Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

31.12.2002

Stóriðjuframkvæmdir geta breytt útlitinu á næsta ári

„Stóriðjuframkvæmdir, ef af þeim verður, munu geta breytt útlitinu umtalsvert og náð að draga úr þeirri deyfð sem annars blasir við á næsta ári,“ segir Finnur Geirsson, formaður SA, í áramótaviðtali við Morgunblaðið. Þar fjallar hann m.a. um hátt launastig, vöxt samneyslunnar, einkavæðingu og mikilvægi stöðugleikans.

20.12.2002

Varað við launum eftir kynferði

Sú alhæfing sem fellst í fullyrðingum um að eitthvað þurfi að gera í launamálum kvenna sætir harðri gagnrýni í leiðara sænska tímaritsins Lag & Avtal. Konur séu ekki fórnarlömb, heldur hafi þættir á borð við menntun, val á störfum o.fl. áhrif á launamyndunina.

20.12.2002

Meirihluti vill léttvín og bjór í matvöruverslanir

51,2% fólks á aldrinum 20–67 ára vill að leyfð verði sala á léttvíni og bjór í matvöruverslunum og 37,6% eru andvíg. Þessar niðurstöður koma fram í nýrri könnun sem Pricewaterhouse Coopers gerðu fyrir SVÞ.

19.12.2002

Áhyggjur af samkeppnishæfni Evrópu

UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, lýsa áhyggjum af samkeppnishæfni Evrópu. Í nýrri skýrslu samtakanna til forseta ráðherraráðs ESB er m.a. fjallað um háan launakostnað, háa skatta og mikla reglubyrði evrópskra fyrirtækja, og lagðar fram tillögur til úrbóta.

19.12.2002

Leikreglur samkeppninnar

SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu og LOGOS lögmannsþjónusta efna til námsstefnu 16. janúar nk. að Efstaleiti 5. Heiti hennar er „Leikreglur samkeppninnar - Hvaða kröfur eru gerðar í samkeppnislögum og -reglum til fyrirtækjastjórnenda?“ Sjá nánar á heimasíðu SVÞ.

18.12.2002

Kaupmáttur eykst um 1,6%

Regluleg laun hafa hækkað að meðaltali um 4,9% milli 3. ársfjórðungs 2001 og 3. ársfjórðungs 2002, skv. fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 3,3%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 1,6%.

17.12.2002

Áhyggjur af atvinnuhorfum

Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, tekur í samtali við RÚV undir áhyggjur ASÍ af atvinnuhorfum í landinu. Hann segir SA aðhyllast almennar aðgerðir og segir þær skattkerfis-breytingar sem farið hafi verið í vera jákvæðar fyrir efnahagslífið. Frekari vaxtalækkun sé íhugunarefni.

13.12.2002

Óþægindi vegna starfsdaga í skólum

SA berst fjöldi erinda frá fyrirtækjum þar sem lýst er óþægindum vegna starfsdaga. Í samtali við Morgunblaðið spyr Gústaf Adolf Skúlason hjá SA hvort ekki sé hægt að skipuleggja þetta með skilvirkari hætti fyrir börnin, foreldra, vinnustaði þeirra og þar með þjóðfélagið í heild.

13.12.2002

SA fagna hverju skrefi í vaxtalækkunum

Aðstæður núna kalla ekki á aðhaldssama stefnu Seðla-bankans í peningamálum segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir SA fagna hverju skrefi Seðlabankans í vaxtalækkunum.

13.12.2002

Hagnýt viðmið – stjórntæki í fyrirtækjum

Iðntæknistofnun hefur í samstarfi við SA o.fl. innleitt aðferðafræði sem auðveldar íslenskum fyrirtækjum að bera rekstur fyrirtækja sinna saman við önnur fyrirtæki og taka upp það besta sem þar þekkist í stjórnun.

13.12.2002

Nær 70% fleiri atvinnulausir en í fyrra

Samkvæmt gögnum vinnumiðlana voru 4.567 manns skráðir atvinnulausir í lok nóvember 2002, samanborið við 2.716 í nóvember 2001. Þetta er fjölgun um rúm 68% milli ára.

11.12.2002

Alþjóðavæðingin og norrænir atvinnurekendur

Samtök atvinnu- og iðnrekenda á Norðurlöndum hafa gefið út rit þar sem sett eru fram sameiginleg viðhorf til alþjóðavæðingar og lýst í stuttu máli hvaða verkefni er að þeirra mati brýnast að takast á við á næstu árum.

10.12.2002

Auknar tekjur ríkissjóðs af fyrirtækjum

Tekjuskattar fyrirtækja skila 750 milljónum meira í ríkissjóð á næsta ári en þessu, þrátt fyrir að lækkun skatthlut-fallsins úr 30% í 18 taki gildi um áramótin, skv. nýrri tekjuáætlun fjármálaráðuneytisins. Samhliða lækkun skatthlutfallsins stækkar þannig skattstofninn, líkt og SA hafa haldið fram.

6.12.2002

Samið um Stýrimannaskólann og Vélskólann

Menntafélagið ehf. og menntamálaráðuneytið hafa undirritað verksamning um rekstur og starfsemi Stýrimannaskólans í Reykjavík og Vélskóla Íslands. Samningurinn er liður í þeirri viðleitni stjórnvalda að tengja fræðslu á starfsmenntasviðum enn betur við atvinnulífið. Sjá nánar á heimasíðu LÍÚ.

6.12.2002

Enn af mismunun heildarsamtaka

Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins tengir framkvæmdastjóri ASÍ umfjöllun SA um 30 milljóna króna opinber framlög til ASÍ við iðnaðarmálagjald og það sem nefnt er opinber framlög til LÍÚ. Engin slík framlög eru til og hér er verið að bera saman ólíka hluti.

5.12.2002

Starfsemin úr landi vegna hárra fyrirtækjaskatta

70-80% Svía telja líklegt að háir fyrirtækjaskattar leiði til þess að sænsk fyrirtæki flytji starfsemi sína úr landi og hamli gegn fjölgun starfa. Þá bendir ný sænsk rannsókn á 20 ríkjum til að eignarskattar hamli gegn hagvexti, en þeir eru enn innheimtir í Svíþjóð og á Íslandi.

5.12.2002

Íslendingar lengst á vinnumarkaði

Atvinnuþátttaka eldra fólks er mest hérlendis af öllum ríkjum OECD. Lækkandi eftirlaunaaldur er víða áhyggjuefni, en hérlendis a.m.k. er mikil eftirspurn eftir eldra fólki á vinnumarkaði. Áreiðanleiki, samviskusemi og rík ábyrgðar-tilfinning eru eiginleikar sem gjarnan eru nefndir, auk mikillar þekkingar og reynslu.  Sjá nánar

5.12.2002

Heildarsamtökum mismunað

Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir 30 milljóna króna framlagi til ASÍ. Sú mismunun á opinberum fram-lögum sem hér er á ferðinni er alvarlegt brot á þeirri grundvallarreglu að jafnræði eigi að ríkja milli aðila vinnumarkaðarins, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

4.12.2002

Nýtt starfsfólk SA

Christoph Kuhn hefur verið ráðinn til starfa á hagdeild SA og tekur hann við af Sigurði Jóhannessyni sem hafið hefur störf hjá Hagfræðistofnun HÍ. Þá hefur Helga Jóhannes-dóttir verið ráðin í stöðu bókara hjá SA.

3.12.2002

Víðtækt þríhliða samkomulag

Undirritað hefur verið þríhliða samkomulag sem nær til 92% launafólks í Finnlandi. Eftir að samkomulagið náðist fengu aðilar tvær vikur til að fá það samþykkt innan sinna raða, áður en það var svo undirritað. Víðtæk sátt var þannig forsenda undirritunar. Samið var um 2,9% grunnkaups-hækkun árið 2003 og 2,2% árið 2004.

3.12.2002

Lokanir leikskóla: áhersla SA á sveigjanleika

Þjónusta leikskólanna er mjög mikilvæg fyrir atvinnulífið og röskun sem kemur niður á foreldrum og börnum kemur óneitanlega einnig niður á atvinnulífinu, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann leggur áherslu á mikilvægi sveigjanleika í framkvæmd sumarlokana til að draga úr röskuninni.

29.11.2002

Þjónusta SA kynnt á launaráðstefnu Tölvumiðlunar

Launaráðstefna Tölvumiðlunar verður haldin á Grand Hótel miðvikudaginn 4. desember nk. Þar mun Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, m.a. kynna þjónustu SA við aðildarfyrirtæki. Sjá dagskrá ráðstefnunnar á heimasíðu Tölvumiðlunar.

28.11.2002

Leitað verði orsaka mismunandi matvælaverðs

SA taka undir tillögu til þingsályktunar þess efnis að leitað verði orsaka fyrir mismunandi matvælaverði á Norður-löndum og í ESB. SA telja hins vegar skylda tillögu vekja nokkra furðu, en skv. henni þyrfti Hagstofa Íslands sjálf að afla gagna um matvælaverð í ríkjum ESB ársfjórðungslega.

26.11.2002

Mikil þátttaka í námskeiðum um starfsmannamál

Hátt á fjórða hundrað manns hafa þegar tekið þátt eða skráð sig á námskeið SA um starfsmannamál. Námskeiðin eru ætluð félagsmönnum og eru haldin bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni, jafnt almenn námskeið um túlkun kjarasamninga sem námskeið um nýjungar og áherslur í starfsmannamálum. Sjá nánar um námskeiðin.

22.11.2002

Atvinnuleysi 3,2% og starfandi fólki fækkar

Atvinnuleysi var 3,2% í nóvember sl., skv. vinnu-markaðskönnun Hagstofunnar, en 2,4% á sama tíma í fyrra. Starfandi fólki fækkaði um 3.100 milli ára. Mest er atvinnuleysið meðal yngsta aldurshópsins og meira hjá körlum en konum.

21.11.2002

Þátttaka tryggð í þríhliða samkomulagi

Í Finnlandi var á dögunum gert þríhliða samkomulag milli heildarsamtaka á vinnumarkaði og stjórnvalda. Samkomulagið verður þó ekki undirritað nema einstakir samningsaðilar tilkynni að þeir muni gerast að því aðilar. Samið var um 2,9% grunnkaupshækkun árið 2003 og 2,2% árið 2004.

19.11.2002

Kynning: úrvinnslugjald og meðhöndlun úrgangs

Þriðjudaginn 26. nóvember verður haldinn kynningarfundur í húsakynnum SA um efni lagafrumvarpa um úrvinnslugjald annars vegar og um meðhöndlun úrgangs hins vegar.

18.11.2002

Verkefnastyrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði

Fyrirtæki, stofnanir o.fl. geta sótt um styrk úr Atvinnu-leysistryggingasjóði til sérstakra verkefna á vegum svæðisvinnumiðlana. Styrkfjárhæðir nema hálfum eða heilum atvinnuleysisbótum og hámarkstími eru sex mánuðir.

15.11.2002

Aukið atvinnuleysi

Meðalfjöldi atvinnulausra var um 10,9% meiri í október en í september og u.þ.b. tvöfaldaðist frá október í fyrra, skv. skýrslu Vinnumálastofnunar. Þar segir líklegt að atvinnu-leysi í nóvember verði á bilinu 2,7% til 3,0%.

15.11.2002

Viðauki við virkjunarsamning vegna Austurlands

Í dag var undirritaður viðauki við virkjunarsamning SA við ASÍ og landssambönd þess, vegna fyrirhugaðra fram-kvæmda á Austurlandi. Samningnum er ætlað að mæta þörf á sveigjanlegu vinnufyrirkomulagi og löngum vinnu-lotum vegna fjarlægðar frá stærstu þéttbýliskjörnum.

14.11.2002

Útvegsmenn greiði 1% framlag í séreignasjóð

Útvegsmönnum ber skv. dómi Félagsdóms að greiða sjómönnum í aðildarfélögum SSÍ 1% framlag í séreignasjóð án framlags af hálfu starfsmannsins. SA og LÍÚ hafa gert útgerðarmönnum grein fyrir niðurstöðu dómsins, sjónarmiðum samtakanna í málinu og hvernig beri að bregðast við niðurstöðunni. Sjá nánar á heimasíðu LÍÚ.

