Efnahags- og skattamál
17.9.2003
Kaupmáttur jókst um 3,2%
Á tímabilinu frá 2. ársfjórðungi 2002 til 2. ársfjórðungs 2003 hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,2%, samkvæmt niðurstöðum launakönnunar Kjararannsóknar-nefndar (KRN). Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 2,0% og samkvæmt því jókst kaupmáttur að meðaltali um 3,2%. Sjá nánar í fréttabréfi KRN.
5.9.2003
Samneyslan hækkar hér en lækkar á Norðurlöndum
Hlutfall samneyslu af landsframleiðslu hefur vaxið hratt hér á landi síðustu áratugi, en hefur hins vegar staðið í stað eða lækkað á hinum Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í nýlegri skýrslu OECD. Af Norðurlöndunum er hlutur samneyslunnar einungis hærri í Svíþjóð.
4.9.2003
Lifi samkeppnin
„Loksins, loksins er að myndast almennur skilningur á þeirri brýnu nauðsyn sem er á endurskoðun samkeppnislaga,“ segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara frétta-bréfsins Af vettvangi. Mikilvægt sé þó að betur verði vandað til verka en við síðustu endurskoðun laganna. Ari segir samkeppni hafa stóraukist í íslensku viðskiptalífi og að mikil tækifæri séu til lífskjarabóta með því að ljúka upp fyrir samkeppni þar sem hún er nú lítil eða engin.











