Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.5.2006

Einfaldara Ísland - ráðstefna þriðjudaginn 6. júní

Forsætisráðuneytið og starfshópur um einfaldara Ísland boða til ráðstefnu þriðjudaginn 6. júní nk. kl. 13-17 á Grand Hótel Reykjavík. Erlendir fyrirlesarar munu kynna aðgerðir í ýmsum löndum og á alþjóðavettvangi til að einfalda og bæta hið opinbera regluverk einkum eins og það snýr að atvinnulífinu. Þá flytja m.a. erindi Pétur Reimarsson frá SA og Gestur Guðjónsson frá Olíudreifingu. Starfshópurinn mun í framhaldi skila forsætisráðherra tillögum um útfærslu á samstarfsverkefni stjórnvalda og atvinnulífs sem miðar að bættum löggjafarháttum og einfaldara regluumhverfi. Sjá nánar á vef forsætisráðuneytisins.

31.5.2006

Morgunverðarfundur um heilbrigðan einkarekstur

Samtök atvinnulífsins efna til morgunverðarfundar á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 2. júní nk. kl. 8:15-9:30, þar sem einkarekstur í heilbrigðisþjónustu verður til umræðu. Yfirskrift fundarins er Heilbrigður einkarekstur – tækifæri til sóknar í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Á fundinum verður lagt fram nýtt rit SA um íslenska heilbrigðiskerfið þar sem er m.a. að finna tillögur SA um hvar megi nýta frekar kosti einkarekstrar í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Erindi flytja Sigurður Ásgeir Kristinsson, bæklunarlæknir og framkvæmdastjóri Orkuhússins, og Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri Sóltúns og framkvæmdastjóri Öldungs hf.

30.5.2006

Þjónustutilskipun ESB: Jákvætt skref en samt vonbrigði

Náðst hefur samkomulag á vettvangi ráðherraráðs ESB um útfærslu á tilskipun um frelsi í þjónustuviðskiptum. Niðurstaðan er óneitanlega vonbrigði fyrir evrópskt atvinnulíf, m.a. þar sem gildissvið upphaflegra tilskipunardraga hefur verið takmarkað og hún nær nú til færri geira en lagt var af stað með. Forseti UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, segir í yfirlýsingu að þótt niðurstaðan sé ekki nægilega metnaðarfull þá sé þó um að ræða jákvætt skref í átt til frjálsra þjónustuviðskipta á innri markaðnum og því muni evrópskt atvinnulíf reyna að gera sér sem mestan mat úr niðurstöðunni. Vonir höfðu verið bundnar við að frelsi í þjónustuviðskiptum myndi auka samkeppnishæfni Evrópuríkja verulega og m.a. var talið að samþykkt þjónustutilskipunarinnar í sinni upphaflegu mynd stuðlaði að myndun 600 þúsund nýrra starfa í álfunni.

26.5.2006

Jafnréttiskennitala

Rannsóknasetur vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst hefur birt upplýsingar um jafnrétti í 100 stærstu fyrirtækjunum (miðað við veltu) hér á landi fyrir árið 2005. Fram kemur m.a. að konur skipuðu 12% stjórnarsæta, og  að 5% stjórnarformanna og 10,5% æðstu stjórnenda fyrirtækjanna voru konur. Í 5% fyrirtækjanna voru konur í 50% stjórnarsæta eða meira. SA eru meðal styrktaraðila verkefnisins, en niðurstöður þess er að finna á vef Viðskiptaháskólans á Bifröst.

19.5.2006

Gjaldtaka Aðfangaeftirlisins dæmd ólögmæt

Í ársbyrjun 2003 hóf Aðfangaeftirlitið nýtt eftirlit og gjaldtöku með útfluttu fiskmjöli og lýsi. Samtök atvinnulífsins og Félag íslenskra fiskmjölsframleiðanda mótmæltu strax þessu nýja eftirliti og gjaldtöku f.h. fiskmjölsframleiðanda. Ákveðið var að reka prófmál um lögmæti gjaldtökunnar gagnvart einu aðildarfyrirtæki SA. Í gær staðfesti Hæstiréttur fyrri úrskurð héraðsdóms þess efnis að nýtt eftirlit Aðfangaeftirlitsins (nú Landbúnaðarstofnunar) hafi ekki átt neina stoð í lögum og raunar hefði stofnunin brotið gegn skýrum ákvæðum laga um valdsvið og verkefni Fiskistofu. Sjá dóminn á vef Hæstaréttar.

