Fréttir
28.4.2006
Viltu bæta samkeppnisstöðuna?
Dr. Patrick D. Eagan heldur fyrirlestur hjá Samtökum atvinnulífsins, miðvikudaginn 3. maí. Dr. Eagan mun fjalla um hönnun, framleiðslu og sjálfbæra þróun, en meginfræðasvið hans er vistfræði í iðnaði og nýting sjálfbærrar þróunar við hönnun og framleiðslu. Auk þess fjallar hann um samþættingu gæða- og umhverfissjónarmiða við hönnun.
27.4.2006
SA lýsa undrun á frumvarpi um kjararáð
Í frumvarpi um kjararáð er ákvæði sem heimilar ráðinu að láta launabreytingar þjóðkjörinna manna, dómara og hæst settra embættismanna taka breytingum almennrar launavísitölu. SA lýsa í umsögn sinni undrun á þessu ákvæði frumvarpsins og minna á að vísitölubinding launa olli miklu tjóni á efnahagslífi landsmanna áratugum saman og að það kostaði gríðarleg átök að afnema hana á níunda áratug síðustu aldar. Samtökin mótmæla þessari heimild frumvarpsins eindregið.
26.4.2006
Upptaka af erindi Quentin Peel á vef SA
Á vef SA er nú hægt að horfa á ræðu Quentin Peel, ritstjóra alþjóðamála hjá Financial Times, sem hann flutti á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins. Peel kom víða við og ræddi meðal annars um þróun efnahagsmála á Íslandi og sagði enga hættu á að Ísland yrði „annað Taíland eða Indónesía“ í efnahagssamdrætti enda um að ræða opið hagkerfi með skýru regluverki. Íslendingar yrðu hins vegar að
25.4.2006
Nýsköpun, stöðugleiki, bjartsýni...
Ánægja með bjartsýni unga fólksins, mikilvægi efnahagslegs stöðugleika og áhersla á mikilvægi nýsköpunar, rannsókna, hugmynda og hönnunar. Þetta er meðal þess sem áhersla var lögð á í umræðum í opinni dagskrá aðalfundar SA. Þátt tóku þau Eggert B. Guðmundsson forstjóri HB Granda, Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins, Guðbjörg Gissurardóttir framkvæmdastjóri Hönnunarvettvangs og Sigríður Olgeirsdóttir framkvæmdastjóri Ax hugbúnaðarhúss. Fundarstjóri og stjórnandi umræðna var Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans.
25.4.2006
Hnattvæðing: tækifæri og ógnanir
Svokölluð hnattvæðing er ekki eitthvað sem hægt er að velja eða hafna heldur er hún staðreynd sem drifin er áfram af kröftum á borð við gríðarlega öra tækniþróun, mikla fólksfjölgun í þróunarríkjum og gríðarlega aukningu í framleiðni, sagði Quentin Peel, ritstjóri alþjóðamála hjá Financial Times, í ávarpi sínu á aðalfundi SA. Hann sagði hnattvæðinguna einnig valda ýmsum óöryggi og varaði við vaxandi tilhneigingu til verndarstefnu austan hafs og vestan. Mikilvægt væri að senda réttu skilaboðin um kosti alþjóðlegrar samkeppni.
25.4.2006
Nýsköpun í öndvegi
Í ræðu sinni á aðalfundi SA fjallaði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra m.a. um tilurð Vísinda- og nýsköpunarráðs. „Er það von mín að aðkoma atvinnulífsins að vísindastarfi, rannsóknum og nýsköpun eflist við þessar breytingar, enda nauðsynlegt að atvinnulífið taki höndum saman með háskólum og rannsóknastofnunum í samræmdri sókn ríkis og einkaaðila á þessum mikilvægu og ört vaxandi sviðum íslensks atvinnulífs,“ sagði Halldór. Hann sagði það áskorun til stjórnmálamanna að leita allra leiða til að búa til hagfellt umhverfi fyrir atvinnulífið til þróast og þroskast í.
25.4.2006
Í okkar valdi að koma í veg fyrir langvinnt samdráttarskeið
„Stjórnvöld, bæði á vettvangi ríkis og sveitarfélaga, verða að endurskoða sín framkvæmdaáform og forgangsraða þeim með það að markmiði að auka trúverðugleika efnahagsstefnunnar,“ sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna. Hann sagði blikur á lofti í verðlagsmálum og að ástæða væri til að óttast langvinnt skeið samdráttar í efnahagslífinu ef verðbólgan næði að festast í sessi. Slík þróun væri þó fjarri því óhjákvæmileg og í okkar valdi að koma í veg fyrir hana.
25.4.2006
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins
Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2006 til 2007. Nýir koma inn í stjórnina þeir Jón Karl Ólafsson Icelandair hf., Helgi Magnússon Flügger HarpaSjöfn ehf., Bjarni Ármannsson Glitnir hf., Helgi Bjarnason Sjóvá-Almennar tryggingar hf. og Gunnar Karl Guðmundsson Skeljungur hf. Úr stjórninni ganga þau Ragnhildur Geirsdóttir Promens hf., Þorgeir Baldursson Prentsmiðjan Oddi hf., Óskar Magnússon Tryggingamiðstöðin hf., Hreiðar Már Sigurðsson KB banki hf. og Hjörleifur Jakobsson Egla ehf.
