Fréttir
29.10.2007
Innleiðing tilskipunar um raftækja- og rafeindatækjaúrgang
Miðvikudaginn 7. nóvember verður haldinn upplýsingafundur í Húsi atvinnulífsins um innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um raftækja- og rafeindatækjaúrgang. Í tilskipuninni er gert ráð fyrir að framleiðendur og innflytjendur raftækja og rafeindatækja beri ábyrgð á og greiði fyrir söfnun og förgun úrsérgenginna raftækja og rafeindatækja.
29.10.2007
Starfsmenntaverðlaunin 2007 – tilnefningar fyrir 2. nóvember
Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs og Menntar árið 2007 verða veitt í nóvember. Verðlaunin verða veitt í þremur flokkum: flokki fyrirtækja, flokki fræðsluaðila og í opnum flokki sem nær meðal annars til einstaklinga og verkefna. Frestur til að senda inn tilnefningar er til 2. nóvember. Tilnefningar skal senda á sérstökum eyðublöðum sem finna má á vef Starfsmenntaráðs.
26.10.2007
Samningsmarkmið Íslands vegna viðræðna um loftslagsmál
Í september síðastliðnum var greint frá því að skipaður hafi verið starfshópur ráðherra til að móta samningsmarkmið Íslands í væntanlegum viðræðum um samkomulag um loftslagsmál eftir 2012.
25.10.2007
Ræða formanns LÍÚ á aðalfundi
Aðalfundur Landssambands íslenskra útvegsmanna hófst á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Björgólfur Jóhannsson, formaður LÍÚ setti fundinn og sagði m.a. í ræðu sinni: „Þegar horft er til framtíðar eigum við tvo kosti varðandi íslenskan sjávarútveg. Við getum haldið áfram á sömu braut í átt til aukinnar miðstýringar með sértækum aðgerðum, sértækri skattlagningu, tilfærslum aflaheimilda og mismunun þar til í öngstræti er komið og sjávarútvegur verður byrði á samfélaginu. Hinn kosturinn er að skapa sjávarútveginum það almenna umhverfi að hann geti eflst og dafnað á eigin forsendum og sótt fram til nýsköpunar að eigin frumkvæði og lagt drjúgan skerf til samfélagsins. Ráðamenn þjóðarinnar eiga þessa tvo valkosti. Í mínum huga er valið auðvelt.“
25.10.2007
Um framkvæmd verðkannana
Samtök atvinnulífsins hafa sent Neytendastofu umsögn um drög að leiðbeinandi reglum um verðkannanir til opinberrar birtingar. Reglunum er ætlað að koma í stað reglna um sama efni sem Samkeppnisstofnun gaf út 4. desember 2000.
24.10.2007
Leyfisfrumskógurinn erfiður yfirferðar og íþyngjandi
Morgunblaðið greindi frá því í gær að ferðaþjónustufyrirtækið Hvíldarklettur hafi þurft að sækja um tæplega 400 leyfi og vottorð til að fá að starfa og kostnaður fyrirtækisins við leyfisgjöldin væri orðinn meiri en fjórar milljónir króna!
24.10.2007
Viðurkenning fyrir framúrskarandi vinnuverndarstarf
Fjögur fyrirtæki hlutu viðurkenningu Vinnueftirlitsins fyrir framúrskarandi vinnuverndarstarf á ráðstefnu sem haldin var í tilefni af Vinnuverndarvikunni sem nú stendur yfir. Fyrirtækin eru Hjúkrunar- og dvalarheimilið Lundur á Hellu, Kjötvinnsla Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki, Jarðboranir og Mjólkursamsalan. Í Vinnuverndarviku er reynt að vekja sérstaka athygli á því hvernig tryggja megi öruggt og heilsusamlegt starfsumhverfi.
24.10.2007
Viðskipti með losunarheimildir innan EES
Ráðgjafarnefnd EFTA hefur sent frá sér yfirlýsingu um mikilvægi jafnrar samkeppnisstöðu í viðskiptum með losunarheimildir vegna gróðurhúsalofttegunda á Evrópska efnahagssvæðinu. Reglur um viðskipti með losunarkvóta hafa verið í gildi innan ESB samkvæmt tilskipun frá árinu 2003. Í yfirlýsingu ráðgjafarnefndarinnar er hvatt til þess að upptöku hliðstæðra reglna í EES samninginn verði hraðað, en þær hafa verið í undirbúningi um hríð.