13.11.2002

Leit að umboðsmanni erlendis?

Útflutningsráð hefur hleypt af stokkunum verkefni til að auðvelda íslenskum fyrirtækjum val á umboðsmönnum erlendis. M.a. hefur verið komið á samstarfi við ýmsa erlenda aðila í þessu skyni. Sjá nánar á heimasíðu Útflutningsráðs.

11.11.2002

Kynning á 6. rannsóknaáætlun ESB

6. rannsóknaáætlun ESB tekur gildi í desember. RANNÍS stendur fyrir kynningarráðstefnu um áætlunina föstudaginn 22. nóvember, þar sem fulltrúar ESB kynna forgangssvið áætlunarinnar og nýtt fyrirkomulag á verkefnum. Sjá nánar á heimasíðu RANNÍS.

7.11.2002

Námskeiðaröð SA um starfsmannamál

SA halda á næstunni námskeið um starfsmannamál fyrir félagsmenn sína, bæði í Reykjavík og á landsbyggðinni. Boðið verður upp á almenn námskeið um túlkun kjarasamninga og námskeið um nýjungar og áherslur í starfsmannamálum.

7.11.2002

Betri afkomuvæntingar fyrirtækja

Um 28% fyrirtækja reikna með batnandi afkomu á næstu mánuðum en um 14% með versnandi afkomu, skv. könnun SA. Þetta eru almennt betri afkomuvæntingar en fyrir ári síðan. Mestrar bjartsýni gætir í verslun, þjónustu og ferðaþjónustu, en minnstrar í fiskvinnslu og útgerð.

7.11.2002

Mikil og almenn þátttaka í viðbótarsparnaði

Viðbótar lífeyrissparnaður hefur bæði reynst meiri og jafnari milli starfsstétta en áætlað var við gerð kjarasamninga, skv. úrvinnslu SA á gögnum Kjararannsóknarnefndar. Einkum hefur mikil þátttaka verkafólks komið á óvart. Kostnaður atvinnulífsins er þegar orðinn um 4 – 4,5 milljarðar á ári, um einum og hálfum milljarði meiri en reiknað var með.

7.11.2002

Breytingar á skattkerfinu

Áhrif skattabreytinga síðasta árs voru þau að gjöld einstaklinga lækkuðu meira en gjöld fyrirtækja, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Brúttóáhrif skattabreytinganna á ríkissjóð voru þau, skv. frumvarpinu, að gjöld fyrirtækja lækkuðu um 1.700 m.kr. en gjöld einstaklinga um 5.400 m.kr.

6.11.2002

Fjölmenni við vígslu Húss atvinnulífsins

Hús atvinnulífsins var formlega opnað föstudaginn 11. október sl., en þar eru til húsa Samtök atvinnulífsins, aðildarfélög o.fl., alls 15 aðilar. Alls mættu um eitt þúsund manns til að samfagna og skoða húsið. Sjá myndir frá vígslunni og nánari upplýsingar um húsið.

6.11.2002

Hækkun launa og tryggingagjalds 1. janúar 2003

Almenn launahækkun verkafólks 1. janúar 2003 er 3,15% en iðnaðarmanna og verslunarmanna 3,4%. Trygginga-gjald atvinnurekenda hækkar um 0,5% þann 1. janúar 2003 eða úr 5,23% í 5,73%.

5.11.2002

Samkeppnishæf samkeppnislög

Á almennum félagsfundi Lögfræðingafélags Íslands verða samkeppnislögin til umræðu. Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, mun kynna sjónarmið samtakanna í þeim málum. Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 6. nóvember kl. 20:30, á Grand Hótel Reykjavík.

4.11.2002

Hagræðing í aflamarkskerfi

Í ræðu sinni á aðalfundi LÍÚ lagði Kristján Ragnarsson áherslu á það hagræði sem tilfærsla aflaheimilda hefði stuðlað að með fækkun skipa. Hann sagði óbærilegar fórnir fylgja aðild að ESB og sagði það umhugsunarefni hvort hlutaskiptakerfið stæðist til framtíðar.

1.11.2002

Ábyrgðasjóður launa er sjálfstæður sjóður

Að undanförnu hefur átt sér stað nokkur umræða um Ábyrgðasjóð launa. Í þeirri umræðu er stundum fjallað um hann líkt og um ríkissjóð væri að ræða og jafnvel talað um að launaskuldir falli á ríkissjóð við gjaldþrot fyrirtækja. Þessi umræða er á villigötum.

31.10.2002

Samkeppnisstofnun ESB fær á baukinn

Evrópudómstóllinn hefur nýlega veitt framkvæmdastjórn ESB, vegna samkeppnisstofnunar ESB, harðar ákúrur vegna nokkurra ákvarðana um bann við samruna fyrirtækja. Mælistikur og starfshættir stofnunarinnar eru harðlega átalin og hefur framkvæmdastjórnin lofað breyttum vinnubrögðum.

31.10.2002

Heildsöluverðlagning á búvöru verði gefin frjáls

Samkeppnisráð beinir þeim tilmælum til landbúnaðar-ráðherra að hann beiti sér fyrir því að heildsöluverðlagning á búvöru verði gefin frjáls svo fljótt sem auðið er. SVÞ fagna staðfestingu ráðsins á skilningi samtakanna, en hefðu kosið úrskurð í málinu.

30.10.2002

Aukin þjónusta hjá Kjararannsóknarnefnd

Kjararannsóknarnefnd hefur kynnt nýtt launahugtak, regluleg laun, og birtir nú meðallaun stjórnenda og aðgengilegar töflur um meðallaun einstakra starfsgreina. Regluleg laun hækkuðu um 5,6% frá 2. ársfjórðungi 2001 til 2. ársfjórðungs 2002, sem jafngildir 0,1% kaupmáttaraukningu.

28.10.2002

Námskeið um þátttöku í alþjóðlegum útboðum

Dagana 12. og 13. nóvember nk. verða haldin námskeið í utanríkisráðuneytinu um þátttöku í útboðum á vegum alþjóðastofnana, og eru þau m.a. ætluð ráðgjöfum, verktökum og byrgjum. Sjá nánar í vefriti viðskiptaskrifstofu ráðuneytisins (pdf-skjal).

23.10.2002

Minna vægi matvöru í útgjöldum heimila

Matvöruverð er nú lægra á Íslandi en áður og jafnframt hefur hlutfall matvörukaupa í útgjöldum heimilanna minnkað, úr 17% í mars 1997 í 15,8% í september í ár. Sjá nánar á heimasíðu SVÞ.

23.10.2002

Kaupgjaldsskrá SA fyrir árið 2003

Kaupgjaldsskrá SA fyrir árið 2003 er komin á vefinn. Vegna 0,4% viðbótarhækkunar launa og samræmingar kjarasamninga eru kauptaxtar árið 2003 hærri en gert hafði verið ráð fyrir í kjarasamningum árið 2000.

23.10.2002

Samkomulag um viðræðuáætlun og launahækkun

Almenn launahækkun samkvæmt kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins verður 3,15% þann 1. janúar 2003. Er það sama hækkun og kjarasamningar SA og Starfsgreinasambandsins kveða á um.

22.10.2002

Hægur efnahagsbati framundan í Evrópu

UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, spá hægum efnahagsbata í Evrópu. Samtökin vara við auknum álögum á fyrirtæki, einkum auknum gjöldum og launakostnaði, þar sem fyrirtækin berjast við að halda uppi arðsemi og búa flest við umframafkastagetu.

18.10.2002

Net fríverslunarsamninga

Á vegum EFTA hefur verið gerður fjöldi fríverslunar-samninga sem m.a. ná til sjávarafurða og iðnaðarvara, en eru þó mismunandi að innihaldi. Fyrirtækjum sem eiga viðskipti við viðkomandi ríki er ráðlagt að kynna sér innihald viðkomandi samninga.

16.10.2002

„Samkeppnin læðist alltaf aftan að manni“

Á fundi Stjórnvísi um samruna og yfirtökur lagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, áherslu á að stærð fyrirtækja væri ekki lykilatriði gagnvart samkeppni, enda „læddist samkeppnin alltaf aftan að mönnum.“ Samkeppnisyfirvöld ættu fyrst og fremst að vinna gegn misbeitingu á markaðsráðandi stöðu.

16.10.2002

Hækkun launa og tryggingagjalds 1. janúar 2003

Almenn launahækkun 1. janúar 2003 er 0,4% meiri en kjarasamningarnir frá árinu 2000 kveða á um. Tryggingagjald atvinnurekenda hækkar um 0,5% þann 1. janúar 2003 eða úr 5,23% í 5,73%.

15.10.2002

Ályktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva

Í ályktun aðalfundar SF er m.a. fjallað um misjafna rekstrarstöðu vinnslugreina í sjávarútvegi, stuðningur ítrekaður við EES samstarfið, tekjuafgangi fjárlaga-frumvarps og breytingum á skattlagningu fyrirtækja fagnað og skorað á bankastjórn Seðlabanka Íslands að halda áfram á braut vaxtalækkana. Sjá nánar á heimasíðu SF.

15.10.2002

Varnir gegn vinnustreitu

Evrópska vinnuverndarvikan er haldin dagana 21. - 25. október nk. Markmið hennar að þessu sinni er að efna til umræðu um varnir gegn vinnustreitu. Meðal dagskrárliða er morgunverðarfundur á Grand hótel mánudaginn 21. október. Sjá nánar á heimasíðu Vinnueftirlitsins.

14.10.2002

Kvartanir vegna framkvæmdar EES-samningsins?

Fyrirtæki og einstaklingar sem telja reglum um innri markaðinn ekki beitt á réttan hátt geta nú í gegnum utanríkisráðuneytið komið kvörtunum á framfæri í gagnagrunninn SOLVIT. Frestur viðkomandi ríkis til að leysa úr málinu eru 10 vikur. Sjá nánar á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.

11.10.2002

Ekki lengur verðbólguástand á Íslandi

Verð hækkar og lækkar á víxl á markaðnum og því ríkir ekki verðbólguástand lengur á Íslandi, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA í samtali við Morgunblaðið. Hann segir útlit fyrir að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist.

11.10.2002

Vígsla á Húsi atvinnulífsins

Hús atvinnulífsins, nýtt húsnæði Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga þeirra, var formlega vígt 11. október. Sameiginlegt húsnæði er liður í þeim breytingum á félagakerfi atvinnulífsins sem hófust með stofnun SA og miða að hagræðingu í rekstri og einföldun starfseminnar.

10.10.2002

Íslensk fyrirtæki dugleg að veita styrki

Um þrjú af hverjum fjórum íslenskum fyrirtækjum styðja líknarmál, íþróttafélög eða menningarstarfsemi. Hlutfallið er það þriðja hæsta af öllum aðildarríkjum ESB og EFTA. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um fyrirtækjastefnu.

8.10.2002

Ábyrgt fjárlagafrumvarp - ályktun stjórnar SA

Stjórn SA lýsir í ályktun ánægju með fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Hún leggur áherslu á að útgjalda-áætlunin vaxi ekki í meðförum Alþingis né verði langtímahugsun frumvarpsins fórnað, hvetur ríkisstjórnina til að koma böndum á útgjaldaþenslu heilbrigðiskerfisins og fagnar því að hreyfing sé á ný komin á einkavæðingu ríkisfyrirtækja.

7.10.2002

Áfengisgjald hæst hérlendis

Áfengisgjald er hvergi eins hátt og á Íslandi. Samtök ferðaþjónustunnar fara fram á 50% afslátt af gjaldinu til veitingastaða og segja að slíkar endurgreiðslur myndu jafna samkeppnisstöðu ábyrgra veitingastaða sem greiða skatta sína og skyldur. Sjá nánar í fréttabréfi SAF.

7.10.2002

Samrunar og yfirtökur

Miðvikudaginn 16. október stendur Stjórnvísi fyrir morgunverðarfundi um þau áhrif sem samrunar og yfirtökur hafa á viðskiptalíf og samfélag. Erindi flytja Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, Georg Ólafsson, forstjóri Samkeppnisstofnunar og Þorvaldur Sverrisson, vísindaheimspekingur. Sjá nánar á heimasíðu Stjórnvísi.

