Efnahags- og skattamál
29.12.2011
Ár glatađra tćkifćra
27.12.2011
Stjórnmálamenn vinni fyrir laununum sínum
20.12.2011
Ađilar taki höndum saman um sköpun nýrra starfa
14.12.2011
Formađur SA: Atvinnumálin verđi sett í forgang
Það er ótalmargt sem betur mætti fara í atvinnulífinu hér á landi og þess vegna beinum við því til Alþingis og alþingismanna að þeir vakni af þyrnirósarsvefni og geri sér grein fyrir stöðunni. Þetta segir Vilmundur Jósefsson, formaður SA, m.a. í samtali við Morgunblaðið í dag en Samtök atvinnulífsins sendu öllum alþingismönnum bréf í gær þar sem þeir eru hvattir til að setja atvinnumálin og baráttuna gegn atvinnuleysi í forgang. Vilmundur segir að verið sé að draga fyrirtæki niður í svaðið með óhóflegri skattheimtu en þar má t.d. nefna hækkun kolefnisgjalds, sérstakan launaskatt á banka, óhóflega hækkun veiðigjalds, framlengingu og hækkun auðlegðarskatts.
13.12.2011
Stefnir í ađ 2011 verđi nćst mesta brottflutningsár Íslendinga
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra: „Fólksflutningar núna eru ekkert meiri en í venjulegu árferði. Þeir voru töluverðir árið 2009 og 2010 en það hefur stöðvast miðað við þann mikla brottflutning sem var áður. Þannig að við erum bara á svipuðu róli og var þá." Þetta er því miður ekki rétt hjá forsætisráðherra.
Á vef Hagstofunnar kemur fram að brottfluttir umfram aðflutta hafi verið tæplega 1.400 á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Brottfluttir íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta voru 1.320 og erlendir voru 80. Ef fram heldur sem horfir verða brottfluttir Íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta 1700-1800 á árinu öllu. Ef svo fer verður árið 2011 næst mesta brottflutningsár Íslendinga í sögunni í fjölda einstaklinga talið. Einungis árið 2009 er hærra með tæplega 2.500 brottflutta Íslendinga umfram aðflutta en árið 2010 voru þeir 1.700.
13.12.2011
Til Alţingis frá SA: Virkjum tćkifćrin og rjúfum kyrrstöđuna
Lítill hagvöxtur, skortur á framkvæmdum og fjárfestingum, atvinnuleysi og brottflutningur fólks tefur endurreisn og rýrir lífskjör fólks í landinu. Árið 2011 er enn eitt ár vannýttra tækifæra. „Eitthvað annað" stefnan er fullreynd.
Samtök atvinnulífsins benda á atvinnuleiðina. Markvissa leið fjárfestinga og framkvæmda, sem dregur úr atvinnuleysi og eykur hagvöxt.
Samtök atvinnulífsins hvetja Alþingi að taka nú frumkvæði og láta framsæknar aðgerðir í atvinnumálum hafa algjöran forgang. Mörkum skýra stefnu, eyðum óvissu undirstöðuatvinnugreina. Leysum úr læðingi uppsafnaða fjárfestingarþörf og sköpum ný atvinnutækifæri í byggðum landsins.
Sækjum fram. Rjúfum kyrrstöðuna og virkjum þau tækifæri sem blasa við.
Sent til allra alþingismanna 13. desember 2011.
12.12.2011
Veikar undirstöđur hagvaxtar rćddar á Sprengisandi
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, var gestur Sigurjóns M. Egilssonar í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni sunnudaginn 11. desember. Þar sagði hann m.a. að nýjar tölur Hagstofunnar um 3,7% hagvöxt á fyrstu 9 mánuðum ársins ekki gefa vísbendingar um að viðsnúningur til hins betra hafi orðið í atvinnulífinu. Hagvöxturinn skýrist af aukinni einkaneyslu vegna tímabundinna ástæðna og aukinnar makrílveiði sem hafi reynst þjóðarbúinu mikilvæg búbót.
Hannes bendir á að störfum fjölgi nánast ekki neitt, mikill flótti fólks sé frá landinu og fáar vísbendingar um að umtalsverðar fjárfestingar í atvinnulífinu séu framundan. Hagvöxturinn hvíli því á veikum grunni, en auka þurfi verðmætaframleiðslu atvinnulífsins, skapa ný störf og efla rekstur starfandi fyrirtækja með arðbærum fjárfestingum.











