Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

30.9.2003

Samkeppnin að aukast í íslensku atvinnulífi

Flest bendir til að samkeppni hafi aukist mikið í íslensku atvinnulífi, þótt rannsóknir séu af skornum skammti, sagði Guðrún Johnsen, hagfræðingur hjá SA, á morgunfundi Viðskipta- og hagfræðideildar HÍ. Bæði milljónamæringum og fyrirtækjum hefur fjölgað gífurlega undanfarin ár og verðlagsþróun styður ekki kenningar um neikvæð áhrif af fákeppni.

29.9.2003

Stytting náms til stúdentsprófs

SA fagna því að hreyfing sé að komast á styttingu náms til stúdentsprófs, sem verið hefur eitt helsta stefnumál samtakanna í menntamálum. Mikið þjóðhagslegt hagræði yrði af slíkri breytingu og hagsmunir atvinnulífsins af sumarvinnu skólafólks standa ekki í vegi fyrir lengingu skólaársins í þessu skyni, sé það gert fyrri hluta sumars.

26.9.2003

Jafnréttisviðurkenning 2003: tilnefninga óskað

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviður-kenningar fyrir árið 2003. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 1. október nk. Sjá nánar á heimasíðu Jafnréttisráðs.

25.9.2003

Vika nýsköpunar 29. september til 3. október

Viku nýsköpunar er ætlað að vekja íslensk fyrirtæki til umhugsunar um mikilvægi nýsköpunar og þróunarstarfs, vekja almenna umræðu um gildi nýsköpunar fyrir efnahagslífið og að kynna þann stuðning sem í boði er fyrir íslensk fyrirtæki til að stunda nýsköpun, rannsóknir og þróun. Sjá nánar á heimasíðu Iðntæknistofnunar.

25.9.2003

Frakkar hætta við styttingu vinnuvikunnar

Frakkar hyggjast breyta nokkurra ára gömlum lögum sem kveða á um 35 klst. vinnuviku. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun telja 67% þjóðarinnar að lögin hafi ekki náð meginmarkmiði sínu, að draga úr atvinnuleysi. Þá töldu svarendur að löggjöfin væri fyrirtækjum erfið og þvingaði þau jafnvel til að flytja starfsemi úr landi.

25.9.2003

Málþing um starfsskilyrði sprotafyrirtækja

Miðvikudaginn 1. október nk. standa Samtök iðnaðarins, ásamt hópi fyrirtækja, fyrir málþingi um starfsskilyrði sprotafyrirtækja. Málþingið er liður í Nýsköpunarvikunni sem hefst 29. september og lýkur 3. október. Sjá nánar á heimasíðu SI.

25.9.2003

Nýsköpunarstyrkir Starfsafls fyrir fyrirtæki

Starfsafl hefur ákveðið að veita tvo svokallaða nýsköpunarstyrki Starfsafls. Hvor um sig er að upphæð 500.000 kr. og er tilgangur þeirra að styðja við viðleitni fyrirtækja innan SA til að vinna að nýsköpun í símenntunarmálum starfsmanna sem aðild eiga að Flóabandalaginu. Umsóknarfrestur er til 1. desember. Sjá nánar á heimasíðu Starfsafls.

24.9.2003

Aðalfundur Samtaka fiskvinnslustöðva 3. október

Samtök fiskvinnslustöðva halda aðalfund sinn föstudaginn 3. október nk., í Skíðaskálanum í Hveradölum. Fjallað verður um sókn á erlend mið, samkeppni við Kína, þorskeldi o.fl. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, mun stýra pallborðsumræðum um ógnanir og tækifæri í íslenskum sjávarútvegi. Sjá nánar á heimasíðu SF.

23.9.2003

Jafnréttisviðurkenning 2003: tilnefninga óskað

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviður-kenningar fyrir árið 2003. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, hópar, fyrirtæki eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Tilnefningum skal skilað eigi síðar en 1. október nk. Sjá nánar á heimasíðu Jafnréttisráðs.

19.9.2003

Leonardó-styrkir: starfsþjálfun erlendis o.fl.

Viltu senda starfsmann í þjálfun erlendis? Ertu í samstarfi við aðra evrópska aðila í starfsmenntamálum? Lands-skrifstofa Leonardó á Íslandi lýsir eftir umsóknum um styrki í mannaskipta- og tilraunaverkefni Leonardo da Vinci starfsmenntaáætlunar ESB. Umsóknarfrestur er til 3. október 2003.

17.9.2003

Kaupmáttur jókst um 3,2%

Á tímabilinu frá 2. ársfjórðungi 2002 til 2. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,2%, samkvæmt niðurstöðum launakönnunar Kjararannsóknar-nefndar (KRN). Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,0% og samkvæmt því jókst kaupmáttur að meðaltali um 3,2%. Sjá nánar í fréttabréfi KRN.

15.9.2003

Vaxandi hlutfall langtíma atvinnuleysis

Í lok ágúst höfðu 1.493 einstaklingar verið á atvinnu-leysisskrá í 6 mánuði eða lengur, eða 32,8% af heildarfjölda atvinnulausra.  Þetta hlutfall var 24,4% í lok ágúst 2002. Sjá nánar á heimasíðu Hagstofunnar.

