Fréttir
30.11.2004
Allt að 1.800 ný atvinnuleyfi
Á næstu þremur árum mun þurfa að gefa út á bilinu 1.300 til 1.800 atvinnuleyfi vegna fyrirhugaðra stóriðju- og virkjana-framkvæmda, að öllum líkindum frekar þó í hærri kantinum. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu Vinnumálastofnunar um mannaflaþörf við stóriðju- og virkjanaframkvæmdir á árunum 2005 til 2007.
29.11.2004
Desemberuppbót
Starfsmenn sem hafa verið í fullu starfi allt árið hjá sama fyrirtæki og eru við störf í fyrirtækinu síðustu viku í nóvember eða í fyrstu viku desember skulu eigi síðar en 15. desember fá greidda sérstaka eingreiðslu, desemberuppbót, sem er kr. 38.500 hjá flestum starfsgreinum nema verslunarmönnum, en þar hefur uppbótin verið ákveðin kr. 43.700. Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA.
25.11.2004
Viðskipti í Úganda, Brasilíu, Úkraínu...?
Útflutningsráð er að undirbúa verkefnaáætlun hvað varðar viðskiptasendinefndir næsta árs. Á vef ráðsins geta fyrirtæki tekið þátt í einfaldri skoðanakönnun í þeim tilgangi að kanna hvar áhugi íslenskra fyrirtækja liggur í þessum efnum. Meðal annars eru til skoðunar ferðir viðskiptasendinefnda til Úganda, Brasilíu og Úkraínu. Sjá nánar á vef ráðsins.
23.11.2004
Stór hópur án framhaldsmenntunar
Ef skoðaðir eru 22 ára og yngri, miðað við árið 2000, kemur í ljós að hér á landi höfðu 55% lokið framhaldsskóla, en meðal-talið innan EES voru 75%. Hæst var hlutfallið hins vegar í Noregi, tæp 97%. Þetta kom fram í ávarpi Gústafs Adolfs Skúlasonar, formanns stjórnar Fræðslumiðstöðvar atvinnu-lífsins, á ársfundi hennar.
22.11.2004
Hlutverk Íbúðalánasjóðs verði endurskilgreint
Sú staða að ríkið er komið í beina samkeppni við einkafyrirtæki á frjálsum markaði sem eru fær um að sinna þörfum lang flestra þeirra sem hyggjast fjárfesta í íbúðarhúsnæði hlýtur að stuðla að því að hlutverk Íbúðalánasjóðs verði endurskilgreint og að ríkið dragi úr lánveitingum til íbúðakaupenda, segir m.a. í umsögn SA um frumvarp til laga um húsnæðismál.
20.11.2004
Skattbreytingar í samræmi við gefin fyrirheit
Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við frétta-stofu Ríkisútvarpsins að þær skattbreytingar sem ríkisstjórnin hefur kynnt séu eðlilegar skipulagsbreytingar á skattkerfinu og í samræmi við gefin fyrirheit. Breytingunum sé stefnt gegn jaðaráhrifum sem séu mikil í skattkerfinu og jafnframt séu skattleysismörk aukin sem og stuðningur við barnafólk.
19.11.2004
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 23. nóv.
Þriðjudaginn 23. nóvember verður haldinn fyrsti ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á hótel Nordica. Fjallað verður um raunfærnimat og er það jafnframt þema veglegs ársrits FA sem dreift verður á fundinum. Meðal ræðumanna verða Jón Björnsson forstjóri Haga hf. og Jón Sigurðsson bankastjóri Seðlabanka Íslands. Sjá nánar á vefsíðu FA.
18.11.2004
ISS Ísland og Landsvirkjun hlutu „Lóð á vogarskálina“
Viðurkenningin „Lóð á vogarskálina“ var í ár veitt ISS Íslandi úr flokki fyrirtækja á almennum markaði og Landsvirkjun úr flokki opinberra stofnana og fyrirtækja í opinberri eigu. Viðurkenningin er veitt fyrir framlag sem stuðlar að sam-ræmingu vinnu og einkalífs í orði og verki. Sjá nánar á vef Hins gullna jafnvægis.
