Fréttir
28.2.2005
Skýrsla um skattsvik: niðurstöður á veikum grunni
Niðurstöður skýrslu starfshóps um umfang skattsvika hér á landi eru því miður á veikum grunni byggðar og geta því með engu móti myndað grundvöll að svo róttækum breytingum sem hópurinn leggur til, segir í umsögn SA. Virðist í raun sem tillögurnar séu óskalisti þeirra embættismanna sem starfs-hópinn skipuðu, en þær miða gjarnan að auknu eftirliti og valdheimildum til þeirra eigin embætta.
21.2.2005
Meirihluti vill léttvín og bjór í matvöruverslanir
Meirihluti þjóðarinnar vill geta keypt léttvín og bjór í matvöru-verslunum. Samkvæmt niðurstöðum í nýjum Þjóðarpúls Gallup eru 59% fullorðinna Íslendinga hlynnt afnámi einkasölu ríkis-ins á smásölu léttvíns og bjórs. Þessi niðurstaða er sambæri-leg við fimm aðrar sambærilegar kannanir sem gerðar hafa verið síðastliðin fimm ár. Sjá nánar á vef SVÞ.
18.2.2005
Aðkoma lífeyrissjóða að uppbyggingu sprotafyrirtækja
Það þýðir ekki að höfða til samvisku lífeyrissjóða þegar þeim eru kynnt fjárfestingartækifæri. Hlutverk þeirra er að ávaxta sitt pund og greiða lífeyri. Þetta kom fram í máli Ara Edwald framkvæmdastjóra SA á sprotaþingi, þar sem hann fjallaði um aðkomu lífeyrissjóða að uppbyggingu sprotafyrirtækja. Ari sagði þó að langtímasjónarmið lífeyrissjóða hlytu að meta einhvers sköpun framtíðarfjárfestinga, störf og iðgjöld. Hann sagði eðlilegt lagaumhverfi skorta hér á landi fyrir slíkar fjárfestingar.
18.2.2005
Hættulega rangur skilningur á kapítalismanum
Talsmenn aukinnar félagslegrar ábyrgðar fyrirtækja eiga það sameiginlegt að byggja á hættulega röngum skilningi á kapítalismanum, segir í leiðara vikuritsins Economist. Heiðar-leg fyrirtæki sem virða lög og reglur og starfa á samkeppnis-markaði þjóna stöðugt almannahag, án þess þó að hafa það beinlínis að markmiði. Skaðleg góðvild er algeng niðurstaða áherslu á aukna félagslega ábyrgð.
16.2.2005
Nýta megi endurnýtanlegar orkulindir
Mikilvægt er að skuldbindingar um minnkun á losun gróður-húsalofttegunda nái til fleiri ríkja en nú er, þar á meðal til Bandaríkjanna og landa á borð við Indland og Kína. Þá er afar mikilvægt að Íslendingar og aðrir fái áfram að nýta endur-nýtanlegar orkulindir. Þetta er meðal þess sem fram komi í máli Péturs Reimarssonar frá SA á málþingi um Kyoto-bókunina.
15.2.2005
Virði ferðaþjónustunnar
Samtök ferðþjónustunnar halda málþing um virði ferða-þjónustunnar og fjárfestingar, fimmtudaginn 17. febrúar nk. frá kl 9 til 12 á Hótel Nordica, ráðstefnusölum 2. hæð. Sjá dagskrá á vefsíðu SAF.
12.2.2005
3% atvinnuleysi í janúar
Í janúar voru skráðir 91.369 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.352 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3% af áætluðum mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,7% í desember sl. og 3,7% í janúar 2004.
10.2.2005
Framtíð og forsendur sprotafyrirtækja
8.2.2005
Námskeið um ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlana
Föstudaginn 18. febrúar stendur Staðlaráð fyrir námskeiði um lykilatriði, uppbyggingu og notkun ISO 9000 gæðastjórnunar-staðlanna. Markmið námskeiðsins er m.a. að þátttakendur þekki hvernig hægt er að beita stöðlunum við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi. Sjá nánar á vef Staðlaráðs.
7.2.2005
Endurskoða þarf hlutverk Íbúðalánasjóðs
Bæði Seðlabankinn og SA hafa ítrekað bent á að í stað þess að hækka almenn lán Íbúðalánasjóðs væri fyllsta þörf á að endurskoða hlutverk sjóðsins, en hækkun húsnæðisverðs skýrir um helming allrar hækkunar vísitölu neysluverðs síðustu 12 mánuði. Ríkið er þarna í mótsagnarkenndu hlutverki, þar sem Íbúðalánasjóður keppir um útlán við fyrirtæki á frjálsum markaði á meðan Seðlabankinn eykur aðhald peninga-stefnunnar með hækkun stýrivaxta.
3.2.2005
Sporna þarf gegn ofþenslu
Uppsagnir á Stöðvarfirði og í Þorlákshöfn vitna um almenna þróun starfsskilyrða segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir að staðan sé alvarleg og að huga þurfi vandlega að öllum leiðum til að draga úr þenslu.
3.2.2005
Aukin fjárfestingaráform fyrirtækja
Fleiri fyrirtæki hyggjast auka fjárfestingar sínar á árinu en á sama tíma í fyrra, eða rúmur fjórðungur. Tæpur helmingur hyggst fjárfesta álíka mikið og árið áður en rúmur fjórðungur hyggst fjárfesta minna. Þetta er talsverð breyting frá í fyrra. Mikill samdráttur er í fjárfestingum í sjávarútvegi en aukningin er mest í verslun og þjónustu. Fyrirtæki á landsbyggðinni hyggjast draga úr fjárfestingum en vænst er meiri fjárfest- inga á höfuðborgarsvæðinu.
3.2.2005
Hvenær eru störf jafn verðmæt og sambærileg?
Í nýlegum dómi telur Hæstiréttur Akureyrarbæ ekki hafa tekist að sanna að hlutlægar og málefnalegar ástæður hafi ráðið mismun starfskjara tveggja launþega. Mismunandi kjara-samningar geti ekki einir sér réttlætt mismun starfskjara kvenna og karla í skilningi jafnréttislaga. Dómurinn gefur hins vegar ekki einhlítt svar við spurningunni um hvenær störf séu jafn verðmæt og sambærileg og því hæpið að draga of víðtækar ályktanir um þýðingu þessa dóms.
3.2.2005
Versnandi afkoma í fiskvinnslu
Framlegð fiskvinnslufyrirtækja hefur að meðaltali lækkað úr tæpum 9% árið 2003 í tæp 4% í janúar á þessu ári, fyrir fjármagnsliði, samkvæmt lauslegri athugun SA. Líklegt verður því að telja að við núverandi aðstæður sé meirihluti fisk-vinnslufyrirtækja rekinn með tapi og ljóst að greinin mun áfram eiga verulega undir högg að sækja við óbreytt eða enn hærra gengi krónunnar.
1.2.2005
Nýr málefnahópur SA: rannsóknir og nýsköpun
Settur hefur verið á fót nýr málefnahópur á vettvangi SA, um rannsóknir og nýsköpun. Alls eru því tíu málefnahópar sam-takanna að störfum við undirbúning aðalfundar SA 3. maí nk. Málefnastarfið er opið öllum aðildarfyrirtækjum og aðildar-félögum SA og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig til þátttöku. Sjá nánar um hópana og skráningu.