19.5.2006

Vaxtahækkun framlenging á fortíðinni

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, lýsir efasemdum um að vaxtahækkun Seðlabankans skili tilætluðum árangri. Í samtali við Morgunblaðið minnir hann á að í bréfi til Seðlabankans á dögunum hafi verið bent á að gengi krónunnar hefði fallið þrátt fyrir að vextir hefðu verið mjög háir. Vilhjálmur bendir á að það að hækka vextina þegar menn eru að fara inn í samdráttarskeið sé ekki viðeigandi aðgerð. Með þessu séu menn bara að framlengja fortíðina.

16.5.2006

SA lýsa áhyggjum af hugsanlegri vaxtahækkun Seðlabanka

Samtök atvinnulífsins lýsa yfir áhyggjum sínum af hugsanlegri vaxtahækkun Seðlabankans nú næstu daga í því skyni að vinna gegn hækkunum á verðlagi í landinu. Í bréfi til bankastjórnar Seðlabankans lýsa samtökin verulegum efasemdum um að vaxtahækkun nú muni skila tilætluðum árangri. Allt eins megi reikna með því að vaxtahækkun þyki ótrúverðug vegna þess hve vextir eru háir fyrir og vegna þess að gengið lækkaði þrátt fyrir þessa háu vexti. Þá benda SA á líkur á efnahagssamdrætti á næsta ári og telja vaxtahækkun því vafasama. SA hvetja því Seðlabankann til að halda að sér höndum með vaxtahækkun.

16.5.2006

Upplýsingum safnað um rannsóknir og nýsköpun í fyrirtækjum

Rannís er um þessar mundir að afla gagna um rannsókna- og þróunarstarf hjá fyrirtækjum á Íslandi. Þetta er liður í þeirri starfsemi stofnunarinnar að greina stöðu, umfang og þróun rannsókna, þróunar og nýsköpunar á Íslandi. Samtök atvinnulífsins hafa mótað áherslur sínar um rannsóknir og nýsköpun en til að virk og gagnleg umræða geti átt sér stað um stöðu og þróun nýsköpunar þurfa fyrirtæki í landinu að leggja sitt af mörkum. Samtökin hvetja fyrirtækin til að taka vel í málaleitan Rannís og láta þeim í té umbeðnar upplýsingar.

12.5.2006

Stoðkerfi starfsmenntamála óhemju flókið

„Er kannski ástæða til að losa enn frekar um aðkomu ríkisvaldsins að starfsmenntamálum? Á ekki meginreglan einfaldlega að vera sú að opinbert fjármagn fari þangað sem viðurkenndir aðilar eru að svara raunverulegri eftirspurn?“ Þessara spurninga spurði Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, m.a. í opnunarávarpi á málþingi Starfsmenntaráðs og félagsfundi Menntar. Hann sagði stoðkerfi starfsmenntamála óhemju flókið og að aðilar vinnumarkaðarins væru þar ekki barnanna bestir. „Stundum virðist sem mem menn missi eilítið sjónar á markmiðum starfseminnar en leggi sig full mikið fram við að framleiða fleiri kennitölur, fleiri heimasíður, lógó, stjórnir, ársreikninga o.s.frv.,“ sagði Gústaf.

12.5.2006

Mikil frumkvöðlastarfsemi hér á landi

Árið 2005 mældust um 10,7% þjóðarinnar á aldrinum 18–64 ára stunda frumkvöðlastarfsemi, eða um það bil 20 þúsund manns og umfang frumkvöðlastarfsemi á Íslandi árið 2005 var meira en í flestum öðrum löndum í heiminum. Þetta er meðal niðurstaðna nýrrar alþjóðlegrar rannsóknar á frumkvöðlastarfsemi (GEM - Global Entrepreneurship Monitor), sem Háskólinn í Reykjvík heldur utan um af Íslands hálfu með stuðningi SA o.fl. Sjá nánar á vef Háskólans í Reykjavík.

12.5.2006

1,3% atvinnuleysi í apríl

Í aprílmánuði síðastliðnum voru skráðir 42.226 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.112 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,5% í mars sl. og 2,3% í apríl 2005. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið muni lítið breytast og verða á bilinu 1,2-1,5% í maí. Atvinnuleysi hefur ekki mælst minna en nú síðan í október 2001 og í einstökum aprílmánuði hefur það ekki mælst minna síðan í apríl árið 1988. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.