17.11.2004
FA semur við símenntunarmiðstöðvarnar
Undirritaður hefur verið samstarfssamningur milli Fræðslu-miðstöðvar atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðvanna á landsbyggðinni, sem ætlað er að stuðla að því að fólk á vinnumarkaði með litla grunnmenntun fái betri tækifæri til að afla sér menntunar. Aðilar munu m.a. byggja upp sameigin-legt gæðakerfi með það að markmiði að votta gæði fræðslu-aðila utan hins hefðbundna skólakerfis. Sjá nánar á vefsíðu FA.
16.11.2004
Kaupmáttur jókst um 1,3%
Regluleg laun á almennum vinnumarkaði hækkuðu að meðal- tali um 4,9% milli 3. ársfjórðungs 2003 og 3. ársfjórðungs 2004. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 3,6%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 1,3%. Laun kvenna hækkuðu um 5,9% en karla um 4,5%. Laun á höfuðborgarsvæði hækkuðu um 4,8% en laun utan höfuðborgarsvæðis um 5,2%. Sjá nánar í fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar.
16.11.2004
Samræming vinnu og einkalífs í fjölmenningarsamfélagi
Miðvikudaginn 17. nóvember stendur Hið gullna jafnvægi fyrir ráðstefnu um samræmingu vinnu og einkalífs í fjölmenningar-samfélagi, á Nordica hótel. M.a. verður fjallað um útrás og mannauðsstjórnun og innflytjendur á íslenskum vinnu-markaði. Þá verður afhent viðurkenningin Lóð á vogarskálina fyrir framlag sem stuðlar að samræmingu vinnu og einkalífs. Sjá nánar á vef hgj.
15.11.2004
Kjaraviðræðum við blaðamenn frestað
Samkomulag hefur náðst um að fresta kjaraviðræðum við blaðamenn til haustsins 2005 og muni friðarskylda gilda til 20. nóvember 2005. Í tengslum við undirritun nýrrar viðræðu-áætlunar þess efnis hefur m.a. orðið að samkomulagi að laun blaðamanna hækki um 3,0% frá og með 1. nóvember 2004 og breyting verði á greiðslum í lífeyrissjóð 1. janúar 2005 eins og hjá þeim starfsstéttum sem samið hefur verið við á árinu.
14.11.2004
2,7% atvinnuleysi í október
Í októbermánuði voru skráðir 81.459 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 3.880 manns hafi að meðal-tali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 2,7% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis um mannafla á vinnumarkaði. Til samanburðar mældist atvinnuleysið 2,6% í september sl. og 2,8% í október 2003. Að mati Vinnumála-stofnunar er líklegt að atvinnuleysið aukist lítils háttar í nóvember og verði 2,7-3,0%.
12.11.2004
Íslandi lýst sem efnahagslegri „vin“
Árangur Íslands á sviði efnahagsmála er til umfjöllunar í grein á vef sænsku samtaka atvinnulífsins og er landið sagt efna-hagsleg „vin“ og öðrum til eftirbreytni. Fjallað er um hvernig Ísland hefur færst upp lista þjóða þegar borin er saman landsframleiðsla á íbúa og framfarirnar hérlendis þakkaðar umbótum á borð við einkavæðingu bankanna, skatta-lækkunum og kvótakerfinu, þ.e. markaðslausnum.
11.11.2004
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins 23. nóv.
Þriðjudaginn 23. nóvember verður haldinn fyrsti ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á hótel Nordica. Fjallað verður um raunfærnimat og er það jafnframt þema veglegs ársrits FA sem dreift verður á fundinum. Meðal ræðumanna verða Jón Björnsson forstjóri Haga hf. og Jón Sigurðsson bankastjóri Seðlabanka Íslands. Sjá nánar á vefsíðu FA.