3.10.2002

Ábyrgt fjárlagafrumvarp

Fjárlagafrumvarp næsta árs einkennist frekar af langtímahugsun en af kosningaári, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann telur jafnframt að forsenda útgjaldaáætlana sé að það takist að hemja vöxtinn í heilbrigðiskerfinu.

3.10.2002

Góðar horfur fyrir atvinnulífið

Ef vextir halda áfram að lækka, bæði til skamms og langs tíma, jafnvægi ríkir á vinnumarkaðnum og gengi krónunnar hækkar ekki frá því sem nú er má gera ráð fyrir að afkoma fyrirtækjanna í landinu verði góð á næsta ári.

3.10.2002

Vöxtur færist til jaðarsvæða höfuðborgarsvæðisins

Margt bendir til að framleiðslufyrirtæki muni í auknum mæli flytjast frá höfuðborgarsvæðinu til nærliggjandi sveitarfélaga á komandi árum. Lægri launakostnaður og húsnæðisverð skipta þar miklu auk bættra samgangna. Þetta er niðurstaða lokaverkefnis í hagfræði við Háskóla Íslands.

3.10.2002

Hvenær er starfsmaður veikur?

Starfsmenn sem tilkynna veikindaforföll verða að upplýsa vinnuveitanda sinn um hvaða verkefnum þeir geti sinnt og hverjum ekki vegna veikindanna, að höfðu samráði við lækni. Þetta er efni þríhliða samkomulags ríkis og aðila vinnumarkaðar í Noregi.

2.10.2002

ESB hafnar erindi SVÞ

ESB hafnar því að viðbrögð þess við tollum Bandaríkja-manna á innflutt stál sé brot á EES samningnum. SVÞ fengu Evrópusamtök verslunarinnar til að taka málið upp við framkvæmdastjórn ESB.

1.10.2002

Alþjóðleg fagsýning þekkingariðnaðarins

Agora, alþjóðleg fagsýning þekkingariðnaðarins, verður haldin í Laugardagshöll dagana 10.-12. október. Þar standa Samtök iðnaðarins m.a. fyrir málþingi um stefnu og áherslur stjórnmálaflokkanna um uppbyggingu UT- og þekkingariðnaðar. Sjá nánar á heimasíðu sýningarinnar.

26.9.2002

ESB virði hefðir aðildarríkjanna

Aðilar vinnumarkaðarins í Danmörku leggja í sameiningu áherslu á mikilvægi þess að ESB virði hefðir hvers aðildarríkis á vinnumarkaði og vilja sjá einföldun á Evrópusamstarfinu, en Danir fara nú með formennsku í ESB. Þá skuli ESB leggja áherslu á samkeppnishæfni.

26.9.2002

Námskeið um jafnréttismál

Jafnréttisstofa gengst á næstunni fyrir námskeiðum um jafnréttismál víðs vegar um landið, þar sem m.a. verður fjallað um gerð jafnréttisáætlana í fyrirtækjum. SA hafa haldið slík námskeið fyrir félagsmenn og ítarlegar leiðbeiningar er að finna á vinnumarkaðsvef SA.

25.9.2002

„Forysta og fyrirtækjarekstur í stækkaðri Evrópu“

Dagana 31. október og 1. nóvember nk. standa tékknesku samtök iðnaðarins og evrópsku stjórnunarsamtökin fyrir viðamikilli ráðstefnu um forystu og fyrirtækjarekstur, m.a. með tilliti til stækkunar ESB. Sjá nánar á heimasíðu tékknesku samtakanna.

24.9.2002

Yfirlit yfir starfsmenntamál

Ýmsir aðilar koma að menntamálum atvinnulífsins, veita fyrirtækjum og launafólki upplýsingar og styrki og sjá um kennslu og aðra þjónustu. Samtök atvinnulífsins hafa nú tekið saman aðgengilegt heildaryfirlit yfir þennan málaflokk á heimasíðu sinni. Sjá nánar.

23.9.2002

Nýr Hæstaréttardómur um launafrádrátt á uppsagnarfresti

Hæstiréttur hefur staðfest að ef ekki er óskað vinnuframlags á uppsagnarfresti er vinnuveitanda heimilt að draga frá launum starfsmanns það sem hann vinnur sér inn annars staðar, á þeim tíma sem hann hefði að öðrum kosti verið í vinnu hjá fyrirtækinu.

20.9.2002

Starfsdagar í skólum valda áhyggjum

Starfsdagar í skólum valda oft mikilli röskun og óþægindum fyrir foreldra og vinnustaði þeirra. SA hefur að undanförnu borist fjöldi erinda þar sem fyrirtæki lýsa áhyggjum sínum vegna þessa og spyrja hvort ekki sé hægt að skipuleggja þá með skilvirkari hætti.

18.9.2002

Setja þarf reglur um framkvæmd húsleitar

Á fundi Verslunarráðs um húsleit hjá fyrirtækjum var rík samstaða um að brýn nauðsyn væri á setningu skýrari reglna um framkvæmd húsleitar á vegum Samkeppnis-stofnunar, t.d. í anda viðmiðunarreglna embættis skattrannsóknarstjóra.

18.9.2002

Enginn hagvöxtur án stóriðjuframkvæmda?

Von er á nýrri þjóðhagsspá um næstu mánaðamót. Sú síðasta gerði ráð fyrir 2,4% hagvexti á næsta ári. SA telja þá spá byggða á óraunhæfum forsendum um fjárfestingar. Komi ekki til stóriðjuframkvæmda sjá SA jafnvel fram á áframhaldandi samdrátt á næsta ári og spá yfir 3% atvinnuleysi.

17.9.2002

Ódýr húsnæðislán, hærra húsnæðisverð

Íslensk heimili eru einhver þau skuldsettustu í heimi og um helmingur skuldanna eru húsnæðislán, sem m.a. má rekja til skuldhvetjandi húsnæðislánakerfis. Á sama tíma fer húsnæðisverð hækkandi, en vísitala neysluverðs án húsnæðis er sú sama nú og í janúar.

17.9.2002

Málstofa um starfsmenntasjóðinn Starfsafl

Starfsafl - Starfsmennt Samtaka atvinnulífsins og Flóabandalagsins hyggst á haustdögum bjóða til málstofu þar sem kynnt verða verkefni sjóðsins og möguleikar fyrirtækja til að efla og styrkja mannauð sinn með samvinnu við Starfsafl.

14.9.2002

Upplýsingavefur um námsframboð

Mennt.is, upplýsingavefur um námsframboð, var formlega opnaður í dag, en hann á að hýsa upplýsingar um allt nám sem í boði er á Íslandi eftir að grunnskólanámi lýkur. Það voru Finnur Geirsson, formaður SA, og Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, sem opnuðu vefinn.

13.9.2002

Tvöfalt fleiri skráðir atvinnulausir en í fyrra

Samkvæmt gögnum vinnumiðlana voru tvöfalt fleiri skráðir atvinnulausir í lok ágúst 2002 en í ágúst 2001, eða 3.567 manns samanborið við 1.755 í ágúst 2001. Sjá nánar á heimasíðu Hagstofu Íslands.

13.9.2002

Starfsmenntaverðlaunin til ÚA, MFA og Iðan.is

Starfsmenntaverðlaunin í ár hljóta Útgerðarfélag Akureyringa í flokki fyrirtækja, Menningar- og fræðslusamband alþýðu í flokki skóla og fræðsluaðila og Iðan, upplýsingavefur Samtaka iðnaðarins í opnum flokki.

12.9.2002

Breyta þarf samkeppnislögum

Það er bráðnauðsynlegt að ráðast í frekari breytingar á samkeppnislögunum og það þarf að gerast á komandi þingi, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir réttarfarsþáttinn ekki síst knýja á um breytingar.

12.9.2002

Verðbólgan horfin, utan húsnæðis

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,52% milli ágúst og september. Án húsnæðis er hún hins vegar sú sama og í ársbyrjun. Í samtali við Morgunblaðið segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, íbúðalánakerfið mjög skuldahvetjandi. Utan húsnæðis sé verðbólgan horfin úr efnahagskerfinu.

11.9.2002

Tímasetningin góð, en áskorun fyrir hagstjórn

Á opnum fundi SA var það sameiginlegt mat manna að lítill hagvöxtur væri framundan á næstu árum ef ekki kæmi til stóriðjuframkvæmda. Ekki væri því veruleg hætta á ofþenslu vegna þeirra, að því tilskildu að gripið yrði til tiltækra mótvægisaðgerða í opinberri hagstjórn. Stærð framkvæmdanna væri slík að ella væri hætta á óæskilegum „ruðningsáhrifum“.

10.9.2002

Gott sumar í ferðaþjónustu

Sumarið virðist víðast hvar hafa verið gott ferðasumar, herbergjanýting ágæt og bílaleigur og rútufyrirtæki ánægð. Athygli vekur að bandarískum ferðamönnum fór aftur að fjölga í sumar, eftir nokkurn samdrátt í kjölfar 11. september 2001. Sjá nánar í fréttabréfi SAF.

9.9.2002

Stöðugleiki og stóriðjuframkvæmdir

Miðvikudaginn 11. september standa SA fyrir morgun-verðarfundi undir yfirskriftinni Stöðugleiki og stóriðju-framkvæmdir – er hætta á ofþenslu? Frummælendur verða Ari Edwald frá SA, Bolli Þór Bollason, fjármálaráðuneyti og Þórarinn G. Pétursson, Seðlabanka Íslands. Sjá nánar.

5.9.2002

Samkeppnislögin harðari og þrengri hér

Nýlegar breytingarnar á dönsku samkeppnislögunum miða að því að skerpa og herða ákvæði laganna. Þrátt fyrir þessar breytingar í Danmörku verður að telja að samkeppnislög og framkvæmd þeirra sé í ýmsum atriðum mun harðari og þrengri hér á landi en þar.

5.9.2002

Litlar veikindafjarvistir á Íslandi?

Veikindafjarvistir virðast vera talsvert minni hér á landi en á öðrum Norðurlöndum, en hérlend gögn eru reyndar mjög takmörkuð. Erlendis eru þær meiri hjá hinu opinbera en í einkageiranum og vísbendingar eru um það sama hér á landi. Ætla má að beinn kostnaður vegna veikindafjarvista sé um 20-25 milljarðar króna á ári.

5.9.2002

Brýnt að endurskoða samkeppnislög

Það er mjög brýnt að samkeppnislögin og starfsreglur á þessu sviði verði tekin til gagngerrar endurskoðunar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir núgildandi lög draga úr kraftinum í íslensku athafnalífi, í harðri alþjóðlegri samkeppni, auk þess sem verulegir ágallar hafi komið í ljós á réttarfari í samkeppnismálum.

5.9.2002

Væntanlegar stóriðjuframkvæmdir

Líkur á uppbyggingu í ál- og orkuiðnaði hafa aukist mikið. Í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, framkvæmdirnar koma á heppilegum tíma fyrir efnahagslífið, en draga verði úr öðrum framkvæmdum eins og kostur er á sama tíma.

4.9.2002

Meirihluti launamunar skýrður

Samkvæmt nýrri könnun Jafnréttisráðs og Nefndar um efnahagsleg völd kvenna má skýra tvo þriðju til þrjá fjórðu hluta launamunar kynjanna með starfi, menntun o.fl. Eftir stendur 7,5-11% launamunur, sem stafar af því að hjónaband o.fl hefur önnur áhrif á laun kvenna en karla.

2.9.2002

Styrkir/lán vegna verkefnaútflutnings

Þriðjudaginn 17. september verða kynntir norrænu þróunar-, umhverfis- og verkefnaútflutningssjóðirnir, og möguleikar íslenska fyrirtækja á að nálgast þaðan lán og/eða styrki í tengslum við alþjóðlegan verkefna-útflutning. Sjá nánar á vef viðskiptaþróunar.

