Beint á leiðarkerfi vefsins

Efnahags- og skattamál

29.12.2010

Algjört úrslitaatriði að koma fjárfestingum í gang

Mikilvægasta verkefnið um þessar mundir er að koma fjárfestingum í atvinnulífinu í gang - það er raunar algjört úrslitaatriði. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, en rætt var við hann í morgunþætti Bylgjunnar um stöðuna í atvinnulífinu, takmarkaða bjartsýni stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins og hvort viðsnúningur í efnahagsmálunum sé á næsta leiti. Vilhjálmur segir fjárfestingarnar í raun svo litlar að mikil hætta sé á að þjóðin dragist verulega aftur úr í lífskjörum og samkeppnishæfni.

28.12.2010

Mikilvægt að móta nýja peningastefnu

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir miklu skipta að móta nýja peningamálastefnu sem fyrst. Í samtali við Fréttablaðið í dag segir Vilhjálmur ánægjulegt að Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, vilji hafa forgöngu um að setja í gang umræðu um peningastefnuna. Augljóst hafi verið að framkvæmd hennar hafi ekki virkað þegar Seðlabanki Íslands hækkaði ítrekað vexti í aðdraganda hrunsins til að reyna að sporna við verðbólgu. Þá segir Vilhjálmur mikilvægt að aflétta gjaldeyrishöftunum sem fyrst til að opna fjármagnsmarkaði. Gengi krónunnar geti þá byggt á raunveruleikanum en ekki því gerviumhverfi sem höftin skapi.

28.12.2010

Ráðningaráform fyrirtækja ekki uppörvandi

Í nýrri reglubundinni könnun Capacent meðal stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins kemur fram að nær allir aðspurðra telja sig hafa nægt starfsfólk og einungis 5,5% búa við skort á starfsfólki. Ráðningaráform stjórnenda eru ekki uppörvandi þar sem 14% hyggjast fjölga starfsmönnum á næstu sex mánuðum, 26% hyggjast fækka en 60% halda óbreyttum fjölda. Þetta er heldur lakari niðurstaða en í síðustu könnunum. Mesta fjölgunin er áformuð í fjármála- og tryggingastarfsemi en mesta fækkunin í iðnaði og framleiðslu.

27.12.2010

Stjórnendur 400 stærstu fyrirtækjanna: Aðstæður enn slæmar

Yfirgnæfandi hluti stjórnenda 400 stærstu fyrirtækja landsins telja aðstæður slæmar í atvinnulífinu. Þetta kemur  fram í reglubundinni könnun Capacent meðal fyrirtækjanna. Samkvæmt könnuninni, sem gerð var í desember 2010, telja 84% stjórnenda aðstæður slæmar, 15% að þær séu hvorki góðar né slæmar en nánast enginn að þær séu góðar. Þetta er svipuð niðurstaða og fengist hefur frá miðju ári 2008. Þeir örfáu stjórnendur sem telja aðstæður góðar starfa í sjávarútvegi og í iðnaði en í öðrum greinum telur enginn að aðstæður séu góðar.

17.12.2010

Gögn frá fundi um lausnir á skuldamálum fyrirtækja

Á fjórða hundrað stjórnenda mættu á opinn upplýsingafund í morgun um nýtt samkomulag um úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Um víðtækt samkomulag er að ræða sem efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands standa að.

 

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, hvetur fyrirtæki til að snúa sér sem fyrst til síns viðskiptabanka til að skoða hvaða möguleikar standi þeim til boða og taka ákvarðanir í framhaldinu. Margir aðilar eru tilbúnir til að veita fyrirtækjunum hlutlausa þjónustu í þeirri vinnu sem framundan er og verða upplýsingar um þá birtar hér á vef SA.

15.12.2010

Samkomulag um úrlausn á skuldavanda lítilla og meðalstórra fyrirtækja

Víðtækt samkomulag hefur náðst um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands. Skrifað var undir samkomulagið í dag í Rúgbrauðsgerðinni. Samkomulagið verður kynnt á opnum fundi á Grand Hótel Reykjavík föstudaginn 17. desember kl. 8.30-10.00. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA.

9.12.2010

Skýr afstaða SA til Icesave

Samtök atvinnulífsins hafa allt frá því íslenska bankakerfið hrundi haustið 2008 hvatt til þess að reynt yrði sem fyrst að koma viðskiptum Íslands við aðrar þjóðir í eðlilegt horf. Því hafa samtökin stutt allar tilraunir starfandi ríkisstjórna á þessum tíma til að ná samkomulagi við við stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi um svokallað Icesave-mál. Lausn þess er einn liður í endurreisn efnahagslífsins sem hefur dregist allt of lengi, en fleira þarf að koma til. Yfir 14 þúsund manns eru án atvinnu á Íslandi og þúsundir hafa yfirgefið landið í leit að betri tækifærum. SA telja þetta ólíðandi og hafa því lagt fram ítarlega aðgerðaáætlun um endurreisn atvinnulífsins. Lausn milliríkjadeilunnar við Breta og Hollendinga er einn liður í þeirri áætlun en til að komast út úr kreppunni þarf Ísland að fjárfesta í arðbærum útfluningsgreinum. Til þess þarf atvinnulífið greiðan aðgang að innlendu og erlendu lánsfé á viðráðanlegum kjörum og opinn aðgang að erlendum fjármálamörkuðum.

 

Á vef SA má nú nálgast ítarlegt yfirlit yfir framgang Icesave-málsins á vettvangi ríkisstjórnar og Alþingis og afstöðu SA til þess en framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hvatti til þess í upphafi ársins að reynt yrði að ná víðtækri samstöðu um lausn málsins.

6.12.2010

Hröð úrlausn á skuldavanda heimila og fyrirtækja mikilvæg

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir jákvætt að niðurstaða sé fengin varðandi aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna. Mikilvægt sé að unnið verði hratt úr vanda þeirra en einnig verði ráðist hratt í að leysa úr skuldavanda lífvænlegra fyrirtækja eins og boðað hafi verið. Hannes segir að ef endurskipulagning á fjárhag heimila og fyrirtækja gangi vel sé mögulega hægt að sjá fyrir botn hagsveiflunnar og jafnvel viðspyrnu.

2.12.2010

Einungis óinnheimtanlegar kröfur verði felldar niður

Samtök atvinnulífsins áttu í gær fund með ráðherrum og Alþýðusambandi Íslands í stjórnarráðinu þar sem rætt var um aðgerðir í þágu skuldsettra heimila og framlag lífeyrissjóðanna til þeirra. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir að viðfangsefnið sé að tryggja að stjórnir sjóðanna geti tekið ákvörðun um að taka þátt í aðgerðum stjórnvalda án þess að eiga yfir höfði sér málaferli og bótakröfur. Búa verði þannig um hnútana að kröfur sem eru innheimtanlegar verði ekki afskrifaðar.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english