Beint á leiðarkerfi vefsins

Efnahags- og skattamál

0 - 10

28.10.2011

Stefnukreppa á Íslandi

VÍB stóð í vikunni fyrir fræðslufundi undir yfirskriftinni Ísland - í endurreisn eða stefnukreppu? Martin Wolf, yfirhagfræðingur á Financial Times, ásamt Vilhjálmi Egilssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, Katrínu Ólafsdóttur, lektor í Háskólanum í Reykjavík og Heiðari Má Guðjónssyni, fjárfesti, ræddu efnahagslega stöðu Íslands. Vilhjálmur velti upp þeirri spurningu hvort stjórnvöld væru fær um að skapa réttu aðstæðurnar fyrir kröftuga atvinnusköpun og umtalsverðar fjárfestingar í atvinnulífinu sem væri lykillinn að því að komast út úr kreppunni.

1 - 10
1 - 10

28.10.2011

Gjaldeyrishöftin dýr mistök og hamla hagvexti

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði á ráðstefnu stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Hörpu sem fram fór í gær, að gjaldeyrishöftin hefðu verið dýr mistök og væru í raun vantraustsyfirlýsing á gjaldmiðilinn. „Hver ætti að trúa á krónuna ef íslensk stjórnvöld gera það ekki?" spurði Vilhjálmur.
2 - 10
2 - 10
2 - 10

27.10.2011

Kakan minnkar á meðan karpað er

Hvar liggja mörkin í skattheimtu? Áhrif á fólk og fyrirtæki var yfirskrift fundar Deloitte, Samtaka fjárfesta, Kauphallarinnar og Samtaka atvinnulífsins sem fram fór 21. október sl. Skattastefna stjórnvalda var harðlega gagnrýnd á fundinum og hún beinlýnis sögð skaðleg. Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, velti því upp hvort ekki væri orðið tímabært að stofna samtök skattborgara en hann líkti eignaskattsstefnu stjórnvalda við eignaupptöku.

3 - 10
3 - 10
3 - 10

21.10.2011

Glærur frá skattafundi Deloitte, Samtaka fjárfesta, Kauphallarinnar og SA

Hvar liggja mörkin í skattheimtu? Áhrif á fólk og fyrirtæki var yfirskrift fundar Deloitte, Samtaka fjárfesta, Kauphallarinnar og Samtaka atvinnulífsins sem fram fór í morgun á Hilton Reykjavík Nordica. Um 150 manns sóttu fundinn en glærur frummælenda má nú nálgast á vef SA.
4 - 10
4 - 10
4 - 10

20.10.2011

Horfur á að útflutningur og erlend starfsemi fyrirtækja aukist

Sóknarhugur er í fyrirtækjum sem starfa í útflutningsgreinum eða eru með starfsemi erlendis. Ríflega helmingur þeirra (56%) hyggst auka útflutning eða erlenda starfsemi á næstu 2-3 árum, tæpur þriðjungur (29%) telur það óvíst en 15% fyrirtækjanna hyggjast ekki gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun Samtaka atvinnulífsins á rekstrarhorfum fyrirtækja innan SA sem gerð var dagana 6.-11. október 2011. Um 27% fyrirtækjanna sem tóku þátt í könnuninni  starfa í útflutningi eða eru með starfsemi erlendis.

5 - 10
5 - 10
5 - 10

18.10.2011

Þriðjungur fyrirtækja telur aðgerðir stjórnvalda sitt helsta vandamál

Rúmlega þriðjungur aðildarfyrirtækja Samtaka atvinnulífsins telur aðgerðir stjórnvalda vera helsta vandamál fyrirtækisins við núverandi aðstæður og tæplega fjórðungur til viðbótar setur aðgerðir stjórnvalda í annað sæti meðal helstu vandamála þeirra. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á rekstrarhorfum fyrirtækja sem gerð var dagana 6.-11. október 2011. Um 70% fyrirtækja í sjávarútvegi telja aðgerðir stjórnvalda vera helsta vandamál fyrirtækisins og um 40% í verslun og þjónustu.
6 - 10
6 - 10
6 - 10

13.10.2011

Framkvæmdastjóri SA: Ryðjum hindrunum úr vegi

„Skortur á fjárfestingum, slakur hagvöxtur og viðvarandi atvinnuleysi eru stóru atriðin sem vantar í þá glæsimynd sem stjórnvöld draga upp af árangri sínum af samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þrátt fyrir að segjast í orði sem á borði vera sammála aðilum vinnumarkaðarins um nauðsyn fjárfestinga og hagvaxtar hafa hugmyndafræðileg vandamál og þörf fyrir blóraböggla staðið í vegi fyrir því að góð tækifæri hafi nýst og árangur lætur á sér standa." Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, m.a. í leiðara fréttabréfs SA.


