Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.6.2006

Áhersla á þátt Íbúðalánasjóðs

„Það getur ekki gengið að Seðlabankinn sé að þrýsta á bankana til að þeir dragi úr sínum íbúðalánum og síðan flytjist bara allt yfir á Íbúðalánasjóð. Ef Íbúðalánasjóður virkaði sem hagstjórnartæki væri hann ekki með lægstu vextina, hæsta lánshlutfallið og leiðandi á markaðinum,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, m.a. í opnuviðtali í Viðskiptablaðinu. Hann segir lækkun verðbólgunnar hafa forgang umfram allt annað og kallar m.a. eftir að lendingin í hagkerfinu verði nógu hörð til þess að verðbólgan brotni.

29.6.2006

Ný kaupgjaldsskrá SA, ásamt skýringum og leiðbeiningum

Í kjölfar kjarasamninga SA við ASÍ og landssambönd þess um taxtaviðauka hafa SA gefið út nýja kaupgjaldsskrá sem gildir frá 1. júlí 2006. Samningarnir sem undirritaðir voru 22. júní sl. kveða ekki á um almenna hækkun launa, heldur einungis krónutöluviðbætur við kjarasamningbundna launataxta. Þá gerði forsendunefnd sú sem starfar skv. kjarasamningum samkomulag um einstaklingsbundna launaþróunartryggingu sem tryggir launamönnum að lágmarki 5,5% launahækkun á tímabilinu júní 2005-júní 2006. Sjá nýja kaupgjaldsskrá SA, samningana frá 22. júní og ítarlegar skýringar og leiðbeiningar á vef SA.

27.6.2006

Vladivostok, Kamtsjatka, San Francisco, Úkraína, Leeds…

Útflutningsráð vinnur nú að undirbúningi ferða viðskiptasendinefnda í haust og vetur. Næst verður haldið til Vladivostok síðla í ágúst, en síðan til Kamtsjatka í september og til San Francisco og Úkraínu í október. Þá mun ráðið að öllum líkindum taka þátt í að skipuleggja ferðir viðskiptasendinefnda til Leeds, Manchester og Edinborgar í haust og vetur. Sjá nánar í nýjasta tölublaði (júní 2006) Útherja á vef Útflutningsráðs.

26.6.2006

Karlar skipta frekar en konur um starf vegna launa

Ríflega þrisvar sinnum fleiri konur en karlar nefna fjölskylduábyrgð sem ástæðu fyrir skiptum á vinnuveitanda og tæplega helmingi fleiri karlar en konur nefna „hærri laun/launatengt“. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar sem IMG Gallup hefur gert fyrir Jafnréttisráð. Könnunin virðist því staðfesta að fjölskylduábyrgð hafi meiri áhrif á vinnumarkaðsstöðu kvenna en karla og að karlar skipti frekar en konur um vinnu vegna launamála. Einnig var spurt um tíma sem varið er til heimilisstarfa og launavinnu og kemur ekki á óvart að þar er verulegur kynjamunur. Konur verja mun meiri tíma en karlar til heimilisstarfa en karlar á hinn bóginn mun meiri tíma í launavinnu en konur. Sjá nánar á vefsíðu Jafnréttisráðs.

23.6.2006

Ánægður með niðurstöðuna

Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, segist í samtali við Morgunblaðið vera ánægður með samkomulag SA og ASÍ. Þannig hefði verið óþægileg tilhugsun að horfa til þess að kjarasamningar yrðu hugsanlega lausir um áramót samhliða vaxandi verðbólgu og því til viðbótar aðdraganda alþingiskosninga. „Sem betur fer lendum við ekki í þeirri stöðu og höfum náð núna með þessari undirskrift að tryggja kjarasamninga til loka árs 2007 eins og upphaflega var stefnt að. Það er sérstakt fagnaðarefni að mínu mati.“ Ingimundur segir samskipti aðila beggja vegna borðsins hafa verið einstaklega góð og það hafi verið forsenda þess að niðurstaða hafi fengist á svo skömmum tíma. „Ég óska þess að gjörningurinn megi verða umbjóðendum beggja aðila og þjóðinni allri til hagsbóta,“ segir Ingimundur.

