Beint á leiðarkerfi vefsins

Fréttir

29.9.2001

„Evra – hvað gerist 1. janúar 2002?“

Um næstu áramót tekur evran við af tólf gjaldmiðlum Evrópuríkja. Breytingin mun snerta almenning og fyrirtæki á Íslandi á ýmsa vegu. Nú hafa bankar og sparisjóðir, í samvinnu við SBV, gefið út bækling sem svarar ýmsum spurningum vegna þessa.

27.9.2001

Samkeppni í framleiðslu og sölu á rafmagni

SA og SI hafa skilað sameiginlegri umsögn um frumvarp til raforkulaga. Með frumvarpinu eru sköpuð skilyrði fyrir virka samkeppni á raforkumarkaði sem leiðir til aukinnar hagkvæmni og lægra raforkuverðs, og styðja samtökin eindregið þá stefnumótun.

26.9.2001

Öll efnahagsleg rök með skattalækkun

Nánast öll efnahagsleg rök mæla með skattalækkun á fyrirtæki, jafnvel myndarlegri skattalækkun, að sögn Bolla Þórs Bollasonar, skrifstofustjóra efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins. Í ráðuneytinu hafa veltuáhrif skattalækkana verið til skoðunar.

25.9.2001

3,4% kaupmáttaraukning

Dagvinnulaun hækkuðu að meðaltali um 9,6% á tímabilinu frá öðrum ársfjórðungi 2000 til annars ársfjórðungs 2001. Vísitala neysluverðs hækkaði um 6% á sama tíma og jókst því kaupmáttur dagvinnulauna að meðaltali um 3,4%. Þetta er meðal niðurstaðna launakönnunar Kjararannsóknarnefndar.

24.9.2001

Nýir ESB-skattar?

Nýr samræmdur orkuskattur og nýr sameiginlegur skattur á rafræn viðskipti eru meðal þess sem Belgar vilja að samkomulag náist um í formennskutíð þeirra í ESB.

24.9.2001

Vaxandi stuðningur Dana við evruna

Í fyrsta sinn frá því Danir höfnuðu evrunni mælast stuðningsmenn hennar nú í meirihluta. Reikna má með að stuðningur við evruna fari vaxandi eftir áramót, að sögn sérfræðings hjá dönsku utanríkismálastofnuninni.

19.9.2001

„Þekking á leið úr landi?“ - 26. september

Ráðstefna viðskiptafræðinema undir yfirskriftinni „Þekking á leið úr landi? - ráðstefna um skattaumhverfi á Íslandi“ verður haldin 26. september en ekki þann 20. eins og áður var auglýst. SA styrkja ráðstefnuna. Sjá nánar.

18.9.2001

Flestir tilbúnir fyrir evruna

Samkvæmt könnun UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, eru fyrirtæki á evrusvæðinu almennt vel búin undir gildistöku evrunnar. Það eru einkum smærri fyrirtæki sem gætu upplifað erfiðleika samkvæmt könnuninni, ekki síst í smásölu.

14.9.2001

Evrópusamtök atvinnulífsins fordæma hryðjuverkin í Bandaríkjunum

Evrópusamtök atvinnulífsins fordæma hryðjuverkin í Bandaríkjunum og lýsa yfir samstöðu með Bandaríkjamönnum. Þá leggja þau áherslu á að hryðjuverkamönnunum verði ekki leyft að trufla efnahags- og félagslegar framfarir um heim allan.

13.9.2001

Þriggja mínútna þögn á vinnustöðum

Samtök atvinnulífsins hvetja landsmenn til þess að taka þátt í þriggja mínútna þögn föstudaginn 14. september kl. 10:00 að íslenskum tíma, vegna fórnarlamba hryðjuverkanna í Bandaríkjunum.

13.9.2001

Hægist um hjá eignarleigum

Samkvæmt nýjustu tölum frá Seðlabankanum hefur hægt verulega um í útlánum eignarleiga og er þetta enn ein vísbendingin um viðsnúninginn í efnahagslífinu um þessar mundir.

11.9.2001

67% félagsmanna SI vilja evru

Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem Gallup vann fyrir Samtök iðnaðarins vilja 67% félagsmanna SI taka upp evru í stað íslensku krónunnar. Þá eru 49,9% þjóðarinnar fylgjandi aðild Íslands að ESB.

6.9.2001

Þekking á leið úr landi?

Þann 20. september næstkomandi verður haldin ráðstefna á Hótel Sögu undir yfirskriftinni „Þekking á leið úr landi? - mikilvægi samkeppnishæfs skattaumhverfis.“ Viðskiptafræðinemar við HÍ standa að ráðstefnunni með stuðningi SA o.fl.

6.9.2001

Hve langt á að ganga í því að taka upp nýjar Evrópureglur ?

Tilskipunum ESB á sviði félagsmála fjölgar stöðugt. Margar þeirra eru til þess fallnar að draga úr sveigjanleika íslensks vinnumarkaðar. Að mati SA er mikilvægt að ekki sé gengið lengra við innleiðingu þeirra en nauðsynlegt er vegna EES-samningsins.

6.9.2001

Samtals sjö milljarða tap af rekstri 67 fyrirtækja

Afkoma 67 fyrirtækja, sem fréttir hafa borist af, var mun verri á fyrri helmingi árs en á sama tíma í fyrra. Rúmlega fjögurra milljarða hagnaður snerist í sjö milljarða tap. Arðsemi eigin fjár var tæplega -8% í ár en 5,5% árið 2000. Rekstrarafgangur fyrir fjármagnsliði jókst hins vegar úr 3,8 milljörðum árið 2000 í tæpa sjö milljarða árið 2001.

6.9.2001

Skattalækkun á fyrirtæki tímabær

Að halda til streitu óhagstæðum mun gagnvart öðrum löndum, varðandi t.d. eignarskatt og stimpilgjöld, veikir allt efnahagslífið og tekjugrundvöll ríkisins til framtíðar, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi.

5.9.2001

Allt að 38% munur á gjaldskrám heilbrigðisnefnda

Allt að 38% munur er á tímagjaldi því sem einstakar heilbrigðisnefndir innheimta fyrir eftirlit sitt. Hæst eru gjöldin á Suðurnesjum, 5800 kr/klst, en lægst á Kjósasvæði, 4200 kr/klst.

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english