25.4.2006
Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður SA
Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu formanns samtakanna.
24.4.2006
Dagskrá aðalfundar SA á Nordica 25. apríl
Meiri árangur – mögnuð áskorun. Þannig hljómar yfirskriftin á opinni dagskrá aðalfundar SA á Hótel Nordica þriðjudaginn 25. apríl kl. 15. Fjallað verður um miklar framfarir og mikinn árangur atvinnulífsins og sjónum beint að framhaldinu. Hvernig höldum við áfram að bæta árangurinn á tímum vaxandi alþjóðlegrar samkeppni? Hvað segja fulltrúar ólíkra atvinnugreina? Hvað segir unga fólkið? Hvað segir einn af ritstjórum Financial Times? Og forsætisráðherra?
24.4.2006
Nýr upplýsingavefur um Evrópumál
Evrópufræðasetur Viðskiptaháskólans á Bifröst hefur hleypt af stokkunum nýjum upplýsinga- og fréttavef um Evrópumál. Á vefnum er að finna margvíslegt fræðiefni um Evrópumál sem og almennar upplýsingar um tengsl Íslands við evrópskt samstarf. Þá er á vefnum rekin fjölbreitt fréttaveita um samstarf Evrópuríkja. Sjá Evrópuvefinn hér.
20.4.2006
Hvað er að frumvarpi um RÚV?
Í frumvarpi um RÚV skortir nothæfa skilgreiningu á því hvað RÚV á að gera sem og eftirlit með því hvað það gerir í raun, segir Guðlaugur Stefánsson, hagfræðingur hjá SA, í grein í Morgunblaðinu. Hann segir að Alþingi væri sómi að því að ráða bót á þessu með nútímalegri ákvæðum og forðast nýleg mistök í hliðstæðu máli, en þar vísar hann til nýlegrar niðurstöðu EFTA dómstólsins í máli Íbúðalánasjóðs. Krafa EES samningsins er að ríkisstyrkir raski ekki samkeppni og taldi dómurinn vafa leika á því að fyrirkomulag Íbúðalánasjóðs stæðist þá kröfu.
18.4.2006
Unga fólkið bjartsýnt á framtíð Íslands
Könnun PSN-samskipta meðal 19-20 ára Íslendinga sýnir að hugur er í unga fólkinu og jákvæðni í garð hnattvæðingar, alþjóðlegrar samkeppni og framtíðar Íslands. 86% aðspurðra telja hnattvæðingu og vaxandi alþjóðlega samkeppni hafa góð áhrif á sín tækifæri í framtíðinni, en einungis tæp 4% telja áhrifin slæm. Lang flestir vilja starfa hjá einkafyrirtæki eða fara út í sjálfstæðan atvinnurekstur, samtals 78%. 13% vilja helst starfa hjá ríki eða sveitarfélögum.
12.4.2006
Launahækkanir olía á verðbólgubálið
Verðbólguvæntingar eru hættulegar efnahagslífinu þar sem þær eru sjálfar til þess fallnar að stuðla að verðhækkunum og vaxandi verðbólgu, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Mbl.is. Það sem helst getur unnið gegn miklum verðbólguvæntingum er að um hægist á fasteignamarkaði, að það dragi úr lánveitingum til íbúðamarkaðarins og að hart verði stigið á bremsurnar í opinberum fjármálum, bæði ríkis og sveitarfélaga. Mikil framkvæmdaáform opinberra aðila á næsta ári verður því að endurskoða. Þá er það alveg ljóst að launahækkanir, hvort sem þær koma í kjölfar kjarasamninga, persónubundinna samninga eða ólöglegra verkfallsaðgerða á borð við setuverkföll virka sem olía á verðbólgubálið, segir Hannes.
12.4.2006
1,5% atvinnuleysi í mars
Í marsmánuði síðastliðnum voru skráðir 50.256 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.183 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 1,5% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 1,6% í febrúar en 2,6% í mars 2005. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið í apríl muni minnka og verða á bilinu 1,2%-1,5%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
11.4.2006
SA aðilar að þróun jafnréttiskennitölu fyrirtækja
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur vegna verkefnisins jafnréttiskennitala fyrirtækjanna. Þróuð verður jafnréttiskennitala 100 stærstu fyrirtækja á landinu og er henni ætlað að sýna hvaða árangri fyrirtækin hafa náð í jafnréttismálum. Að verkefninu standa viðskiptaráðuneytið, félagsmálaráðuneytið, SA, Félag kvenna í atvinnurekstri, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa, auk Rannsóknaseturs vinnuréttar og jafnréttismála við Viðskiptaháskólann á Bifröst sem fara mun með framkvæmd verkefnisins.
