfulltrúi. 

Sjá nánar

17.4.2007

Ísland verði áfram í fremstu röð

Forsenda þess að Ísland verði áfram í fremstu röð er undir því komin að stjórnvöld hafi metnað til þess að halda umgjörð efnahagslífsins áfram í fremstu röð, að tryggja íslenskum fyrirtækjum bestu starfsskilyrði, að draga úr reglubyrði og að viðhalda þeim trúverðugleika, sem byggður hefur verið upp undanfarin ár. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Ingimundar Sigurpálssonar, formanns SA í ræðu á aðalfundi SA. „Stjórnvöld verða að sýna ábyrgð og festu og þau verða að muna, að á tímum alþjóðavæðingar, þegar upplýsingar berast um heiminn á augabragði, þá leitar efnahagsstarfsemin þangað, þar sem starfsskilyrðin eru almennt hagstæðust. Trúverðugleiki, traust og stöðugleiki eru mikilvægir þættir í efnahagsstjórninni. Það veltur á miklu, að stjórnvöld hafi metnað til þess að halda áfram á þeirri braut að skapa atvinnulífinu svigrúm til athafna.”

17.4.2007

Hagvöxtur verði tryggður

Viðfangsefni númer eitt er að tryggja áframhaldandi hagvöxt hér á landi um ókomna framtíð sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra í ávarpi á aðalfundi SA í dag. „Þetta verkefni er þeim brýnna þar sem við horfum fram á að þjóðinni mun halda áfram að fjölga, gagnstætt því sem ýmsar aðrar þjóðir horfast í augu við.” Geir sagði undirstöðu allra framfara vera aukna verðmætasköpun í efnahagslífinu. „Á síðustu 43 árum og fram til þessa dags hefur verðmætasköpun landsins, sjálf þjóðarkakan, nær fimmfaldast að raungildi. Á þessu ári er talið að heildarandvirði landsframleiðslunnar muni nema um 1.200 milljörðum króna en fyrir 43 árum nam landsframleiðslan 250 milljörðum króna á sambærilegu verðlagi.”

17.4.2007

Bjartsýn þjóð á leið í ESB?

Meirihluti íslensku þjóðarinnar telur að lífskjör á Íslandi árið 2050 verði líkt og nú meðal þeirra bestu í heimi. Þetta kemur fram í nýrri könnun Capacent Gallup fyrir SA. Bjartsýni þjóðarinnar hefur aukist frá því í apríl árið 1993 en þá töldu 43% þjóðarinnar hættu á þjóðargjaldþroti samkvæmt skoðanakönnun Hagvangs. Hin bjartsýna íslenska þjóð telur jafnframt að Ísland sé á leið í ESB, en 75,5% þjóðarinnar telja að Ísland verði gengið í Evrópusambandið árið 2050. Tæp 3% telja að sambandið verði ekki til. Rúm 72% áhrifavalda í íslensku samfélagi telja að Ísland verði orðið aðili að ESB árið 2050 en 6,5% áhrifavalda telja að sambandið verði liðið undir lok árið 2050.

17.4.2007

Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður SA

Á aðalfundi SA 17. apríl 2007 var Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins. Kosningin fór fram með rafrænum hætti í fyrsta sinn og var þátttaka góð. Ingimundur var rétt kjörinn formaður starfsárið 2007-2008 með 97% greiddra atkvæða.

17.4.2007

Eldri þjóð – ný viðfangsefni

Aldurssamsetning íslensku þjóðarinnar árið 2050 verður mjög frábrugðin því sem nú er samkvæmt nýrri mannfjöldaspá SA. Einstaklingar á eftirlaunaaldri, 65 ára og eldri, verða 27% íbúanna í stað 12% nú og munu telja 109 þúsund manns. Fjöldi Íslendinga 80 ára og eldri mun fimmfaldast fram til 2050, úr 9 þúsund í 45 þúsund. Gert er ráð fyrir því að árið 2050 verði ævilíkur karla við fæðingu 86,5 ár og kvenna tæp 90 ár og lenging meðalævi frá því sem nú er verði þannig 7,5 ár hjá körlum og 7 ár hjá konum. Þá er útlit fyrir að það tímabil sem fólk nýtur lífeyris lengist um tæp 30%. Þetta kemur fram í nýju riti SA Ísland 2050: Eldri þjóð – ný viðfangsefni sem kemur út í dag, en þar segir m.a. að brýnt sé að afnema allar hindranir fyrir atvinnuþátttöku eldri starfsmanna og hækkun eftirlaunaaldurs hljóti að koma til álita þar sem fólk á aldrinum 65-70 ára búi við mun betri heilsu en áður og sú þróun muni halda áfram.

