Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

28.2.2007

Ráðstefna um útvistun verkefna og opinber innkaup

Samtök upplýsingatæknifyrirtækja og Samtök iðnaðarins efna til ráðstefnu um ávinning af útvistun verkefna og þróun opinberra innkaupa. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við Ríkiskaup og ráðuneyti fjármála, iðnaðar og viðskipta og fer fram í nýju Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal fimmtudaginn 1. mars frá 13:00 til 15:00. Ráðstefnan er opin og aðgangur ókeypis. Sætaframboð er takmarkað og er nauðsynlegt að skrá þátttöku á vef SI.

27.2.2007

Íslenskir bankar og sparisjóðir verðlaunaðir

ICEPRO verðlaunin í ár komu í hlut Glitnis, Kaupþings, Landsbanka og sparisjóðanna en verðlaunin voru veitt í 11. sinn á aðalfundi ICEPRO. Verðlaunin eru veitt þeim skarað hafa fram úr á sviði rafrænna samskipta. Í máli Jóns Sigurðssonar, viðskiptaráðherra, sem veitti verðlaunin kom fram að ákveðið hefði verið að þessu sinni að verðlaunahafar yrðu fleiri en einn og væri það í fyrsta skipti sem slíkt væri gert.

26.2.2007

Störfum fjölgar í Hafnarfirði

Störfum í Hafnarfirði mun fjölga verulega komi til stækkunar álvers Alcan í Straumsvík. Starfsmönnum Alcan mun fjölga um rúmlega þrjú hundruð en fyrir hvert eitt starf sem skapast í álverinu verða til 2,4 afleidd störf annars staðar. Bein afleidd störf í Hafnarfirði verða eftir stækkun um fimm hundruð og áhrif á fyrirtæki í Hafnarfirði sem skipta við álverið munu verða mikil. Áætlað er að viðskipti Alcan við birgja í Hafnarfirði muni rúmlega tvöfaldast og nema um þremur og hálfum milljarði króna á ári eftir stækkun álversins.

23.2.2007

Kastljós Dana beinist enn á ný að Íslandi

Áhugi frænda vorra Dana á íslensku efnahagslífi virðist síður en svo fara dvínandi en fjallað er um Ísland og þróun íslenskra efnahagsmála í nýju fréttabréfi dönsku samtaka iðnaðarins, DI Business. Þar velta menn því fyrir sér hvort Íslendingar geti haldið sínu striki eða hvort vindurinn leki brátt úr þeim. Meðal annars er rætt við Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, sem segir að ástæðulaust sé að óttast kreppu þar sem jákvæð teikn séu á lofti og Íslendingar séu vel í stakk búnir að takast á við áframhaldandi vöxt í efnahagslífinu.

21.2.2007

Auknar kröfur til fyrirtækja innan EES

Ný efnalöggjöf Evrópusambandsins tekur gildi þann 1. júní 2007 og skömmu síðar á Evrópska efnahagssvæðinu. Ástæða er til að hvetja íslensk fyrirtæki til að undirbúa sig vel fyrir gildistöku hennar en framleiðendum og innflytjendum efna verður gert skylt að veita upplýsingar um eiginleika þeirra og einnig verða gerðar kröfur til dreifingaraðila. Óheimilt verður að framleiða eða markaðssetja óskráð efni í Evrópu. Markmið með hinni nýju löggjöf ESB eru að vernda heilsu fólks og umhverfi en með henni er gengið mun lengra en þekkist annars staðar í heiminum. Iðnrekendur í Bandaríkjunum, Kína og á Indlandi munu til dæmis ekki lúta sambærilegum reglum nema þegar þeir flytja efni eða vörur til EES.

19.2.2007

Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu

Stefnumót atvinnulífsins í Evrópu fram fer í Brussel 15.-16. mars næstkomandi þar sem umræður um stöðu og framtíð Evrópu á 50 ára afmæli Rómarsáttmálans verða áberandi. Forsætisráðherrar, stjórnendur stórfyrirtækja og leiðtogar Evrópusambandsins munu stinga saman nefjum og ræða samkeppnishæfni Evrópu ofan í kjölinn ásamt hundruðum blaðamanna en búist er við að þátttakendur verði á þriðja þúsund.

