Fréttir
30.11.2007
Afstaða atvinnulífsins til loftslagsviðræðna á Balí
Í næstu viku hefst á Balí loftslagsráðstefna aðildarríkja loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna þar sem viðræður hefjast um hvað taki við þegar tímabil Kyoto-bókunarinnar rennur út. Samtök atvinnulífsins verða með fulltrúa á ráðstefnunni en samtökin leggja áherslu á að fyrirtæki í sömu grein búi við sömu eða svipaðar kröfur hvar sem þau eru staðsett í heiminum. SA styðja að sambærilegt ákvæði og svokallaða íslenska ákvæði fylgi nýju alþjóðlegu samkomulagi. Mikilvægt er að ákvörðun um frekari skuldbindingar Íslands byggi á raunhæfu mati á aðgerðum, möguleikum til að draga úr útstreymi hér á landi og hagkvæmni þeirra aðgerða.
29.11.2007
Út úr öngstrætinu
„Brýnt er að endurskoða nú þegar stefnuna í efnahags- og peningamálum. Núverandi blanda hagstjórnaraðgerða opinberra fjármála, íbúðalánasjóðs og stýrivaxta er ekki til þess fallin að stuðla að jafnvægi í efnahagslífinu og draga úr verðbólgu. Hágengistímabil krónunnar koma illa niður á fyrirtækjum í alþjóðlegri samkeppni og óstöðugleiki gengisins breytir forsendum rekstrarlegra ákvarðana í öllum atvinnugreinum á ófyrirsjáanlegan hátt. Nú er komið að þeirri stund, að knýja verður á um samræmdar aðgerðir ríkisstjórnar og Seðlabanka, þar sem væntingar um starfsumhverfi atvinnulífsins á komandi misserum munu hafa veruleg áhrif á gerð kjarasamninga á næstu vikum.” Þetta segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í grein sem birtist í Fréttablaðinu í dag.
28.11.2007
Ályktun fulltrúaráðs SA um kjarasamninga og efnahagsmál
Fulltrúaráð SA kom saman til fundar í morgun og ályktaði um kjarasamninga og efnahagsmál. Fulltrúaráð SA hefur æðsta vald í málefnum samtakanna milli aðalfunda. Í upphafsorðum ályktunarinnar segir m.a. að óvissa og óróleiki á erlendum og innlendum fjármálamörkuðum muni marka efnahagsframvinduna á næstu mánuðum og jafnvel misserum. Íslendingar muni ekki fara varhluta af þessari þróun sem auk hás olíuverðs og minnkandi sjávarafla muni leiða til þess að hagvöxtur verður að líkindum óverulegur á næsta ári. Við þessar aðstæður gangi
28.11.2007
Gögn frá fundi SA um kjarasamninga og efnahagshorfur
Samtök atvinnulífsins efndu í morgun til opins morgunverðarfundar á Hilton Reykjavík Nordica þar sem rætt var um komandi kjaraviðræður og lagt mat á stöðu og horfur í efnahagsmálum. Yfirskrift fundarins var Hvert stefnir vinnumarkaðurinn? Meðal frummælenda voru Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, Hrund Rudolfsdóttir, formaður SVÞ og Svana Helen Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Stika.
26.11.2007
Jafnrétti meira meðal yngra fólks
Það er með öllu óljóst að breytingar sem lagðar eru til í frumvarpi félagsmálaráðherra um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna, muni breyta einhverju um hlutfallslega stöðu karla og kvenna í atvinnulífinu. Fyrir því hafa ekki verið færð nein rök. Þetta kom m.a. fram í máli Hrafnhildar Stefánsdóttur, yfirlögfræðings Samtaka atvinnulífsins, á fundi Landssambands sjálfstæðiskvenna. Í erindi sínu rakti hún gagnrýni SA á frumvarpið og fór yfir rökstuðninginn sem að baki því liggur. Benti hún jafnframt á að nýleg könnun og rannsókn sýni að jafnrétti sé meira meðal yngra fólks en þeirra eldri og því vísbendingar um að jákvæðar breytingar séu að eiga sér stað á íslenskum vinnumarkaði – konur séu að sækja á.
