Fréttir
28.5.2004
Samið við bókagerðarmenn
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Félags bókagerðarmanna. Samningurinn gildir til ársloka 2007. Almennar launahækkanir og hækkanir á lífeyrisframlögum eru þær sömu og í fyrri samningum SA. Þá eru kauptaxtar bókagerðarmanna færðir nær greiddum launum á svipaðan hátt og gert hefur verið í öðrum samningum.
28.5.2004
Samið við lyfjafræðinga
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Lyfjafræðingafélags Íslands vegna apóteka. Samningurinn gildir til ársloka 2007. Samningurinn kveður á um 3,25% upphafshækkun frá 1. júní. Hækkanir á lífeyrisframlögum eru þær sömu og í fyrri samningum SA og samningsforsendur taka jafnframt mið af fyrri samningum.
28.5.2004
Morgunverðarfundur um veikindafjarvistir 4. júní
Föstudaginn 4. júní stendur Vinnueftirlitið fyrir morgunverðar-fundi um veikindafjarvistir, með stuðningi SA o.fl. Fundurinn er m.a. ætlaður stjórnendum fyrirtækja og starfsmannastjórum og hann ávarpa m.a. tveir sænskir prófessorar. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.
28.5.2004
Skemmra komin í markvissri mannauðsstjórnun
Markviss mannauðsstjórnun er skemmra á veg komin hér á landi en í samanburðarlöndunum, skv. fjölþjóðlegri könnun HR o.fl. sem gerð var með stuðningi SA. Þó er ljóst að miklar framfarir hafa orðið á síðustu árum, ekki síst á sviði upplýs-ingamiðlunar til starfsmanna og frá starfsmönnum til stjórnenda.
26.5.2004
Saga verslunar á Íslandi
Í tilefni af fimm ára afmæli SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu, hefur Lýður Björnsson sagnfræðingur tekið saman Sögu verslunar á Íslandi, og er hún vistuð á vef SVÞ (pdf-skjal).
24.5.2004
Viðskiptasendinefnd til Seattle og Alaska
Útflutningsráð hefur frestað för sendinefndar til Seattle og Alaska til september. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra mun fara fyrir nefndinni, en megináherslan verður lögð á sjávarútveg, þ.e. útgerð, fiskvinnslu og fiskeldi. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.
19.5.2004
Kynning á samningi við verslunarmenn
Kynningarfundir um kjarasamning SA við verslunarmenn verða haldnir í húsakynnum samtakanna í Borgartúni 35 mánu-daginn 24. maí kl. 14:00 og miðvikudaginn 26. maí kl. 10:00. Félagsmönnum er bent á að skrá sig í síma 591 0000 eða senda tölvupóst á sa@sa.is og tilgreina nafn, fyrirtæki og tíma.
19.5.2004
Skiptir aldur máli?
Lítil tengsl eru á milli vanda á vinnumarkaði og aldurs. Fátt bendir til að aldurinn skipti máli, en þá almennt séð fremur að hærri aldur sé til hagsbóta viðkomandi fremur en hitt. Þetta var niðurstaða Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðar-framkvæmdastjóra SA, í erindi á ráðstefnu um stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði.
17.5.2004
Samið við Alþýðusamband Austurlands
Undirritaður hefur verið sérkjarasamningur vegna vinnu í fiskimjölsverksmiðjum á Austurlandi. Samningurinn er hluti af aðalkjarasamningi Starfsgreinasambandsins og SA.
16.5.2004
Ráðstefna um stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði
Miðvikudaginn 19. maí stendur áhugahópur um atvinnumál miðaldra fólks fyrir ráðstefnu um stöðu þess fólks á vinnu-markaði, í samvinnu við SA o.fl. Ráðstefnan verður haldin í Kiwanishúsinu Engjateigi 11 og hefst kl. 13. Sjá nánar á vef Vinnumálastofnunar.
