Efnahags- og skattamál
31.12.2007
Brýnt að ná jafnvægi á næsta ári
Þróun atvinnulífsins og efnahagsmála hefur sett mestan svip á starf Samtaka atvinnulífsins á árinu,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið í dag inntur eftir því hvað hæst hafi borið á árinu. „Rekstur margra fyrirtækja hefur gengið vel. Þau hafa ráðið til sín fólk og kaupmáttur hefur farið vaxandi. Þá hefur atvinnuleysi verið sáralítið. Annað hefur hins vegar ekki gengið jafnvel. Verðbólgan hefur aukist og veldur því fyrst og fremst hækkun íbúðaverðs. Við höfum horft á Seðlabankann hækka vexti án þess að það hefði nokkur áhrif á verðbólguna. Ýmis útflutningsfyrirtæki hafa síðan lent í vandræðum vegna aðgerða bankans. Þótt árið hafi að flestu leyti verið uppgangsár hefur það verið á ýmsan hátt erfitt. Það ber brýna nauðsyn til að ná betra jafnvægi á næsta ári.“
28.12.2007
Hjöðnun verðbólgu forgangsmál
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir í grein í Fréttablaðinu í dag að hjöðnun verðbólgu hljóti að vera forgangsmál fyrir
27.12.2007
Mikilvægt að verja lífskjörin
Á síðasta einum og hálfa áratug hefur Íslendingum farnast vel. Á árunum 2000-2007 jókst kaupmáttur launa samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar um 20% til viðbótar við 22% aukningu á árunum 1990-2000. Sé litið til umsaminna lágmarkslauna þá jókst kaupmáttur þeirra um 45% frá 1990-2000 og um rúm 18% á árunum 2000-2007. Samtals jókst kaupmáttur umsaminna lágmarkslauna um 71% milli áranna 1990 og 2007. Launahækkanir á Íslandi hafa verið mun meiri undanfarin ár en gerist meðal nálægra þjóða. Það þarf öflugt atvinnulíf til að greiða há laun og ástæða til að óska Íslendingum til hamingju með árangur liðinna ára.
13.12.2007
Vísbending um kólnun fasteignamarkaðar?
Vísitala neysluverðs hækkaði sem kunnugt er um 0,68% milli nóvember og desember 2007 og varð hækkunin ívið meiri en greiningardeildir bankanna höfðu spáð. Það jákvæða við mælinguna að þessu sinni er að húsnæðisliður vísitölunnar hækkar ekki meira en annað verðlag og er því ekki leiðandi í verðhækkunum. Hækkun kostnaðar vegna eigin húsnæðis var ennfremur að mestu vegna hækkunar vaxta en hækkun á markaðsverði húsnæðis var mun minni en undanfarna mánuði. Ljóst virðist að hækkanir fasteignaverðs stefni niður á við og hugsanlega eru þær við það að stöðvast í bili. Enn er þó mikil velta á fasteignamarkaði. Athygli vekur við skoðun á opinberum upplýsingum um þróun fasteignaverðs hve breytingar eru sveiflukenndar milli mánaða og vekur það spurningar um áreiðanleika þeirra.
6.12.2007
Almennar launahækkanir verðbólgufóður
„Að undanförnu hafa verið settar fram kröfur um miklar samningsbundnar launahækkanir frá ýmsum hópum sem ekki byggja á neinu faglegu mati á þróun á vinnumarkaði eða stöðu atvinnulífsins. Það leysir engin vandamál að nálgast kjarasamninga eins og einhvers konar kröfukeppni milli einstakra hópa.” Þetta segir
6.12.2007
Ályktun stjórnar SA um kjarasamninga og efnahagsmál
Kaupmáttur launa hefur aukist mjög á núverandi samningstímabili og meira en gerist meðal nálægra þjóða. Laun hafa hækkað mikið og verðbólga verið allt of mikil. Nú er tími til kominn að hægja á launa- og verðbreytingum. Þetta segir stjórn Samtaka atvinnulífsins í ályktun sem samþykkt var þann 4. desember. Í ályktuninni segir ennfremur að nýta eigi svigrúm í komandi kjarasamningum til að hækka lægstu laun og færa kauptaxta nær greiddum launum. Stjórnin telur ekki svigrúm til almennra launahækkana og að þær yrðu beinlínis skaðlegar íslensku efnahagslífi. Stjórnin styður áform um stofnun áfallatryggingasjóðs og hvetur stjórnvöld til ábyrgðar í hagstjórn. Varað er við nýrri og íþyngjandi lagasetningu sem dragi úr samkeppnishæfni atvinnulífsins án sýnilegs ávinnings s.s. á sviði jafnréttismála og samkeppnismála. Stjórn SA telur ekki svigrúm til nýrra kjarasamninga með auknum tilkostnaði atvinnulífsins verði umgjörð hagstjórnarinnar ekki bætt, aðhalds gætt í opinberum útgjöldum og verðbólgumarkmiði Seðlabankans breytt. Stjórn SA leggur áherslu á að launakostnaður opinberra aðila aukist ekki umfram það sem gerist í samningum SA á almennum vinnumarkaði.
6.12.2007
Hætta á að flugfargjöld hækki umtalsvert
Gangi áform framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins eftir um að fella útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá flugsamgöngum undir tilskipun sambandsins, mun það hafa meiri áhrif hér á landi en annars staðar og skekkja samkeppnisstöðu íslensks efnahags- og atvinnulífs gagnvart öðrum ríkjum Evrópu. Flugfargjöld til og frá Íslandi munu hækka verulega. Samtök smærri flugfélaga í Evrópu hafa gagnrýnt harðlega að ekki hafi farið fram mat á kostnaði eða áhrifum þessara áforma. Segja samtökin að verulega verði þrengt að flugi sem samgöngukosti en tekjur ríkja vegna aukinna gjalda á flugsamgöngur eiga m.a. að renna til að bæta lestarsamgöngur og ferðir hópferðabíla. Ráðherraráðið mun ræða málið og taka til atkvæðagreiðslu þann 20. desember næstkomandi.
4.12.2007
Atvinnulífið er hluti af lausn loftslagsvandans
Samtök atvinnulífsins á Norðurlöndunum sendu í dag bréf til forsætisráðherra Norðurlanda og umhverfisráðherra auk forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem hvatt er til þess að stjórnvöld og atvinnulíf vinni saman að því að finna lausnir á loftslagsvandanum.
3.12.2007
Háir skattar og reglubyrði draga mátt úr evrópskum fyrirtækjum
Ný rannsókn sem KPMG í Þýskalandi gerði meðal 800 fyrirtækja í löndum Evrópusambandsins sýnir að háir skattar, reglubyrði og ósveigjanlegur vinnumarkaður, eru meðal þess sem kemur í veg fyrir að þau vaxi og dafni með eðlilegum hætti. Þetta kemur niður á samkeppnishæfni Evrópu og verði ekki brugðist við munu Evrópubúar dragast aftur úr í alþjóðlegri samkeppni. Niðurstöðurnar voru kynntar nýverið á ráðstefnu Evrópusamtaka atvinnulífsins (BUSINESSEUROPE) í Brussel. Yfirskrift ráðstefnunnar var thinking BIG!