26.11.2007
SA auglýsa eftir verkefnastjóra Evrópumála
23.11.2007
Skaðlegar og íþyngjandi reglur í jafnréttisfrumvarpi
22.11.2007
Nýtt félagaform – evrópskt einkahlutafélag
„Í febrúar 2007 samþykkti Evrópuþingið ályktun þar sem óskað var eftir því við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að það setti reglugerð um nýtt félagaform, evrópskt einkahlutafélag (e. European Private Company eða EPC). Stefnir framkvæmdastjórnin á að leggja fram drög að nýrri reglugerð um evrópsk einkahlutafélög fyrir mitt ár 2008. Hafa samtök atvinnulífsins í Evrópu og aðrir hagsmunaaðilar eindregið stutt framgang málsins.” Þetta segir Guðrún Björk Bjarnadóttir, lögmaður hjá SA, í grein í Viðskiptablaðinu um nýtt félagaform. Greinina má nálgast í heild sinni hér á vef SA.
22.11.2007
Kjarasamningar og horfur í efnahagsmálum
Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunverðarfundar á Hilton Reykjavík Nordica miðvikudaginn 28. nóvember kl. 8:15-9:30. Á fundinum verður rætt um komandi kjaraviðræður og lagt mat á stöðu og horfur í efnahagsmálum. Yfirskrift fundarins er Hvert stefnir vinnumarkaðurinn? Meðal frummælenda eru
21.11.2007
Nýr framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
Stjórn Samtaka iðnaðarins hefur ákveðið að ráða
19.11.2007
Skattpíndir Svíar flykkjast til Danmerkur
Umferð um Eyrarsundsbrúna milli Svíþjóðar og Danmerkur hefur aukist um nærri 30% á þessu ári og er búist við því að umferðin muni aukast enn frekar á næsta ári. Ástæðan er einföld og hefur lítið að
16.11.2007
Fjölmenni í Þjóðmenningarhúsinu
Bókasalur Þjóðmenningarhússins var þétt setinn á hádegisfundi með prófessor Arthur B. Laffer í dag en hann er einn kunnasti hagfræðingur heims. Í afar líflegu erindi fjallaði hann um áhrif skattalækkana og skattahækkana á einstaklinga, fyrirtæki og þjóðfélög. Vísaði hann til reynslu Bandaríkjamanna í þeim efnum allt frá byrjun 20. aldar til dagsins í dag. Laffer vakti heimsathygli þegar hann setti fram þá kenningu á 8. áratug 20. aldar, að skatttekjur ríkisins þyrftu ekki að minnka, heldur gætu jafnvel aukist, þegar skattar væru lækkaðir.
14.11.2007
Áskoranir á evrópskum vinnumarkaði
Aðilar vinnumarkaðarins í Evrópu hafa komist að samkomulagi um brýnustu úrlausnarefnin á vinnumarkaði í löndum Evrópusambandsins. Í sameiginlegri greiningu er þróun og horfum á evrópskum vinnumarkaði lýst og settar fram tillögur um hvað megi betur fara. Samkomulagið þykir mikilvægt innlegg í umræðuna um sveigjanleika og öryggi á vinnumarkaði í Evrópu sem verður til umfjöllunar á vettvangi Evrópuráðsins í desember.
13.11.2007
Of mikil verðbólga á Íslandi
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í samtali við Morgunblaðið að verðbólgan sé allt of mikil og nýjustu verðbólgutölur auðveldi ekki kjaraviðræður.
13.11.2007
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir - námskeið
Staðlaráð Íslands stendur fyrir námskeiði fimmtudaginn 22. nóvember fyrir þá sem vilja læra á ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna. Farið verður yfir lykilatriði, uppbyggingu og notkun. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir megináherslum og uppbyggingu kjarnastaðlanna í ISO 9000:2000 röðinni og þekki hvernig þeim er beitt við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi. Námskeiðið fer fram hjá Staðlaráði Íslands, Laugavegi 178, kl. 08:30-14:45. Nánari upplýsingar og skráning á vef Staðlaráðs
12.11.2007
Sveigjanleg starfslok – fundaröð lýkur
Fimmtudaginn 15. nóvember efnir Verkefnisstjórn 50+ til lokafundar í fundaröð um málefni miðaldra og eldrafólks á vinnumarkaði. Fundurinn fer fram á Grand Hótel Reykjavík - Háteigi kl. 8:30-10:00. Er eftirsóknarvert fyrir einstaklinga að vera í starfi fram eftir ævi? Af hverju er langtímaatvinnuleysi meira meðal eldra fólks en þess yngra? Hvernig hafa breytingar í lífshlaupi fólks áhrif á atvinnuþátttöku þess og þarfir á vinnumarkaði? Er sveigjanleiki ákjósanlegur eða getur hann verið íþyngjandi? Leitað verður svara við þessum spurningum. Morgunverður hefst kl. 08:00.