15.9.2003

Heimsviðskiptin misstu af tækifæri í Cancun

UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, lýsa yfir miklum vonbrigðum með að fundur WTO í Cancun skuli hafa farið út um þúfur. Samtökin lýsa áhyggjum af mögulegum áhrifum á framtíð WTO og hvetja öll aðildarríkin til að leggja sitt af mörkum til að framhald verði á Doha-samningalotu WTO um aukið frelsi í viðskiptum.

12.9.2003

Starfsmenntaverðlaunin til Eimskips, Eftirmenntunar vélstjóra og Verkmenntaskólans á Akureyri

Starfsmenntaverðlaunin í ár hljóta Eimskip í flokki fyrirtækja, Eftirmenntun vélstjóra í flokki skóla og fræðsluaðila og Verkmenntaskólinn á Akureyri í opnum flokki.

9.9.2003

Námskeið: ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir

Fimmtudaginn 25. september nk. stendur Staðlaráð fyrir námskeiði um ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlana, þar sem farið verður yfir lykilatriði, uppbyggingu og notkun. Sjá nánar á heimasíðu Staðlaráðs.

8.9.2003

Vika símenntunar hafin

Vika símenntunar verður haldin dagana 7.-13. september. Málþing, sérstakur símenntadagur í fyrirtækjum o.fl. er meðal þess sem verður á döfinni, en þema vikunnar að þessu sinni er „fjarnám og aðrar óhefðbundnar leiðir til náms.“ Sjá nánar á heimasíðu vikunnar.

5.9.2003

Samneyslan hækkar hér en lækkar á Norðurlöndum

Hlutfall samneyslu af landsframleiðslu hefur vaxið hratt hér á landi síðustu áratugi, en hefur hins vegar staðið í stað eða lækkað á hinum Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu OECD. Af Norðurlöndunum er hlutur samneyslunnar einungis hærri í Svíþjóð.

4.9.2003

Lifi samkeppnin

„Loksins, loksins er að myndast almennur skilningur á þeirri brýnu nauðsyn sem er á endurskoðun samkeppnislaga,“ segir Ari Edwald, framkvæmda- stjóri SA. Mikilvægt sé þó að betur verði vandað til verka en við síðustu endurskoðun laganna. Ari segir samkeppni hafa stóraukist í íslensku viðskiptalífi og að mikil tækifæri séu til lífskjarabóta með því að ljúka upp fyrir samkeppni þar sem hún er nú lítil eða engin.

4.9.2003

Bætt réttaröryggi fólks og fyrirtækja

Setja þarf samræmdar og skýrar framkvæmdarreglur fyrir þær stjórnvaldsstofnanir sem einhverra hluta vegna telja sig þurfa að sækja gögn inn á heimili fólks eða í fyrirtæki. Þetta er niðurstaða danskrar réttaröryggisnefndar sem danski dómsmálaráðherrann hefur gert að sinni.

4.9.2003

Íslensk fyrirtæki með í mótun Evrópulöggjafar

Íslensk fyrirtæki munu taka þátt í nýju rafrænu umsagnar-kerfi ESB um mótun nýrrar Evrópulöggjafar, fyrir milligöngu SA og aðildarfélaga. Þannig fá íslensk fyrirtæki tækifæri til að tjá sig á frumstigi um Evrópulöggjöf sem getur haft veruleg áhrif á rekstrarumhverfi þeirra eftir að hún er tekin upp í íslenska löggjöf í gegnun EES-samninginn.

4.9.2003

Lifi samkeppnin

„Loksins, loksins er að myndast almennur skilningur á þeirri brýnu nauðsyn sem er á endurskoðun samkeppnislaga,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara frétta-bréfsins Af vettvangi. Mikilvægt sé þó að betur verði vandað til verka en við síðustu endurskoðun laganna. Ari segir samkeppni hafa stóraukist í íslensku viðskiptalífi og að mikil tækifæri séu til lífskjarabóta með því að ljúka upp fyrir samkeppni þar sem hún er nú lítil eða engin.

2.9.2003

Ábyrgð nýs rekstraraðila gagnvart starfsmönnum

Við kaup á fyrirtæki eða hluta þess og samruna fyrirtækja geta starfsmenn átt rétt á að flytjast yfir til hins nýja rekstraraðila með óbreyttum kjörum og nýji rekstraraðilinn jafnvel verið ábyrgur fyrir ógreiddum launaskuldum fyrri vinnuveitanda gagnvart þeim starfsmönnum sem hefja störf hjá honum.

1.9.2003

Opinn fundur um samstarf menningar- og atvinnulífs

Föstudaginn 5. september nk. gangast Listahátíð í Reykjavík og Höfuðborgarstofa, í samvinnu við SA, fyrir opnum fundi í Listasafni Reykjavíkur um samstarf menningar- og atvinnulífs. Aðalfyrirlesari verður Mikael Strandänger, framkvæmdastjóri alþjóðlegu samtakanna Arts and Business.

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
NÝTT RIT SA
11.11.11:
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english