11.11.2004
Þrýstingur vex á að flytja starfsemi úr landi
Forsvarsmenn breskra fyrirtækja segja þrýsting fara vaxandi í þá veru að hluti starfseminnar verði færður úr landi þangað sem launakostnaður er lægri og reglubyrði minni. Á móti kemur að önnur störf skapast innan Bretlands sem krefjast sérhæfingar og því mun þessi þróun stuðla að aukinni framleiðni, arðsemi og hagvexti, að mati fyrirtækjastjórnenda.
10.11.2004
Samræming vinnu og einkalífs í fjölmenningarsamfélagi
8.11.2004
Hvatt til hófs við gjaldtöku heilbrigðiseftirlits
Í athyglisverðri ræðu sem umhverfisráðherra flutti á fundi Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á dögunum vakti hún athygli á að eftirlits- og sýnatökugjöld eru áberandi mismunandi í mörgum tilvikum. Hvatti hún til að málið yrði skoðað vel og að hófs verði gætt við gjalddtökuna. Þá sagðist ráðherra telja eðlilegast að matvælaeftirlit heyrði undir eitt ráðuneyti og eina ríkisstofnun.
8.11.2004
Viðskiptasérleyfi – Markaðstækifæri morgundagsins
Miðvikudaginn 10. nóvember, kl. 8:30 til 10:00, halda Samtök verslunar og þjónustu fund á Grand Hótel Reykjavík um við-skiptasérleyfi (franchise). Meðal annars verður stutt kynning á erlendum aðilum sem leita að íslenskum sérleyfistökum. Sjá nánar á vef SVÞ.
4.11.2004
Þungar refsingar vegna skattalagabrota – breytinga þörf
Gera verður kröfu um lágmarkssamræmi milli skattalagabrota og refsiviðurlaga, segir
4.11.2004
Stefnir í mikla framleiðniaukningu
Undanfarin misseri hefur starfandi fólki fækkað á vinnu- markaði samfara miklum hagvexti þannig að nú stefnir í 6% framleiðniaukningu í ár. Þótt fækkun starfa sé áhyggjuefni þá er þessi mikla framleiðniaukning mjög ánægjuleg tíðindi. Kröftugur framleiðnivöxtur er lífsnauðsynlegur, ekki síst í heimi hnattvæðingar, þar sem samkeppni milli ríkja fer sífellt harðnandi. Aukin skilvirkni eykur arðsemi fyrirtækja og leiðir til aukinna fjárfestinga sem aftur skapa ný störf.
4.11.2004
Verslað með losunarkvóta
Innan ESB versla fyrirtæki nú með framseljanlega kvóta á losun koltvísýrings, sem úthlutað hefur verið fyrir árin 2005-2007, til undirbúnings Kyoto bókuninni sem tekur gildi árið 2008. Ísland er aðili að bókuninni en allar líkur eru á að landið uppfylli ákvæði hennar með almennum aðgerðum. Óvíst er hvort tilskipun ESB um kvótakerfi verður tekin upp í EES.
2.11.2004
Mótframlag í lífeyrissjóð í 7% um áramót
Um næstkomandi áramót mun mótframlag vinnuveitenda í samtryggingarsjóði lífeyrissjóða hækka úr 6% í 7% skv. flestum þeim kjarasamningum sem
1.11.2004
Aukið frelsi í þjónustuviðskiptum
ESB hyggst auka frelsi í þjónustuviðskiptum, sem þegar er til staðar í orði en ekki alltaf á borði, m.a. með því að festa í sessi gagnkvæma viðurkenningu á lögum og reglum á því sviði og draga þannig úr skriffinsku. Leyfi í einu landi verður leyfi í þeim öllum. Ástæða er til að taka fram að tilskipunin mun engin áhrif hafa á kjör erlends starfsfólks hér á landi, sem áfram verða skv. íslenskum lögum og kjarasamningum.