9.11.2007
Skattalækkanir öllum í hag
Samtök atvinnulífsins efna til hádegisfundar 16. nóvember í samstarfi við ýmsa aðila um skattalækkanir. Þar mun einn kunnasti hagfræðingur heims, prófessor Arthur B. Laffer, tala um árangur af skattalækkunum. Laffer vakti heimsathygli, þegar hann setti fram þá kenningu á 8. áratug 20. aldar, að skatttekjur ríkisins þyrftu ekki að minnka, heldur gætu jafnvel aukist, þegar skattar væru lækkaðir.
7.11.2007
Nýtt skilakerfi raftækja- og rafeindatækjaúrgangs
Framleiðendur og innflytjendur raftækja og rafeindatækja bera ábyrgð á og greiða fyrir söfnun og förgun úrsérgenginna raftækja og rafeindatækja eftir að ný tilskipun Evrópusambandsins um raftækja- og rafeindatækjaúrgang tekur gildi á næsta ári. Tilskipunin var kynnt á upplýsingafundi í Húsi atvinnulífsins en
6.11.2007
Handbók um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa
Í samræmi við aðgerðaáætlun um Einfaldara Ísland hefur verið tekin saman á vegum ráðuneyta og skrifstofu Alþingis handbók um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa. Þar er safnað saman á einn stað þeim viðmiðum sem telja má að gildi um framsetningu stjórnarfrumvarpa og athugasemda með þeim. Jafnframt eru settar fram leiðbeiningar um hvernig standa eigi að undirbúningi frumvarpa í ráðuneytum, meðal annars að því er varðar samráð og mat á áhrifum. Meðal lykilþátta sem höfundar nýrra frumvarpa þurfa að meta er kostnaður og ávinningur fyrirtækja af fyrirhugaðri lagasetningu.
1.11.2007
Meginviðfangsefni kjarasamninga
Vaxtastefna Seðlabankans og verðbólgumarkmið hans munu óhjákvæmilega koma til umræðu við gerð komandi kjarasamninga. Breiðfylking atvinnulífsins, SA og öll aðildarsamtökin, standa að þeirri stefnu sem SA hefur kynnt varðandi verðbólgumarkmið bankans og úrbætur á peningastefnunni. „Atvinnulífið getur ekki unað við þær gengissveiflur sem peningastefnan hefur haft í för með sér. Breyting þar á er ein af meginforsendunum fyrir því að atvinnulífið geti axlað áfram þá byrði að bera hæsta launakostnað í Evrópu,” segir
1.11.2007
Kynbundinn launamunur þingmanna 4-6%
Meðallaun kvenna á Alþingi eru 5,7% lægri en karla þegar horft er til þingmanna sem ekki eru ráðherrar. Meðallaun karlkyns þingmanna eru rúmlega 602 þúsund krónur en meðallaun kvenkyns þingmanna rúmlega 34 þúsund krónum lægri á mánuði. Með því að beita algengri aðferð við að skýra launamun kynjanna fæst sú niðurstaða að óútskýrður kynbundinn launamunur þingmanna sé 3,7%, þ.e. að sá munur verði eingöngu rakinn til kynferðis. Ef málið er hins vegar skoðað ofan í kjölinn, og tillit tekið til álagsgreiðslna sem þingmenn fá, hverfur óútskýrður launamunur – en karlkyns þingmenn fá þær í ríkari mæli en þingkonur. Vilji Alþingi jafna þennan launamun í gildandi launakerfi, verður það ekki gert nema með auknum hlut þingkvenna í álagsgreiðslum, t.d. með fjölgun kvenna sem eru formenn stjórnmálaflokka í stjórnarandstöðu.
1.11.2007
Fjarvistir vegna veikinda virðast hafa minnkað
Niðurstöður rannsóknar Heilbrigðisþjónustu InPro, sem gerð var í samstarfi við
1.11.2007
Kjaraviðræður að hefjast
Starfsgreinasamband Íslands og Flóabandalagið hafa nú kynnt sínar megináherslur í komandi kjaraviðræðum. Endanlegar kröfugerðir verða þó ekki lagðar fram fyrr en um miðjan nóvember. Rafiðnaðarsambandið hefur lagt fram kröfugerð og munu viðræður hefjast fljótlega. Önnur félög hafa ekki lagt fram kröfugerðir.