30.8.2002

Nýr Evrópusamningur um fjarvinnu

Aðilar vinnumarkaðsins á Evrópuvísu undirrituðu í sumar samning um fjarvinnu. Það er það fyrirkomulag þegar starfsmaður innir, með aðstoð upplýsingatækni, reglulega af hendi störf utan starfsstöðvar fyrirtækis sem einnig er hægt að vinna þar.

30.8.2002

Stöðugleiki og stóriðjuframkvæmdir

Miðvikudaginn 11. september standa SA fyrir morgun-verðarfundi undir yfirskriftinni Stöðugleiki og stóriðju-framkvæmdir – er hætta á ofþenslu? Frummælendur verða Ari Edwald frá SA, Bolli Þór Bollason, fjármálaráðuneyti og Þórarinn G. Pétursson, Seðlabanka Íslands. Sjá nánar.

29.8.2002

ESB auki samráð við aðila vinnumarkaðarins

Framkvæmdastjórn ESB hvetur til aukins samráðs ráðherraráðs ESB og Evrópuþingsins við aðila vinnumarkaðarins, sem hún telur best fallna til þess að ná skynsamlegu jafnvægi á milli sveiganlegri vinnumarkaðar og traustra félagslegra réttinda. SA eiga m.a. aðild að Evrópusamtökum atvinnulífsins.

29.8.2002

Átta íslensk fyrirtæki meðal 500 framsæknustu

Á nýjum lista GrowthPlus yfir 500 framsæknustu frumkvöðlafyrirtæki Evrópu er að finna átta íslensk fyrirtæki, fleiri en nokkru sinni fyrr. Bakkavör er skráð í annað sæti listans sem er glæsilegur árangur. Sjá nánar á heimasíðu Samtaka iðnaðarins.

23.8.2002

Svigrúm fyrir stórframkvæmdir

Stjórn Samtaka iðnaðarins telur að vegna framleiðsluslaka í hagkerfinu standi verðstöðugleika ekki ógn af fyrirhuguðum framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun og álver í Reyðarfirði. Sjá ályktun stjórnarinnar á heimasíðu SI.

22.8.2002

Ríkið hætti verslunarrekstri

SVÞ krefjast þess að stjórnvöld láti af áformum sínum um að viðhalda sölu á snyrtivörum, rafmagnstækjum, sælgæti og tóbaki í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, svo og í öðrum flughöfnum, þegar breytingar verða gerðar á rekstri flugstöðvarinnar um næstu áramót.

21.8.2002

198 tillögur til minnkunar á reglubyrði

Danska ríkisstjórnin hefur kynnt áætlun um að einfalda lög og reglur, einfalda opinbera stjórnsýslu, afnema óþarfa reglur og minnka skriffinskubyrði fólks og fyrirtækja. Í ítarlegri aðgerðaáætlun eru lagðar fram 198 tillögur í þessu skyni.

16.8.2002

2,3% atvinnuleysi í júlí

Samkvæmt skýrslu Vinnumálastofnunar var atvinnuleysi í júní 2,3%. Það er 0,8% minnkun frá júnímánuði, en síðustu 10 ár hefur atvinnuleysið að jafnaði minnkað um 7,1% frá júní til júlí. Atvinnuleysi minnkaði víðast hvar en jókst á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurlandi.

13.8.2002

Viðskiptatækifæri í Póllandi?

Dagana 12.-13. september efnir Útflutningsráð til viðskiptasendinefndar til Gdansk og Gdynia. Lögð verður áhersla á að finna íslensku fyrirtækjunum sem þátt taka í viðskiptasendinefndinni viðskiptaaðila ytra. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

9.8.2002

Ráðherra krefst minna umstangs fyrir fyrirtæki

Um leið og hugmyndir að lagasetningu fæðast ber að huga að því hvort umrædd lög myndu hafa í för með sér aukið umstang fyrir fyrirtækin og borgarana. Þetta er krafa danska félagsmálaráðherrans, en danska ríkisstjórnin hyggst minnka reglubyrði fyrirtækja um 25% fyrir 2010.

8.8.2002

Telja eldra starfsfólk verðmætara

Um helmingur danskra fyrirtækja í verslun og þjónustu telur eldra starfsfólk verðmætara en það yngra, en tæp 20% fyrirtækjanna eru því ósammála. Þekking, stöðugleiki og ábyrgðartilfinning eru sagðir helstu kostir eldra starfsfólks.

6.8.2002

Vika símenntunar 8.-14. september

Vika símenntunar verður haldin 8.-14. september í ár og er yfirskriftin Símenntun í atvinnulífinu. Málþing, fræðslu-hátíð og símenntunardagurinn eru meðal þess sem á döfinni verður. Sjá nánar á heimasíðu Viku símenntunar.

6.8.2002

6. rannsóknaáætlun ESB að hefjast

Sjötta rannsóknaáætlun ESB hefst um næstu áramót. Búast má við að fyrstu auglýsingar eftir styrkumsóknum verði birtar í október-nóvember nk. Sérstök áhersla verður lögð á þarfir lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Sjá samantekt á heimasíðu Samtaka iðnaðarins.

12.7.2002

Ráðstefna um Evrópumál 12.-13. september

Dagana 12. og 13. september nk. verður haldin ráðstefna á Hótel Sögu um fullveldishugtakið á 21. öld og um kosti og galla aðildar að ESB. Að ráðstefnunni standa Samtök iðnaðarins, Alþýðusamband Íslands o.fl. Sjá nánar á vef SI.

12.7.2002

2,3% atvinnuleysi í júní

Samkvæmt skýrslu Vinnumálastofnunar var atvinnuleysi í júní 2,3%. Það er 0,2% minnkun frá maí, en að jafnaði minnkar atvinnuleysið um 7,3% frá maí til júní. Þetta er hins vegar tvöfalt meira atvinnuleysi en í júní í fyrra. Mest er atvinnuleysið á höfuðborgarsvæðinu, 2,7%.

10.7.2002

Kaupmáttarrýrnun 2001 en hækkun á samningstíma

Samkvæmt launakönnun KRN hækkuðu dagvinnulaun að meðaltali um 5,8% á tímabilinu frá 1. ársfj. 2001 til 1. ársfj. 2002, en vísitala neysluverðs um 8,7% á sama tíma. Samkvæmt því rýrnaði kaupmáttur dagvinnulauna að meðaltali um 2,7%, en hann hefur hækkað um 4,2% á samningstímanum.

9.7.2002

Aukið hlutverk einkageirans í t.d. heilbrigðiskerfinu

Í umfjöllun framkvæmdastjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Ísland er lagt til að stjórnvöld íhugi að auka hlutverk einkageirans við veitingu opinberrar þjónustu, svo sem í heilbrigðis- og menntakerfinu. Þá leggja þeir til meiri aga í ríkisútgjöldum, ekki síst launaútgjöldum.

4.7.2002

Lengra skólaár ekki erfitt fyrir atvinnulífið

Þrjú af hverjum fjórum fyrirtækjum telja að lenging skólaársins um t.d. einn mánuð myndi ekki hafa veruleg áhrif á starfsmannahald þeirra, samkvæmt könnun SA. Einungis innan ferðaþjónustunnar telur meirihluti svo vera, eða 56% fyrirtækja.

4.7.2002

Umsvif ríkisins í atvinnulífinu jukust – en hlutur þess minnkaði

Frá árinu 1991 hefur ríkið selt hlut sinn í 27 fyrirtækjum fyrir 30 milljarða króna. Á tímabilinu 1993-99 jókst eigið fé ríkisfyrirtækja að raungildi um 12%, en hlutfall þeirra af eigin fé íslenskra fyrirtækja minnkaði úr 26% í 17%. Ríkið er mjög umsvifamikið í rekstri orku-, fjarskipta- og fjármálafyrirtækja.

4.7.2002

Fyrirtæki hyggjast fækka fólki

Að meðaltali hyggjast fyrirtæki fækka starfsfólki um 0,8%, samkvæmt könnun SA. Þetta er talsvert hærri tala en mælst hefur að undanförnu. Einkum hyggjast stærri fyrirtæki fækka fólki. Mestur samdráttur er framundan í ferðaþjónustu og meiri á landsbyggð en á höfuðborgarsvæði.

4.7.2002

Stytting námstímans

Lengri námstími en í nágrannalöndunum felur í sér kostnað fyrir þjóðfélagið jafnt sem nemendur. SA leggja til styttingu grunn- og framhaldsskólastigs um eitt ár hvort, segir Gústaf Adolf Skúlason, forstöðumaður stefnumótunar- og samskiptasviðs SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

2.7.2002

Enginn tekjuskattur fyrirtækja á Mön 2006?

Fjármálaráðuneyti Manar hefur boðað frumvarp til skattalaga sem gerir ráð fyrir að fyrirtæki greiði engan tekjuskatt frá og með 2006. Stefnan er að gera eyjuna að fyrirmyndar skattlögsögu, þar sem saman fara vandað skattkerfi, virkt skatteftirlit og lægstu skattstigar.

2.7.2002

Styrkir úr Atvinnuleysistryggingasjóði

Fyrirtæki geta sótt um styrk úr Atvinnuleysistrygginga-sjóði til sérstakra verkefna á vegum svæðisvinnumiðlana, t.d. tímabundinna verkefna. Vinnumálastofnun vill vekja athygli fyrirtækja og stofnana á höfuðborgarsvæðinu á þessum möguleika.

1.7.2002

Af þingi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO)

Barnavinna, þríhliða samvinna aðila vinnumarkaðar og ríkisstjórna, framkvæmd aðildarríkjanna á alþjóða-samþykktum ILO, skráning atvinnusjúkdóma og neðanjarðar hagkerfið í þróunarríkjunum voru meðal umfjöllunarefna á 90. þingi Alþjóðavinnumála-stofnunarinnar (ILO).

27.6.2002

Fiskur og stækkun ESB: ekki sömu lausn og síðast

Við stækkun ESB falla fríverslunarsamningar nýju aðildar-ríkjanna við EFTA-ríkin úr gildi, m.a. fríverslun með fisk. Ráðgjafarnefnd EES hvetur til þess að horft sé fram á við í leit að lausn, fremur en að einfaldlega sé byggt á útreikningum á viðskiptum síðustu ára.

25.6.2002

Áherslan á aukna samkeppnishæfni ESB

Samtök iðnaðarins í Danmörku leggja megináherslu á að Danir nýti formennskutíð sína til að efla samkeppnishæfni ESB. Þau vilja m.a. aukinn sveigjanleika á vinnumarkaði, lægri landbúnaðarstyrki og aukið fé til rannsókna. Þá hafna þau samræmdum skatti á fyrirtæki.

24.6.2002

Samdráttur á vinnumarkaði

Atvinnurekendur vilja fækka starfsfólki um 4-500, sem eru 0,4% af mannafla á vinnumarkaði. Talsverður munur er á landsbyggð og höfuðborgarsvæði. Atvinnuleysi í ár verður 2,3%, sem er talsvert hærra en undanfarin ár. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar.

21.6.2002

Mikil þátttaka feðra í fæðingarorlofi

Frá gildistöku nýrra laga um fæðingarorlof hafa umsóknir feðra verið um 80% af umsóknum mæðra. Kostnaður var 2,8 milljarðar árið 2001 en verður líklega 4,5 til 5 milljarðar í ár og um 5,5 milljarðar 2003. Það er um 45% meiri kostnaður en reiknað var með í frumvarpi til laganna.

21.6.2002

Alþjóðleg ráðstefna um verkefnisstjórnun

Dagana 25.-27. september nk. stendur Verkefnis-stjórnunarfélag Íslands fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um verkefnisstjórnun á Hótel Loftleiðum. Fjöldi erlendra og innlendra fyrirlesara mun þar kynna nýjungar innan greinarinnar. Sjá nánar á síðu ráðstefnunnar.

20.6.2002

Lækkun landbúnaðarstyrkja myndi auka velferð

Helmings lækkun landbúnaðarstyrkja ESB myndi auka velferð innan sambandsins um yfir þúsund milljarða króna á ári. Þetta er niðurstaða skýrslu sem von er á frá rannsóknarstofnun danska landbúnaðarráðuneytisins í matvælahagfræði.