23.6.2006

Þjóðartilraun til sáttar

„Þetta er þjóðartilraun til að ná verðbólgunni niður og ég hef fulla trú á því að það gangi upp. Það er mikill ásetningur okkar megin, hjá verkalýðshreyfingunni og ríkisstjórninni að ná verðbólgunni niður á næsta ári," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Fréttablaðið. „Þetta var eitthvað sem Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin þurftu að leggja á sig til að eiga möguleika á því að ná verðbólgunni niður á næsta ári. Nú þurfa bara allir að leggjast á eitt.“ Vilhjálmur segir að það hafi þurft „ákveðna sýn og þor“ til að ná þessu samkomulagi. „Báðir samningsaðilar taka áhættu en báðir höfðu kjark og þor til að takast á við þetta,“ segir Vilhjálmur.

22.6.2006

Kjarasamningar í gildi a.m.k. út árið 2007

Á vettvangi forsendunefndar kjarasamninga hefur náðst samkomulag um 5,5% launaþróunartryggingu og þar með halda kjarasamningar gildi sínu áfram út samningstímann. Ennfremur hefur náðst samkomulag milli SA annars vegar og ASÍ og landssambanda þess hins vegar um 15.000 króna taxtaviðauka, sem á rætur sínar að rekja til meiri hækkana í kjarasamningum hjá hinu opinbera en í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Taxtaviðaukinn hefur ekki áhrif til hækkunar launa sem eru hærri en umsamdir launataxtar. Ríkisstjórn Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu um aðgerðir í tengslum við þessa niðurstöðu. Meginmarkmið samkomulags aðila vinnumarkaðarins og aðgerða ríkisstjórnarinnar er að breyta væntingum um verðbólgu árið 2007.

21.6.2006

Ólöglegar verkfallsaðgerðir ekki liðnar

Boðuð vinnustöðvun starfsfólks hjá IGS í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er klárlega ólögleg segir Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Fréttablaðið. Hann segir SA líta aðgerðirnar alvarlegum augum. „Ef trúnaðarmenn stéttarfélaga taka þátt í boðun ólögmætrar vinnustöðvunar þá er stéttarfélagið sjálft ábyrgt og getur verið skaðabótaskylt. Við líðum ekki svona vinnubrögð og ef meiriháttar tjón hlýst af þessum aðgerðum verður skoðað hvort stéttarfélagið eða starfsmenn sjálfir séu bótaskyldir,“ segir Ragnar.

20.6.2006

Tillögur SA og ASÍ um vinnumarkaðsmál

Í tengslum við skoðun kjarasamninga hafa Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands sett fram sameiginlegar tillögur vegna erlendra starfsmanna, gerviverktöku, opinberra innkaupa og lögbrota í atvinnustarfsemi. SA og ASÍ leggja áherslu á að leikreglur á vinnumarkaði þurfa að vera skýrar og þeim fylgt eftir af stjórnvöldum og aðilum vinnumarkaðarins með markvissu og skilvirku eftirliti. Sjá tillögur SA og ASÍ.

15.6.2006

Danmörk: Reglubyrði fyrirtækja fer minnkandi

Reglubyrði danskra fyrirtækja fer minnkandi, samkvæmt nýrri niðurstöðu reglubundinnar könnunar þeirra á meðal. Árið 2001 einsetti danska ríkisstjórnin sér að minnka reglubyrði danskra fyrirtækja um fjórðung fyrir árið 2010. Einkum eru það ráðuneyti skatta- og viðskiptamála sem hafa skorið niður reglubyrði í sínum málaflokkum og mælist niðurskurður þeirra nú um 10%. Danski viðskiptaráðherrann fagnar þessum árangri og segir þetta bæta samkeppnisstöðu danskra fyrirtækja og stuðla að auknum hagvexti. Hann lofar áframhaldandi vinnu stjórnvalda í þessa veru.

