Beint á leiðarkerfi vefsins

Efnahags- og skattamál

29.12.2006

Breytingar á Íbúðalánasjóði alvarleg mistök

Í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um hagstjórnarumhverfið og sambýli atvinnuveganna, kemur fram að alvarleg mistök hafi verið gerð þegar Íbúðalánasjóði var gert kleift að hækka hámarkslán og rýmka veðheimildir í kjölfar síðustu kosninga þrátt fyrir afgerandi viðvaranir óháðra innlendra og erlendra sérfræðinga. Í máli Tryggva Þórs Herbertssonar, sem kynnti skýrsluna fyrir jól, kom fram að afleiðingarnar hafi verið fyrirsjáanlegar og að þessar breytingar hafi valdið mikilli þenslu í hagkerfinu.

20.12.2006

Sveitarfélögin leika nánast lausum hala

Í helstu niðurstöðum nýrrar skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, Hagstjórnarumhverfið og sambýli atvinnuvega, kemur m.a. fram að sveitarfélögin á Íslandi leiki nánast lausum hala. Hallarekstur þeirra og vaxandi útgjöld ýti undir þensluna og breyting þurfi að verða á. Í niðurstöðunum kemur jafnframt fram að stjórn peningamála hafi verið of lengi að taka við sér, peningastefnan hafi ekki haft nægan stuðning af ríkisfjármálunum og nýjar aðstæður á fjármálamarkaði kunni að kalla á nýjan gjaldmiðil.

15.12.2006

Enn lækkar hlutfall matarútgjalda

Niðurstöður úr rannsókn á útgjöldum heimilanna fyrir árin 2003-2005 hafa verið gefnar út í nýju hefti Hagtíðinda. Þar kemur fram að hlutfall mat- og drykkjavöru í útgjöldum heimilanna heldur áfram að lækka miðað við árin 2002-2004, úr 14,4% í 12,9%. Athygli vekur að afar lítill munur er á hlutfalli matarútgjalda eftir útgjaldahópum. Tekjulág heimili verja hlutfallslega álíka stórum hluta útgjalda til kaupa á matvöru og tekjuhá heimili. Lækkun matarverðs leiðir því til tiltölulega jafnrar kaupmáttaraukningar allra heimila óháð tekjustigi.

7.12.2006

Krónan verðlögð út af markaðnum

Markaðshlutdeild krónunnar í íslenska bankakerfinu er um 20% en í íslenska lánakerfinu í heild er hlutdeildin aðeins 13%. Á undanförnum árum hafa ýmsar nýjungar á fjármagnsmarkaðnum gert hann virkari og meðal annars valdið því að lántakendur hafa betri möguleika en áður að taka lán í öðrum gjaldmiðlum en krónunni. Þessi þróun hlýtur að halda áfram og háir vextir á krónunni minnka því markaðshlutdeild hennar og þýðingu fyrir hagstjórn, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann veltir fyrir sér virkni stjórnar peningamála við þessar aðstæður og minnir á að gengi krónunnar hefur farið lækkandi að undanförnu þrátt fyrir metvexti.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english