Beint á leiðarkerfi vefsins

Efnahags- og skattamál

12.12.2000

Einkavæðingu verði hraðað

Stjórn Samtaka atvinnulífsins ályktaði á fundi sínum í dag að hraða bæri einkavæðingu opinberra fyrirtækja í fjarskipta-, fjármála- og orkugeira. Stjórnin gagnrýnir vöxt ríkisútgjalda samkvæmt nýsamþykktum fjárlögum. Hún hvetur til ítrasta aðhalds hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum til þess að hægt sé að tryggja markmið kjarasamninga, efnahagslegan stöðugleika og bætt lífskjör.   Sjá nánar

7.12.2000

Næstu mánuðir skipta sköpum

Við þær aðstæður sem nú eru, að næstu örfáir mánuðir skipta sköpum um framhald verðstöðugleika og þróun efnahagslífs, er rétt að allir aðilar sýni aðhald og fresti og endurmeti þörf á hækkunum. Það á jafnt við verðhækkanir einkafyrirtækja sem gjaldskrár- og skattahækkanir ríkis og sveitarfélaga. Það hefur í raun verið boðið upp á á þjóðarsátt um það markmið að koma í veg fyrir kollsteypu í íslensku efnahagslífi - hefur einhver efni á að sleppa því tækifæri? skrifar Ari Edwald, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfs SA.  Sjá nánar

RSS-efnisveita SA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english