11.5.2006

Vaxandi verðbólga alvarlegt áhyggjuefni

Vaxandi verðbólga sem endurspeglast í verðbólgumælingu Hagstofunnar er alvarlegt áhyggjuefni, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttavefinn Mbl.is. Hann hækkun vísitölu neysluverðs meiri en flestir höfðu vænst og að vegna mikillar kaupmáttaraukningar og eftirspurnarþrýstings taki markaðurinn við verðhækkunum. Gengisbreytingar komi því tiltölulega hratt fram í hækkun verðlags. Hannes segir að eftir mikla kaupmáttaraukningu að undanförnu myndu frekari launahækkanir aðeins virka sem olía á verðbólgubálið.

11.5.2006

Verðtrygging lækkar fjármagnskostnað

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að verðtryggingin hafi í stórum dráttum leitt af sér að fjármagnskostnaður heimilanna sé lægri en ella. Vilhjálmur segir að ef verðtryggingin sem slík væri afnumin, myndi fólk ekki taka lán í íslenskum krónum heldur færa sig yfir í lán í erlendum gjaldmiðlum. Því ætti að bera saman hvort betra sé að taka lán í erlendum krónum eða verðtryggð lán, en ókostur við erlendu lánin séu gengissveiflurnar. Þá bendir Vilhjálmur á að lífeyrissjóðirnir fjármagni sig á verðtryggðum lánum og það lækki þeirra umsýslu- og viðskiptakostnað.

9.5.2006

Alþjóðleg samkeppni: Ísland í fyrsta sæti

Dönsku samtök iðnaðarins, hafa gefið út samanburðarskýrslu þar sem 29 aðildarlönd OECD eru borin saman og spurt: hversu reiðubúin eru þessi lönd fyrir hnattvæðinguna, þ.e. vaxandi alþjóðlega samkeppni? Ísland er í fyrsta sæti í heildarsamanburði, næst á undan Sviss og Finnlandi. Jákvætt viðhorf til alþjóðlegrar samkeppni og sveigjanleiki eru stórir kostir hérlendis, og þá er mismunun á grundvelli kyns, aldurs o.s.frv. hvergi minni en hér. Ísland er hins vegar með fremur lágt hlutfall háskólamenntaðra og mjög lágt hlutfall Íslendinga hefur lokið framhaldsnámi, miðað við samanburðarlöndin.

9.5.2006

Framtíðarsýn í starfsmenntun – málþing 12. maí

Föstudaginn 12. maí nk. verður félagsfundur Menntar haldinn samhliða málþingi Starfsmenntaráðs á Hótel Nordica. Yfirskriftin er Framtíðarsýn í starfsmenntun og fjallað verður um endurskipulagningu starfsnáms á Íslandi, stefnumótunarvinnu í stoðkerfi íslensks starfsmenntakerfis og kynnt dæmi um áhugaverð verkefni og framkvæmd. Rektor Tækniháskólans í Oulu í Finnlandi (sem oft er kölluð „Nokiatown“) segir frá samstarfi atvinnulífs og skóla þar og einnig verður kynnt fræðslustarf hjá Marel o.fl. Sjá nánar á vef Menntar.

8.5.2006

SA og ASÍ semja um innleiðingu Evrópusamnings um fjarvinnu

SA og ASÍ hafa gert sérstakan kjarasamning um innleiðingu evrópsks rammasamnings um fjarvinnu. Samningurinn hefur að geyma ákvæði um upplýsingagjöf, vernd gagna, búnað, skipulag vinnunnar og fleira. Tekið er fram í samningnum að fjarvinna byggi á frjálsu vali viðkomandi starfsmanns og vinnuveitanda og að upptaka fjarvinnu hafi engin áhrif á stöðu fjarvinnustarfsmanns sem launamanns. Þá kveður samningurinn á um að höfnun starfsmanns á tilboði um fjarvinnu sé sem slík ekki gild ástæða fyrir uppsögn eða breytingu á ráðningarkjörum.