Vilhjálmur lítur yfir farinn veg í tilefni af því að þrjú ár eru liðin frá efnahagshruninu í október 2008. Hann segir árangur efnahagsáætlunarinnar með AGS fyrst og fremst hafa falist í auknum aga í efnahagsmálum en með óhóflegum skattahækkunum og niðurskurði hafi í stórum dráttum tekist að ná utan um hallarekstur ríkissjóðs. Hann segir að mistekist hafi að skapa stórum sem smáum fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum eðlilegt fjárfestingarumhverfi. Skapa þurfi aðstæður sem fyrst til að þau geti sótt fram, ráðið fólk í vinnu og skapað verðmæti.

7 - 10
7 - 10
7 - 10

13.10.2011

Kyrrstaða á almennum vinnumarkaði og slakar horfur

Rúmur helmingur (55%) aðildarfyrirtækja SA áætla að ekki verði breytingar á starfsmannafjölda fyrirtækja þeirra á þessu ári. Tæpur fjórðungur (24%) áætla að starfsmönnum fyrirtækjanna fækki og rúmur fimmtungur (21%) að þeim fjölgi. Þegar þessar niðurstöður eru vegnar saman eftir stærð fyrirtækja fæst að heildarfjöldi starfa á almennum vinnumarkaði verði óbreyttur milli áranna 2010 og 2011. Starfsmönnum fjölgar í ferðaþjónustu og sjávarútvegi en fækkar í fjármálaþjónustu, verslun og þjónustu og iðnaði.

 

Á næstu sex mánuðum hyggjast sex af hverjum tíu (63%) aðildarfyrirtækjum SA ekki gera breytingar á starfsmannafjölda, 18% áforma fjölgun starfsmanna en 19% fækkun.  Þegar niðurstöðurnar eru vegnar með starfsmannafjölda atvinnugreinanna þá koma fram heldur meiri áform um fækkun starfsmanna þar sem fyrirtæki með 21% starfsmannafjöldans hyggjast fækka en þau með 17% starfsmannafjöldans hyggjast fjölga.

8 - 10
8 - 10
8 - 10

13.10.2011

Enn horfur á lítilli atvinnuvegafjárfestingu

Nærri sex af hverjum tíu aðildarfyrirtækjum SA hyggjast ekki leggja í umtalsverðar fjárfestingar eða endurbætur á næsta ári, 27% telja það óvíst en einungis 14% hyggjast gera það. Þetta kemur fram í nýrri könnun SA á fjárfestingaráformum fyrirtækjanna.

 

Þegar svörum er skipt eftir atvinnugreinum kemur í ljós að niðurstöður í sjávarútvegi, iðnaði, og verslun og þjónustu eru svipaðar heildarniðurstöðunni, þ.e. 11-14% fyrirtækjanna í þessum greinum áforma fjárfestingar á næsta ári, en 55-62% ætla ekki að gera það. Fjárfestingaáformin eru algengust í ferðaþjónustu þar sem 26% fyrirtækjanna hyggjast ráðast í fjárfestingar en 35% ekki. Í fjármálaþjónustu hyggjast 79% fyrirtækjanna ekki ráðast í fjárfestingar.

9 - 10
9 - 10
9 - 10

10.10.2011

4-5% hagvöxtur nauðsynlegur

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að fjögurra til fimm prósenta hagvöxtur sé nauðsynlegur ef Ísland eigi að ná fyrri styrk á árunum 2015 til 2016. Allt undir því sé stöðnun eða of hægur bati og því ekki boðlegt. Vilhjálmur var frummælandi á hádegisfundi Félags frjálslyndra jafnaðarmanna í liðinni viku þar sem hann lét ofantalin orð falla en fjallað var um fundinn í Fréttablaðinu.
RSS-efnisveita SA

Hús atvinnulífsins
Borgartúni 35 - 105 Reykjavík
---------- 
Rjúfum kyrrstöðuna - smelltu til að sækja
SMELLTU TIL AÐ SÆKJA

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Hamur fyrir sjónskerta Prenta þessa síðu Veftré

Fánar

In english