Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.12.2003

Kjarasamningar ættu að nást án átaka

Það kæmi á óvart ef menn sæju ástæðu til þess að efna til kjaradeilna nú, þegar höfð er í huga hin mikla aukning kaupmáttar undanfarin ár, segir Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, í áramótasamtali við Morgunblaðið. Hann segir mestu skipta að andrúmsloftið er jákvætt og að almenn ánægja ríkir með árangur af yfirstandandi samningum, sem hafa skilað launafólki meiri raunhækkun launa en dæmi eru um áður.

22.12.2003

Veikindafjarvistir, morgunverðarfundur 9. janúar

Föstudaginn 9. janúar verður haldinn morgunverðarfundur um veikindafjarvistir, með stuðningi SA o.fl., kl. 8:30 á Grand Hótel. Fundurinn er einkum ætlaður stjórnendum fyrirtækja, starfsmannastjórum, ráðgjafarfyrirtækjum, starfsmönnum tryggingarfélaga og sjúkrasjóða og öðrum, sem fást við skyld störf. Fundinn ávarpa m.a. tveir sænskir prófessorar. Sjá nánar á vef Vinnueftirlitsins.

18.12.2003

Verslunarmenn leggja fram kröfugerð

LÍV og VR hafa kynnt SA kröfugerð verslunarmanna við gerð nýs kjarasamnings. Í kröfugerðinni kemur m.a. fram að félögin leggja áherslu á að tryggja áfram þann stöðugleika sem skapast hefur og að verðbólgu verði haldið í skefjum. Áhersla verði lögð á hækkun lægstu launa, en launakröfur verða nánar skilgreindar í janúar 2004.

18.12.2003

Rafiðnaðarmenn kynna kröfugerð

RSÍ hefur kynnt kröfugerð sína fyrir komandi kjara-samninga. Í henni fara þeir m.a. fram á að lágmarkslaun verði kr. 170.000 fyrir rafiðnaðarmann með sveinspróf, en kr. 215.000 fyrir sveina með þriggja ára starfsreynslu. Launahækkun á ári skili 2-3% kaupmáttaraukningu.

17.12.2003

Þörf áætlana um góða virkni innri markaðarins

Ráðgjafarnefnd EFTA hvetur EFTA/EES-ríkin til að gera áætlanir um góða virkni hins sameiginlega innri markaðar. Í áliti nefndarinnar er m.a. fjallað um mikilvægi kynningar-átaks um EES meðal núverandi og væntanlegra aðildarríkja ESB, um lágmörkun reglubyrði, gagnkvæmar viðurkenningar o.fl.

16.12.2003

Lagi sig að leikreglum á almennum vinnumarkaði

Starfsgreinasambandið hefur kynnt SA nýja kröfugerð í lífeyrismálum, þar sem farið er fram á sambærileg lífeyrisréttindi og ríkisstarfsmenn búa við. Í samtali við Morgunblaðið segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, eðlilegt að lífeyrisréttindi verði samræmd, en sú samræming verði að vera þannig að opinberir launa-greiðendur lagi sig að þeim leikreglum sem gildi á almennum vinnumarkaði.

15.12.2003

Einkatölvupóstur: fyrirtækin setji reglur

Það er að sjálfsögðu hvers fyrirtækis að ákveða hvort eða að hvaða marki persónleg netnotkun starfsmanna er heimiluð, segir Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur SA, í samtali við tímaritið Birtu. Það er hins vegar ráðlegt að fyrirtæki setji skýrar reglur um slíka notkun.

12.12.2003

Slæmt innlegg í kjaraviðræður

Það blasir við að frumvarp um eftirlaun æðstu embættis-manna, sem og nokkur önnur sem hafa komið upp undanfarið, er slæmt innlegg í kjaraviðræðurnar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir hins vegar alveg ljóst að uppákoma af þessu tagi breyti engu um það svigrúm sem til staðar sé við gerð kjarasamninga.

9.12.2003

3% atvinnuleysi í nóvember

Í nóvember voru skráðir 87.963 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 4.400 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum, eða 3% af áætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins um mannafla á vinnumarkaði. Atvinnuleysið var 2,8% í október sl., sem og í nóvember 2002.

8.12.2003

Hádegisverðarfundur um alþjóðleg reikningsskil

Upptaka alþjóðlegra reikningsskilastaðla, innleiðing og áhrif. Þetta er meðal þess sem verður til umræðu á hádegisverðarfundi um alþjóðleg reikningsskil, þriðjudaginn 9.desember kl. 12-14, á Grand Hótel Reykjavík. Fundinn heldur Deloitte í samstarfi við SA og SBV. Sjá nánar á vef Deloitte.