14.5.2004
Borgin hættir sorphirðu hjá fyrirtækjum
Borgarráð hefur samþykkt að Reykjavíkurborg hætti sorphirðu hjá fyrirtækjum og stofnunum frá og með 1. janúar 2005, líkt og nokkur nágrannasveitarfélög borgarinnar hafa gert. Eru fyrirtæki í borginni því hvött til að leita til sorphirðufyrirtækja á almennum markaði tímanlega fyrir næstu áramót. Sjá nánar á vef borgarinnar.
13.5.2004
Olíugjaldsfrumvarpi mótmælt
Einhugur ríkir meðal þeirra sem reka atvinnubíla um að frumvarp um olíugjald og kílómetragjald o.fl. sé meingallað og feli í sér bæði aukna og flóknari skattheimtu sem ekkert tengist markmiðum frumvarpsins um að gera rekstur smærri dísilbifreiða hagkvæmari. Samtök í atvinnulífi mótmæla frumvarpinu.
13.5.2004
Kynnt úthlutun úr starfsmenntasjóði
Kynnt hefur verið úthlutun úr starfsmenntasjóði félagsmálaráðuneytisins til starfsmenntunar í atvinnulífinu, en alls var rúmum 55 milljónum króna úthlutað til 55 verkefna. Meðal þeirra sem hlutu styrk voru SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu sem fengu kr. 2,5 milljónir til námsbrautar fyrir verslunarfólk. Sjá nánar á vef Starfsmenntaráðs.
13.5.2004
Ekki varanleg hækkun á vísitölu neysluverðs
Hækkun vísitölunnar er að hluta til áhyggjuefni en að hluta til markast þetta af röð tilviljana, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið um hækkun vísitölu neysluverðs. Hann segist ekki telja að um sé að ræða varanlega hækkun verðbólgunnar.
12.5.2004
Samið við skipstjórnarmenn á kaupskipum
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Félags skipstjórnarmanna um kaup og kjör skipstjóra og stýrimanna á kaupskipum í millilandasiglingum. Samningurinn gildir til ársloka 2007 og eru almennar launahækkanir, kjarabreytingar og samningsforsendur þær sömu og í fyrri samningum SA.
11.5.2004
Umhverfisverðlaun Reykjavíkurborgar – tilnefningar?
Borgarstjórinn í Reykjavík auglýsir eftir tilnefningum til Umhverfisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2004, sem veitt er fyrirtæki eða stofnun sem leitast við að haga rekstri sínum eða einstökum rekstrarþáttum í samræmi við grunnregluna um sjálfbæra þróun. Tilnefningum ber að skila Umhverfis- og heilbrigðisstofu eigi síðar en 15. maí 2004. Sjá nánar á vef stofunnar.
7.5.2004
Samið við vélstjóra vegna kaupskipa
Undirritaður hefur verið kjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og Vélstjórafélags Íslands um kaup og kjör á kaupskipum. Samningurinn gildir til ársloka 2007. Almennar launahækkanir, hækkanir á lífeyrisframlögum og samningsforsendur eru þær sömu og í fyrri samningum SA.
6.5.2004
Samspil aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda
Þríhliða samskipti aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda eru enn mjög mikilvæg, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Eðlisbreyting hafi þó orðið á samskiptum þessara aðila. Kúvending efnahagsstefnu eða íhlutun í stjórn efnahagsmála séu sem betur fer ekki umræðuefni lengur í tengslum við gerð kjarasamninga.
6.5.2004
Dýrar kvaðir á apótekum
Vegna umræðunnar um hátt lyfjaverð á Íslandi er fróðlegt að skoða ýmsar ákvarðanir yfirvalda sem eru íþyngjandi fyrir rekstur apóteka. Þannig skulu þau alltaf mönnuð tveimur lyfjafræðingum, en í Danmörku nægir lyfjatæknir. Þá má starfsfólk þeirra ekki samnýta inngang, búnings-, salernis- eða kaffiaðstöðu með öðrum. Þarna er á ferðinni óþarfa reglubyrði og óþarfa kostnaður sem neytandinn ber á endanum.
