Fréttir
29.11.2006
Ná þarf tökum á launamálum ríkisins
28.11.2006
SA mótmæla ríkisvæðingu á þjónustustarfsemi
Samtök atvinnulífsins mótmæla harðlega þeirri ákvörðun utanríkisráðuneytisins að fela sýslumannsembættinu á Keflavíkurflugvelli að taka um áramót yfir þann hluta öryggiseftirlits sem fyrirtækin Securitas og Öryggismiðstöð Íslands hafa haft með höndum á flugvellinum frá því í sumar. Fyrirtækin tvö hafa sýnt fram á að þau geta rekið þessa þjónustu með mun lægri tilkostnaði en sýslumannsembættið. Starfsemin hefur komið vel út í prófunum viðurkenndra eftirlitsaðila. Samtök atvinnulífsins mótmæla þess vegna harðlega þessari öfugþróun og ríkisvæðingu á þjónustusviði.
28.11.2006
Gústaf Adolf frá SA til Samorku
24.11.2006
Alcan hlýtur Starfsmenntaverðlaunin 2006
Starfsmenntaverðlaun Menntar og Starfsmenntaráðs fyrir árið 2006 hlýtur Alcan í flokki fyrirtækja og félagasamtaka. Alcan hlýtur verðlaunin fyrir Stóriðjuskólann og uppbyggingu náms við hann. Í flokki skóla og fræðsluaðila hlýtur Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra verðlaunin fyrir öflugt samstarf á svæðinu við grunnskóla og fyrirtæki, til að kynna og gera veg iðnnáms sem mestan. Í opnum flokki hlýtur Björg Árnadóttir, forstöðumaður Námsflokka Reykjavíkur verðlaunin. Starfsmenntaverðlaunin eru veitt þeim sem þykja vinna framúrskarandi starf í starfsmenntun, hvort sem um er að ræða skóla, samtök, frumkvöðla eða fyrirtæki sem sinna vel fræðslumálum starfsmanna sinna. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Starfsmenntaverðlaunin.
23.11.2006
Minnt á mikilvægi sveigjanleika á vinnumarkaði
Framkvæmdastjórn ESB hefur kynnt svokallaða grænbók sem ætlað er að auka umræður og skoðanaskipti aðila um hvernig hægt sé að þróa evrópska vinnumarkaðslöggjöf í þá átt að tryggja sveigjanleika jafnt sem öryggi á Evrópuvinnumarkaði. UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, leggja áherslu áherslu á að sveigjanleiki og öryggi á vinnustað séu ekki tveir andstæðir pólar og að sveigjanleiki á vinnumarkaði sé eina leiðin til þess að skapa fleiri störf í Evrópu. Þá minna samtökin á að valdsvið til að þróa vinnumarkaðslöggjöfina liggi fyrst og fremst hjá aðilum á landsvísu.
22.11.2006
Hvati til að lágmarka losun gróðurhúsalofttegunda
Það er innbyggður hvati í rekstri álfyrirtækja að lágmarka losun gróðurhúsalofttegunda þar sem það hefur bein áhrif á rekstrarlega afkomu fyrirtækjanna. Þetta kom fram í máli Óskars Jónssonar, framkvæmdastjóra hjá Norðuráli, á fundi Samtaka atvinnulífsins um útstreymi frá álverum á Íslandi. Ræddi Óskar jafnframt um mögulega framtíðarþróun í greininni varðandi útstreymi lofttegunda vegna framleiðslu áls og kynnti hvernig Norðurál hefur unnið að því að takmarka útstreymi frá rekstrinum.
21.11.2006
Útstreymi gróðurhúsalofttegunda hjá Alcan minnkað um 70%
Frá árinu 1990 hefur tekist að minnka útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá álveri Alcan á Íslandi um 70% fyrir hvert framleitt tonn áls. Má þennan góða árangur rekja til öflugrar umhverfisstjórnunar Alcan sem fyrirtækið leggur ríka áherslu á. Einkum hefur tekist að draga úr útstreymi á flúorkolefnum og er losun þeirra í dag langt innan við leyfileg mörk stjórnvalda. Þetta kom fram á fundi hjá Samtökum atvinnulífsins um útstreymi frá álverum á Íslandi.