19.2.2007

Bleikt er ekki málið

Lisa Johnson, annar tveggja höfunda bókarinnar Don´t think pink , fjallar um rannsóknir sínar á kauphegðun kvenna á fundi SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu og FKA – Félags kvenna í atvinnurekstri í Salnum í Kópavogi þriðjudaginn 20. febrúar. Talið er að konur taki ákvarðanir um allt að 80% þeirra útgjalda sem fara til neyslu í vestrænum samfélögum í dag. Þar af eru konur á aldrinum 18 ára til 40 atkvæðamestar. Lisa mun meðal annars fjalla um hvernig fyrirtæki nái til þessa hóps og hvort framleiðendur og seljendur séu að senda frá sér réttu skilaboðin. Sjá nánar á vef SVÞ.

 

19.2.2007

Ný efnalöggjöf ESB rædd á fundi SA 21. febrúar

Miðvikudaginn 21. febrúar efna Samtök atvinnulífsins til morgunfundar um nýja efnalöggjöf ESB, s.k. REACH löggjöf, og áhrif hennar á íslenskt atvinnulíf. Bryndís Skúladóttir, efnaverkfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, mun fjalla um löggjöfina, tiltaka dæmi um hverju REACH mun breyta fyrir íslensk fyrirtæki og benda á hvernig fyrirtæki geti undirbúið sig fyrir breytingarnar. REACH löggjöfin tekur gildi þann 1. júní 2007 í Evrópusambandinu og nokkru síðar á Íslandi.

16.2.2007

Fleiri þurfa að leggja atvinnulífinu lið í loftslagsmálum

Ný stefnumörkun ríkisstjórnar Íslands í loftslagsmálum getur haft mikil áhrif á efnahag landsins. Kröfur ríkisstjórnarinnar beinast fyrst og fremst að atvinnulífinu en lítið er hugað að því hvað aðrir aðilar geti gert til að draga úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda, t.d. sveitarfélög, ríki og almenningur. Íslensk fyrirtæki hafa staðið sig vel á undanförnum árum við að takmarka útstreymi gróðurhúsalofttegunda og munu halda því áfram, en ljóst er af stefnumörkun ríkisstjórnarinnar að íslensku atvinnulífi verður sniðinn þrengri stakkur en til að mynda í Evrópusambandinu. Atvinnulíf í Evrópu hefur varað við því að einstök ríki taki á sig einhliða skuldbindingar í loftslagsmálum þar sem það kunni að leiða til þess að líkur minnki á að víðtækt alþjóðlegt samkomulag náist um takmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda eftir að gildistöku Kyoto-bókunarinnar lýkur.

15.2.2007

Fyrirtæki geri áhættumat á vinnustað

Samkvæmt nýrri reglugerð ber öllum fyrirtækjum að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði starfsmanna sinna, óháð stærð, starfsgrein eða starfsmannafjölda. Reglugerðin felur í sér að kerfisbundnu vinnuverndarstarfi verði komið á innan fyrirtækja til að draga úr hættu á heilsutjóni, draga úr veikindafjarvistum og stuðla að andlegri og líkamlegri vellíðan starfsmanna á vinnustað. Almennt eiga atvinnurekendur að geta útbúið sjálfir skriflegt áhættumat sem felur í sér áætlun um öryggi og heilbrigði starfsmanna.

13.2.2007

Harðari viðurlög en í nágrannalöndunum

Alþingi hefur nú til meðferðar frumvörp til laga um breytingu á samkeppnislögum annars vegar og um viðurlög við brotum á fjármálamarkaði hins vegar. Í frumvörpunum er gengið lengra en í nágrannalöndum Íslands og lagðar til strangari refsiheimildir en þar tíðkast gagnvart einstaklingum, fyrirtækjum og samtökum fyrirtækja. Samtök atvinnulífsins telja að bannákvæði samkeppnislaga séu mikilvæg og þau beri að virða en þó verði að gæta meðalhófs við ákvörðun refsiramma vegna brota á lögunum. Því hafi ekki verið svarað hvers vegna Íslendingar eigi að ganga lengra en önnur ríki í þessum efnum.

