Beint á leiðarkerfi vefsins

Efnahags- og skattamál

30.12.2001

Lítið dregið úr áræðni og stórhug margra fyrirtækja

Í áramótaviðtali Morgunblaðsins við Finn Geirsson, formann SA, segir hann m.a. ánægjulegt að sjá að þrátt fyrir ýmis vonbrigði og áföll á liðnu ári hafi lítið dregið úr áræðni og stórhug margra fyrirtækja. Hann segir brýnt að búa svo um hnúta að gengi krónunnar haldist sem stöðugast.

21.12.2001

Víða samdráttur framundan

Samkvæmt nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar má vænta umtalsverðs samdráttar í byggingariðnaði og nokkurs samdráttar í iðnaði og verslun, en stöðugleika eða lítilsháttar vaxtar í fjármálaþjónustu og ýmissi annarri þjónustu. Atvinnuleysi fer vaxandi.

13.12.2001

Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar vegna samkomulags SA og ASÍ

Ríkisstjórnin hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna samkomulags Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins.

7.12.2001

Launakönnun KRN fyrir 3. ársjórðung 2001

Dagvinnulaun hækkuðu að meðaltali um 7,6% frá 3. árfsjórðungi 2000 til 3. ársfjórðungs 2001, en vísitala neysluverðs um 8% á sama tíma. Kaupmáttur dagvinnulauna rýrnaði því að meðaltali um 0,3% á þessu tólf mánaða tímabili, en hefur að jafnaði vaxið um 5% á samningstímanum, þ.e. frá ársbyrjun 2000.

6.12.2001

Lægstu launin hækka mest

Kaupmáttur launa á almennum vinnumarkaði hefur vaxið um 5% frá gerð kjarasamninga. Þá hefur gengið eftir það markmið samninganna að þeir lægst launuðu hafa hækkað umfram aðra. Þetta er ótvíræð niðurstaða úrvinnslu á gögnum Kjararannsóknarnefndar.

6.12.2001

Tilraunarinnar virði

Markmið síðustu kjarasamninga hafa haldið betur í verðbólgu undangenginna mánaða en margir óttuðust, segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Mælingar á almennum vinnumarkaði sýna að lægri laun hafa hækkað meira en þau hærri. Það er tilraunarinnar virði að treysta undirstöður þessara samninga og forða því að uppúr slitni með hörmulegum afleiðingum fyrir alla.

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english