21.11.2006
Námskeið um markaðsrannsóknir útflutningsfyrirtækja
Útflutningsráð Íslands hefur fengið Jean Sutton, einn af færustu ráðgjöfunum á sínu sviði til þess að halda námskeið um alþjóðamarkaðsrannsóknir. Hún hefur einnig fengið í lið með sér einn af samstarsfélögum sínum, Joyce Gledhill sem sérhæfir sig í upplýsingaöflun í Eystrasaltslöndunum og mun hann halda einnar klukkustundar fyrirlestur á seinni hluta námskeiðsins. Námskeiðið fer fram á Hótel Loftleiðum fimmtudaginn 23. nóvember og föstudaginn 24. nóvember og stendur frá klukkan 09.00-16.00 báða dagana. Nánari upplýsingar og skráning á vef Útflutningsráðs.
17.11.2006
Rætt um útstreymi frá álverum
Fundaröð Samtaka atvinnulífsins um atvinnulíf og umhverfi heldur áfram þriðjudaginn 21. nóvember. Þá verður rætt um útstreymi frá álverum á Íslandi, stöðu mála og horfur. Framsögur flytja Guðrún Þóra Magnúsdóttir leiðtogi umhverfismála hjá Alcan og Óskar Jónsson framkvæmdastjóri hjá Norðuráli. Fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins Borgartúni 35, 6. hæð. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og verður lokið klukkan 10:00. Fundurinn er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.
16.11.2006
Fundir með viðskiptafulltrúum
15.11.2006
Íslensk fyrirtæki hafa ávallt lagt ýmislegt til samfélagsins
Hlutverk fyrirtækja er í grundvallaratriðum að skila arði, skapa störf og greiða skatta og skyldur til samfélagsins, allt í samræmi við lög og reglur hverju sinni. Þetta er aðalatriðið, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, í viðtali um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja. Gústaf segir að hins vegar hafi íslensk fyrirtæki ávallt lagt ýmislegt til samfélagsins umfram þetta. Einnig fjallar hann í viðtalinu um samstarf á Evrópuvettvangi um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja, þar sem Evrópusamtök atvinnulífsins taka þátt.
15.11.2006
Gengi krónunnar, væntingar og einkaneysla
Mikil fylgni virðist vera milli gengis krónunnar og væntinga heimilanna. Þegar gengi krónunnar hækkar fara væntingar heimilanna um eigin hag jafnframt vaxandi, með tilheyrandi vexti einkaneyslu. Þegar gengi krónunnar lækkar færast væntingar heimilanna niður á við og einkaneyslan með. Í ljósi þess sterka sambands sem virðist vera á milli gengis krónunnar, væntinga heimilanna og einkaneyslu kann að vera að áhrif peningamálastefnu Seðlabankans, þegar hún fer að mestu í gegnum gengisfarveginn, á kaupmátt og væntingar heimilanna séu vaxtaáhrifunum yfirsterkari og stuðli þannig ekki að aðhaldi heldur þvert á móti að aukinni einkaneyslu og umsvifum.
14.11.2006
Skattalækkun á hótel- og veitingahúsarekstur
Fyrirhuguð lækkun á virðisaukaskatti í 7% á þjónustu hótel- og veitingahúsa þann 1. mars á næsta ári mun ótvírætt stórefla ferðaþjónustu í landinu. Skattalækkunin er umtalsverð og einnig til þess fallin að bæta skattskil og draga úr svartri atvinnustarfsemi. Hraður vöxtur hefur verið í greininni undanfarin ár sem endurspeglar m.a. fjölgun erlendra ferðamanna og aukinn kaupmátt landsmanna. Heildarvelta í hótel- og veitingarekstri nam tæplega 40 milljörðum króna án virðisaukaskatts á árinu 2005 en útlit er fyrir að fyrirhuguð skattalækkun á greinina muni nema um 2,6 milljörðum króna, sem jafngildir virðisaukaskattgreiðslum greinarinnar árið 2005.
