Beint á leiðarkerfi vefsins

Efnahags- og skattamál

30.9.2005

Stýrivaxtastefna Seðlabankans er í öngstræti

Seðlabankinn getur ekki brugðist við versnandi verðbólguhorfum og vaxandi verðbólguvæntingum með öðrum hætti en að hækka stýrivexti, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, í samtali við Morgunblaðið. Hann segir ljóst að raungengi krónunnar sé í sögulegu hámarki og að stór hluti fyrirtækja hafi ekki rekstrargrundvöll við þessar aðstæður. Seðlabankinn sé afskaplega einn á báti í baráttunni gegn verðbólgu og stýrivaxtastefna bankans sé komin í öngstræti.

19.9.2005

Verðbólgan minnst hérlendis innan EES

Samræmd vísitala neysluverðs í EES-ríkjum hækkaði um 0,3% frá júlí til ágúst sl. Á sama tíma lækkaði vísitalan fyrir Ísland um 0,2% frá fyrra mánuði. Frá ágúst 2004 til jafnlengdar árið 2005 var verðbólgan, mæld með samræmdri vísitölu neysluverðs, 2,2% að meðaltali í ríkjum EES. Lægst var hún á Íslandi, 0,4%, en 1,0% í Svíþjóð og Finnlandi. Mest mældist verðbólgan í Lettlandi, 6,3% og í Lúxemborg, 4,3%. Sjá nánar á vef Hagstofunnar.

8.9.2005

Uppskriftin að velgengni Norðurlanda á heimsvísu birt

Samtök atvinnurekenda á Norðurlöndum hafa búið til sameiginlega uppskrift að því hvernig Norðurlöndin geti tryggt áframhaldandi velgengni sína á heimsvísu. Uppskriftin er birt í skýrslunni The Nordic recipe for global success. Skýrslan fjallar um það hvernig Norðurlöndin geti brugðist við sífellt harðnandi alþjóðlegri samkeppni og í henni kemur fram að Norðurlandaþjóðirnar verði að sækja í sig veðrið, með því að bæta starfsumhverfi atvinnulífsins og efla menntun fólks enn frekar, ef takast eigi að tryggja velferð þjóðanna til framtíðar.

1.9.2005

Samkeppnisstaða fyrirtækja aldrei verið verri

Raungengi krónunnar á mælikvarða verðlags er um þessar mundir hærra en nokkru sinni og er samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja verri en hún hefur verið frá upphafi þessara mælinga. Hannes G. Sigurðsson, aðstoðar-framkvæmdastjóri SA, segir í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi að því fari fjarri að hagkerfið geti staðið undir núverandi gengi krónunnar. Gríðarlegur viðskiptahalli beri því órækt vitni. Hagnaður atvinnulífsins í heild hafi farið minnkandi samhliða hækkandi raungengi. Vissulega finnist ánægjulegar undantekningar í Kauphöllinni, en sá hagnaður eigi að stórum hluta rætur að rekja til starfsemi erlendis.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english