Efnahags- og skattamál
28.1.2011
Með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi
Það er mikill misskilningur að kröfur atvinnurekenda í yfirstandandi kjaraviðræðum snúist einungis um fiskveiðistjórnunarkerfið. Þetta segir Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins og stjórnarmaður í Samtökum atvinnulífsins í grein í Morgunblaðinu í dag. Hann segir að reynt sé að gera önnur samtök en sjávarútvegs tortryggileg með því að í viðræðunum sé verið að ganga erinda LÍÚ, eins aðildarfélaga SA.
Helgi segir þetta ekki rétt því verið sé að ganga erinda alls alls atvinnulífsins í þeirri vegferð að koma hér á öflugum hagvexti að nýju með því að fara atvinnuleið í stað atvinnuleysisleiðar. Með því að fara atvinnuleiðina megi eyða atvinnuleysinu, auka kaupmátt fólks og bæta hag fyrirtækja. „Þannig göngum við erinda allrar þjóðarinnar."
21.1.2011
Vögguvísa yfir erlendum fjárfestingum og atvinnulífinu
Samtök atvinnulífsins leggja á það megináherslu nú þegar unnið er að gerð nýrra kjarasamninga að stjórnvöld grípi til allra nauðsynlegra ráðstafana til að skapa skilyrði fyrir nýjar fjárfestingar og þá sérstaklega í útflutningsgreinum. Þar er átt við greinar sem nýta orku til framleiðslu sinnar, sjávarútveg, sprotafyrirtæki, ferðaþjónustu og fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
19.1.2011
Nýjar vegaframkvæmdir geta skapað hundruð starfa
Nýjar arðbærar vegabætur munu bæta innviði landsins og skapa hundruð starfa. Þá auka framkvæmdirnar öryggi í umferðinni og spara þar með þjóðfélaginu stórfé á ári hverju. Umfangsmiklar vegaframkvæmdir eru eitt þeirra stóru og mikilvægu mála sem eru uppi á borðum samningsaðila í yfirstandandi kjaraviðræðum og kalla á aðkomu ríkisstjórnarinnar. Samtök atvinnulífsins leggja á það höfuðáherslu að stórum fjárfestingarverkefnum í atvinnulífinu verði komið á skrið og í nýlegri aðgerðaáætlun ASÍ er lagt til að stórum framkvæmdum í samgöngumálum verði hrint í framkvæmd með stofnun félags í eigu ríkissjóðs sem taki lán hjá langtímafjárfestum til langs tíma.
17.1.2011
Mikið atvinnuleysi áhyggjuefni
14.1.2011
Stöðnun ekki boðleg
Samtök atvinnulífsins telja þá leið vænlegasta frá núverandi stöðnun að fjárfestingar og útflutningur aukist og þannig skapist atvinna í bráð og lengd. Slík leið er líklegri til árangurs en tímabundinn vöxtur byggður á aukinni einkaneyslu eða hallarekstri ríkissjóðs.
Óhugsandi er að hefja sókn þjóðarinnar til framfara og aukins útflutnings og fjárfestinga án þess að sjávarútvegurinn, ein helsta útflutningsgreinin og um leið ein helsta stoð samfélagsins, eigi þar öflugan hlut að máli.
13.1.2011
Samstaða um atvinnusókn
Í leiðara nýs fréttabréfs SA fjallar Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA um kjarasamningana framundan og þá leið sem fara verði. Hann segir tvær leiðir hugsanlegar til að koma Íslandi út úr kreppunni. „Annars vegar er að reikna með takmörkuðum hagvexti sem byggir á einkaneyslu og samneyslu. Hins vegar er að reiða sig á öflugan hagvöxt sem er drifinn áfram af framleiðsluhlið efnahagslífsins, þ.e.a.s. með fjárfestingum og auknum útflutningi."
12.1.2011
Meginmarkmið að þjóðin nái fyrri styrk
Viðræður aðila vinnumarkaðarins um nýja kjarasamninga eru nú komnar á skrið eftir að hafa legið niðri yfir jól og áramót. Í gær áttu fulltrúar Samtaka atvinnulífsins fund með samninganefnd Alþýðusambands Íslands og í hádeginu í dag funduðu SA með leiðtogum ríkisstjórnarflokkanna, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrími J. Sigfússyni. Á fundum Samtaka atvinnulífsins með ASÍ og ríkisstjórninni lögðu SA fram samantekt vegna kjaraviðræðnanna þar sem sett eru fram meginmarkmið SA og yfirlit um þau mál sem samtökin vilja að ríkisstjórn og Alþingi taki til umfjöllunar og afgreiðslu samhliða gerð nýrra kjarasamninga.