13.2.2007

Ný tækifæri í íslenskri þjónustustarfsemi

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu efna til morgunverðarfundar um útvistunarstefnu ríkisins og þá möguleika sem hún felur í sér fyrir þjónustufyrirtæki á almennum markaði. Fundurinn fer fram þann 15. febrúar kl. 8:30 – 10:00 á Hótel Nordica. Fyrirlesarar eru Stefán Jón Friðriksson viðskiptafræðingur í fjármálaráðuneytinu sem talar um ríkið sem upplýstan kaupanda þjónustu og Sigfús Jónsson framkvæmdastjóri Nýsis sem fjallar um ónýtta möguleika íslenskra þjónustufyrirtækja. Sjá nánar á vef SVÞ.

11.2.2007

Viðurlög við efnahagsbrotum

Samtök atvinnulífsins og Samtök fjármálafyrirtækja efna til morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík, þriðjudaginn 13. febrúar kl. 8:00 - 10:00. Á fundinum verður rætt um fyrirhugaða breytingu á samkeppnislögum og frumvarp til laga um viðurlög við brotum á fjármálamarkaði. Fulltrúar iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis munu kynna fyrirhugaðar lagabreytingar og fulltrúar atvinnulífsins munu lýsa viðhorfum sínum til þeirra.

7.2.2007

Námskeiðaröð SA um starfsmannamál - skráning stendur yfir

SA halda á næstunni námskeið um starfsmannamál fyrir félagsmenn sína, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Boðið verður upp á almenn námskeið um túlkun og framkvæmd kjarasamninga og námskeið um nýjungar í kjarasamningum og lögum og sérhæfða þætti starfsmannamála. Námskeiðin hefjast þriðjudaginn 13. febrúar í Húsi atvinnulífsins en fullbókað er á fyrsta námskeiðið.

5.2.2007

Sérstaða Íslands í loftslagsmálum

Enginn vafi er á að bæði einstaklingar og atvinnulíf munu finna fyrir auknum kröfum um að dregið verði úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda á næstu árum og áratugum. Atvinnulíf á Íslandi stendur hins vegar almennt vel að vígi á þessu sviði m.a. vegna þess að raforkuframleiðsla á Íslandi veldur ekki útstreymi gróðurhúsalofttegunda. Vísindanefnd Sameinuðu þjóðanna hefur bent á að loftslagsbreytingar megi fyrst og fremst rekja til brennslu jarðefnaeldsneytis, landbúnaðar og breytinga á landnotkun. Alþjóðasamfélagið hefur jafnframt viðurkennt sérstöðu Íslands sem felst í nýtingu á endurnýjanlegum orkulindum, t.d. við framleiðslu á áli sem feli í sér minni áhrif á verðurfarskerfi heldur en almennt gerist með álframleiðslu annars staðar í heiminum.

2.2.2007

Tekjur Hafnarfjarðar stóraukast vegna stækkunar Alcan

Tekjur Hafnarfjarðarbæjar sem tengjast starfsemi Alcan munu stóraukast komi til stækkunar álversins í Straumsvík og nema um 1.400 milljónum króna á ári. Mikil fjölgun starfa og auknar útsvarstekjur vega þungt, en bærinn mun einnig fá auknar tekjur vegna hafnargjalda og fasteignagjalda. Þetta kom fram í erindi Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, á stefnumóti fyrirtækja í Hafnarfirði sem fram fór í Hafnarborg. Ríkið mun einnig fá sitt því eftir að Alcan færir sig yfir í íslenskt skattkerfi og greiðir 18% tekjuskatt, munu árlegar tekjur ríkisins sem tengjast starfsemi Alcan nema fjórum til fimm milljörðum króna á ári.

2.2.2007

Framlög til fræðslu hækka

Framlög til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins hækka um rúmlega hundrað milljónir á ári samkvæmt þjónustusamningi  menntamálaráðuneytis annars vegar og Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hins vegar. Greiðslur til fræðsluaðila um land allt verða því um 215 milljónir á ári. Áhersla er lögð á að veita fólki á vinnumarkaði með litla formlega grunnmenntun tækifæri til að afla sér menntunar eða bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins hvetja fyrirtæki til að stuðla að símenntun starfsfólks sem kostur er.

1.2.2007

Samkeppnislög gegn málfrelsi og skoðanafrelsi?