6.5.2004
Fjármagnsmarkaðurinn er samkeppnisstofnun hins frjálsa markaðar
Greinar, þar sem hagnaður er mikill, draga til sín fjármagn og samkeppni. Fjármagnsmarkaðurinn er því samkeppnisstofnun hins frjálsa markaðar. Þetta kemur fram í ritgerð eftir Alan Greenspan, núverandi seðlabankastjóra Bandaríkjanna, sem vitnað er til í nýrri skýrslu GJ fjármálaráðgjafar um viðhorf í samkeppnismálum. Skýrsluhöfundur telur sterk rök fyrir afnámi samkeppnislaga.
5.5.2004
Ársskýrsla SA 2003 - 2004
Ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2003-2004, sem dreift var á aðalfundi samtakanna 4. maí, má nálgast hér á vef samtakanna. Í skýrslunni er að finna ítarlega umfjöllun um starfsemi SA, efnahagsmál, kjaramál o.fl. Sjá ársskýrslu SA (pdf-skjal).
4.5.2004
Víða má hagræða í opinberu eftirliti
Víða er svigrúm til hagræðingar á sviði eftirlits með atvinnustarfsemi, sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, þegar hann kynnti nýja skýrslu samtakanna um eftirlit með atvinnustarfsemi og tillögur til úrbóta. Sameina mætti eftirlit, samræma framkvæmd, sameina leyfisveitingar, auka umbun fyrir virkt innra eftirlit fyrirtækja og lækka kostnað.
4.5.2004
Fyrirtæki setja siðferðisleg viðmið á oddinn
Fyrirtæki leggja vaxandi áherslu á að skapa sér þá ímynd að þau setji siðferðisleg viðmið á oddinn. Öðru vísi njóti þau ekki trausts almennings, neytenda og mögulegs framtíðar-starfsfólks. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Görans Trogen, framkvæmdastjóra hjá sænsku samtökum atvinnu-lífsins, í erindi hans á aðalfundi SA.
4.5.2004
Skattar fyrirtækja verði ekki yfir 15%
Ef við viljum halda forystuhlut okkar á sviði skattamála eigum við að stefna að því að skattar á fyrirtæki verði ekki yfir 15% í framtíðinni, sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra í ræðu sinni á aðalfundi SA. Hann sagði SA gegna lykilhlutverki í íslensku atvinnulífi og benti á hversu stóran þátt þau ásamt viðsemjendum eiga í þeim stöðugleika sem nú ríkir í atvinnulífi þjóðarinnar.
4.5.2004
Stöðugleiki mikilvægasta framlagið
Mikilvægasta framlag stjórnvalda til kjarasamningagerðar hefur undanfarinn rúman áratug verið fólgið í stöðugleika, sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna. Sagði hann áherslur í samskiptum aðila vinnumarkaðar við stjórnvöld hafa tekið miklum breytingum frá því árið 1990, þegar forsenda fyrir gerð kjarasamninga var, að aðilar vinnumarkaðarins tækju höndum saman við stjórnvöld um mótun nýrrar efnahagsstefnu.
4.5.2004
Ingimundur Sigurpálsson endurkjörinn formaður SA
Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu formanns samtakanna.
4.5.2004
Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins
Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2004 til 2005. Ný koma inn í stjórnina þau Björgólfur Jóhannsson Síldar-vinnslunni, Brynjólfur Bjarnason Landssímanum, Finnur Ingólfsson Vátryggingafélagi Íslands, Grímur Sæmundsen Bláa lóninu, Hjörleifur Jakobsson Olíufélaginu, Hreiðar Már Sigurðsson KB banka, Jens Pétur Jóhannson Rafmagns-verkstæði Jens Péturs, Kristín Jóhannesdóttir Baugi Group og Kristján Björn Garðarsson Kísiliðjunni.
3.5.2004
Eitt matvælaþrep í VSK og afnám vörugjalda
Áformað er að gera breytingar á virðisaukaskatti á kjörtímabilinu. Æskilegt væri að afnema vörugjöld af matvælum, skattleggja öll matvæli í sama þrepi og lækka VSK á matvæli í t.d. 12%. Þetta myndi hafa í för með sér 5,3 milljarða króna tekjutap fyrir ríkissjóð miðað við forsendur ársins 2002.











