Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

18.7.2003

Sérkjarasamningur vegna jarðgangagerðar undirritaður

Í dag var undirritaður sérkjarasamningur milli Samtaka atvinnulífsins og hlutaðeigandi verkalýðsfélaga vegna vinnu við gerð jarðganga milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Samningurinn fjallar um  skipulegar 10 daga vinnulotur, fyrirkomulag vakta, ferðir til og frá vinnustað, tryggingar og öryggismál.  Samningurinn hefur sama gildistíma og aðalkjarasamningar samningsaðila, þ.e. til næstu áramóta.  Sjá samninginn.

16.7.2003

Óhagkvæmt fyrirkomulag frítöku

Í Morgunblaðsgrein fjallar Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður hjá SA, um þá röskun sem fylgir löngum sumarleyfistíma á Íslandi, fimmtudagsfrídaga o.fl. Hann hvetur til fækkunar skólaára og lengingar skólaársins, sem m.a. myndi stuðla að hagkvæmara fyrirkomulagi orlofstöku hérlendis.

13.7.2003

Réttur til orlofstöku, ekki orlofslauna

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála hefur komist að þeirri niðurstöðu að lög um fæðingar- og foreldraorlof feli ekki í sér réttinn til orlofslauna heldur einungis réttinn til orlofstöku. Þetta er í samræmi við túlkun SA og sameiginlegar forsendur SA og ASÍ sem byggt var á við setningu laganna.

10.7.2003

Ísland færist niður frelsislista

Ísland færist niður um tvö sæti milli ára á lista Fraser-stofnunarinnar yfir efnahagslegt frjálsræði í heiminum. Vaxandi hlutfall samneyslunnar og aukin óánægja íslenskra fyrirtækja með reglubyrði færa Ísland niður, en jákvæð áhrif skattabreytinga og bankasölu koma væntanlega til hækkunar að ári.

10.7.2003

Aukin áhersla á samkeppnishæfni ESB-ríkja

Í samræmi við ákvörðun vorfundar leiðtoga ESB verða fundir fagráðherra sem fjalla um málefni innri markaðarins, iðnað og rannsóknir og þróun sameinaðir í framtíðinni. Markmið þessarar sameiningar er m.a. að tryggja hagvöxt innan ESB og samkeppnishæfni ESB-ríkja út á við.

9.7.2003

Hert barátta gegn svartri atvinnustarfsemi

Ítölsk stjórnvöld kynna þessa dagana áherslur sínar næsta hálfa árið í forsæti ráðherraráðs ESB. Á félagsmálasviðinu leggja þeir megin áherslu á aukinn sveigjanleika á vinnu-markaði. Þá kemur m.a. fram ásetningur um að draga úr umsvifum neðanjarðarhagkerfisins og svartri atvinnu-starfsemi innan ESB.

7.7.2003

Fá atvinnu- og dvalarleyfi með flýtimeðferð

Sérstakt fyrirkomulag er í gildi varðandi ráðningu erlends starfsfólks úr starfsgreinum þar sem skortur ríkir í Danmörku. Danska útlendingastofan heldur lista yfir umræddar starfsgreinar og veitir starfsfólki úr þeim, frá löndum utan EES, atvinnu- og dvalarleyfi með flýtimeðferð.

3.7.2003

Hagræði af tilfærslu fimmtudagsfrídaga

Forsvarsmenn 82% fyrirtækja telja að tilfærsla einhverra fimmtudagsfrídaganna á vorin yfir á heppilegri tíma myndi stuðla að hagræði í rekstri. Helst hefur verið rætt um sumardaginn fyrsta og uppstigningardag í þessu sambandi.

3.7.2003

Viðsnúningur á vinnumarkaði

77% fyrirtækja hyggjast halda óbreyttum fjölda starfsfólks næstu 3-4 mánuði, skv. könnun SA. 13% hyggjast fjölga starfsfólki en 10% hyggjast fækka því. Þetta er töluverður viðsnúningur frá í desember, en þá hugðist 21% fyrirtækja fækka starfsfólki og 8% fjölga því. Nokkur starfsmanna-fækkun virðist framundan í fiskvinnslu, útgerð og fjármálaþjónustu, en fjölgun í iðnaði og ferðaþjónustu.

3.7.2003

Félagsdómur túlkar útkallsákvæði kjarasamninga

Samkvæmt nýlegum dómi Félagsdóms er ekki um útkall að ræða þegar haft er samband við starfsmann, sem þegar hefur verið kallaður út, og hann beðinn að vinna annað verk innan útkallstímans. Samkvæmt öðrum dómi eiga útkallsákvæði kjarasamnings einungis við um kvaðningu til vinnu sem feli í sér að starfsmaður þurfi að fara á vinnustað.

3.7.2003

Greiðari leið fyrir erlent starfsfólk

Nauðsynlegt er að greiða leið erlends starfsfólks hingað eins og hægt er í tengslum við stóriðjuframkvæmdir, m.a. með því að stytta ferla hjá Vinnumálastofnun og Útlendingastofnun, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir ferlið nú alltof tímafrekt.

1.7.2003

Handbók um gæðastaðla gefin út á íslensku

Staðlaráð gaf nýlega út handbók um ISO 9001 gæða-staðla fyrir lítil fyrirtæki. Handbókin er leiðbeinandi um kosti þess að taka upp vinnulag samkvæmt gæða-stöðlunum og um hvernig beri að innleiða gæðastaðla í starfsemi fyrirtækja. Sjá nánar á heimasíðu Staðlaráðs.

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
NÝTT RIT SA
11.11.11:
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english