14.6.2002

Samdráttur í veltu dagvöruverslana

Samkvæmt nýrri smásöluvísitölu SVÞ og IMG virðist dagvöruverslun hafa dregist töluvert saman fyrstu mánuði ársins. Vísitalan var 13,3% lægri í febrúar 2002 en hún var í nóvember 2001. Ekki er til samanburður við árið þar á undan.

14.6.2002

Stjórnarformaður BASF kjörinn forseti UNICE

Dr. Jürgen Straube, stjórnarformaður BASF AG, hefur verið kjörinn nýr forseti UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins. Hann tekur þó ekki við embætti fyrr en í júlí 2003 en þangað til gegnir sitjandi forseti, Georges Jacobs stjórnarformaður UCB SA, embættinu áfram. Sjá fréttatilkynningu UNICE (pdf-skjal).

14.6.2002

Mat lagt á jákvæð áhrif minni reglubyrði

Sænska ríkisstjórnin hefur beðið tvær rannsóknarstofnanir um að undirbúa framkvæmd vandaðrar úttektar á jákvæðum áhrifum þess fyrir sænskt atvinnulíf að dregið verði úr reglubyrði af hálfu hins opinbera. Reiknað er með að úttektin verði gerð árið 2003.

13.6.2002

Aldur hefur ekki áhrif á atvinnumöguleika

Möguleikar atvinnulausra á að fá starf hafa ekkert með aldur þeirra að gera. Meðal þess fólks sem danskar atvinnumiðlanir hafa vísað í atvinnuviðtöl hafa eldri aldurshóparnir komið svipað út og aðrir, að þeim allra yngstu undanskildum.

12.6.2002

Atvinnulausum fjölgar

Samkvæmt gögnum vinnumiðlana voru 3.953 manns skráðir atvinnulausir í lok maí 2002, samanborið við 2.096 í maí 2001, eða nær tvöfalt fleiri en árið áður. Sjá nánar í samantekt á vef Hagstofu Íslands.

6.6.2002

Einkavætt á ný

„Með þessari leið getur kjölfestufjárfestir einfaldlega litið dagsins ljós á eftirmarkaði“ segir Ari Edwald, framkvæmda-stjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir það skemmtilega tilraun að bjóða bréfin í Landsbanka Íslands ekki á tilteknu lágmarksverði, heldur selja í gegnum viðskiptakerfi Verðbréfaþings Íslands.

6.6.2002

Áhrif félagsmálastefnu ESB á Íslandi

Margar tilskipanir ESB á félagsmálasviðinu hafa áhrif til minnkunar á sveigjanleika á vinnumarkaði, en flestar þeirra gilda á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Það eru eingöngu þær reglur sem byggja á nýjum samstarfssviðum sem Ísland er óbundið af að taka upp.

6.6.2002

Ríkið greiðir 15-20% húsnæðisverðs

Styrkur ríkisins við húseigendur nemur samtals 10-15 milljörðum króna á ári, eða um 15-20% af kaupverðinu. Ríkistryggð lán til húseigenda hafa aukist um rúm 50% frá 1995 og sterk rök hníga að því að útlán Íbúðalánasjóðs eigi mikinn þátt í þenslu undanfarinna ára.

6.6.2002

Viðbótarframlag í séreignarsjóð frá 1. júlí 2002

Frá og með 1. júlí 2002 ber atvinnurekanda að greiða a.m.k. 1% framlag í séreignarsjóð starfsmanns. Breytingin nær til þeirra starfsmanna sem ekki nýta sér heimild til viðbótarlífeyrissparnaðar, en tekur ekki til fiskimanna. Sjá nánar á vinnumarkaðsvef SA (opinn félagsmönnum).

3.6.2002

Samkomulag um starfsmenntamál sjómanna

Fulltrúar SA, LÍÚ og Sjómannasambands Íslands hafa ásamt félagsmálaráðherra undirritað samkomulag um starfsmenntamál sjómanna. Verkefninu verða tryggðar 45 milljónir króna frá Atvinnuleysistryggingasjóði á þriggja ára samningstíma.

30.5.2002

Viðskiptatækifæri í Póllandi?

Í lok júní efnir Útflutningsráð til viðskiptasendinefndar til Gdansk og Gdynia. Lögð verður áhersla á að finna íslensku fyrirtækjunum sem þátt taka í viðskiptasendinefndinni viðskiptaaðila ytra. Sjá nánar á vef Útflutningsráðs.

28.5.2002

Starfsmenntaverðlaunin 2002 – tilnefningar óskast

Starfsmenntaráð og Mennt óska eftir tilnefningum til starfsmenntaverðlaunanna 2002, en markmið þeirra er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi. Frestur til að senda inn tilnefningar er til 30. júní. Sjá nánar á heimasíðu Menntar.

27.5.2002

Mikið jafnræði í starfsmenntun á Íslandi

Jafnræði vegna þátttöku í starfsmenntun er meira á Íslandi en í flestum öðrum löndum, bæði á milli ólíkra aldurshópa og á milli hópa með mismikla menntun. Þetta er niðurstaða alþjóðlegrar samanburðarrannsóknar.

23.5.2002

SA flytja í Borgartún 35

Föstudaginn 24. og mánudaginn 27. maí verður skrifstofa Samtaka atvinnulífsins lokuð vegna flutnings samtakanna í nýtt húsnæði í Borgartúni 35, þar sem SA og aðildarfélög þeirra sjö verða öll til húsa.

22.5.2002

Jón Sigurðsson til SA

Jón Sigurðsson rekstrarhagfræðingur hefur verið ráðinn verkefnisstjóri á stefnumótunar- og samskiptasviði Samtaka atvinnulífsins. Hann hefur störf í byrjun júní. Verkefni Jóns hjá SA munu m.a. snúa að mennta-, samkeppnis- og skattamálum.

22.5.2002

Samkeppnishæf samkeppnislög

Hér á heimasíðu SA má nálgast skýrslu samkeppnislaga-hóps SA sem kynnt var á aðalfundi samtakanna 7. maí. Í skýrslunni er að finna samanburð á íslenskri og erlendri samkeppnislöggjöf og tillögur til úrbóta. Sjá skýrsluna (pdf-snið).

22.5.2002

Ársskýrsla SA á Netinu

Ársskýrslu Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2001-2002 má nálgast hér á heimasíðu samtakanna. Í skýrslunni er að finna ítarlega umfjöllun um starfsemi SA, efnahagsmál, kjaramál o.fl. Sjá ársskýrslu SA (pdf-snið).

22.5.2002

Sveigjanleiki á vinnumarkaði og upptaka evrunnar

Hér á heimasíðu SA má nálgast skýrslu sem Ásgeir Jónsson og Sigurður Jóhannesson unnu að beiðni SA, þar sem m.a. er rannsakaður sveigjanleiki launakostnaðar á Íslandi.  Sjá skýrsluna (pdf-snið).

21.5.2002

Fjölskylduábyrgð í vegi kvenna

Lágt hlutfall kvenna í stjórnunarstöðum skýrist fyrst og fremst af minni sveigjanleika þeirra á vinnustað, sem þýðir m.a. að þær eru oft fjarverandi þegar mest krefjandi verkefnunum er útdeilt. Þetta kemur fram í rannsókn Árósarháskóla fyrir danska fjármálaráðuneytið.

21.5.2002

SVÞ andmæla skerðingu á viðskiptafrelsi verslana

SVÞ andmæla drögum Samkeppnisstofnunar að leið-beinandi reglum um viðskipti birgja og matvöruverslana, þar sem kveðið sé á um að matvöruverslunum beri að skipta við hérlenda birgja og sé ekki heimilt að stunda eigin innflutning nema þær geti sannað að með því fáist hagstæðari kjör.

16.5.2002

Minnkandi eftirspurn á vinnumarkaði

Eftirspurn á vinnumarkaði fer minnkandi, skv. atvinnu-könnun Þjóðhagsstofnunar. Í fyrsta sinn síðan 1996 vilja atvinnurekendur fækka við sig starfsfólki í aprílmánuði, alls um 0,5% af mannafla á vinnumarkaði. Sjá nánar á heimasíðu Þjóðhagsstofnunar.

15.5.2002

Ísland sker sig úr

Ólíkt flestum öðrum þjóðum er það hið opinbera sem leiðir launaþróunina hérlendis. Þetta er þvert á þá yfirlýstu stefnu stjórnvalda að það sé á almennum vinnumarkaði sem svigrúm til launakostnaðarhækkana sé ákvarðað.

14.5.2002

Rauða strikið stóðst

Vísitala neysluverðs er 221,8 stig í maí og því ljóst að rauða strikið stóðst. Í sameiginlegri fréttatilkynningu SA og ASÍ er áhersla lögð á mikilvægi áframhaldandi aðhalds að verðlagi, lækkun vaxta og ráðdeild í fjármálum ríkis og sveitarfélaga.

13.5.2002

Stefnumót við nýsköpun

Staða nýsköpunar í íslensku atvinnulífi verður til umfjöllunar á ráðstefnu Félags kvenna í atvinnurekstri fimmtudaginn 23. maí. Nýsköpun á þenslutímum, lærdómar af undanförnum árum, horfur framundan o.fl. Sjá nánar á heimasíðu ráðstefnunnar.

10.5.2002

Fundur um viðskiptagreind 14. maí

Fjallað verður um viðskiptagreind (e. business intelligence) á morgunverðarfundi SVÞ þriðjudaginn 14. maí, kl. 8:30 á Grand hótel Reykjavík. Um er að ræða tækni til að ná betri tökum á samskiptum við viðskiptamannahópa. Sjá nánar á heimasíðu SVÞ.

10.5.2002

Aðferð til að auka framleiðni í rekstri

Samstarfsvettvangur um framleiðniaukandi aðgerðir boðar til kynningarfundar um Benchmarking – hagnýt viðmið, fimmtudaginn 16. maí kl. 15:30 að Hallveigarstíg 1. Innleidd hefur verið aðferðafræði fyrir íslensk fyrirtæki í samstarfi SA o.fl. Sjá nánar á heimasíðu SI.

7.5.2002

Ný stjórn Samtaka atvinnulífsins

Lýst hefur verið kjöri stjórnar SA fyrir starfsárið 2002-2003. Nýir koma inn í stjórnina þeir Bjarni H. Matthíasson, Raflögnum Íslands, Guðlaugur Adolfsson, Fagtak, Gunnar Felixsson, Tryggingamiðstöðinni og Jón Helgi Guðmundsson, BYKO.

7.5.2002

Opinberir aðilar mega ekki leiða launaþróunina

Hið opinbera hefur um margra ára skeið leitt launaþróun í landinu. Í erindi sínu á aðalfundi SA sagði Finnur Geirsson, formaður samtakanna, það útilokað að þetta gæti gengið. Hann sagði einkavæðingu og rekstrarútboð raunhæfustu lausnina.

7.5.2002

Samkeppnishæf samkeppnislög

SA leggja fram tíu tillögur til úrbóta á samkeppnis-löggjöfinni. Á aðalfundi samtakanna kynnti Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, skýrslu samkeppnislagahóps samtakanna. Hann sagði brýnt að hér gildi sambærilegar samkeppnisreglur og annars staðar.

7.5.2002

Bregðast þarf við minnkandi vægi EFTA

Bregðast þarf við minnkandi vægi EFTA-stoðar EES, sagði Siri Bjerke, forstöðumaður hjá NHO og fyrrverandi umhverfisráðherra Noregs í erindi á aðalfundi SA. Samtökin leggja áherslu á nauðsyn samkeppnishæfra starfsskilyrða, m.a. til að vega upp á móti evrunni.

7.5.2002

Finnur Geirsson endurkjörinn formaður SA

Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu formanns samtakanna. Finnur Geirsson, sitjandi formaður, hlaut 98,7% greiddra atkvæða og er hann því réttkjörinn formaður SA starfsárið 2002 til 2003. Kosningaþátttaka var 54,6%.