13.11.2006
Tilkynningarskylda vegna ráðningar erlendra starfsmanna
SA vilja minna fyrirtæki á að tilkynna skal til Vinnumálastofnunar (VMST) um ráðningu ríkisborgara frá Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Póllandi, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklandi eða Ungverjalandi. Í tilkynningunni skal koma fram nafn atvinnurekanda, kennitala og heimilisfang ásamt nafni hins erlenda starfsmanns, kennitölu og aðsetri hans hér á landi og afrit ráðningarsamnings sem tryggi starfsmanninum laun og önnur starfskjör samkvæmt íslenskum lögum og kjarasamningum. Tilkynningin skal berast VMST innan tíu virkra daga frá ráðningu starfsmanns frá framangreindum löndum.
13.11.2006
Evrópusamvinnan og lýðræðið – morgunfundur 15. nóvember
Morgunfundur Evrópufræðaseturs á Bifröst, í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, ASÍ, BSRB og Samtök iðnaðarins verður haldinn á Grand Hótel í Reykjavík, miðvikudaginn 15. nóvember. Fundurinn verður í salnum Háteigi og stendur frá 8:15 - 10:00. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir og aðgangur er ókeypis. Sjá nánar á vef Háskólans á Bifröst.
10.11.2006
Vísitala neysluverðs staðfestir kólnun á fasteignamarkaði
Útreikningur vísitölu neysluverðs fyrir nóvember 2006 staðfestir að verðbólga fer hjaðnandi og er þess að vænta að sú þróun haldi áfram næstu mánuði. Hækkun fasteignaverðs hefur haft mikil áhrif til aukningar á verðbólgu undanfarin misseri, en nýjustu upplýsingar benda til þess að þar sé að verða breyting á. Á síðasta ári voru mánaðarlegar verðhækkanir á markaðsverði íbúðarhúsnæðis oftast á bilinu 2-4%, en dregið hefur úr verðhækkunum undanfarna mánuði og verð lækkað annað hvort á einbýli eða fjölbýli undanfarna fjóra mánuði.
10.11.2006
Útstreymi gróðurhúsalofttegunda er minna á Íslandi en í ESB
Almennt útstreymi gróðurhúsalofttegunda er minna á Íslandi en meðaltalsútstreymið í ríkjum ESB og hefur jafnframt dregist meira saman hér á landi undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu Umhverfisstofnunar ESB, en í skýrslunni kemur einnig fram að Ísland stendur vel að vígi gagnvart Kyoto bókuninni og að útstreymið hér árið 2004 var 12% undir því markmiði sem sett er að meðaltali fyrir tímabilið 2008 til 2012. „Eldri“ ESB-ríkin 15 eru hins vegar 8% yfir sambærilegu markmiði og eiga því mun lengra í land til að ná takmarkinu en Ísland.
10.11.2006
1% atvinnuleysi í október
9.11.2006
Aukin hagkvæmni í landflutningum
Hagkvæmni í landflutningum hefur aukist verulega á undanförnum árum. Nýjar og fullkomnari vélar hafa dregið verulega úr eldsneytiseyðslu flutningabíla og minnkað mengun frá þeim. Þá hefur notkun á tengivögnum aukist stórlega sem hefur bætt nýtingu bílanna umtalsvert og dregið jafnframt úr mengun. Þetta kom fram í erindi Guðmundar Nikulássonar, framkvæmdastjóra innanlandssviðs hjá Eimskip, á upphafsfundi fundaraðar SA um umhverfi og atvinnulíf. Guðmundur sagði að hefðbundnum strandsiglingum hafi verið sjálfhætt vegna þess að þær standi ekki undir sér og landflutningar séu lífsnauðsynlegir landsbygðinni þar sem miðlægir lagerar séu staðsettir eingöngu á höfuðborgarsvæðinu. Fólk úti á landi þurfi daglega þjónustu í allri dagvöru. Nauðsynlegt sé að ráðast í stórfellda uppbyggingu á íslenska vegakerfinu.