4.5.2006

Krónan í samkeppni við veðrið

Íslenska krónan er nú í harðri samkeppni við veðrið sem umræðuefni á Íslandi, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann fjallar um kosti og galla krónu gagnvart evru og bendir m.a. á að með evru myndi vinnumarkaðurinn bregðast við sveiflum í hagkerfinu með atvinnustigs- í stað kaupmáttarbreytinga. Ef það tekst ekki að halda verðbólgunni niðri langtímum saman þá verður evran meira aðlaðandi kostur en ella.

4.5.2006

Ógegnsæ launakjör þingmanna og ráðherra

Varanleg sátt um launakjör þingmanna og ráðherra mun ekki skapast nema að eftirlaunakjör þeirra verði færð til samræmis við það sem aðrir landsmenn búa við og umframkjör verði færð inn í grunnlaun þeirra. Slík breyting skapaði grundvöll fyrir raunhæfum samanburði á föstum mánaðarlaunum kjörinna fulltrúa við aðra hópa sem eðlilegt er talið að laun þeirra séu borin við. Umframlífeyriskjör þingmanna í dag eru ígildi 51 milljónar króna starfslokagreiðslu miðað við sex kjörtímabil, borið saman við lífeyrisréttindi í Lífeyrissjóði verzlunarmanna og umframlífeyriskjör ráðherra sem gegnir embætti í þrjú kjörtímabil eru ígildi 102 milljóna króna. Umframlífeyriskjör forsætisráðherra sem situr í tvö kjörtímabil eru ígildi 113 milljóna króna starfslokagreiðslu.

4.5.2006

Frumvarpi um aukna gjaldtöku af atvinnurekstri mótmælt

Samtök atvinnulífsins mótmæla eindregið frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 96/1997, um eldi og heilbrigði sláturdýra (heilbrigðiseftirlit og eftirlitsgjald). Í því felast víðtækar heimildir Landbúnaðarstofnunar og landbúnaðarráðherra til að innheimta gjald af atvinnurekstri þannig að jafngildir framsali skattlagningarvalds verði frumvarpið að lögum. Á það verður látið reyna.

3.5.2006

Áhugaverður fyrirlestur Dr. Eagan um umhverfismál

Dr. Patrick D. Eagan prófessor í verkfræði við háskólann í WisconsinMadison hélt áhugaverðan fyrirlestur um umhverfismál hjá SA, þann 3. maí, en þar fjallaði hann m.a. um hvernig fyrirtæki geta bætt samkeppnisstöðu sína með því að samtvinna umhverfismál við vöruþróun og framleiðslu. Með í för var eiginkona Dr. Eagan, Lloyd L. Eagan, forstjóri auðlindadeildar fylkisstjórnarinnar í Wisconsin. Sagði hún meðal annars frá Green Tier verkefninu í Wisconsin-fylki í Bandaríkjum en það gengur út á að umbuna fyrirtækjum sem standa sig vel í umhverfismálum.

3.5.2006

Er evran svarið?

Í tilefni af Evrópudeginum býður Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi, í samstarfi við Euro Info skrifstofuna, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins, til morgunverðarfundar um evruna mánudaginn 8. maí n.k. undir yfirskriftinni: Er evran svarið? Hlutverk evrunnar í alþjóðavæðingunni. Aðalræðumaður á fundinum er Hervé Carré, aðstoðarframkvæmdastjóri stjórnarskrifstofu efnahagsmála hjá ESB og einn af hugmyndasmiðum evrunnar.

2.5.2006

Stækkun ESB dýrmæt „prufukeyrsla“ fyrir hnattvæðingu

Stækkun ESB hefur reynst nýju aðildarríkjunum gríðarlega dýrmæt en einnig haft mjög jákvæð áhrif á atvinnulífið í þeim eldri, skv. nýrri skýrslu Centre for European Reform. Forseti danska starfsgreinasambandsins segir stækkunina hafa verið eins konar „prufukeyrslu“ fyrir hnattvæðinguna. Fyrirtæki í Vestur-Evrópu hafi flutt vinnuaflsfrek störf til austurhluta álfunnar, sem hafi gert þeim kleift að viðhalda samkeppnishæfni sinni og skapa ný störf í staðinn á sviðum þróunar, rannsókna og hönnunar. Skýrslan var unnin fyrir danska starfsgreinasambandið og dönsku samtök iðnaðarins. Bæði samtökin og skýrsluhöfundar telja mikilvægt að flytja þessi skilaboð um jákvæð áhrif stækkunar, en í eldri aðildarríkjunum hafa verið ýmsar efasemdarraddir.


Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english