7.5.2002

Upplýsta umræðu um Evrópumálin

Í ávarpi sínu á aðalfundi SA lagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra, áherslu á mikilvægi upplýstrar umræðu um Evrópumálin og fjallaði um fórnarkostnað aðildar. Þá sagði hann væntingar standa til að vextir héldu áfram að lækka á næstu vikum, mánuðum og misserum. Sjá ávarp forsætisráðherra.

7.5.2002

Atvinnulífið og Evrópumálin

Í umræðum fimm forstjóra um atvinnulífið og Evrópumálin á aðalfundi SA komu m.a. fram þau sjónarmið að krónan væri óhjákvæmilega á útleið, að EES-samningurinn tryggði starfsumhverfið almennt vel, að hérlendis væri erfitt að fjárfesta, hagstjórn væri möguleg við evruaðild og sjávarútvegsstefna ESB óásættanleg.

5.5.2002

Aðalfundur SA þriðjudaginn 7. maí

Opin dagskrá aðalfundar SA hefst með ávörpum nýkjörins formanns SA og Davíðs Oddsonar forsætisráðherra. Þá verður kynnt ný skýrsla samtakanna um samkeppnis-löggjöf. Loks mun norskur gestur flytja erindi og fimm forstjórar ræða um atvinnulífið og Evrópumálin. Sjá nánar um aðalfundinn.

2.5.2002

Viðurlagaákvæði samkeppnislaga ströngust hérlendis

Samkvæmt íslenskum samkeppnislögum skal leggja á sektir ef bannákvæði laganna hafa verið brotin, á meðan löggjöf annars staðar kveður á um heimild til að leggja á sektir. Þá hafa hérlend samkeppnisyfirvöld sjálfstæða heimild til ákvörðunar sekta ólíkt öðrum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu SA.

2.5.2002

Þjóðfélagslýsing 1. maí!

Gamaldags gífuryrði um örbirgð og neyð eru ekki viðeigandi lýsing á íslensku þjóðfélagi, þegar kaupmáttur er í hámarki og full atvinna ríkir, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

2.5.2002

Sveigjanleiki á vinnumarkaði og upptaka evrunnar

Ef Íslendingar taka upp evru verður ekki hægt að bregðast við hagsveiflum með peningaprentun og verðbólgu. Sveigjanleiki í launum gæti þá skipt miklu, en samkvæmt nýrri skýrslu sem unnin var fyrir SA er launakostnaður á Íslandi sveigjanlegur ef á móti blæs.

1.5.2002

Greinilega komið ferli vaxtalækkana

Þar sem rétt rúmur mánuður er liðinn frá síðustu vaxta-lækkun Seðlabankans er greinilega komið ferli vaxta-lækkana, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Í ljósi viðsnúnings í verðlagsþróun hefði hann getað búist við meiri vaxtalækkun.

30.4.2002

Samkeppnishæfni Íslands

Ísland er í 12. sæti yfir samkeppnishæfni landa og hækkar um eitt sæti frá fyrra ári, samkvæmt nýrri skýrslu IMD stofnunarinnar í Sviss. Í nýlegri skýrslu annarrar stofnunar, WEF, var Ísland í 16. sæti. Á báðum listum eru flest helstu samkeppnislöndin hins vegar ofar Íslandi.

26.4.2002

Aukið atvinnuleysi, færra ungt fólk á vinnumarkaði

Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar mælist atvinnuleysi nú 3,2% en var 2,1% í apríl 2001. Starfandi fólki fækkar um 1.300 milli ára og er fækkunin bundin við yngsta aldurshópinn, sem er athyglisvert í ljósi umræðu um stöðu eldra fólks á vinnumarkaði.

22.4.2002

Evrópumálin á aðalfundi SA 7. maí

Í opinni dagskrá á aðalfundi SA verður m.a. fjallað um Evrópumálin. Að loknu erindi um Evrópustefnu norsku samtaka atvinnulífsins mun Stefán Ólafsson prófessor stýra umræðum fimm forstjóra um atvinnulífið og Evrópumálin.

19.4.2002

Enn miklar launahækkanir í opinbera geiranum

Laun opinberra starfsmanna hækkuðu að meðaltali um 14,1% á 1. ársfjórðungi þessa árs m.v. sama tíma í fyrra. Á almennum markaði hækkuðu laun á sama tíma um 6,4%. Í heild hækkaði launavísitala Hagstofunnar um 9,5%.

19.4.2002

LÍÚ ályktar gegn ESB-aðild

Stjórn LÍÚ segir aðild að ESB ekki koma til álita, útilokað sé að Íslendingar gangist undir hina sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB. Samkvæmt nýrri könnun PWC fyrir LÍÚ er ekki marktækur munur á fjölda stuðningsmanna og andstæðinga aðildar að ESB.

18.4.2002

Áhrif gildistöku evrunnar á finnsk fyrirtæki

Gildistaka evrunnar leiddi ekki til verðhækkana í Finnlandi, en fyrirtækin þurftu að fjárfesta talsvert í uppfærslu hugbúnaðar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem sænsku samtök atvinnulífsins hafa unnið, m.a. á grundvelli könnunar meðal rúmlega 200 finnskra fyrirtækja.

18.4.2002

Eldra starfsfólki síður sagt upp en yngra

Fyrirtæki sem þurfa að fækka starfsfólki segja frekar upp yngra starfsfólki en því eldra. Þetta kemur fram í athugun sem danska hagstofan gerði fyrir dönsku samtök atvinnulífsins og staðfestir niðurstöður tveggja annarra rannsókna samtakanna.

15.4.2002

Ekki miklar undirliggjandi verðlagsbreytingar

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,04% milli mars og apríl. Í samtali við Mbl.is segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, líkurnar hafa aukist á að verðlagsmarkmiðin náist í maí. Þá staðfesti þessi mæling heilt yfir að undirliggjandi verðlagsbreytingar séu ekki miklar.

13.4.2002

Aukið atvinnuleysi

Atvinnulausir voru 83,4% fleiri nú í mars en í fyrra. Skráðir atvinnuleysisdagar jafngilda því að alls hafi 3.692 að meðaltali verið á skrá, eða um 2,7% fólks á vinnumarkaði. Atvinnuleysi fer þó minnkandi á landsbyggðinni. Sjá nánar á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

13.4.2002

Kínverska sendiráðið kaupir Garðastræti 41

Gengið hefur verið frá sölu Samtaka atvinnulífsins á Garðastræti 41, en eins og kunnugt er flytja samtökin og aðildarsamtök þeirra sjö innan skamms í nýtt húsnæði við Borgartún 35. Kaupandi að Garðastræti 41 er kínverska sendiráðið.

12.4.2002

SAF ályktar um aukin framlög til landkynningar

Í ályktun aðalfundar SAF er framlagi ríkisstjórnar til markaðs- og landkynningarmála í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum fagnað, en jafnframt skorað á samgönguráðherra að beita sér fyrir stórauknum framlögum til landkynningarmála.

11.4.2002

Ríkið keppi ekki við hugbúnaðarfyrirtæki

Fjöldi opinberra stofnana og fyrirtækja starfrækir sína eigin hugbúnaðarþjónustu. Í setningarræðu á ráðstefnu TölvuMynda sagði Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, að gera yrði þá kröfu til hins opinbera að það keppti ekki við einkafyrirtæki á þessu sviði.

11.4.2002

Í prinsippinu á móti ríkisábyrgðum

„Við erum í prinsippinu á móti ríkisábyrgðum“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við DV um frumvarp um ríkisábyrgð til Íslenskrar erfðagreiningar. Hann segir samtökin ekki geta stutt þessa nálgun, þótt þau vilji veg fyrirtækisins sem mestan.

10.4.2002

Aðilum verði ekki mismunað

Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, segir í samtali við Morgunblaðið að sér sé ekki kunnugt um hvernig ASÍ sé ætlað aukið hlutverk verði Þjóðhagsstofnun lögð niður. Hann segist ganga út frá því að stjórnvöld ætli ekki að mismuna aðilum vinnumarkaðarins að þessu leyti.

8.4.2002

ISO 9000:2000 gæðastjórnunarstaðlarnir

Föstudaginn 19. apríl stendur Staðlaráð Íslands fyrir námskeiði fyrir þá sem vilja læra á nýja útgáfu ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna. Sjá nánar á heimasíðu Staðlaráðs Íslands.

4.4.2002

Fjórðungs skuldaaukning stærstu sveitarfélaga

Skuldir, lífeyrisskuldbindingar og ábyrgðir fjögurra stærstu sveitarfélaga landsins og stofnana þeirra jukust um fjórðung að raungildi á íbúa frá 1996 til 2000. Mest jukust skuldir og ábyrgðir í Hafnarfirði, eða um tvo þriðju hluta. Þær jukust um þriðjung í Reykjavík, en stóðu í stað á Akureyri og lækkuðu um fjórðung í Kópavogi.

4.4.2002

Ísland borgar mest með landbúnaði

Meðalstuðningur til hvers bónda er hæstur hér á landi af löndum OECD, hátt í þrjár milljónir króna á ári, en hefur þó farið minnkandi. Að meðaltali nemur stuðningurinn um 900 þúsund krónum í löndunum, eða tæpum þriðjungi þess sem hann er hér.

4.4.2002

Útspil Ögmundar

Þetta útspil minnir á þann fleyg sem rekinn var í þríhliða samstarf aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda að sameiginlegum markmiðum í febrúar árið 1991, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Samlíking við 1980 sé hins vegar illa til fundin.

4.4.2002

Furðulegur málflutningur heimilislækna

Það blasir við að sjálftaka heilsugæslulækna vegna útgáfu vottorða hefur aldrei verið heimil og minnir á löngu horfna tíma, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir fróðlegt að bera málið saman við nýleg mál forstöðumanna Þjóðmenningarhúss og Þjóðskjalasafns.

3.4.2002

Heilsugæslulæknum skylt að gefa út vottorð

Lögfræðingar SA og ASÍ eru sammála um að heilsugæslulæknum beri samkvæmt lögum að gefa út læknisvottorð, en heilsugæslulæknar neita að gefa út vottorð til atvinnurekenda og fleiri í kjölfar úrskurðar kjaranefndar um að þeim sé ekki heimilt að taka fyrir það sérstaka þóknun.

3.4.2002

Aðalfundur SA 7. maí

Samtök atvinnulífsins halda aðalfund sinn 7. maí. Auk ávarpa formanns SA og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra verður kynnt ný skýrsla SA um samkeppnislög. Þá verður flutt erindi um Evrópustefnu norsku samtaka atvinnulífsins og forsvarsmenn fyrirtækja ræða um atvinnulífið og Evrópumálin. Sjá nánar.

27.3.2002

Umhverfisviðurkenning - beiðni um tilnefningar

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfisráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki til að hljóta umhverfis-viðurkenningu umhverfisráðuneytisins fyrir árið 2001. Tilnefningar berist eigi síðar en 12. apríl.

27.3.2002

Ferli vaxtalækkana

Seðlabankinn hefur ákveðið að lækka stýrivexti sína um hálft prósent. Aukið atvinnuleysi, hækkandi gengi krónunnar og lækkandi verðbólga eru meðal forsendna þess. Samtök atvinnulífsins fagna þessari vaxtalækkun og telja allar forsendur fyrir frekari lækkun vaxta á næstunni.

26.3.2002

Evrópskt viðskiptaþing 6.-8. júní

Dagana 6.-8. júní verður haldið eins konar evrópskt viðskiptaþing, European Business Summit, í Brussel. Boðið er upp á fjölda kynninga og fyrirlestra, auk þess sem þingið er vettvangur þar sem forsvarsmenn fyrirtækja eiga viðræður við embættis- og stjórnmálamenn ESB.

25.3.2002

Ríkið rekur stærstu snyrtivöruverslun landsins

Það skekkir samkeppnisstöðu verslunarinnar að ríkið stundi samkeppni við einkarekstur í verslun. Þannig er óeðlilegt að ríkið skuli reka stærstu snyrtivöruverslun landsins. Þetta kom fram í máli Tryggva Jónssonar, formanns SVÞ, á aðalfundi samtakanna.