9.11.2006
Umhverfisvænar vélar draga úr útblæstri hjá Samskipum
Verulegur árangur hefur náðst hjá Samskipum við að minnka útblástur frá skipum, en fyrirtækið lét smíða fyrir sig tvö ný gámaskip í Þýskalandi sem voru tekin í notkun árið 2005. Þau eru búin hagkvæmustu skipsvélum á markaðnum, eru bæði neyslugrannar og umhverfisvænar. Á vélarnar er jafnframt notuð dýrari olía með lægra brennisteinsinnihaldi. Samskip vinna nú að prófun á ýmsum vélarhlutum í samstarfi við MAN en markmiðið er að búa til enn betri vélar, að auka nýtni og gæði brennslu til að lágmarka losun óæskilegra efna út í andrúmsloftið. Þetta kom fram á upphafsfundi fundaraðar Samtaka atvinnulífsins um atvinnulíf og umhverfi.
8.11.2006
Fjármálageirinn greiðir yfir 40% af álögðum tekjuskatti lögaðila
Fjármálageirinn greiðir í heild yfir 40% af álögðum tekjuskatti lögaðila vegna ársins 2005. Áætlað er að geirinn í heild greiði um 15 milljarða króna í tekjuskatt – sem er meira en allur álagður tekjuskattur á lögaðila árin 2003 og 2004. Útlit er fyrir að skattgreiðslur fjármálafyrirtækja aukist enn frekar, en samanlagður hagnaður viðskiptabankanna eftir fyrstu níu mánuði ársins er nú þegar orðinn meiri en á öllu árinu 2005. Svo háar tekjuskattgreiðslur eins atvinnuvegar eiga sér engin fordæmi hér á landi. Það er því af sem áður var en árið 1999 nam álagning tekjuskatts á fjármálageirann 1.240 milljónum króna, en þá var eignarhald ríkisins ráðandi á fjármálamarkaði.
7.11.2006
Sameining samtaka á fjármálamarkaði
Aðildarfyrirtæki Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja (SBV), Sambands íslenskra tryggingafélaga (SÍT) og Sambands íslenskra sparisjóða (SÍSP) hafa ákveðið að sameinast í Samtökum fjármálafyrirtækja frá og með 1. janúar 2007. Ný Samtök fjármálafyrirtækja verða heildarsamtök fyrirtækja á fjármálamarkaði og munu eiga aðild að Samtökum atvinnulífsins. Á stofnfundi samtakanna 7. nóvember var Bjarni Ármannsson kjörinn formaður stjórnar Samtaka fjármálafyrirtækja og Helgi Bjarnason varaformaður.
6.11.2006
Fundaröð SA um atvinnulíf og umhverfismál að hefjast
Miðvikudaginn 8. nóvember n.k. hefst fundaröð Samtaka atvinnulífsins: Atvinnulíf og umhverfi. Þar verður fjallað um íslensk fyrirtæki og áhrif þeirra á umhverfið og staða umhverfismála á Íslandi sett í alþjóðlegt samhengi. Fyrsti fundurinn fer fram í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, en á honum verður rætt um útblástur vegna flutninga á sjó og landi. Framsögur flytja Kristján Ólafsson, deildarstjóri hjá Samskipum og Guðmundur Nikulásson, forstöðumaður innanlandssviðs Eimskips.