7.4.2006
Áskorun um bætt starfsskilyrði í ferðaþjónustu
Í almennri ályktun aðalfundar skora Samtök ferðaþjónustunnar á stjórnvöld að bæta starfsskilyrði greinarinnar og minna þau á stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar í því sambandi. Samtökin kvarta undan auknum tollum, háum vörugjöldum, háu áfengisgjaldi, innflutningshindrunum á landbúnaðarafurðum og nýju olíugjaldi sem samtökin segja hafa gert rekstrarumhverfi margra fyrirtækja í greininni mun erfiðara en áður. Sjá ályktanir, erindi og annað efni aðalfundarins á nýjum vef SAF.
6.4.2006
„Danska árásin“ ýtir undir verðbólgu
„Danska árásin“ á íslenskt efnahagslíf getur valdið meiri skaða en virtist þegar hún hófst. Gengi krónunnar virðist ekki hækka aftur þrátt fyrir 0,75% hækkun á stýrivöxtum Seðlabankans og baráttan gegn verðbólgunni verður erfiðari en ella, segir
6.4.2006
Álversvirði aukinna íbúðabygginga
Þegar rætt er um hátt framkvæmdastig í landinu beinist athyglin oftast að miklum fjárfestingum vegna stóriðju, enda vega þær þyngst í fjárhæðum. Við mat á umfangi framkvæmda skiptir þó einnig miklu máli að fjárfesting í íbúðarhúsnæði hefur vaxið samfellt allan þennan áratug. Aukning íbúðabygginga á árunum 2000-2007 umfram meðaltal síðasta áratugar nemur væntanlega um 160 milljörðum króna og samsvarar því að almenningur hafi byggt álver og tilheyrandi virkjun og rúmlega það. Á grundvelli fyrirliggjandi vísbendinga um kostnaðarsamsetningu og vægi innlendra og erlendra starfsmanna áætla SA að þensluáhrif hinnar miklu aukningar í íbúðabyggingum á innlendan markað samsvari byggingu a.m.k. tveggja álvera og tilheyrandi virkjana.
6.4.2006
Örorkugreiðslur lífeyrissjóða: úr fimm milljörðum í tíu
Örorkulífeyrisgreiðslur lífeyrissjóða munu aukast verulega á komandi árum, m.a. vegna fjölgunar öryrkja og lækkandi aldurs þeirra. Þær voru 5 milljarðar króna 2005 en framreikningar benda til að þær aukist í 8 milljarða 2015 og tæplega 10 milljarða 2025, þ.e. tvöfaldist á næstu tveimur áratugum. Örorkulífeyrisgreiðslur Tryggingastofnunar munu hins vegar aukast mun hægar, úr rúmum 10 milljörðum í 12 milljarða króna á sama tímabili. Tryggingastofnun greiðir nú 1,7 milljörðum króna lægri örorkubætur en ella vegna tekjutengingar við örorkugreiðslur lífeyrissjóða og mun sú tala hækka í 2,6 milljarða árið 2025.
4.4.2006
Íslenska lífeyriskerfið í umbreytingu
Samtök atvinnulífsins hafa gefið út Íslenska lífeyriskerfið í umbreytingu. Þar er í fyrsta sinn lagt mat á samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða næstu áratugina en líkur eru á að smám saman verði hlutverk lífeyrissjóðanna yfirgnæfandi þegar kemur að greiðslu lífeyris í stað hins opinbera. Í skýrslunni er dregin upp mynd af framtíðarþróun íslenska lífeyriskerfisins og þeim áskorunum sem það stendur frammi fyrir. Til að varpa ljósi á þessar áskoranir gerðu SA könnun á tryggingafræðilegum uppgjörum 15 lífeyrissjóða. Um framreikning á lífeyrisgreiðslum næstu áratugi sá Bjarni Guðmundsson, tryggingastærðfræðingur.
4.4.2006
SA fagna bættu aðgengi að íslenskum vinnumarkaði
Ríkisstjórnin hefur samþykkt frumvarp félagsmálaráðherra varðandi aðgengi ríkisborgara átta nýrra aðildarríkja ESB að íslenskum vinnumarkaði frá og með 1. maí nk. Lagt er til að þeim verði heimilt að koma hingað til lands í atvinnuleit og ráða sig til starfa hér á landi án sérstakra atvinnuleyfa, en að atvinnurekendum beri að tilkynna Vinnumálastofnun um ráðningu þeirra innan tíu virkra daga og að ráðningarsamningur fylgi tilkynningunni. Samtök atvinnulífsins fagna afnámi kröfunnar um atvinnuleyfi fyrir þetta fólk, sem draga mun úr reglubyrði fyrirtækja og stuðla að betra jafnvægi á íslenskum vinnumarkaði, að ógleymdu því hagræði sem þetta mun hafa í för með sér fyrir viðkomandi starfsfólk. Sjá nánar um frumvarpið á vef félagsmálaráðuneytis.