22.3.2002

Stöðnun framundan hjá iðnfyrirtækjum

Samkvæmt könnun sem Samtök iðnaðarins gerðu í febrúar er útlit fyrir að velta iðnfyrirtækja dragist lítillega saman í ár að raunvirði. Útlit er fyrir áberandi mestan samdrátt fjárfestinga í plast- og veiðarfæraiðnaði. Sjá nánar á heimasíðu SI.

21.3.2002

Mánuður á leikskóla = ár við Háskóla Íslands

Einn mánuður á leikskóla kostar álíka mikið og eitt ár við Háskóla Íslands. Á þetta benti Gylfi Magnússon, dósent við HÍ, á fundi SA um samkeppnishugsun í menntakerfið. Hann sagði skólagjöld við HÍ ekki eiga að vera brottgangssök. Sjá frásögn af fundinum.

21.3.2002

Markmiðin að nást

„Það stendur upp úr að við erum að ná þessum markmiðum sem við settum okkur með samkomulagi í desember,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Vísi.is eftir fund með ASÍ og stjórnvöldum um hið svonefnda rauða strik. Svigrúmið sé þó lítið og mjög mikilvægt að allir sem áhrif hafi á verðlag styðji við bak þessara markmiða.

20.3.2002

Samkeppnishugsun í menntakerfið

Nýtt meistaranám í lögfræði, viðræður um einkaskóla fyrir sex ára bekk og spá um breytt rekstrarform deilda við Háskóla Íslands. Þetta er meðal þess sem fram kom á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins: „Samkeppnishugsun í menntakerfið: þjónusta, nýjungar, skólagjöld.“

20.3.2002

Fundað um hvalveiðar

Landssamband íslenskra útvegsmanna o.fl gangast fyrir morgunverðarfundi um hvalveiðar og stöðu hvalveiðimálsins á Grand Hótel Reykjavík, fimmtudaginn 21. mars og stendur fundurinn frá 08:00 til 09:30. Sjá nánar á heimasíðu LÍÚ.

19.3.2002

Launabreytingar nálgast nágrannalöndin

Flest síðustu ár hafa laun í nágrannalöndunum verið að hækka á bilinu 3-4% árlega, en um 5,5-6,5% hér á landi. Munurinn náði hámarki fyrri hluta 2001 með 14% launahækkun hérlendis. Eftir það dró hratt úr þessari launabólgu og nú eru launabreytingar á Íslandi að nálgast nágrannalöndin.

19.3.2002

Aðalfundur SVÞ 21. mars

SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu halda aðalfund fimmtudaginn 21. mars, kl. 15:00 á Hótel Sögu. Auk ávarpa formanns SVÞ og ráðherra verður fjallað um hinn virka starfsmann í fyrirtæki morgundagins, m.a. af framkvæmdastjóra Dansk Handel & Service. Sjá nánar á heimasíðu SVÞ.

18.3.2002

Aukið atvinnuleysi

Atvinnulausir voru 67,4% fleiri nú í febrúar en í fyrra. Skráðir atvinnuleysisdagar jafngilda því að um 3.556 manns hafi að meðaltali verið á skrá, eða um 2,6% fólks á vinnumarkaði. Sjá nánar á heimasíðu Vinnumálastofnunar.

15.3.2002

Hægt að sættast á sjávarútvegsstefnu ESB?

Í erindi um íslensk utanríkismál sagðist Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra telja að hægt væri að framkvæma sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB með þeim hætti að Íslendingar sem gætu sætt sig við hana sem aðildarríki.

15.3.2002

Skert samkeppnishæfni utan evrunnar?

„Stóra spurningin er hvort Ísland þoli til lengdar þá skertu samkeppnishæfni sem kann að fylgja því að standa utan evrunnar,“ sagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra m.a. í ávarpi sínu á iðnþingi. Ný könnun Gallup sýnir yfir-gnæfandi stuðning við að hafnar verði viðræður um aðild að ESB.

15.3.2002

Efla þarf samkeppnishæfni Evrópu

Evrópusamtök atvinnulífsins segja lítið hafa þokast í átt að settum markmiðum um að ESB verði samkeppnis-hæfasta hagkerfi veraldar árið 2010. Fulltrúar samtakanna afhentu formanni ráðherraráðsins nýja skýrslu með tillögum til úrbóta.

14.3.2002

Samræmdar gæðastjórnunarkröfur útboðslýsinga

Samtök iðnaðarins hafa tekið höndum saman við alla helstu verkkaupa landsins um að samræma kröfur um gæðastjórnun við verklegar framkvæmdir. Slíkar kröfur hafa verið að koma fram í vaxandi mæli, en verið settar fram með misjöfnum hætti. Sjá nánar á heimasíðu SI.

12.3.2002

Notkun og skil ósoneyðandi kælimiðla

Fimmtudaginn 14. mars boðar Spilliefnanefnd til málstofu á Grand Hótel Reykjavík þar sem fjallað verður um notkun og meðferð kælimiðla, skil á notuðum kælimiðlum, skráningu og áhrif spilliefnagjalds. Sjá nánar

12.3.2002

Ekki útilokað að rauða strikið haldi

Í samtali við fréttavef Morgunblaðsins um 0,4% hækkun á vísitölu neysluverðs frá fyrra mánuði segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, hækkunina mikla og að hún setji mjög mikið álag á verðlagsmarkmiðið í maí. Hann segir þó ekki útilokað að markmiðið náist, en til þess verði allir að leggjast á eitt. Sjá nánar á Mbl.is

11.3.2002

Læknisvottorðum hafnað og stéttarfélag dæmt

Í dönskum dómi er læknisvottorðum þriggja manna hafnað og fjarvera þeirra frá vinnu úrskurðuð vinnustöðvun sem brjóti gegn kjarasamningi. Þá var stéttarfélag þeirra dæmt til bótagreiðslu. Læknisvottorð eru ekki alltaf neinn „endanlegur sannleikur“ að sögn talsmanns lækna.

10.3.2002

Staða eldra fólks á vinnumarkaði

Lagasetning til að sporna við uppsögnum vegna aldurs væri bjarnargreiði, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hún kynni að draga úr líkum á ráðningu eldra fólks. Ari segir ástæðu til að skapa um það umræðu ef almennir fordómar séu gegn eldra starfsfólki.

9.3.2002

Veruleg tekjuaukning af erlendum ferðamönnum

Veruleg tekjuaukning varð af erlendum ferðamönnum á síðasta ári og voru heildartekjur þjóðarinnar af komu þeirra 37,7 milljarðar króna, samanborið við 30,5 milljarða árið 2000. Þá er aftur hafin talning erlendra ferðamanna í Leifsstöð eftir þjóðernum.

7.3.2002

Fyrirtæki hyggjast draga úr fjárfestingum

Helmingur fyrirtækja hyggst fjárfesta minna í ár en árið 2001, en um 17% hyggjast auka fjárfestingar sínar, samkvæmt könnun SA. Samdrátturinn er meiri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni og af einstökum greinum er hann mestur í ferðaþjónustu en minnstur í sjávarútvegi.

7.3.2002

„Rauða strikið“ heldur

Forsvarsmenn ríflega þriggja af hverjum fjórum fyrirtækjum telja að verðlagsmarkmið náist í maí, en tæpur fjórðungur telur að svo verði ekki, samkvæmt könnun SA.

7.3.2002

Samkeppnishugsun í menntakerfið

Miðvikudaginn 20. mars standa SA fyrir morgunverðarfundi undir yfirskriftinni Samkeppnishugsun í menntakerfið: þjónusta, nýjungar, skólagjöld. Sjá dagskrá og nánari upplýsingar.

7.3.2002

3% verðbólga!

Flest bendir til að varanlegt jafnvægi sé að skapast sem er forsenda frekari sóknar í íslensku efnahagslífi, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann telur að færa megi rök fyrir því að raunstýrivextir Seðlabankans séu nær 7% en 0,7%, um þessar mundir.

5.3.2002

Kaupmáttarrýrnun 2001 en hækkun á samningstíma

Samkvæmt launakönnun KRN hækkuðu dagvinnulaun að meðaltali um 5,9% á tímabilinu frá 4. ársfj. 2000 til 4. ársfj. 2001, en vísitala neysluverðs um 8,4% á sama tíma. Samkvæmt því rýrnaði kaupmáttur dagvinnulauna að meðaltali um 2,3%, en hann hefur hækkað um 4% á samningstímanum.

1.3.2002

Upplýsingaveita um námsframboð

Opnuð hefur verið upplýsingaveita um námsframboð á vefnum. Upplýsingaveitan verður fyrst um sinn aðeins opin fyrir fræðsluaðila, en kynning til almennings mun eiga sér stað á vormánuðum. Sjá nánar á heimasíðu Menntar.

27.2.2002

Lissabon-ferlið og stækkun EES

Ráðgjafarnefnd EFTA kallar eftir aðlögun EES samningsins að sumum þeirra breytinga sem orðið hafa á Rómarsáttmála ESB, og kynningu hans fyrir væntanlegum aðildarríkjum. Þá kallar hún eftir að EFTA EES ríkin setji sér skýrari markmið gagnvart svonefndu Lissabon-ferli ESB.

26.2.2002

EDI-bikarinn til Mjólkursamsölunnar í Reykjavík

Hin árlegu EDI-verðlaun ICEPRO-nefndarinnar fyrir markvissa og árangursríka stefnu á sviði staðlaðra rafrænna viðskipta voru í gær veitt Mjólkursamsölunni í Reykjavík.

25.2.2002

Construct North 27. febrúar til 3. mars

Dagana 27. febrúar til 3. mars efna SI o.fl. til málþings og ráðstefna á Grand Hótel og fagsýningar og fyrirlestradaga í Laugardalshöll undir yfirskriftinni Construct North – hönnun tækni og mannvirkjagerð á norðurslóðum. M.a. verður fjallað um gæðastjórnun, útflutning, EES-markaðsaðgang og hönnun. Sjá nánar á Mannvirki.is.

21.2.2002

Óeðlilegir viðskiptahættir lögleiddir hjá ÁTVR

Að mati SVÞ brýtur frumvarp til laga um innheimtu ríkisins á tryggingargjaldi og skráningargjaldi vegna sölu á áfengi í bága við eðlilega viðskiptahætti og leiðir til misnotkunar á einkasöluleyfi ríkisins á áfengi með gróflegum hætti. Sjá fréttatilkynningu SVÞ.

20.2.2002

Skylduáskrift að RÚV falli niður

Í umsögn um frumvarp um breytingu á útvarpslögum telja SA rétt að skylduáskrift að RÚV falli niður og eðlilegt að allar útvarpsstöðvar fái jafnt færi á að sinna því hlutverki sem RÚV gegnir nú skv. útvarpslögum. Þá telja SA nauðsynlegt að breyta RÚV í hlutafélag.

19.2.2002

Hagstjórnarþáttur samgönguframkvæmda

Í umsögn um frumvarp til laga um samgönguáætlun segja SA eðlilegt að dregið sé úr framkvæmdum þegar umsvif eru mikil í hagkerfinu og að þær séu auknar þegar slaki er mikill. Samgönguframkvæmdir hljóti t.d. að dragast saman þegar miklar virkjanir eru í gangi.

15.2.2002

Fyrirtækin vilja fækka starfsfólki

Fyrirtæki telja æskilegt að fækka starfsfólki um sem nemur 0,4%, skv. vinnumarkaðskönnun Þjóðhagsstofnunar. Í fyrsta sinn frá árinu 1997 sýnir janúarkönnun ÞHS að fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu vilji fækka fólki. Þetta eru nánast sömu niðurstöður og í könnun SA í desember sl. Sjá nánar á heimasíðu Þjóðhagsstofnunar.

14.2.2002

Aðstoð við markaðssetningu erlendis

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Útflutningsráð Íslands hafa gert með sér samstarfssamning fyrir árið 2002 um verkefni sem ætlað er að aðstoða fyrirtæki við markaðssetningu erlendis.

12.2.2002

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,3%

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúarbyrjun 2002 var 220,9 stig og lækkaði um 0,3% frá fyrra mánuði. Þetta eykur líkurnar á að verðlagsmarkmiðið í maí náist, en í samkomulagi SA og ASÍ er miðað við að vísitalan verði þá ekki hærri en 222,5 stig.

