Beint á leiðarkerfi vefsins

Efnahags- og skattamál

27.1.2006

Orkulindin Ísland – erindi ræðumanna

Fjöldi fróðlegra erinda var fluttur og fjörlegar umræður voru í pallborði á Orkulindinni Ísland, fjölsóttri ráðstefnu um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi sem haldin var á Hótel Nordica. Fjallað var um efnahagsmál, nýja Gallup-könnun, umhverfismál, samfélagsleg áhrif virkjana og álvera á nærsvæðum, sviptivinda í umræðunni fyrr og nú, hátæknistörf, þekkingariðnað, útflutning þekkingar og umhverfi starfsfólks. Alls sóttu á fjórða hundrað manns ráðstefnuna sem haldin var í samstarfi Samorku, SA og SI. Erindin og umfjöllun um pallborðsumræður má finna hér á vef SA.

27.1.2006

Áhugaverðar og líflegar pallborðsumræður á Orkulindinni

Landvernd hefur áhyggjur af miklum áformum um virkjana- og álversframkvæmdir, störf í áliðnaði eru góð störf, trygg og vel launuð, dæmi er um að íslensk orkufyrirtæki hafi haft umhverfisstefnu frá árinu 1920, álver eru hátæknifyrirtæki en pakka ekki niður og flytja úr landi, verðmæti Bláa lónsins er vart minna en ósnerts hrauns, vel launuð störf eru forsenda velferðarkerfis og það eru engin ófaglærð störf í álverum. Þetta er meðal þess sem fram kom í pallborðsumræðum á Orkulindinni Ísland, fjölsóttri ráðstefnu um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi.

Raforkuvæðing og stóriðja: Fyrsti hátækniiðnaðurinn

Virkjun raforku og álframleiðsla voru fyrstu hátæknigreinarnar í íslensku atvinnulífi. Þetta kom fram í erindi Ágústs Valfells, lektors við Háskólann í Reykjavík, á ráðstefnu SA, SI og Samorku - Orkulindinni Ísland. Ágúst fjallaði um þróun íslensks atvinnulífs og um gríðarlegt mikilvægi orku- og álframleiðslu í þróun íslensks samfélags úr einföldu bændasamfélagi yfir í fjölbreytt þekkingarsamfélag. Hann lagði áherslu á að hátækni yrði ekki til í tómarúmi og nefndi m.a. að Landsvirkjun hefur undanfarin ár varið um tveimur milljörðum árlega til kaupa á rannsóknar- og hönnunarþjónustu.

27.1.2006

Atvinnurekstur er forsenda byggðar

Atvinnulíf og atvinnurekstur er forsenda byggðar eða a.m.k. mikilvægasta undirstaða hennar. Ef engin fyrirtæki og engin starfsemi er til staðar, þá er engin forsenda fyrir byggð! Þetta sagði Guðmundur Páll Jónsson, bæjarstjóri Akranesskaupstaðar, í erindi sínu á Orkulindinni Ísland – ráðstefnu SA, SI og Samorku um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi. Hann fjallaði m.a. um nábýli Akraness við stóriðju á Grundartanga og jákvæð áhrif þessara fyrirtækja á íbúaþróun, aðra atvinnustarfsemi og menntun á Akranesi.

27.1.2006

Framkvæmdirnar hafa valdið þáttaskilum á Austurlandi

Landshluti sem var í mikilli vörn er nú í sókn á mörgum sviðum og framkvæmdirnar vegna álvers á Reyðarfirði hafa þannig valdið þáttaskilum á Austurlandi. Þetta var meðal þess sem kom fram í erindi Smára Geirssonar, forseta bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, á ráðstefnu SA, SI og Samorku – Orkulindinni Ísland. Smári fjallaði um 900 ný störf, 750 nýjar íbúðir, aukna bjartsýni, framkvæmdahug o.fl.

27.1.2006

Mikill meirihluti með frekari virkjunum

76% landsmanna eru hlynnt aukinni virkjun gufuafls en 10% andvíg. 57% eru hlynnt frekri virkjun vatnsafls, en 27% andvíg. 58% eru jákvæð í garð frekari uppbyggingar áliðnaðar sem byggir á gufuaflsorku, 26% neikvæð. 52% eru hlynnt frekari uppbyggingu áliðnaðar sem byggir á vatnsafli, 34% andvíg. Þetta er meðal niðurstaðna Gallup-könnunar sem kynnt var á Orkulindinni Ísland – ráðstefnu um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi.

27.1.2006

Hagstjórnarvandi en verkefnið viðráðanlegt

Því fylgir áhætta að fjárfesta í áli og orku, eins og öðrum fjárfestingum, en meiri áhætta er tekin með því að gera það ekki. Þetta var meðal þess sem kom fram í erindi Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallar Íslands, á ráðstefnu SA, SI og Samorku – Orkulindinni Ísland. Þórður fjallaði um hagstjórnarvandann og varaði við að hættu á harkalegri lendingu, en sagði verkefnið þó viðráðanlegt og niðurstöðuna undir sjálfum okkur komna. Þá sagði hann mikilvægt að markaðsvæða orkufyrirtækin, sem gæfi þeim aukið svigrúm og tryggði að ákvarðanir yrðu teknar á viðskiptalegum forsendum.