8.12.2003

Samiðn leggur fram kröfugerð sína

Samiðn, samband iðnfélaga, hefur kynnt SA kröfugerð sína fyrir komandi kjarasamninga. Þar er gert ráð fyrir að almennar launabreytingar skili 3% kaupmáttaraukningu á ári og að samið verði til tveggja ára.

4.12.2003

Heilbrigðiskerfi í vanda

Hlutfall 65 ára og eldri er það 5. lægsta hér á landi af 30 löndum OECD, en heildarútgjöld til heilbrigðismála þau 5. hæstu, sem hlutfall af landsframleiðslu. Þá eru útgjöld hins opinbera til heilbrigðismála næst hæst hérlendis og hafa hækkað mest hér á undanförnum áratugum. Þar sem hlutfall eldra fólks er lægra en hér eru heilbrigðisútgjöld mun lægri.

4.12.2003

Hóflegar hækkanir skila meiri kaupmætti

Laun hafa lengi hækkað meira hér en í viðskiptalöndunum. Á yfirstandandi samningstímabili hafa umframhækkanir launa hér á landi verið „leiðréttar“ með lækkun gengis krónunnar og niðurstaðan er sambærilegar launahækkanir og erlendis þegar samanburður er gerður í erlendri mynt. Á árunum 1980-1990 hækkuðu laun um 1.450% en kaupmáttur minnkaði um 14%. Hóflegar launahækkanirnar eru líklegri til að skila sér í auknum kaupmætti.

4.12.2003

Skref í átt til einsleitari vinnumarkaðar

Sérstaða og sérkjör opinberra starfsmanna hafa skaðleg áhrif á frjálst flæði fólks milli almenns og opinbers vinnu-markaðar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir fjármálaráðherra eiga hrós skilið fyrir að stíga skref í átt til einsleitari vinnumarkaðar á Íslandi.

4.12.2003

Prósentuhækkanir og kaupmáttur

Háar prósentuhækkanir launa búa ekki til kjarabætur, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi, og bendir á að kaupmáttur dróst saman um 14% á tímabilinu 1980-1990, þegar laun hækkuðu um 1450%. Vinnufriður og efnahagslegur stöðugleiki stuðla að framleiðniaukningu sem bætir lífskjör.

3.12.2003

Nýr hagfræðingur til SA

Vilborg H. Júlíusdóttir hefur verið ráðin til starfa á hagdeild SA. Vilborg starfaði sem hagfræðingur hjá Þjóðhags-stofnun á árunum 1987 til 2002, en hefur frá árinu 2002 gegnt starfi forstöðumanns hagdeildar Trygginga-stofnunar. Vilborg er með cand oecon gráðu og hefur lokið hluta meistaranáms við viðskipta- og hagfræðideild HÍ.

3.12.2003

Flóabandalagið birtir kröfugerð sína

Flóabandalagið hefur birt kröfugerð sína fyrir komandi kjarasamninga. Miðað er við að allir launataxtar undir 93.000. kr. verði felldir út við upphaf samnings og nýtt taxtakerfi byggist á þeim grunni, lægstu laun hækki um 30%, almennar launahækkanir nemi 19,25% og innröðun í nýtt launakerfi nemi 2,5%.

2.12.2003

Hádegisverðarfundur um alþjóðleg reikningsskil

Upptaka alþjóðlegra reikningsskilastaðla, innleiðing og áhrif. Þetta er meðal þess sem verður til umræðu á hádegisverðarfundi um alþjóðleg reikningsskil, þriðjudaginn 9.desember kl. 12-14, á Grand Hótel Reykjavík. Fundinn heldur Deloitte í samstarfi við SA og SBV. Sjá nánar á heimasíðu Deloitte.

1.12.2003

Tölvupóstur starfsmanna og einkalífsvernd

Miðvikudaginn 3. desember mun Hjördís Halldórsdóttir hdl. frá LOGOS lögmannsþjónustu fjalla um eftirlit vinnu-veitenda með tölvupóstsamskiptum starfsmanna, á málstofu Lagastofnunar HÍ, stofu 101 í Lögbergi, kl. 12:15. Fjallað verður um þróun í nágrannalöndum, mögulega reglusetningu ESB o.fl.

1.12.2003

Málþing í tilefni af Evrópuári fatlaðra

Þriðjudaginn 2. desember heldur rektor Háskóla Íslands málþing í samstarfi við félagsmálaráðuneytið, SA, ASÍ og BSRB, í tilefni af Evrópuári fatlaðra 2003. Málþingið beinir sjónum að atvinnulífinu með áherslu á ávinning samfél-agsins af virkri þátttöku allra í atvinnu og verðmæta-sköpun.

Atvinna fyrir alla - smelltu til að sækja
Aðgerðaáætlun SA í atvinnumálum 2010 

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
----------
Nýtt rit SA í júní 2010:
Smelltu til að sækja 

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english