11.2.2002

Starfsmenntastyrkir til umsóknar

Starfsmenntaráð hefur auglýst eftir umsóknum um styrki til starfsmenntunar. Úthlutað verður 65 millj. kr. í styrki til fyrirtækja, samtaka, einkaaðila o.fl. Umsóknarfrestur er til 17. mars nk. Í ár verður lögð áhersla á upplýsingatækni, þjálfun leiðbeinenda í starfsmenntun og starfsmenntun fatlaðra.

11.2.2002

Um launakönnun VR 2001

Í árlegri launakönnun VR er margt fróðlegra upplýsinga. Sem fyrr má þó gera ýmsar aðferðarfræðilegar athugasemdir við könnun VR, sem sumra er reyndar getið í fyrirvörum skýrslunnar.

7.2.2002

Skattamál: bókhald og ársreikningar í erlendri mynt

SA fagna framkomnu frumvarpi um heimild til að færa bókhald í erlendri mynt en telja kröfu frumvarpsins um að jafnframt skuli færa bókhald í íslenskum krónum vera of þunglamalega. Umreikningur til skattskila í íslenskar krónur á meðalgengi væri ásættanleg niðurstaða.

7.2.2002

Mannréttindi – nei takk?

Með ólíkindum hefur verið að fylgjast með upphrópunum sumra stjórnmálamanna í framhaldi af málefnalegum athugasemdum SA og VÍ um samkeppnislög og vinnubrögð Samkeppnisstofnunar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfisins Af vettvangi. Hann segir endurskoðun samkeppnislaga óhjákvæmilega.

7.2.2002

Misjafnar reglur um innkaup sveitarfélaga

Sveitarfélögin eru undanþegin stórum hluta laga um opinber innkaup og því gilda misjafnar reglur um opinber innkaup þeirra fyrir milljarða króna. SA berast iðulega kvartanir frá fyrirtækjum vegna þessa, en nú hefur nefnd verið skipuð til að gera tillögur um gildissvið laganna gagnvart sveitarfélögum.

7.2.2002

Skattasamkeppni á höfuðborgarsvæðinu?

Af sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu innheimtir Reykjavík hæstan fasteignaskatt af atvinnuhúsnæði, en Kópavogur og Hafnarfjörður fylgja þar fast á eftir. Lægst er skatthlutfallið í Mosfellsbæ en á yfirstandandi kjörtímabili hefur skatturinn hækkað mest í Garðabæ, eða um tæp 50%.

7.2.2002

Námskeið SA um gerð jafnréttisáætlana

Námskeið um gerð jafnréttisáætlana verður haldið miðvikudaginn 6. mars nk. kl. 10:00 –12:00 í húsakynnum SA að Garðastræti 41. Námskeiðið er opið öllum félagsmönnum SA.

6.2.2002

Neikvæð áhrif auðlindagjalds á skatttekjur ríkisins

Samkvæmt skýrslu Hagfræðistofnunar gætu neikvæð áhrif auðlindagjalds á eignir landsmanna og þá einkum á landsframleiðslu leitt til þess að tekjuaukning hins opinbera af álagningu auðlindagjalds verði engin eða jafnvel neikvæð. Sjá nánar á heimasíðu LÍÚ.

5.2.2002

Markmiðin geta náðst

Stjórn Samtaka atvinnulífsins fagnar ákvörðunum opinberra aðila og fyrirtækja um lækkanir á verði og gjaldskrám. Þessar aðgerðir, ásamt aðhaldssamri verðlagningu fyrirtækja á markaði, eiga að geta leitt til þess að verðlagsmarkmið í maí nk. náist og þannig verði komist hjá hugsanlegri víxlverkun verðlags- og launahækkana.

1.2.2002

Þýskaland vinsælast

Samkvæmt skoðanakönnun meðal íbúa 11 umsóknarríkja um ESB-aðild myndu flestir vilja starfa í Þýskalandi, en Bretland og Austurríki fylgja næst á eftir. Í Danmörku óttast menn að háir skattar fæli fólk frá dönskum vinnumarkaði.

30.1.2002

SA vilja styttingu í skólakerfinu

Menntahópur Samtaka atvinnulífsins styður þau viðhorf sem koma fram í skýrslu VR og Hagfræðistofnunar um styttingu grunn- og framhaldsskóla, en fækkun grunn- og framhaldsskólaára eru meðal yfirlýstra áhersluatriða SA í menntamálum.

28.1.2002

Málþing um kulnun í starfi

Föstudaginn 8. febrúar nk. gengst Vinnueftirlitið fyrir málþingi um kulnun í starfi, með stuðningi SA o.fl. Aðalfyrirlesari verður hollenskur fræðimaður sem er heimsþekktur fyrir rannsóknir og skrif um þetta efni. Sjá nánar á heimasíðu Vinnueftirlitsins.

24.1.2002

SA álykta um samkeppnismál

Framkvæmdastjórn SA hefur beint því til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, að hún beiti sér fyrir sjálfstæðri skoðun á því að hvaða leyti íslensk samkeppnislög og framganga og vinnuaðferðir Samkeppnisstofnunar séu frábrugðin því sem annars staðar gerist innan EES.

23.1.2002

Atvinnuleysistryggingasjóður kaupir Engjateig 11

Atvinnuleysistryggingasjóður hefur fest kaup á því húsnæði sem Vinnumálastofnun hefur haft á leigu undanfarin ár til að hýsa skrifstofu Vinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins.

22.1.2002

Allt að 33% hækkun á gjaldskrám heilbrigðisnefnda

Nær allar heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hækkuðu gjaldskrár sínar árið 2001. Mest var hækkunin á Kjósarsvæði, 33,3%, 20% á Norðurlandi Vestra og 10% í Reykjavík. Þessar hækkanir urðu allar í desember.

22.1.2002

Samkeppnishugsun í skólakerfið

Í erindi á ráðstefnu Stúdentaráðs Háskóla Íslands um tengsl háskóla og atvinnulífs lagði Gústaf Adolf Skúlason frá SA megináherslu á mikilvægi samkeppnishugsunar í skólakerfinu. Hann fjallaði m.a. um jákvæð áhrif aukinnar samkeppni á viðskiptadeild HÍ.

22.1.2002

Fyrirtækin vilja aukin tengsl við háskóla

Allur þorri fyrirtækja vill koma að kennslu, rannsóknum eða stjórnun háskóla, og um helmingur þeirra vill auka framlög til rannsókna og menntunar, verði skattafrádráttur aukinn vegna slíkra framlaga. Þetta er meðal niðurstaðna könnunar SA fyrir Stúdentaráð HÍ.

18.1.2002

Námskeið: ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlarnir

Föstudaginn 1. febrúar stendur Staðlaráð Íslands fyrir námskeiði fyrir þá sem vilja læra á nýja útgáfu ISO 9000 gæðastjórnunarstaðlanna, megináherslur þeirra, uppbyggingu, beitingu og viðhald gæðastjórnunarkerfis. Sjá nánar á vef Staðlaráðs Íslands.

18.1.2002

Ráðstefna um samstarf háskóla og atvinnulífs

Þriðjudaginn 22. janúar halda Stúdentaráð og Hollvinasamtök HÍ ráðstefnu, með stuðningi SA, um samstarf háskóla og atvinnulífs. Gústaf Adolf Skúlason frá SA mun fjalla um samkeppnishugsun í skólakerfinu. Sjá nánar á vef Stúdentaráðs HÍ.

17.1.2002

Pólland, Ungverjaland, Marokkó, WTO o.fl.

Fyrirhugaðir eru EFTA-fundir um fríverslunarmál við Pólland, Ungverjaland, Marokkó, Ísrael og Palestínu. Þá hefst senn undirbúningur nýrrar lotu WTO-viðræðna. Þetta eru kjörin tækifæri til að koma á framfæri upplýsingum um vandræði í viðskiptum erlendis.

15.1.2002

Endurskoða þarf tilefni verðhækkana

Opinberir aðilar jafnt sem fyrirtækin verða að fara yfir og endurmeta tilefni verðlagshækkana, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í viðtali við Morgunblaðið. Framkvæmdastjóri ASÍ segir enga ástæðu til að menn fari á taugum, þótt svigrúmið sé lítið.

11.1.2002

Evrópskt atvinnulíf kallar eftir samkeppnishæfni

Aukinn sveigjanleiki á vinnumarkaði og minni skriffinskubyrði eru meðal þess sem formenn samtaka atvinnulífs í öllum fimmtán aðildarríkjum ESB fara fram á í opnu bréfi til forsætisráðherra Spánar, sem nú gegnir formennsku í ESB.

9.1.2002

Evran kallar á samkeppnishæfari starfsskilyrði

Tilkoma evrunnar veitir ríkjum á evrusvæðinu ákveðið samkeppnisforskot. Önnur ríki verða því að bjóða fjárfestum betri kjör á öðrum sviðum, sagði utanríkisráðherra Noregs á aðalfundi norsku samtaka atvinnulífsins. Hann boðar m.a. skattalækkanir og vill umbuna skólum fyrir árangur.

9.1.2002

Hagvöxtur með fríverslun

Þau lönd sem hafa verið fremst í fríverslun hafa einnig notið mests hagvaxtar, sagði formaður NHO, norsku samtaka atvinnulífsins, í ávarpi sínu á aðalfundi samtakanna þar sem fjallað var um hnattvæðinguna og tækifæri þau sem í henni felast.

8.1.2002

Mannvirki.is

Samtök iðnaðarins hafa opnað nýjan fagvef mannvirkjagerðar og byggingariðnaðar á Íslandi. Vefurinn tengist verkefninu Construct North 2002 – málþingi og fagsýningu SI á Grand Hótel 28. febrúar og í Laugardagshöll 1. til 3. mars næstkomandi.

4.1.2002

Útgjöld utanríkisráðuneytisins hækka mest

Útgjöld ríkissjóðs hækka um 9% frá fjárlögum fyrir árið 2001 til fjárlaga fyrir árið 2002. Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir að verðlag samneyslu hækki um 6% frá 2001 til 2002, og miðað við það eru umsvif ríkisins að aukast. Mest hækka útgjöld utanríkisráðuneytisins.

3.1.2002

Slæmar afkomuhorfur sveitarfélaga

Stórfelldur hallarekstur blasir við sveitarfélögunum bregðist þau ekki við í tíma. Mikil aukning á umsvifum þeirra undanfarin ár var að miklu leyti fjármögnuð með aukningu skatttekna sem rætur sínar átti í góðu árferði, sem nú fer hins vegar versnandi um sinn.

3.1.2002

Vinnumarkaður að róast

Samkvæmt könnun Samtaka atvinnulífsins ætla fyrirtæki að fækka starfsfólki um tæpt hálft prósent næstu tvo til þrjá mánuði. Í bili virðist sem þenslunni sé lokið á vinnumarkaði höfuðborgarsvæðisins. Eftirspurnin eykst hins vegar á landsbyggðinni.

3.1.2002

Harkaleg vinnubrögð Samkeppnisstofnunar

Nýlegar sektarákvarðanir Samkeppnisstofnunar og húsleitir hennar hjá olíufélögunum vekja upp alvarlegar spurningar um vinnubrögð stofnunarinnar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

3.1.2002

Betri horfur

Margt bendir til þess að betra jafnvægi sé að komast á í efnahagslífinu, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Allir verði að sýna aðhald og leggja sitt af mörkum gagnvart verðlagsmarkmiðum.

2.1.2002

Ný kaupgjaldsskrá Samtaka atvinnulífsins

Kaupgjaldsskrá SA fyrir árið 2002 er komin á vefinn. Hér er um að ræða launataxta verkafólks, verslunarmanna og iðnaðarmanna. Laun hækka um 3,0% en kauptaxtar verkafólks og verslunarmanna taka þó meiri hækkun. Skráin er birt á vefnum á pdf- sniði. Pappírsútgáfan er send öllum aðildarfyrirtækjum SA. Sjá nánar.


Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english