25.1.2006

Gífurlegt ósamræmi í lífeyriskjörum

Það er gífurlegt ósamræmi á milli þeirra lífeyriskjara sem lögfest hafa verið hér fyrir almenning í landinu og fyrir opinbera starfsmenn í A-deild lífeyrissjóða og hins vegar þess sem Alþingi hefur lögfest fyrir þingmenn og ráðherra, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Viðskiptablaðið. Þar sé í mörgum tilfellum í raun um að ræða stærstu og dýrustu starfslokasamninga sem um getur hér á landi. Þá sé B-deildin gríðarlega dýr fyrir skattborgara landsins.

16.1.2006

Erindi frá skattadegi komin á vefinn

Erindi ræðumanna frá skattadegi Deloitte, SA, Viðskiptaráðs og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins, eru nú aðgengileg í heild sinni á vefnum. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, ræddi um alþjóðavæðinguna og íslenska skattkerfið, Árni Harðarson, yfirmaður Skatta- og lögfræðisviðs Deloitte, greindi það sem enn má bæta í íslensku skattkerfi. Stig Madsen, einn eiganda Deloitte í Danmörku, ræddi um hvernig hyggilegast er að byggja upp kaup á dönskum félögum. Árni Jón Árnason, verkefnisstjóri í Fjármálaráðgjöf Deloitte, fjallaði um skattaleg áhrif Basel II. Þá fjallaði Kristján Gunnar Valdimarsson, forstöðumaður hjá Landsbanka Íslands, um áhrif Evrópuréttar á íslenska skattkerfið. Sjá nánar á vef Deloitte.

12.1.2006

Breytinga þörf í skattkerfinu

Í ræðu sinni á Skattadegi Deloitte, SA, Viðskiptaráðs og Viðskiptablaðs Morgunblaðsins, sagði Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, að breytinga væri þörf í íslensku skattkerfi. Íslensk stjórnvöld hefðu sýnt framsýni með því að stuðla að bættu skattaumhverfi á Íslandi en gera þyrfti betur. Svo virtist sem samkvæmni skorti milli stefnumörkunar stjórnvalda og eftirfylgni þeirra stofnana sem færu með framkvæmd skattamála. Hömlur væru á fjárfestingu og arðgreiðslum milli landa og Ísland hefði setið eftir við gerð tvísköttunarsamninga. Sjá nánar ræðu Ingimundar (PDF).

5.1.2006

Takk fyrir ánægjulegan tíma

Ég hef haft ómælda ánægju af þessu starfi og vil að lokum þakka öllum aðildarfyrirtækjum samtakanna fyrir að hafa fengið tækifæri til að vinna að málefnum íslensks atvinnulífs á þessum skemmtilegu uppgangs og umbrotatímum, segir Ari Edwald, fráfarandi framkvæmdastjóri SA, m.a. í kveðjuleiðara í fréttabréfinu Af vettvangi. Ari hefur störf sem forstjóri 365 fjölmiðla þann 1. febrúar nk., en hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra SA frá stofnun samtakanna haustið 1999.

5.1.2006

Skattahækkanir sveitarfélaga á fyrirtæki

Á sama tíma og fréttir berast af því að sveitarfélög á suðvesturhorni landsins hafi ákveðið að lækka álagningahlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði, sökum óvenju mikilla hækkana á fasteignaverði, hafa þau ákveðið að láta ekki það sama ganga yfir atvinnuhúsnæði, og hækka þar með verulega skatta á atvinnulífið. Atvinnuhúsnæði er nú þegar skattlagt margfalt hærra en íbúðarhúsnæði og hafa Samtök atvinnulífsins áætlað að álagður fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði hækki að óbreyttu um 1,1 milljarð króna á þessu ári, eða um tæpar 800 milljónir að raunvirði. Á sama tíma er verið að fella niður eignarskatt ríkissjóðs á fyrirtæki, m.a. vegna galla þessa skattforms, og er því stefna sveitarstjórna á suðvesturhorni landsins um stórhækkun fasteignaskatta á atvinnulífið í hróplegu ósamræmi við aðgerðir ríkisstjórnarinnar til umbóta í skattamálum.

5.1.2006

Skattadagur Deloitte, SA, VÍ og Viðskiptablaðs Mbl 12. janúar

Fimmtudagsmorguninn 12. janúar nk. verður skattadagur Deloitte haldinn á Hótel Nordica, í samstarfi við Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Viðskiptablað Morgunblaðsins. Fjallað verður um samskipti skattayfirvalda og atvinnulífsins, breytingar á skattalögum árið 2005, áhrif Evrópuréttar á íslenskar skattareglur o.fl. Ingimundur Sigurpálsson, formaður SA, mun fjalla um alþjóðavæðinguna og íslenska skattkerfið. Sjá dagskrá fundarins á vef Deloitte.

5.1.2006

Orkulindin Ísland – ráðstefna um gildi ál- og orkuframleiðslu

Föstudaginn 27. janúar nk. munu Samorka, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins standa fyrir ráðstefnu á Hótel Nordica um gildi ál- og orkuframleiðslu á Íslandi. Fjallað verður um hagvöxt, umhverfismál, atvinnumál, þekkingariðnað, umhverfi starfsfólks, viðhorf almennings o.fl. Formaður Landverndar og fulltrúar Alcan, Alcoa, Hitaveitu Suðurnesja, Landsvirkjunar, Norðuráls og Orkuveitu Reykjavíkur munu ræða stöðu og horfur.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english