Nú liggur fyrir frumvarp til breytinga á samkeppnislögum þar sem gert er ráð fyrir nýjum og að verulegu leyti mjög hertum refsiheimildum. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi að sá þáttur frumvarpsins sem snúi að starfsemi samtaka fyrirtækja sé um margt mjög sérstakur og ef það yrði að lögum yrði það mjög heftandi fyrir starfsemi samtaka í atvinnulífinu, þ.á.m. Samtaka atvinnulífsins. Sérstaklega er varað við því nýmæli sem felst í frumvarpinu að heimilt verði að beita samtök fyrirtækja sektum sem nemi allt að 10% af veltu þeirra fyrirtækja sem forsvarsmenn samtakanna tengjast. Vilhjálmur segir gengið lengra í frumvarpinu en við nýlegar breytingar á samkeppnislögum í Danmörku og bendir á að Samtök atvinnulífsins sitji ekki við sama borð og önnur samtök á borð við Alþýðusambandið, Neytendasamtökin og stjórnmálaflokkana, varðandi félagafrelsi, skoðanafrelsi og málfrelsi.

1.2.2007

Markmið um hjöðnun verðbólgu hafa reynst raunhæf

Meginmarkmið samkomulags á almennum vinnumarkaði um mitt síðasta ár var hjöðnun verðbólgu. Í verðbólguspá frá því í júli taldi Seðlabankinn hins vegar að samkomulagið myndi auka á verðbólguþrýsting og að 2,5% verðbólgumarkmið næðist ekki á næstu tveim árum. Staðreyndir um verðlagsþróun undanfarna sjö mánuði sýna að þessi verðbólguspá Seðlabankans hefur sem betur ekki gengið eftir. Árangurinn hefur orðið framar vonum og er útlit fyrir að verðbólgumarkmiðinu verði náð um mitt þetta ár. Með samstilltu átaki aðila á vinnumarkaði og stjórnvalda hafa verðbólguvæntingar minnkað og óvænt launaskrið hefur ekki komið fram. Smám saman hefur dregið úr þenslu í hagkerfinu og fasteignamarkaðurinn kólnað.

1.2.2007

Þungatakmarkanir skapa óvissu og auka kostnað

Nú eru þungatakmarkanir á flestum vegum landsins. Þær hafa í för með sér að afhending vöru tefst, vöruverð er hærra en ella og skapa alls kyns óvissu og óþægindi. Ætla má að takmarkanir geti staðið í 50 til 60 daga á ári eftir því hvaða vegi er um að ræða. Reglulega má heyra af umkvörtunum flutningafyrirtækja vegna þessara mála og eins umfjöllun einstakra bæjar- og sveitarstjórna auk þess sem þessi hluti vegamála er reglulega til umfjöllunar á Alþingi. Mikilvægt er að á þessu verði ráðin bót og taka SA undir hvatningu SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu um 10 ára stórátak í vegamálum.

1.2.2007

Rafræn kosning formanns SA

Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn þann 17. apríl næstkomandi á Hótel Nordica. Stjórn Samtaka atvinnulífsins hefur ákveðið að taka upp rafræna kosningu við val formanns samtakanna og fer slík kosning í fyrsta sinn fram í vor.

1.2.2007

Um brotthlaup starfsmanna

Að undanförnu hefur nokkur fjöldi fyrirtækja haft samband við Samtök atvinnulífsins til að fá ráðleggingar vegna brotthlaups starfsmanna. Brotthlaup úr starfi hefur í för með sér tjón og óþægindi fyrir fyrirtækin og geta þau krafist bóta úr hendi starfsmanns.

1.2.2007

Evrópusamtök atvinnulífsins vilja auka snerpu ESB

BUSINESSEUROPE, Evrópusamtök atvinnulífsins, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem bent er á nauðsyn þess að ESB og aðildarríki þess takist á við þær áskoranir sem þau standa frammi fyrir á tímum hnattvæðingar og aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Evrópa verði að auka snerpu sína og samkeppnishæfni eigi álfan ekki að sitja eftir á tímum þar sem allt breytist á ógnarhraða. Hleypa verði nýju lífi í ESB svo hægt sé að blása til sóknar.


Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english