Fréttir
27.2.2004
Stækkun EES: um 1% myndi hyggja á flutning
Eitt prósent íbúa væntanlegra aðildarríkja ESB og EES myndu hyggja á flutning til einhvers af núverandi aðildarríkjum á næstu fimm árum eftir stækkun, ef þeir hefðu frjálsan aðgang að vinnumarkaði ríkjanna, skv. könnun ESB. Reynslan segir að það yrðu færri í raun. ESB segir áhyggjur af miklum fólksflutn-ingum vegna stækkunarinnar ekki eiga við rök að styðjast.
27.2.2004
Ölgerðin fékk viðurkenningu ICEPRO
ICEPRO, samstarf um rafræn viðskipti, veitir í ár Ölgerð Egils Skallagrímssonar hf. ICEPRO-verðaunin fyrir góðan árangur og markvissa stefnu á sviði rafrænna viðskipta.
27.2.2004
Kaupmáttur jókst um 2,5%
Á tímabilinu frá 4. ársfjórðungi 2002 til 4. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,1%. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,6%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 2,5%. Laun kvenna hækkuðu um 6,1% en karla um 4,7%. Sjá nánar í fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar.
25.2.2004
Stjórnunarhættir hlutafélaga – fundur 3. mars
Háskólinn í Reykjavík og LOGOS standa fyrir morgunverðar-fundi miðvikudaginn 3. mars, þar sem fjallað verður um stjórnunarhætti í hlutafélögum, m.a. út frá aðgerðum framkvæmdastjórnar ESB. Erindi flytja Áslaug Björgvinsdóttir, dósent við lagadeild HR, og dr. Jan Schans Christensen, prófessor í félagarétti við lagadeild Háskólans í Kaupmannahöfn.
25.2.2004
Hádegisfundur um Evrópufélög 2. mars
Þriðjudaginn 2. mars standa Háskólinn í Reykjavík, SA og LOGOS fyrir hádegisfundi um Evrópufélög – nýtt hlutafélaga-form. Erindi flytja dr. Jan Schans Christensen, prófessor í félagarétti við lagadeild Háskólans í Kaupmannahöfn, og Jón Ögmundur Þormóðsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu.
25.2.2004
Einelti á vinnustað
Regnbogabörn hafa hafið samstarf við Brynju Bragadóttur, doktor í heilsusálfræði. Hún heimsækir m.a. vinnustaði og heldur fyrirlestra fyrir starfsfólk. Markmiðin eru m.a. að upplýsa fólk um eðli og einkenni eineltis, og hjálpa fólki að taka á vandanum. Sjá nánar á vef Regnbogabarna.
25.2.2004
ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlar – námskeið 11. mars
Fimmtudaginn 11. mars stendur Staðlaráð fyrir námskeiði um lykilatriði, uppbyggingu og notkun ISO 9000 gæðastjórnunar-staðlanna. Sjá nánar á vef Staðlaráðs.
24.2.2004
European Business Summit 11.-12. mars
Dagana 11.-12. mars standa ESB, UNICE o.fl. fyrir European Business Summit í Brussel, þar sem forystumenn úr atvinnulífi og stjórnmálum munu fjalla um rannsóknir og nýsköpun sem leið til bættrar samkeppnishæfni álfunnar. Meðal ræðumanna verða Romano Prodi og Dr. Jürgen Strube. Aðildarfyrirtæki SA fá 50% afslátt af þátttökugjaldi.
24.2.2004
Auðvelda leit erlendra samstarfsaðila í starfsmenntum
Landsskrifstofa Leonardó og Mennt eru að undirbúa upp-setningu gagnabanka um íslenska aðila sem hafa áhuga á evrópsku samstarfi undir merkjum Leonardó starfsmennta-áætlunar ESB. Tilgangurinn er að flýta fyrir leit íslenskra sem erlendra aðila að samstarfsaðilum. Sjá nánar á vef Menntar.
20.2.2004
Löng leið erlends starfsfólks
Á málþingi Alþjóðahúss, SA o.fl. um mannauð innflytjenda fjallaði
19.2.2004
Verðmætamat í raforkuflutningskerfinu byggist á arðsemi
Í bókun fulltrúa SA í nefnd iðnaðarráðherra um fyrirkomulag flutnings raforku er áhersla lögð á að mat á verðmæti eigna í flutningskerfinu byggist á arðsemi en ekki stofnkostnaði. Þá er meðal annars tekið fram að opinber stuðningur við tiltekna raforkunotendur eigi að vera eins gegnsær og unnt sé.