23.10.2007
Aðalverkefnið að hækka laun þeirra sem setið hafa eftir
Í kjarasamningunum sem eru framundan er aðalverkefnið að hækka laun þeirra sem hafa af einhverjum ástæðum setið eftir í launaþróuninni. Þetta sagði
23.10.2007
Að viðhalda frumkvöðlaandanum
Húsfyllir var á frumkvöðlamóti SA, HR og SI sem fram fór í Gyllta salnum á Hótel Borg. Þar fjallaði bandaríski fyrirlesarinn Larry Farrell um hvernig megi auka hagvöxt á Íslandi og skapa viðvarandi velmegun en hann sagði það aðeins mögulegt með því að örva nýsköpun og viðhalda frumkvöðlaanda íslensku þjóðarinnar. Rakti hann fjölmörg dæmi af stórfyrirtækjum og þjóðum sem fatast hefur flugið í gegnum tíðina en ástæðuna sagði hann vera þá að þeim hefði ekki auðnast að viðhalda kraftinum sem skóp velmegun þeirra í upphafi. Þetta þyrftu Íslendingar að hafa í huga á tímum mikils vaxtar - það væri viðbúið að úr honum myndi draga og framtíð þjóðarinnar myndi ráðast af því hvernig brugðist yrði við.
22.10.2007
Vinnumarkaður næstu áratuga
Eldra fólki mun fjölga hlutfallslega á íslenskum vinnumarkaði á næstu áratugum og ungmennum mun að sama skapi fækka. Það hefur að líkindum í för með sér að hér á landi mun verða viðvarandi vinnuaflsskortur og innflytjendum mun fjölga. Þetta kom m.a. fram í erindi Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, á fundi um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Hannes sagði breytta aldurssamsetningu snerta nánast öll svið efnahags- og þjóðmála og kalla á nýja hugsun og nýja nálgun stjórnvalda.
22.10.2007
Ráðstefna Vinnuverndarvikunnar 2007
Hæfilegt álag er heilsu best er yfirskrift Vinnuverndarvikunnar sem nú stendur yfir. Ráðstefna Vinnuverndarvikunnar verður haldin á Grand Hótel Reykjavík, Gullteigi, þriðjudaginn 23. október frá kl. 13.00-16.00. Meðal fyrirlesara er Guðrún S. Eyjólfsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, og mun hún fjalla um áherslur atvinnulífsins á sviði vinnuverndar. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins
19.10.2007
Ný greinargerð SA um horfur í efnahagsmálum
17.10.2007
Batnandi starfsumhverfi á Íslandi – en gera má betur
Samkvæmt nýrri úttekt Alþjóðabankans er Ísland í 10. sæti á lista yfir þær þjóðir heims þar sem best er að eiga viðskipti. Ísland hækkar um tvö sæti á milli ára og stekkur upp fyrir Noreg en í kjölfarið fylgja Japan, Finnland og Svíþóð. Best þykir að eiga viðskipti í Singapúr, en Nýja Sjáland, Bandaríkin, Hong Kong og Danmörk raða sér í efstu sæti listans. Niðurstöðurnar eru birtar í riti Alþjóðabankans Doing Business 2008 sem kynnt var í morgun á kynningarfundi Útflutningsráðs og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins.
16.10.2007
Sveigjanleg starfslok – ávinningur allra
Verkefnisstjórn 50+ efnir til fundaraðar um málefni miðaldra og eldra fólks á vinnumarkaði. Fyrsti fundurinn af þremur verður á Grand Hótel Reykjavík, Háteigi þann 19. október n.k. kl. 8:30-10:00. Hver er ávinningur þjóðfélagsins af atvinnuþátttöku eldra fólks? Hvað kostar það samfélagið að fólk fer fyrr af vinnumarkaði s.s. vegna örorku eða atvinnuleysis? Hver verður mannfjöldaþróunin á Íslandi á næstu áratugum og hvaða áhrif hefur það á vinnumarkaðinn? Leitað verður svara við þessum spurningum en Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins fjallar um breytingar í mannfjöldaþróun næstu áratuga og áhrif breytinganna á íslenskan vinnumarkað.
