Efnahags- og skattamál
29.1.2003
Efla þarf samkeppnishæfni Evrópu
Á fundi UNICE, Evrópusamtaka atvinnulífsins, með forseta ráðherraráðs ESB lýstu samtökin áhyggjum af sam-keppnishæfni Evrópu. Í nýrri skýrslu samtakanna er m.a. fjallað um háan launakostnað, háa skatta og mikla reglubyrði evrópskra fyrirtækja, og lagðar fram tillögur til úrbóta.
23.1.2003
Vaxandi áhyggjur af þróun peningamála
SA hafa vaxandi áhyggjur af þróun peningamála í landinu. Gengi krónunnar hefur hækkað það mikið að verulega þrengir að samkeppnisstöðu atvinnulífsins, stefnan er í átt til verðhjöðnunar og mikill slaki á vinnumarkaði. Nauðsyn-legt er að stuðla að lækkun gengis með lækkun stýrivaxta.
22.1.2003
Enn meiri launahækkanir í opinbera geiranum
Laun opinberra starfsmanna og bankamanna hækkuðu að meðaltali um 7,3% á 4. ársfjórðungi 2002 árs miðað við sama tíma árið 2001. Á almennum markaði hækkuðu laun á sama tíma um 4,6%. Í heild hækkaði launavísitala Hagstofunnar um 5,8%.
15.1.2003
Stefnir í verðhjöðnun
Vísitala neysluverðs í janúar hækkaði um 0,36% frá fyrra mánuði. Í samtali við Morgunblaðið segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, stefna í verðhjöðnun. Hann segir verðbólgu á fasteignamarkaði meginskýringu hækkunar vísitölunnar nú og vísar til aukinnar húsbréfaútgáfu.
9.1.2003
Stóriðjuframkvæmdir
Umræður um umhverfismál virðast í ákaflega einlitum farvegi á Íslandi, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Hann segir óeðlilegt að erlend samtök blandi sér um of í ákvarðanir fullvalda þjóðar um þessi málefni. Það kunni ekki góðri lukku að stýra eins og reynslan kenni.
9.1.2003
Fyrirtæki hyggjast fækka fólki
Að meðaltali hyggjast fyrirtæki fækka starfsfólki um 1,55% á næstunni, samkvæmt könnun SA. Þetta er talsvert hærri tala en mælst hefur að undanförnu. Einkum hyggjast stærri fyrirtæki fækka fólki. Hlutfallslega er mest fækkun framundan í sjávarútvegi og meiri á landsbyggð en á höfuðborgarsvæði.

6.1.2003
65% kaupmáttaraukning lágmarkslauna frá 1995
Kaupmáttur lágmarkskauptaxta hefur aukist um 58% frá því í janúar 1995. Á sama tíma hefur kaupmáttur lágmarkstekjutryggingar aukist um 65%.
2.1.2003
Vaxandi hlutur samneyslunnar
Hagvöxtur var neikvæður á þriðja ársfjórðungi 2002 um sem nemur 1,6%. Samfara minni verðmætasköpun jókst hins vegar samneyslan um 6,5%. Hlutur opinbers rekstrar í efnahagslífinu, sem hefur aukist mikið undanfarin ár, hefur nú náð nýju hámarki, eða rúmlega 25%.