14.6.2006

Væntingar um áframhaldandi þenslu en bætta stöðu útflutnings

Niðurstöður úr nýrri könnun IMG Gallup á stöðu og framtíðarhorfum í atvinnulífinu gefa til kynna að aðstæður í efnahagslífinu séu tiltölulega góðar en þó heldur lakari en í samsvarandi könnun í febrúar. Stjórnendur sjá fram á versnandi horfur þegar litið er hálft ár fram í tímann varðandi innlenda eftirspurn þótt áfram verði þensla á vinnumarkaði. Könnunin staðfestir á hinn bóginn þá breytingu að hagur útflutningsgreina fer batnandi vegna gengisþróunar undanfarna mánuði. Könnun þessi er gerð ársfjórðungslega fyrir Samtök atvinnulífsins, fjármálaráðuneytið og Seðlabanka Íslands. Ekki er um að ræða samræmda túlkun samstarfsaðilanna á niðurstöðum.

14.6.2006

1,3% atvinnuleysi í maí

Í maímánuði sl. voru skráðir 47.418 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.062 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysið mældist einnig 1,3% í apríl sl. en í maí 2005 mældist það 2,2%. Að mati Vinnumálastofnunar bendir flest til að litlar breytingar verði á atvinnuleysi milli maí og júní og reiknar stofnunin með að atvinnuleysi verði 1,2 til 1,5% í júní. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

14.6.2006

Húsleitir í fyrirtækjum: Áhersla á ríka ástæðu og skýr markmið

Virk samkeppni í viðskiptum er brýnt hagsmunamál fyrir atvinnulífið og samkeppnislög og samkeppniseftirlit gegna þar mikilvægu hlutverki, sagði Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, m.a. í samtali við fréttastofu RÚV. Varðandi húsleitir lagði Hrafnhildur áherslu á tilefni og markmið og sagði atvinnulífið verða að geta treyst því að Samkeppniseftirlitið færi ekki inn í fyrirtæki nema rík ástæða væri til. Þá yrði markmið með leitinni þyrfti að vera skýrt – leitin yrði að beinist að því sem málið snerist um.

13.6.2006

Verðbólgan: Ísland á leið úr úrvalsdeild í efnahagsmálum?

Verðbólgan mælist átta prósent í júní sem er hærra en búist hafði verið við. Í samtali við Fréttablaðið segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmda-stjóri SA, mælinguna gera það enn brýnna en ella að menn nái samkomulagi á vinnumarkaði. „Verðbólga af þessari stærðargráðu má ekki verða varanleg. Við erum þá hreinlega að stimpla okkur út úr úrvalsdeild þjóða í efnahagsmálum og hættum að vera í fremstu röð. Það er ekkert háþróað efnahagslíf með verðbólgu af þessari stærðargráðu,“ segir Hannes.

12.6.2006

Nýta þarf tækifæri stækkunar ESB og berjast gegn verndarstefnu

Leggja þarf áherslu á umbætur sem skila auknum hagvexti og fleiri störfum í Evrópu, á baráttu gegn tilhneigingu sumra ríkja til efnahagslegrar verndarstefnu, nýta tækifæri samfara stækkun ESB til austurs og halda áfram að koma á raunverulega sameiginlegum innri markaði, þar með talið fyrir þjónustugreinar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu forsetafundar UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, og beint er til leiðtogaráðs ESB. Fundurinn fagnar auknum hagvexti í Evrópu á fyrri hluta ársins 2006 og hvetur samningamenn Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO til dáða.