15.10.2007
Fyrirtæki fari reglulega og kerfisbundið yfir launagreiðslur
Það er mikilvægt að fyrirtæki fari reglulega og kerfisbundið yfir launagreiðslur sínar til að ekki myndist skekkja milli starfsmanna, en mismunun getur komið upp við nýráðningar og einstaklingsbundnar launaákvarðanir. Þetta kom m.a. fram í máli Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra SA, á súpufundi hjá Kvenréttindafélagi Íslands. Þar kom einnig fram að stefnt sé að því að halda áfram samstarfi Samtaka atvinnulífsins, ParX viðskiptaráðgjafar IBM og Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands sem hafa rannsakað launagreiðslur íslenskra fyrirtækja. Niðurstöður rannsóknar þessara aðila fyrir árið 2006 sýndu 10-12% óútskýrðan launamun milli kynja. Gögn um ábyrgð starfsmanna, frammistöðu eða fjölskylduaðstæður voru ekki tiltæk, en vera kann að hluta launamunarins megi rekja til þessara þátta og því ekki hægt að fullyrða að einungis sé um kynbundinn launamun að ræða. Í rannsókninni fyrir árið 2007 verður sérstaklega horft til áhrifa ábyrgðar starfsmanna á launagreiðslur.
12.10.2007
Náttúruverndaráætlanir fari í umhverfismat
Við undirbúning náttúruverndaráætlunar er mikilvægt að horfa á málin frá víðari sjónarhorni en gert hefur verið til þessa. Taka ætti tillit til áhrifa fyrirhugaðrar friðlýsingar á félagslega og efnahagslega þætti. Þetta kom fram í ávarpi Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra SA, á Umhverfisþingi sem hófst í morgun. Benti hann á að fleiri þurfi að koma að undirbúningi náttúruverndaráætlunar en vísindamenn og það hljóti að vera ástæða til að velta fyrir sér hvort náttúrverndaráætlun eigi ekki að fara í gegnum svipað ferli og t.d. skipulagsáætlanir stjórnvalda og samgönguáætlun þar sem ekki eru einungis skoðuð hin umhverfislegu áhrif heldur einnig aðrir mikilvægir þættir.
11.10.2007
Uppskriftin að farsælli nýsköpun hefur verið birt
Samtök atvinnulífsins á Norðurlöndum hafa tekið saman uppskrift að farsælli nýsköpun og gefið út í ritinu The Nordic Recipe for Successful Innovation. Uppskriftin var birt í höfuðstöðvum Marel Food Systems í Garðabæ. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, kynnti uppskriftina og Hörður Arnarson, forstjóri Marel, ræddi um mikilvægi nýsköpunar í rekstri starfandi fyrirtækja og undirstrikaði framlag hennar til verðmætasköpunar. Oftar en ekki væri horft um of á ytri vöxt fyrirtækja með yfirtökum í stað þess að horfa á innri vöxt, en öflugt nýsköpunarstarf geri fyrirtækjum kleift að vaxa og dafna.
9.10.2007
Frumkvöðlamót á Hótel Borg
Föstudaginn 19. október efna
9.10.2007
Umhverfisþing hefst á föstudaginn
Fimmta Umhverfisþing umhverfisráðuneytisins fer fram í Reykjavík dagana 12. og 13. október næstkomandi. Þingið mun að þessu sinni fjalla um náttúruvernd og líffræðilega fjölbreytni. Meðal þeirra sem ávarpa þingið er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins en Pétur Reimarsson, forstöðumaður hjá SA, mun taka þátt í pallborðsumræðum sem fram fara á laugardaginn.
4.10.2007
Þjarmað að atvinnulífi til einskis
Íslensk fyrirtæki geta hvorki né vilja una við þann usla sem vaxtastefnan og
gengissveiflur valda þeim.