18.2.2004
Vísað til sáttasemjara
Samkomulag hefur náðst um það milli Samtaka atvinnulífsins annars vegar og Starfsgreinasambandsins og Flóabanda-lagsins hins vegar, að vísa kjaraviðræðum aðilanna til ríkissáttasemjara, í því skyni að koma viðræðunum um þá liði sem ekki hafa verið afgreiddir í ákveðnari farveg og skerpa á þeim.
18.2.2004
Danmörk: hálf milljón vill ekki vinna
Einungis fjórðungur Dana á aldrinum 30-66 ára sem ekki eru í vinnu vilja fá vinnu. Samkvæmt könnun dönsku hagstofunnar eru 656.000 Danir á aldrinum 30-66 ára ekki í vinnu. Af þeim vilja hins vegar einungis 147.000 fá vinnu, eða 22%. Áhuginn á að fá vinnu fer lækkandi með hækkandi aldri.
18.2.2004
Mannauður innflytjenda
Alþjóðahús efnir til morgunverðarmálþings um mannauð innflytjenda, í samvinnu við Samtök atvinnulífsins, ASÍ og félagsmálaráðuneytið, föstudaginn 20. febrúar kl. 8-10, í Iðnó.
18.2.2004
Þjónustugjöldin lægst hér á landi
Í nýrri skýrslu GJ Fjármálaráðgjafar fyrir Samtök banka og verðbréfafyrirtækja er borinn saman kostnaður almennings af þjónustu banka og sparisjóða í fjórum löndum, Danmörku, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Árleg gjöld meðalneytanda á Íslandi af þjónustu banka og sparisjóða eru samkvæmt könnuninni 3.172 kr., en 13.205 kr. að jafnaði í hinum löndunum.
17.2.2004
Boðin út verkefni fyrir 54 milljarða
Útboðsþing Samtaka iðnaðarins og Félags vinnuvélaeigenda var haldið á dögunum. Þar var kynnt yfirlit yfir öll helstu útboð verklegra framkvæmda á vegum ríkisins, Reykjavíkurborgar og Kópavogs á þessu ári. Ætla má að alls verði boðin út verkefni fyrir tæpa 54 milljarða á vegum þessara aðila á árinu. Sjá nánar á vef SI.
13.2.2004
Fimm ráð til að varast búðarþjófnaði
Á vef SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu er að finna fimm heilræði til að varast rán og þjófnaði, eða lágmarka áhrif þeirra. Fram kemur að mikilvægast sé að fara rækilega í gegnum þær hættur sem kunna að steðja að og haga skipulagi starfseminar í samræði við það. Sjá nánar á vef SVÞ.
13.2.2004
3,7% atvinnuleysi í janúar
Í janúar sl. voru skráðir 111.880 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 5.088 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá, eða 3,7% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Atvinnu-leysið jókst úr 3,1% frá desember, en var ívið minna en í janúar 2003, þegar það var 3,8%.
12.2.2004
Góðar vísbendingar í ferðaþjónustu
Árið 2003 voru gistinætur á hótelum 10% fleiri en árið áður, eða 880 þúsund í stað 802 þúsund árið 2002. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum. Þá fjölgaði erlendum ferða-mönnum sem fóru um Keflavíkurflugvöll um tæp 30% miðað við janúar 2003. Þetta gefur góðar vísbendingar fyrir árið 2004, að því er fram kemur á vef SAF.
10.2.2004
Lágmarkskröfur með lágmarkstilkostnaði
Mikið fjölmenni var á opnum fundi SA um vernd skipa, farms og farþega, þar sem fjallað var um væntanlega löggjöf um vernd gegn hryðjuverkum o.fl., og áhrif hennar, eftirlit, kostnað, umsýslu o.s.frv. Almenn samstaða var um að uppfylla yrði alþjóðlegar lágmarkskröfur, en jafnframt um að halda yrði kostnaði og umstangi vegna þessa í lágmarki.
10.2.2004
Brotnir hlekkir á vef SA
Vegna tæknilegra breytinga sem gerðar hafa verið á vef Samtaka atvinnulífsins er nokkuð um brotna hlekki („linka“) á vefnum en unnið er að lagfæringu á því. Þá er notendum vefsins bent á að huganlega þurfa þeir að uppfæra hjá sér favourites, sem og hlekki á eigin vefsíðum yfir á vef SA.