9.6.2006

Kynningarfundur um viðskipti í Japan

Útflutningsráð efnir til kynningarfundar miðvikudaginn 14. júní nk. um viðskipti í Japan og þá aðstoð sem íslenskum fyrirtækjum býðst þar í landi. Á fundinum munu fulltrúar frá JETRO, Japan External Trade Organisation, fjalla um viðskipti milli Japans og Evrópu og segja frá því hvernig stofnunin getur aðstoðað íslensk fyrirtæki við að koma á tengslum við japanskt viðskiptalíf. Þá mun Benedikt Höskuldsson, sendifulltrúi í sendiráði Íslands í Japan, segja frá viðskiptum íslenskra fyrirtækja í Japan í erindi sem hann nefnir „Umskipti á Japansmarkaði". Í lok fundar gefst tækifæri til spurninga og umræðna. Nánari upplýsingar og skráning á vef Útflutningsráðs.

9.6.2006

Nýsköpun í heilbrigðisþjónustu verði efld

Samtök atvinnulífsins leggja til að nýsköpun í heilbrigðisþjónustu verði efld og sótt verði á erlenda markaði með þekkingu og þjónustu íslenskra sérfræðinga á þeim sviðum þar sem hún er á heimsmælikvarða. Starfsfólk í heilbrigðisþjónustu verði hvatt til að stofna fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu og því veittur faglegur stuðningur til þess. Slíkt hefur gefist vel í Svíþjóð og ætti einnig að geta gefist vel á Íslandi. Æskilegt er að stefnt verði að því að nokkrir öflugir einkaaðilar verði starfandi á íslenskum heilbrigðismarkaði sem geti keppt við hið opinbera um að veita heilbrigðisþjónustu. Þetta kemur fram í nýju riti SA, Heilbrigður einkarekstur.

8.6.2006

Samkeppnisstaða í heilbrigðisþjónustu verði jöfnuð

Samtök atvinnulífsins leggja til að samkeppnisstaða einkaaðila, sjálfseignarstofnana og opinberra aðila í heilbrigðisþjónustu verði jöfnuð, t.d. í skattamálum þar sem aðeins einkaaðilum er nú gert að greiða virðisaukaskatt af greiddri þjónustu. Einnig er lagt til að geri einkaaðilar tilboð í að veita þjónustu, verði opinberum aðila sem slíka þjónustu veitir skylt að upplýsa um kostnað sinn vegna hennar. Ákvörðun um kaup verði tekin af aðila sem er óháður veitingu opinberrar heilbrigðisþjónustu. Þetta kemur fram í nýju riti SA, Heilbrigður einkarekstur.

6.6.2006

Mikilvægi einfaldra og góðra starfsskilyrða

Endurskipuleggja þarf skipulag stjórnarráðsins en eins og nú er háttað getur eitt og sama fyrirtækið þurft að kljást við eftirlit frá mörgum ráðuneytum, eftirlit sem oft beinist að sömu eða svipuðum hlutum. Þetta er meðal þess sem Pétur Reimarsson frá Samtökum atvinnulífsins lagði áherslu á í erindi sínu á ráðstefnu forsætisráðuneytisins um einfaldara Ísland. Hann sagði jafnframt að ný verkaskipting ríkis og sveitarfélaga væri knýjandi á þessu sviði og að beint eftirlit, sýnatökur og rannsóknir ætti að fela faggiltum skoðunarstofum og rannsóknastofum sem fyrirtækin semdu sjálf beint við.

6.6.2006

Einkarekin heilsugæsla hagkvæmari og veitir betri þjónustu

Rekstur Heilsugæslunnar í Salahverfi, sem er einkarekin heilsugæslustöð, er hagkvæmari heldur en opinber rekstur Heilsugæslu höfuðborgarinnar sem rekur 15 heilsugæslustöðvar undir einum hatti á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram hjá heilbrigðisráðherra á Alþingi í apríl en fjallað er um málið í nýju riti SA Heilbrigður einkarekstur. Þar kemur einnig fram að samkvæmt nýlegri könnun á þjónustu heilsugæslustöðva á höfuðborgarsvæðinu kemur Heilsugæslan í Salahverfi áberandi best út.