4.10.2007
Fjölgun örorkulífeyrisþega hefur mikil áhrif á vinnumarkað
Nýjar tölur sýna að á fyrstu 6 mánuðum þessa árs hefur örorkulífeyrisþegum haldið áfram að fjölga í sama takti og undanfarin ár. Fjölgun örorkulífeyrisþega á Íslandi hefur verið mikil á undanförnum árum en í árslok 2006 voru þeir rúmlega 13.200 eða tæp 8% af vinnuafli í landinu. Lítil atvinnuþátttaka örorkulífeyrisþega hefur leitt til þess að Íslendingum á vinnumarkaði hefur fjölgað mjög lítið. Það hefur m.a. leitt til mikillar eftirspurnar eftir erlendum starfsmönnum auk þess að hafa veruleg fjárhagsleg áhrif á gjöld og skuldbindingar ríkissjóðs og lífeyrissjóða.
4.10.2007
Jafnrétti mest á Íslandi samkvæmt IMD
Á Íslandi ríkir mest jafnrétti þegar litið er til kyns, kynþáttar, aldurs og fleiri þátta samkvæmt nýlegri rannsókn þar sem kannað var hvort misrétti hefði áhrif á efnahagsþróun. IMD viðskiptaháskólinn, sem er leiðandi í rannsóknum á alþjóðlegri samkeppnishæfni og gerir árlega samræmdar rannsóknir á stöðu mála hjá um 55 þjóðum í öllum heimsálfum, birti nýlega í ritinu World Competitiveness Yearbook (WCY) mælikvarða á stöðu jafnréttismála. Byggist sá mælikvarði á samræmdri spurningakönnun meðal stjórnenda fyrirtækja og stofnana í viðkomandi löndum. Mælikvarðinn um jafnrétti er í víðtækum skilningi þar sem niðurstöður eru byggðar á svörum við spurningunni um það hvort misrétti á grundvelli kyns, kynþáttar, aldurs o.fl. sé Þrándur í Götu efnahagsþróunar. Niðurstaðan er sýnd í vísitölu á skalanum 0-10 þar sem jafnrétti eykst eftir því sem vísitalan er hærri. Ísland lendir í fyrsta sæti með vísitöluna 8,72, sem er talsvert hagstæðari útkoma en hjá þeim löndum sem fylgja næst á eftir.
2.10.2007
Hugsað stórt í Brussel
Evrópusamtök atvinnulífsins, BUSINESSEUROPE, efna til ráðstefnu í Brussel miðvikudaginn 21. nóvember undir yfirskriftinni thinking BIG! Þar verður sjónum beint að því hvernig hægt sé að auðvelda fyrirtækjum í Evrópu að vaxa og dafna svo þau geti tekið þátt í viðskiptum á alþjóðavettvangi af fullum krafti. Ráðstefnan er opin fulltrúum fyrirtækja, samtaka atvinnulífsins í Evrópu, stjórnmálamönnum og fjölmiðlum. Fjölbreytt og áhugaverð dagskrá er í boði fyrir þá sem hugsa stórt, en nánari upplýsingar um ráðstefnuna og skráning fer fram á vef BUSINESSEUROPE.
1.10.2007
Lög um Seðlabanka Íslands verði endurskoðuð
Samtök fiskvinnslustöðva skora á stjórnvöld að endurskoða lög um Seðlabanka Íslands meðal annars með það fyrir augum að endurskoða verðbólgumarkmið bankans. Í ályktun aðalfundar samtakanna segir að háir stýrivextir bankans hafi leitt til hækkunar á gengi krónunnar og valdið miklu gengisflökti á undanförnum mánuðum. Þessir háu stýrivextir og hækkun á gengi krónunnar hafi einnig ýtt undir einkaneyslu á meðan útflutnings- og samkeppnisgreinar hafi verið grátt leiknar. „Það gengur einfaldlega ekki að gengi íslensku krónunnar taki ekkert mið af aðstæðum útflutningsgreina, heldur stjórnist orðið að mestu af erlendum skammtímafjárfestum sem gera út á mikinn vaxtamun milli Íslands og okkar helstu viðskipta- og samkeppnislanda. Slíkt mun enda með ósköpum fyrr en síðar,” segir ennfremur í ályktuninni.









