Fréttir
29.3.2006
Viðskiptasendinefnd til Færeyja 5.-7. apríl nk.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra fer í heimsókn til Færeyja dagana 5.-7. apríl nk. í boði þarlendra stjórnvalda. Útflutningsráð skipuleggur viðskiptasendinefnd til Færeyja af þessu tilefni, en í september sl. var undirritaður fríverslunarsamningur milli Íslands og Færeyja. Þá skipuleggur Útflutningsráð einnig viðskiptasendinefndir til Bretlands dagana 24.-28. maí og til
27.3.2006
Varað við verndarstefnu innan ESB
Ernest-Antoine Seillière forseti UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, ávarpaði leiðtogafund ESB á dögunum. Í erindi sínu varaði Seillière við tilhneigingu til einhvers konar verndarstefnu sem orðið hefur vart innan sambandsins nýverið, þar sem tilteknar ríkisstjórnir hafa beitt sér gegn samruna fyrirtækja yfir landamæri, einkum á sviði orkumála. Seillière fjallaði m.a. um mikilvægi frjálsra þjónustuviðskipta, aukins sveigjanleika á vinnumarkaði og minni reglubyrði fyrirtækja. Mikla athygli vakti að Jacques Chirac forseti Frakklands yfirgaf salinn þegar Seillière hóf að flytja ræðu sína á ensku, en Seillière er fyrrverandi formaður frönsku samtaka atvinnulífsins. SA og SI eru meðal aðildarsamtaka UNICE.
21.3.2006
Aukið hagræði hins opinbera af einkarekstri
Stjórn SVÞ - Samtaka verslunar og þ
20.3.2006
Könnun á horfum í atvinnulífi ber vott um þenslu
Niðurstöður úr nýrri könnun IMG Gallup á stöðu og framtíðarhorfum í atvinnulífinu bera vitni um þá miklu þenslu sem ríkir í efnahagslífinu um þessar mundir. Stjórnendur meta stöðu fyrirtækjanna góða og almenn tilhneiging er til þess að hagnaður og framlegð fyrirtækja fari vaxandi. Mikill skortur er á starfsfólki og víða eru áform um fjölgun þess. Fjárfestingarstig helst hátt. Að jafnaði telja stjórnendur að verðbólgan verði yfir þolmörkum Seðlabankans, launaskrið verði töluvert, gengi krónunnar muni síga og vextir Seðlabankans hækki verulega á árinu. Svör stjórnenda í sjávarútvegi skera sig nokkuð úr þar sem mat á stöðu og framtíðahorfum markast mjög af því hve hágengi krónunnar hefur kreppt að afkomu greinarinnar.
17.3.2006
Hátækni og stóriðja ekki andstæður
Mistök í sameiginlegri hagstjórn ríkis, sveitarfélaga og Seðlabanka eiga stærstan þátt í þeim vanda sem samkeppnis- og útflutningsgreinarnar eiga við að etja. Því er rangt að stilla hátækni og stóriðju upp sem andstæðum eins og borið hefur á undanfarið, segir í ályktun Iðnþings Samtaka iðnaðarins. Í ályktuninni er m.a. fjallað um kosti einkarekstrar, stofnun sameinaðs atvinnuvegaráðuneytis og nauðsyn endurskoðunar á stoðkerfi atvinnulífsins. Þá segir að halda beri áfram að efla Nýsköpunarsjóð og auka sjálfstæði hans undir stjórn atvinnulífsins, en lagst er gegn öllum hugmyndum um að leggja sjóðinn undir nýja ríkisstofnun. Sjá ályktunina á vef SI.
16.3.2006
Viðskiptasendinefndir til Bretlands og San Francisco
Útflutningsráð skipuleggur viðskiptaráðstefnu og viðskiptasendinefnd til Bretlands dagana 24. til 28. maí nk. og mun forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, setja ráðstefnuna og flytja ávarp. Þá hefur Útflutningsráð ákveðið að hefja undirbúning viðskiptasendinefndar til San Francisco um miðjan maí eða í byrjun júní 2006. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
14.3.2006
Umhverfisviðurkenning - beiðni um tilnefningar
Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki til að hljóta „Kuðunginn“ - umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins - fyrir árið 2005. Tilnefningar berist eigi síðar en 25. mars, með stuttri greinargerð.
13.3.2006
Ísland í fyrsta sæti yfir hlutfall starfa við rannsóknir
Hlutfall þeirra sem starfa við rannsóknir af heildarfjölda á vinnumarkaði er hæst á Íslandi þegar borin eru saman löndin innan EES og fleiri lönd. Hér starfa 2,24% við rannsóknir en hlutfallið er næst hæst í Finnlandi, 2,09%. Meðaltalið innan EES er 0,86%. Ef einungis er horft til einkageirans er Ísland í þriðja sæti með 0,81% en Finnland í efsta sæti með 1,13%. EES-meðaltalið fyrir einkageirann er 0,35%. Þetta er meðal niðurstaðna rannsóknar Eurostat, tölfræðistofnunar ESB.