13.4.2007

Aðalfundur SA 17. apríl 2007

ÍSLAND 2050 – TVEIR Á MÓTI EINUM er yfirskrift aðalfundar SA sem fram fer á Hótel Nordica þann 17. apríl næstkomandi. Vísað er til þess að árið 2050 stefnir í að það verði tveir Íslendingar á vinnumarkaði fyrir hvern ellilífeyrisþega. Íslenska þjóðin er að eldast en í dag eru fimm Íslendingar á vinnumarkaði fyrir hvern ellilífeyrisþega. Þessi þjóðfélagsbreyting sem nú er hafin er í raun ávísun á miklar breytingar á fjölmörgum sviðum. Á fundinum verður kynnt ný könnun Capacent Gallup á viðhorfum Íslendinga til framtíðarinnar. Trúir þjóðin því að kreppa sé framundan? Búast Íslendingar við stórkostlegum framförum í læknavísindum og breytingum á orkumálum Íslendinga? Verður búið að tvöfalda hringveginn árið 2050 og Ísland orðið hluti af ESB? Sjá nánar

11.4.2007

Helmingi minni viðskiptahalli

Seðlabankinn gaf út tölur um viðskiptahalla og erlenda skuldastöðu fyrir árið 2006 6. mars síðastliðinn. Niðurstaðan var sú að viðskiptahallinn hefði numið 305 milljörðum króna eða 26,7% af VLF og að hrein skuldastaða í árslok hefði verið neikvæð um 120% af VLF. „Þessar tölur eru ótrúlega háar og ættu að vekja skelfingu meðal allra sem eiga hagsmuna að gæta í íslensku efnahagslífi. Samt virtust viðbrögð almennt vera furðu róleg og fæstir í raun trúa því að eitthvað mikið sé að í efnahagslífinu” segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi, og segir ekki ólíklegt að raunverulegur viðskiptahalli sé jafnvel innan við helmingur af því sem fram hefur komið. Mikilvægt sé að Seðlabankinn hafi forgöngu um að koma fram með tölur sem skýri betur raunverulega stöðu íslenska þjóðarbúsins. Það þurfi m.a. að gera með því að meta raunvirði fjárfestinga Íslendinga erlendis og setja fram talnaefni um söluhagnað og aðrar verðbreytingar á erlendum eignum og skuldum.

11.4.2007

Íslendingar hálf milljón árið 2050?

Íslendingar standa í þeirri trú að þeir verði orðnir fleiri en hálf milljón árið 2050. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar Capacent Gallup könnunar á framtíðarviðhorfum Íslendinga fyrir SA. Til að þetta gangi eftir þarf íbúafjöldi höfuðborgarsvæðisins að tvöfaldast. Samtök atvinnulífsins eru heldur hógværari og telja í nýrri mannfjöldaspá að Íslendingar verði um 400 þúsund árið 2050. Til að sú spá gangi eftir þurfa fleiri að flytja til landsins en frá því næstu áratugina þannig að á landinu verði um 40 þúsund manns af erlendu bergi brotnir árið 2050 eða um 10% íbúa. Samkvæmt spánni verða Íslendingar 80 ára og eldri um 45 þúsund árið 2050 en þeir eru 9 þúsund í dag. Sameinuðu þjóðirnar virðast hafa minna álit á frjósemi Íslendinga en samkvæmt mannfjöldaspá SÞ verða Íslendingar 355 þúsund árið 2050.

11.4.2007

Þrengt að starfsumhverfi atvinnuökumanna

SA hafa ásamt Samtökum iðnaðarins, SVÞ - Samtökum verslunar og þjónustu og Samtökum ferðaþjónustunnar gert alvarlegar athugasemdir við reglugerðir samgönguráðuneytisins um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Gagnrýnt er að það er nánast ómögulegt fyrir atvinnubílstjóra að vinna starf sitt án þess að eiga á hættu að fá háar sektir fyrir. Sektir eru nú mun hærri en áður og getur hálftíma umframakstur kostað ökumenn 50 þúsund krónur. Ekki er tekið tillit til aðstæðna á vegum, ófærðar og erfiðra veðurskilyrða. Reglugerðirnar munu leiða til hærri flutningskostnaðar og um leið hærra vöruverðs á landsbyggðinni.

10.4.2007

Blikur á lofti á íslenskum vinnumarkaði

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar Námsmatsstofnunar sem gerð var fyrir SA stefnir meginþorri ungs fólks sem er á leið í framhaldsnám á Íslandi að því að verða háskólamenntaðir sérfræðingar sem starfa í mennta- eða heilbrigðisgeiranum eða starfa við verslun og þjónustu. Rætt var við 15 ára ungmenni árin 2000, 2003 og 2006. Niðurstöður rannsóknarinnar endurspegla viðhorf þess fólks sem verður ráðandi í íslensku þjóðfélagi á árunum 2030-2050. Samtök atvinnulífsins telja niðurstöðurnar gefa vísbendingar um framtíðarþróun á íslenskum vinnumarkaði og að upp kunni að koma alvarlegt misvægi milli framboðs og eftirspurnar eftir starfsfólki í atvinnulífinu.

2.4.2007

Leikreglur verða að vera skýrar

Hætt er við að Ísland teljist ekki jafn áhugaverður kostur fyrir erlendar fjárfestingar eftir að stækkun álversins í Straumvík var hafnað. Eftir áralangan undirbúning að stækkun álversins í Straumsvík í samræmi við gildandi reglur breytti bæjarstjórn Hafnarfjarðar leikreglunum á lokasprettinum og setti málið í dóm kjósenda. Það er atvinnulífinu afar mikilvægt að leikreglur allar sem um það gilda séu einfaldar, skýrar og gegnsæjar. Forsenda uppbyggingar og framþróunar er stöðugleiki í efnahagslífi og stjórnarfari en niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í Hafnarfirði hlýtur að verða umhugsunarefni öllum þeim sem hafa í hyggju að efna til uppbyggingar nýs reksturs eða umfangsmikillar stækkunar á núverandi rekstri.


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
NÝTT RIT SA
11.11.11:
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english