2.6.2006

SA leggja til taxtahækkanir um kr. 12.000 nú þegar

Samtök atvinnulífsins hafa lagt fyrir ASÍ og landssambönd þess hugmynd að samkomulagi í ljósi fyrirsjáanlegra vandræða á vinnumarkaðnum á næstu mánuðum og misserum, og hættu á efnahagslegu tjóni til langs tíma af völdum verðbólgu. Ef samkomulag næst á grundvelli þessarar hugmyndar munu samningsbundnir launataxtar hækka um sérstakan taxtaviðauka að upphæð 12.000 krónur á mánuði. Hluti af samkomulaginu er að forsendunefnd kjarasamninga telst hafa lokið störfum vegna mats á þróun verðbólgu og samningar verða því ekki uppsegjanlegir frá og með næstu áramótum heldur gilda a.m.k. út árið 2007.

2.6.2006

Vel sóttur fundur um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu

Um eitt hundrað manns sóttu morgunverðarfund SA um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu á Grand Hótel Reykjavík. Á fundinum var lagt fram nýtt rit SA, Heilbrigður einkarekstur, þar sem er m.a. að finna tillögur SA um hvar megi nýta frekar kosti einkarekstrar í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Sigurður Ásgeir Kristinsson, bæklunarlæknir og framkvæmdastjóri Orkuhússins, og Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri Sóltúns og framkvæmdastjóri Öldungs, fluttu framsöguerindi en kraftmiklar umræður spunnust að þeim loknum undir stjórn Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins.

1.6.2006

Betri heilbrigðisþjónusta, minni tilkostnaður

Útgjöld til heilbrigðismála vaxa hratt á Íslandi og samkvæmt spám OECD verður íslenska heilbrigðiskerfið orðið það dýrasta í heimi innan fárra áratuga, verði ekkert að gert, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir nauðsynlegt að nýta betur ótvíræða kosti einkarekstrar á þessu sviði og bendir á að tækifærin til þess blasi til dæmis við í heilsugæslu, öldrunarþjónustu, heimahjúkrun og sérfræðiþjónustu. Þarna geta einkaaðilar veitt þjónustu af meiri gæðum en hið opinbera og með minni tilkostnaði, segir Vilhjálmur.

1.6.2006

SA leggja til að byggingu hátæknisjúkrahúss verði frestað

Samtök atvinnulífsins leggja til að áformum um allt að 45 milljarða króna fjárfestingu í nýju húsnæði fyrir Landspítala-háskólasjúkrahús (LSH) verði frestað að sinni. Þess í stað einbeiti heilbrigðisyfirvöld sér að því að bæta þjónustu á þeim sviðum þar sem það er brýnast, t.d. í öldrunarmálum. Kostir einkarekstrar verði nýttir með útboðum á þjónustu, valkostum fólks verði fjölgað og nýting fjármuna bætt. Þetta kemur fram í nýju riti SA um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu.

1.6.2006

Landlæknir kallar eftir aukinni umræðu um einkarekstur

Í nýju riti SA um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu kallar Sigurður Guðmundsson landlæknir eftir aukinni umræðu um einkarekstur í heilbrigðisþjónustu. Landlæknir bendir á að þörf sé á markvissari rekstri í íslenskri heilbrigðisþjónustu og spáir því að einkasjúkrahús verði tekið til starfa á Íslandi innan fárra ára.

1.6.2006

Skrá ber erlenda starfsmenn

Fyrirtæki sem ráða til sín starfsmenn frá nýju aðildarríkjum Evrópska efnahagssvæðisins skulu tilkynna um þá til Vinnumálastofnunar og skal ráðningarsamningur fylgja tilkynningunni. Einnig ber að tilkynna um aðra erlenda starfsmenn til Útlendingastofnunar.


Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
NÝTT RIT SA
11.11.11:
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english