13.3.2006
1,6% atvinnuleysi í febrúar
Í febrúar sl. voru skráðir 46.704 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.338 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 1,6% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið einnig 1,6% í janúar sl. en 2,8% í febrúar 2005. Að mati Vinnumálastofnunar er líklegt að atvinnuleysið breytist lítið í mars og verði á bilinu 1,4-1,7%. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
10.3.2006
Vel heppnaðri fundaröð SA með framhaldsskólanemum lokið
Fundaröð SA með útskriftarnemum framhaldsskóla er nú lokið. Yfirskrift hennar var Ætlar þú að vinna úti? en að þessu sinni sóttu fulltrúar SA heim fimm skóla og ræddu við alls um 400 nemendur um framtíð lands og þjóðar og hvaða leiðir þau ætluðu sér að fara í framtíðinni, hvaða menntun þau hygðust sækja sér, við hvað þau vildu helst starfa, hvar þau vildu helst búa, og hvernig Ísland gæti nýtt sér þau tækifæri sem eru fyrir hendi til að sækja fram á tímum aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Það sem upp úr stendur eftir heimsóknir SA er jákvætt viðhorf nemendanna til framtíðarinnar og þeirra áskorana sem Ísland stendur frammi fyrir.
8.3.2006
Ísland og markmið Kyoto-bókunarinnar
Allt bendir til þess að Íslensk stjórnvöld muni standa við skuldbindingar sínar samkvæmt Kyoto-bókuninni við loftslagssamning Sameinuðu þjóðanna. Mikilvægt er samt að kannað verði hvaða möguleikar eru til öflunar útstreymisheimilda erlendis frá og eins hvort hagkvæmt geti verið að auka kolefnisbindingu innan lands.
6.3.2006
Um vinnutíma á Íslandi
Samanburður á vinnutíma milli landa er flókinn og nokkrir þættir valda mikilli bjögun upp á við í niðurstöðum mælinga á vinnutíma á Íslandi, að því er fram kemur í athugasemd frá SA sem birt er í Morgunblaðinu. Þessar bjaganir valda því að flestir standa í þeirri trú að vinnutími hér á landi sé almennt mun lengri en í nálægum löndum. Það er ekki rétt, þótt vissulega séu dæmi um langan vínnutíma í vissum atvinnugreinum og starfsstéttum. Þá hefur vinnutími fólks í fullu starfi verið að styttast hér á landi.
2.3.2006
Frjálsa för EES-borgara til Íslands frá 1. maí
Líklega býr ekkert ríki á EES-svæðinu við meiri þenslu á vinnumarkaði en Íslendingar og þar af leiðandi eru hvergi sterkari rök fyrir afnámi takmarkana á frjálsri för nýrra EES-borgara en hér á landi, segir
2.3.2006
Fyrirtæki krafin um fjölda vottorða að óþörfu
Undanfarið hefur verið gengið hart eftir því við þá aðila sem sækja um veitingaleyfi, að þeir skili inn til lögreglu fjölda vottorða um persónulega hagi stjórnenda, eigenda og stjórnarmanna fyrirtækisins sem sækir um leyfið. Þetta hefur verið flókið ferli og íþyngjandi en krafan um vottorðin hefur átt jafnt við ný fyrirtæki og útibú frá starfandi fyrirtækjum eða endurnýjun fyrri leyfa þeirra. Athugun SA leiddi hins vegar í ljós að krafan átti sér ekki beina stoð í lögum og hefur lögreglustjóraembættið í Reykjavík í reynd fallist á sjónarmið SA. Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs, fagnar breytingunni og segist fullviss um að hún hafi fordæmisgildi. Hin nýja framkvæmd sé í samræmi við yfirlýst markmið um „einfaldara Ísland".
2.3.2006
Varað við íþyngjandi ákvæðum í frumvörpum til hlutafélagalaga
Samtök atvinnulífsins hafa í umsögn til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis varað eindregið við því að á Íslandi verði lögfestar strangari reglur um starfsemi hlutafélaga og einkahlutafélaga en gerist í öðrum löndum. Eðlilegt er að löggjafinn gefi viðskiptalífinu svigrúm til að sýna fram á því sé treystandi til að setja sjálft reglur er varða stjórnarhætti fyrirtækja. Það væri ennfremur í anda áherslu á „einfaldara Ísland“.
2.3.2006
Frelsi í þjónustuviðskiptum?
Markmiðið með þjónustutilskipun ESB er að gera að veruleika frjálst flæði þjónustu í samræmi við ákvæði stofnsamnings ESB, og ryðja úr vegi hindrunum sem koma í veg fyrir að fyrirtæki og einstaklingar geti selt þjónustu sína á grundvelli sömu skilyrða alls staðar á innri markaðnum. Vonir hafa staðið til þess að með samþykkt tilskipunarinnar myndi samkeppnishæfni Evrópu aukast allverulega, og m.a. skapast 600.000 ný störf. Í kjölfar mikilla breytinga Evrópuþingsins er hins vegar efast um að sú niðurstaða geti stuðlað að raunverulegu frelsi í þjónustuviðskiptum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í Morgunblaðsgrein Evu Margrétar Ævarsdóttur, forstöðumanns skrifstofu SA í Brussel.
1.3.2006
Ráðuneyti endurskoðar verkefni tengd atvinnulífi
Iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti vinnur nú að endurskipulagningu allra stofnana á þess vegum sem sinna þjónustu og stuðningi við atvinnulífið. Stefnt er að því að samræma starfsemi þeirra með það að leiðarljósi að hafa áhrif á þróun atvinnulífs og að auka lífsgæði í samfélaginu. Mikilvægt er að haft verði samráð við atvinnulífið um þessar breytingar og að ferli við styrkveitingar verði einfalt og gagnsætt og miðist við gæði verkefna.











