Efnahags- og skattamál
26.1.2007
Hækkun fjármagnstekjuskatts eykur ekki réttlæti
Skatttekjur af fjármagnstekjum hafa aukist gríðarlega og nema 1,6% af landsframleiðslu og nálgast 20 milljarða króna. Fjármagnseigendur greiða því háar fjárhæðir til ríkisins en áður voru skatttekjur af fjármagnstekjum hverfandi. Þetta kemur fram í grein Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, á vef SA. Þar sýnir hann fram á að sú staðhæfing að skattlagning fjármagnstekna sé mun hagstæðari en skattlagning launatekna sé röng. Vilhjálmur bendir á að tekjuaukningin vegna fjármagnstekjuskatts og tekjuskatts fyrirtækja hafi numið um 3,5% af landsframleiðslu eða í kringum 40 milljörðum króna. Þessi mikla tekjuaukning sé forsenda þess að unnt hafi verið að lækka og jafnvel fella niður aðra skatta á síðustu misserum.
17.1.2007
Hátekjustörf vantar á landsbyggðinni
Á síðustu 10-15 árum hefur tekist að skapa eftirsóknarverð hálaunastörf á Íslandi og hafa umbætur í skattakerfinu átt stóran þátt í að skila langflestum Íslendingum almennt hærri tekjum en nokkru sinni fyrr. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir það þó vera vandamál að hálaunastörfin og háu tekjurnar hafi ekki skapast á öllum stöðum á landinu og því hafi nokkrar byggðir setið eftir í þróuninni. Þessar byggðir búi við launajöfnuð sem felist í of jafn lágum tekjum og betra væri fyrir þessi svæði að búa að fólki með háar tekjur – „þau vanti sárlega meiri misskiptingu".
12.1.2007
Aftur á bak eða áfram í skattamálum?
„Íslenskt atvinnulíf bíður eftir því að heyra hvort halda eigi áfram eða aftur á bak í skattamálum. Framhaldið mun ráða miklu um það hvort lífskjör á Íslandi haldast áfram í fremstu röð eða hvort við sígum niður úr hópi fremstu þjóða heims.” Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í erindi sem hann flutti á skattadegi Deloitte en þar kallaði hann eftir skýrum skilaboðum frá öllum stjórnmálaflokkum um það hvert þeir ætli að stefna í skattamálum atvinnulífsins. „Á að þróa áfram samkeppnishæft skattkerfi eða á að taka til baka það sem vel hefur tekist? Á að halda fjármagnstekjuskattinum í 10% og lækka tekjuskatt fyrirtækja enn frekar eða á að hækka hvort tveggja?”
11.1.2007
Efla þarf samkeppnishæfni skattkerfisins
Það er ekki í þágu hagsmuna íslensks samfélags að atvinnulífið skuli þurfa að notast við hjáleiðir eins og hollensk eignarhaldsfélög til þess að búa við samkeppnishæft skattumhverfi, segir
11.1.2007
Mikil aukning tekjuskattsgreiðslna fjármálafyrirtækja
Álagður tekjuskattur fyrirtækja árið 2006 vegna tekna á árinu 2005 nam 34,7 milljörðum króna. Þar af nam álagður tekjuskattur á fjármálafyrirtæki 13 milljörðum króna eða tæplega 40% af tekjuskatti fyrirtækja í heild. Álagður tekjuskattur fjármálafyrirtækja hefur rúmlega sexfaldast frá árinu 2004 þegar hann nam rúmum tveimur milljörðum króna. Þessar upplýsingar er að finna á vef RSK sem nýlega hefur birt sundurliðun álagningar á fyrirtæki eftir atvinnugreinum.
11.1.2007
Tugmilljóna skattahækkun mótmælt
Á fyrsta degi ársins tóku gildi breytingar á lögum um Póst- og fjarskiptastofnun sem fela í sér tugmilljóna króna hækkun á gjöldum fjarskiptafélaga til stofnunarinnar. Breytingarnar voru lagðar fram í frumvarpi til Alþingis á síðustu starfsdögum þess fyrir jólafrí og var afgreitt með hraði án samráðs við atvinnulífið. Samtök atvinnulífsins mótmæltu þessu harðlega en rökstuðning fyrir þessari skattahækkun skortir og líkur eru á að breytingarnar stangist á við ákvæði Evrópuréttar. Viðbúið er að fjarskiptafyrirtækin láti reyna á lögmæti þessarar auknu skattheimtu.
9.1.2007
Óheftri og órökstuddri skattheimtu mótmælt í umsögn til Alþingis
Í umsögn til landbúnaðarnefndar Alþingis lýsa Samtök atvinnulífsins eindreginni andstöðu við frumvarp um breytingar á lögum um eldi og heilbrigði sláturdýra, enda feli það í sér ógegnsæja og órökstudda skattlagningu á fyrirtæki. Bent er á að engin tilraun sé gerð til að leggja bönd á þann kostnað sem Landbúnaðarstofnun geti lagt á fyrirtæki, engin takmörk verði lögð á gjaldtöku á kjöti og engar áætlanir liggi fyrir um upphæð gjalda og ráðstöfun þeirra. SA mótmæla ennfremur vinnubrögðum landbúnaðarráðuneytisins sem hefur ítrekað hafnað því að ganga til samstarfs við hagsmunaaðila um að semja nútímalega eftilitslöggjöf. Ekki er lagst gegn því að greitt verði sanngjarnt gjald fyrir nauðsynlegt opinbert eftirlit.
8.1.2007
Skattadagurinn 2007
Skattadagur Deloitte, Samtaka atvinnulífsins, Viðskiptaráðs Íslands og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins verður haldinn föstudaginn 12. janúar á Grand Hótel Reykjavík frá kl. 8:15 til 10:30. Dagskráin fer fram í Gullteig og er hún fjölbreytt. Meðal þeirra sem flytja erindi er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, en hann mun fjalla um samkeppnishæfni skattkerfisins. Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku á netfangið skraning@deloitte.is eða í síma 580-3000. Léttur morgunverður á boðstólum, verð kr. 2.500. Sjá nánari dagskrá.