2.11.2006
RÚV og jafnræði á markaðnum
Með áformuðum breytingum í fyrirliggjandi frumvarpi verður Ríkisútvarpið mun öflugri keppinautur en áður þar sem sveigjanleikinn í rekstrinum verður aukinn og litlar hömlur lagðar á þróun starfseminnar. Skilgreiningin á útvarpsþjónustu í almannaþágu er svo rúm að hún getur náð yfir lang stærstan hluta starfseminnar og því er hætt við að mjög þrengi að keppinautum Ríkisútvarpsins og það fái algjöra yfirburði á markaðnum í krafti 2,7-2,8 milljarða króna skatttekna, með þeim afleiðingum að í heild verði framboð af efni fábreyttara og einhæfara en nú er. Þess vegna verður aldrei friður um Ríkisútvarpið ohf. í fyrirhugaðri mynd, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.
2.11.2006
Er viðskiptahallinn ofmetinn?
Raunverulegt ójafnvægi í utanríkisviðskiptum þjóðarinnar er minna en opinberar hagtölur gefa til kynna. Eignir Íslendinga í útlöndum hafa verið að aukast á undanförnum árum og skila jafnframt auknum tekjum, en varfærnar uppgjörsaðferðir gera það að verkum að áhrif eignaaukningarinnar virðast lítil. Væri hins vegar tekið tillit til gengishækkana hlutabréfa og hlutabréfasjóða, þá hefði viðskiptahalli síðasta árs verið tugum milljarða króna minni. Benda má á að fjórðungur hreinna eigna íslenskra lífeyrissjóða eru erlendar og hafa skilað ágætri ávöxtun án þess þó að skila sér inn í tekjur þjóðarbúsins. Viðskiptahallinn virðist því vera ofmetinn, a.m.k. á meðan markaðsverð erlendra hlutabréfa í eigu Íslendinga fer hækkandi.
2.11.2006
Einkarekstur og einfaldara regluverk í orkugeira
Nefnd iðnaðarráðherra um verndun og nýtingu orkuauðlinda virðist ekki koma auga á að það skortir einkarekstur á sviði orkumála. Reynslan kennir að þar sem einkaréttur og einkaeign ríkir á auðlindum umgangast menn þær af varúð og skynsemi og með langtímahagsmuni í huga. Þess vegna er mikilvægt að fulltrúar einkarekinna fyrirtækja og notenda þeirra gæða sem auðlindirnar skapa komi að frekari úrvinnslu á tillögum nefndarinnar. Jafnframt er afar mikilvægt að einfalda flókið ferli leyfisveitinga og umsagnarferla, en nú geta liðið meira en fimm ár frá umsókn um rannsóknarleyfi þar til fyrsta rannsóknarhola er boruð. Sömu umsagnaraðilar fjalla um málið allt að 20 sinnum.
1.11.2006
Ábyrgð á skattgreiðslum erlendra starfsmanna
Ábyrgð íslenskra fyrirtækja á endanlegri skattgreiðslu erlends starfsmanns er að áliti fjármálaráðuneytisins víðtækari en á skattgreiðslum íslenskra ríkisborgara. Samtök atvinnulífsins hafa mótmælt þessari lagatúlkun og skattaframkvæmd við fjármálaráðuneytið án þess það hafi borið nokkurn árangur. Samtökin hafa jafnframt farið fram á að skattayfirvöld setji fram skýrar leiðbeiningar til fyrirtækja um það hvernig skuli haga síðasta launauppgjöri við erlendan starfsmann sem er á förum frá landinu, þannig að þau geti varið sig gegn þessari skattaábyrgð löngu síðar.
1.11.2006
Viðskiptasendinefndir Útflutningsráðs 2007 – könnun
Á vettvangi Útflutningsráðs er nú unnið að undirbúningi viðskiptasendinefnda árið 2007. Liður í þeim undirbúningi er könnun þar sem íslenskum fyrirtækjum gefst kostur á að hafa áhrif á val ráðsins á áfangastöðum. Hægt er að taka þátt í könnuninni á vef Útflutningsráðs fram til 10. nóvember. Þátttaka í könnuninni er yfirlýsing um áhuga en ekki skuldbindandi á nokkurn hátt. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.











